Morgunblaðið - 24.01.1999, Blaðsíða 2
2 E SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUGLÝSING AlR
tíllt1tlB1(
RÍ(ieVB7B7Kq
uiimii
Háskóli íslands
Læknadeild
Við læknadeild Háskóla íslands er laust til um-
sóknar starf dósents í lyflæknisfræði.
Starfið felur í sér kennslu í lyflæknisfræði og
undirgrein hennar eftir því sem við á.
Rannsóknarsvið dósentsins erá sviði sérgrein-
ar hans og mun HÍ eftir atvikum útvega að-
stöðu til slíkra rannsókna, auk þess sem vænst
er að dósentinn fái starfsaðstöðu á Landspítala
eða Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Gert er ráð fyrir að starfið verði veitt frá 1. júní
1999 enda verði störfum dómnefnda þá lokið.
Umsókn þarf að fylgja greinargóð skýrsla um
vísindastörf umsækjanda, rannsóknirog rit-
smíðar (ritaskrá), svo og yfirlit um námsferil
og störf (curriculum vitae) og eftir atvikum
vottorð. Með umsókn skulu send þrjú eintök
af vísindalegum ritum og ritgerðum, birtum
og óbirtum, sem umsækjandi óskar eftir að
tekin verði til mats. Þegar höfundar eru fleiri
en umsækjandi skal hann gera grein fyrir hlut-
deild sinni í rannsóknum sem lýst er í ritverk-
unum. Ef um er að ræða mikinn fjölda ritverka
er æskilegt að innsending af hálfu umsækj-
anda og mat dómnefndar takmarkist við 20
helstu fræðileg ritverk sem varða hið auglýsta
starfssvið. Æskilegt er að umsækjendur geri
grein fyrir því hverjar rannsóknarniðurstöður
sínar þeir telja markverðastar. Ennfremur er
óskað eftir greinargerð um þær rannsóknir
sem umsækjandi vinnur að og hyggst vinna
að verði honum veitt starfið (rannsóknaráætl-
un) og þá aðstöðu sem til þarf. Loks er ætlast
til þess að umsækjandi láti fylgja með umsagn-
ir um kennslu- og stjórnunarstörf sín eftir því
sem við á.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags há-
skólakennara og fjármálaráðherra og raðast
starf dósents í launaramma C samkvæmt for-
sendum röðunar starfa í samkomulagi aðlög-
unarnefndar.
Umsóknarfrestur ertil og með 22. febrúar 1999
og skal skriflegum umsóknum skilað í þríriti
til starfsmannasviðs Háskóla íslands, Aðal-
byggingu, við Suðurgötu, 101 Reykjavík.
Um lágmarkshæfiskröfurtil umsækjenda um
störfin er vísað til 7. gr. laga nr. 136/1997 um
háskóla en í 4. mgr. 11.gr. laga um Háskóla
(slands segir að dómnefnd, sem skipa skal
hverju sinni til þess að dæma um hæfi um-
sækjenda tii að gegna starfi lektors/dósents,
skuli láta uppi rökstutt álit um það hvort af vís-
indagildi rita umsækjenda og rannsókna megi
ráða að þeir séu hæfir til að gegna starfinu.
Um veitingu starfsins gilda ákvæði 1 .—4. mgr.
11.gr. sömu laga en nánar er fjallað um með-
ferð máls í reglum nr. 366/1997 um veitingu
starfa háskólakennara. Móttaka allra umsókna
verður staðfest bréflega og umsækjendum
síðan greint frá því hvernig starfinu hafi verið
ráðstafað þegar sú ákvörðun liggur fyrir.
Nánari upplýsingar gefa Þórður Harðarson
prófessor í síma 560 1266 á Landspítala og Jó-
hann Ag. Sigurðsson forseti læknadeildar í
síma 525 4880.
Læknadeild
Við læknadeild Háskóla íslands eru laus til um-
sóknar eftirtalin hlutastörf:
1. Starf dósents, 37%, í líffræðilegum geð-
lækningum með áherslu á rannsóknir og
kennslu í sameindalíffræði geðsjúkdóma,
klíniskri geðlyfjafræði og taugageðlækning-
um. Dósentinn starfi sem sérfræðingur á
geðdeild Landspítala.
2. Starf lektors, 25%, í slysa- og áfallageðlækn-
ingum. Lektorinn starfi sem sérfræðingur
á geðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur.
3. Starf lektors, 25%, í barna- og unglingageð-
lækningum. Af hálfu læknadeildar verður
leitast við að starfið muni tengjast sérfræð-
ingsstarfi á barna- og unglingageðdeild
Landspítala.
Gert er ráð fyrir að störfin verði veitt frá 1.
ágúst 1999 enda verði störfum dómnefnda
þá lokið. Ráðið verður í störfin til tveggja ára
með möguleika á framlengingu.
Umsókn þarf að fylgja greinargóð skýrsla um
vísindastörf umsækjanda, rannsóknirog rit-
smíðar (ritaskrá), svo og yfirlit um námsferil
og störf (curriculum vitae) og eftir atvikum
vottorð. Með umsókn skulu send þrjú eintök
af vísindalegum ritum og ritgerðum, birtum
og óbirtum, sem umsækjandi óskar eftir að
tekin verði til mats. Þegar höfundar eru fleiri
en umsækjandi skal hann gera grein fyrir hlut-
deild sinni í rannsóknum sem lýst er í ritverk-
unum. Ef um er að ræða mikinn fjölda ritverka
er æskilegt að innsending af hálfu umsækj-
anda og mat dómnefndar takmarkist við 20
helstu fræðileg ritverk sem varða hið auglýsta
starfssvið. Æskilegt er að umsækjendur geri
grein fyrir því hverjar rannsóknarniðurstöður
sínar þeir telja markverðastar. Ennfremur er
óskað eftir greinargerð um þær rannsóknir
sem umsækjandi vinnur að og hyggst vinna
að verði honum veitt starfið (rannsóknaráætl-
un) og þá aðstöðu sem til þarf. Loks er ætlast
til þess að umsækjandi láti fylgja með umsagn-
ir um kennslu- og stjórnunarstörf sín eftir því
sem við á.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags há-
skólakennara og fjármálaráðherra og raðast
starf lektors í launaramma B en starf dósents
í launaramma C samkvæmt forsendum röðun-
ar starfa í samkomulagi aðlögunarnefndar.
Umsóknarfrestur ertil og með 1. apríl 1999
og skal skriflegum umsóknum skilað íþríriti
til starfsmannasviðs Háskóla íslands, Aðal-
byggingu, við Suðurgötu, 101 Reykjavík.
Um lágmarkshæfiskröfur til umsækjenda um
störfin er vísað til 7. gr. laga nr. 136/1997 um
háskóla en í 4. mgr. 11. gr. laga um Háskóla
íslands segir að dómnefnd, sem skipa skal
hverju sinni til þess að dæma um hæfi um-
sækjenda til að gegna starfi lektors/dósents,
skuli láta uppi rökstutt álit um það hvort af vís-
indagildi rita umsækjenda og rannsókna megi
ráða að þeirséu hæfirtil að gegna starfinu.
Um veitingu starfsins giida ákvæði 1,—4. mgr.
11.gr. sömu laga en nánar er fjallað um með-
ferð máls í reglum nr. 366/1997 um veitingu
starfa háskólakennara. Móttaka allra umsókna
verður staðfest bréflega og umsækjendum
síðan greint frá því hvernig starfinu hafi verið
ráðstafað þegar sú ákvörðun liggur fyrir.
Nánari upplýsingar gefur Jóhann Ág. Sigurðs-
son forseti læknadeildar í síma 525 4880 og
Hannes Pétursson, prófessor á Landspítala,
í síma 560 1700.
Bifvélavirkjar
Stilling óskar eftir bifvélavirkja, helst vönum
vélastillingum, á verkstæði okkar í Skeifunni.
Góð vinnuaðstaða, hreint og þrifalegt um-
hverfi. Góð laun í boði fyrir réttan mann.
Upplýsingar gefur Jóhann á verkstæði í síma
520 8008.
®1 Stilling
„Au — pair" í London
Ung íslensk hjón, búsett i góðu hverfi í norður-
London, óska eftir reglusamri stúlku í u.þ.b.
5 mánuði til að líta eftir 18 mánaða gömlum
dreng og aðstoða við heimilisstörf. Viðkom-
andi þarf að vera barngóð, framtakssöm, hafa
bílpróf og vera reyklaus. Þarf helst að vera 20
ára eða eldri, hafa einhverja enskukunnáttu
og geta hafið störf í byrjun mars 1999.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við
Huldu eða Steindór í síma 564 2494.
Félágsþjónustan
Vilt þú taka að þér
spennandi verkefni?
Við leitum að ábyrgu og áhugasömu fólki eldra
en 18 ára til að starfa sem tilsjónarmenn eða
persónulegir ráðgjafar. Starfið felur m.a. í sér
stuðning við börn, unglinga eða fjölskyldur
undir leiðsögn félagsráðgjafa.
Einnig er óskað eftir tilsjónarmanni, sem talað
geturtáknmál, í sérstakt verkefni. Um hluta-
starf er að ræða 20—40 klst. á mánuði.
Vinnutími er sveigjanlegur.
Laun eru greidd skv. samningi Reykjavíkur-
borgar og Starfsmannafélags borgarinnar.
Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Sæ-
mundsdóttir, verkefnisstjóri, í síma 535 3074
næstu daga.
Umsóknum skal skilaðtil Félagsþjónustunnar
í Reykjavík, Síðumúla 39 á 3. hæð, á umsóknar-
eyðublöðum sem þar fást.
Ritari/fulltrúi
Ritari/fulltrúi óskast á hjúkrunarheimilið Drop-
laugarstaði, Snorrabraut 58, Reykjavík. Um
er að ræða 50% framtíðarstöðu.
Umsækjandi þarf að hafa góða tölvukunnáttu
og reynslu af ritarastörfum.
Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Ólafsdóttir
í síma 552 2581.
Sjúkraliðar/Sóknar-
starfsmenn
Sjúkraliðar/Sóknarstarfsmenn óskast sem fyrst
til aðhlynningarstarfa á hjúkrunarheimilið
Droplaugarstaði, Snorrabraut 58, Reykjavík.
Einnig vantar starfsmenn í ræstingu.
Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Ólafsdóttir
í síma 552 5811.
Félagsþjónustan er fjölmennur vinnustaður sem veitir
borgarbúum á öllum aldri fjölbreytta þjónustu. Stofnunin
leggur mikla áherslu á fræðslu og símenntun fyrir starfsfólk
sitt, að upplýsa það um stefnu stofnunarinnar og
Reykjavíkurborgar í málefnum starfsmanna og að kynna
markmið þeirrar þjónustu sem veitt er. Allir nýjir starfsmenn
fá sérstaka fræðslu og kynningu um Féiagsþjónustuna og
borgarkerfið og fréttabréf reglulega um starfsemi
stofnunarinnar. Félagsþjónustan í Reykjavík hét áður
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Hafrannsóknastofnunin
auglýsir
Tvær rannsóknastöður á sviði líkanagerðar í
fiskifræði og fiskvistfræði eru lausartil umsókn-
ar. Ráðið verður í stöðurnar til tveggja ára.
Störfin felast annarsvegar í uppsetningu og
reiknifræðilegum prófunum á aflareglum fyrir
nytjastofna sjávardýra á Islandsmiðum, og
hins vegar í gerð líkana er lýsa áhrifum stofn-
gerðar og umhverfis á nýliðun í íslenska þorsk-
stofninn.
Nauðsynleg menntun: Doktorspróf með
áherslu á reiknitækni og líkanagerð í líffræði
eða fiskifræði. Forritunarkunnátta er nauðsyn-
leg ásamt hæfni í að setja saman líkön og skrá-
setja niðurstöður.
Umsóknarfrestur er til 7. febrúar 1998.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, ásamt nöfnum þriggja umsagn-
araðila, sendist Hafrannsóknastofnuninni,
pósthólf 1390, 121 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita Gunnar Stefánsson
og Guðrún Marteinsdóttir, Hafrannsókna-
stofnuninni.