Morgunblaðið - 24.01.1999, Side 13

Morgunblaðið - 24.01.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1999 E 13 AKUREYRARBÆR Slökkvistöð Akureyrar Vegna fjölgunar á vakt eru lausar til umsóknar fjórar stöður slökkviliðsmanna hjá Slökkviliði Akureyrar. Starfið felst í vaktavinnu vegna slökkvi- og sjúkraflutningaþjónustu, aukým- issa starfa sem þessu tvennu fylgir. Útkalls- skylda er utan vinnutíma. Einnig vantar menn til sumarafleysinga á tíma- bilinu maí til september 1999. Umsækjendur þurfa að uppfylla ákveðin skil- yrði sbr. reglugerð um réttindi, menntun og skyldur slökkviliðsmanna og samþykkt fyrir Slökkvilið Akureyrar. Helstu atriði þeirra eru: • Vera á aldrinum 20—28 ára, reglusamir og háttvísir. • Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heilbrigði, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd. • Hafa iðnmenntun, sem nýtist í starfi slökkvi- liðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu. • Hafa ökuréttindi til að stjórna a) vörubifreið og b) leigubifreið. • Hafa góða almenna þekkingu þ.m.t. nokkra tungumálakunnáttu og gott vald á íslenskri réttritun. Laun samkvæmt kjarasamningi Landssam- bands slökkviliðsmanna eða STAK og launa- nefndar sveitarfélaganna. Upplýsingar um starfið gefa slökkviliðsstjórar á slökkvistöðinni Árstíg 2, en upplýsingar um kaup og kjör gefur starfsmannastjóri í síma 462 1000. Umsóknum skal skila til starfsmannadeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, en þarfást einnig umsóknareyðublöð, ásamt útdráttum úr reglugerð um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og samþykkt fyrir Slökkvilið Akureyrar. Umsóknarfrestur er til 29. janúar 1999. Starfsmannastjóri. CELAND Sölustjóri Óskum eftir að ráða í nýja stöðu sölustjóra fyrir Bláa Lónið Heilsuvörur ehf. Sölustjóri mun hafa umsjón með sölu- og kynningarmálum á "Blue Lagoon" húðvemdarvörunum, sem ffamleiddar em hjá Bláa Lóninu Heilsuvörum ehf. Vömr þessar hafa fengið mjög góðar viðtökur og umfjöllun á innlendum og erlendum vettvangi. Við leitum að hugmyndaríkum, skipulögðum og drífandi einstaklingi, með marktæka þekkingu og reynslu af sambærilegum störftim. Menntun á heilbrigðissviði s.s. hjúkmnar- eða lyfjafræði er áhugaverð, en snyrtifræðimenntun kemur til greina. Enskukunnátta er nauðsynleg, þýskukunnátta og/eða Norðurlandamál er kostur. Áhersla er lögð á faglegan metnað og lipurð í mannlegum samskiptum. Umsóknarfrestur er til og með 29. janúar n.k. Ráðning verður sem fyrst. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Guðný Harðardóttir veitir nánari upplýsingar. Viðtalstímar eru frá kl. 10-13. Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofunni, sem er opin frá kl. 10-16 alla virka daga. STRÁ ehf. STARFSRÁÐNINGAR I' ' GUÐNÝ HARÐARDÓTTIR WKWWKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKWKBSKWM^^^^^mm r- .. Mörkinni 3,108 Reykjavík, sími: 588 3031, bréfsími 588 3044 Fiæðslumiðstöð Reykjavíkur Laus störf í grunnskólum Reykjavíkur Starfsmenn annast gangavörslu, baövörslu og aðstoða nemendur í leik og starfi. Háteigsskóli, sími 530 4300, (matartækni) til að sjá um léttan hádegisverð fyrir nemendur í nýju skólaeldhúsi, 100% starf. Stuðningsfulltrúar til aðstoðar nemendum inni í bekk. Austurbæjarskóli, sími 561 2680, 50% starf. Öskjuhlíðarskóli, sími 568 9740, í hlutastarf, nú þegar. Skólaliðar annast gangavörslu, baðvörslu, þrif og að- stoða nemendur í leik og starfi. Háteigsskóli, sími 530 4300 50-100% störf. Sérhæfðir starfsmenn Hamraskóli, sími 567 6300, starfsmaður í sérdeild einhverfra barna. Æskilegt að viðkomandi sé með uppeldis- menntun. 50-100% starf frá 1. febrúar nk. Laun skv. kjarasamningum St. Rv. og Reykjav- íkurborgar. Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoð- arskólastjórar skólanna og ber að senda umsóknir til þeirra. • Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000 • Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is Kögun hf. er fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í gerö hugbúnaöar á sviöi rauntíma- og samskiptakerfa fyrir innlenda og erlenda viðskiptavini. Kögun er umboös- og þjónustuaöili fyrir hugbúnað frá Rational Soflware Corporation á íslandi. Dótturfyrirtæki Kögunar hf., Navision Software ísland er umboðs- og dreifingaraöili fyrir Navision Financials hugbúnaö á íslandi. HUGBUNAÐARFOLK Kögun vinnur nú að nýsmíði hermikerfa fyrir ratsjárvinnslu sem byggja á framsækinni tækni á sviði rauntímasamskipta, sýndarveruleika og landfræðilegra upplýsingakerfa. Við erum stolt af því að geta boðið kröfuhörðustu viðskiptavinum heims kerfi sem eru byggð á íslensku hugviti og nýjustu tækni. Við leitum nú að fyrsta flokks forriturum með reynslu í gerð hugbúnaðar fyrir Windows í Delphi eða C++ sem eru reiðubúnir að slást í hóp samhentra starfsmanna okkar og vinna að áhugaverðum verkefnum sem eru öðruvísi en flest það sem er í boði hér á landi. Við gerum kröfur um frumkvæði, eljusemi, staðgóða reynslu og útsjónarsemi við lausn flókinna vandamála. í staðinn bjóðum við • Framtíðarstarf í Reykjavík hjá traustu fyrirtæki. • Gott vinnuumhverfi og góða vinnufélaga. • Spennandi verkefni • ...og að sjálfsögðu góð laun í boði fyrir rétta einstaklinga. Með umsóknir og fyrirspurnir verður farið sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Helga Jóhanna Oddsdóttir hjá Ráðgarði hf. frá kl. 9-12 í síma 533-1800. Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs fyrir 1. febrúar nk. merktar: „Hugbúnaðargerð"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.