Morgunblaðið - 24.01.1999, Síða 21

Morgunblaðið - 24.01.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1999 E 214 Dagbók (l Oyp/ Dýskóhi íslands DAGBÓK Háskóla íslands 24.-30. janúar. Mánudagur 25. janúar: Ragnar Sigurðsson Raunvís- indastofnun flytur erindi sem hann nefnir: „Green-fóll og Lelong-tölur“, á málstofu i stærðfræði. Málstofan fer fram í stofu 258 í VR-II kl. 15.25. Eiríkur Sæland mun flytja er- indi um MS-verkefni sitt: „Verndandi áhrif mótefna gegn pneumokokkum in vitro og in vivo“, í boði Rannsóknamáms- nefndar læknadeildar. Erindið flytur hann kl. 16.15 í kennslu- stofu á 3. hæð í Læknagarði. Páll Biering, hjúkrunarfræð- ingur MS, flytur fyrirlestur á málstofu í hjúkrunarfræði sem hann nefnir: „Meðvirkni og hjúkran: Hvemig nýtist hjúkr- unarfræðingum sú sársauka- fulla reynsla að alast upp við alkóhólisma?" Málstofan verður haldin kl. 12.15 í stofu 6 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34. Pálmi Pétursson flytur fyrir- lestur um meistaraprófsverk: efni sitt við verkfræðideild HI sem hann nefnir: „Sannreyning og næmnigreining á tölvulíkani fyrir Söderberg rafskaut." Fyr- irlesturinn flytur hann í stofu 158 í VR-II, Hjarðarhaga 2-6. Miðvikudagur 27. janúar: Sigfríður Guðlaugsdóttir mun flytja erindi um MS-verkefni sitt: „Greining á breytingum í erfðaefni góðkynja og illkynja brjóstaæxla og tengsl við horfur sjúklinga," í boði rannsóknar- námsnefndar læknadeildai-. Er- indið flytur hún kl. 16.15 í kennslustofu á 3. hæð í Lækna- garði. Fimmtudagur 28. janúar: Gunnar Karlsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Islands, heldur fyrirlestur á vegum Rannsóknastofu í kvennafræð- um. Fyrirlesturinn ber heitið: „Kynjamunur í viðhorfum ís- lenskra unghnga.“ Rabbið fer fram í Odda, stofu 201, klukkan 12-13. Þorlákur Jónsson lífefnafræð- ingur flytur fyrirlestur á mál- stofu læknadeildar sem hann nefnir: „Umritunarpróteinið Arc: Tengsl stöðugleika, mynd- byggingar og virkni.“ Málstofan fer fram í sal Krabbameinsfé- lags íslands, Skógarhlíð 8, efstu hæð og hefst kl. 16 með kaffi- veitingum. Björn Bjömsson, fiskifræð- ingur Hafrannsóknarstofnun, flytur erindi á fræðslufundi Keldna sem hann nefnir: „Álirif hitastigs og líkamsþyngdar á vöxt og fóðumýtingu hjá þorski.“ Fræðslufundurinn er í boði Tilraunastöðvar HI í meinafræði að Keldum og hefst kl. 12.30 á bókasafni Keldna. Á vegum VFÍ, umhverfis- og byggingai'verkfræðiskorar HI og nemendafélags skorarinnar verður haldinn fundur undir heitinu: „Gildi rannsókna í námi og 813141 verkfræðings- ins.“ Einn fulltriíi frá hverjum þessara ofangreindu aðila nema tveir frá starfandi verk- fræðingum, heldur 10 mínútna inngangserindi um efni viðkom- andi fundar. Fi'jálsar umræður verða í lok fundarins. Fundur- inn verður haldinn í fundarsal VFI að Engjateigi 9 og byrjar kl. 16.15. Föstudagur 29. janúar: Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir mun flytja erindi um MS-verk- efni sitt: „Sameindahermun milli M-próteina streptókokka og keratína í meingerð psorias- is,“ í boði Rannsóknamáms- nefndar læknadeildar. Erindið flytur hún kl. 16.15 í kennslu- stofu á 3. hæð í Læknagarði. Námskeið á vegum Endur- menntunarstofnunar HI vikuna 25.-30. janúar: 25. og 27. jan. kl. 16-20. „Visual Basic for Application" í Excel 97. Kennari: Guðmundur Ólafsson hagfræðingur, lektor við HÍ. Fyrirl. og æfing: Þri. 26. jan.-23. feb. kl. 20.15-22.15, auk lokaæfingar og umræðna (8x). Halldór Laxness: Sjálfstætt fólk I samvinnu við Þjóðleikhúsið. Umsjón: Halldór Guðmundsson mag. art., Kjartan Ragnarsson leikstjóri og Melkorka Tekla Ólafsdóttir leiklistarráðunautur Þjóðleikh. Kennari: Halldór Guðmundsson mag. art. 26. -28. jan. 1999 kl. 8.30-12. Notkun UML og hlutbundinna hönnunaiverkfæra í hugbúnað- argerð. Kennari: Bjarni Birgis- son tölvunarfr. hjá Kögun hf. 26. og 27. jan. kl. 16-19. Hug- verkaréttindi í hugbúnaðar- starfsemi. Kennarar: Gunnar Thoroddsen, lögfræðingur hjá Oz hf., og Gunnar Sturiuson hdl. Málflutningsstofan. 26. og 27. jan. kl. 9-16. Stjómun I. Félagsráðgjöf og stjómun. Kennarar: A. Dísa Guðjónsdóttir, Ellý A. Þor- steinsdóttir og Steinunn Hrafnsdóttir, félagsráðgjafar með MA í stjómun o.fl. 29. jan. 1999 kl. 13-17 og 30. jan. kl. 9-13. Réttarsálfræði. Kennarar: Dr. Gísh H. Guðjóns- son, réttarsálfræðingur við Há- skólann í London, og dr. Jón Friðrik Sigurðsson, sálfræðing- ur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins. 20. og 22. jan. kl. 16-19 í Reykjavík, haldið á Akureyri 29. jan. kl. 13-17 og 30. jan. 9-13.30. Samningsveð og ábyrgðir. Kennarar: Þorgeir Örlygsson, prófessor við HI, og Benedikt Bogason, skrif- stofustjóri í dómsmálaráðu- neytinu. Sýningar Þjóðarbókhlaða. 1. Sýning á rannsóknartækjum og áhöldum í læknisfræði frá ýmsum tímum á þessari öld. Sögusýning hald- in í tilefni af 40 ára afmæli Rannsóknardeildar Landspítal- ans (Department of Clinical Bi- ochemistry, University Hospi- tal of Iceland) og að 100 ár eru liðin frá því að Holdsveikraspít- alinn í Laugarnesi var reistur. (The Leper Hospital at Laug- arnes, Reykjavík). Sýningin stendur frá 10. október og út febrúar. 2. Þjóðólfur 150 ára (1848-1998). Sýning 5. nóvem- ber 1998 - 31. janúar 1999. Sýn- ing til minningar um að 5. nóv- ember vora liðin 150 ár frá því að Þjóðólfur, fyrsta nútímalega fréttablaðið á Islandi, hóf göngu sína. Sýningin er staðsett í for- sal þjóðdeildar. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði við Suðurgötu. Frá 1. september til 14. maí er hand- ritasýning opin þriðjudaga, mið- vikudaga og fimmtudaga kl. 14-16. Unnt er að panta sýn- ingu utan reglulegs sýningar- tíma sé það gert með dags fyrir- vara. Orðabankar og gagnasöfn Öllum er heimill aðgangur að eftirtöldum orðabönkum og gagnasöfnum á vegum Háskóla Islands og stofnana hans. Is- lensk málstöð. Orðabanki. Hef- ur að geyma fjölmörg orðasöfn í sérgreinum: http://www.ismal.hi.is/ob/ Landsbókasafn Islands - Há- skólabókasafn. Gegnir og Grein- ir. http://www.bok.hi.is/gegn- ir. html Gagnasafn Orðabókar Háskólans: http://www.lex- is. hi.is Rannsóknagagnasafn ís- lands. Hægt að líta á rannsókn- arverkefni og niðurstöður rann- sókna- og þróunarstarfs: http://www.ris.is Ráðstefna um græn reikningsskil SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ og endurskoðunar- og ráðgjafarfyrir- tækið Deloitte & Touche standa fyr- ir hálfsdags ráðstefnu miðvikudag- inn 27. janúar kl. 13.30 um græn reikningsskil með áherslu á fyrir- tæki í flutningum og samgöngum. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Loftleiðum. Halldór Blöndal samgöngui'áð- herra ávarpar ráðstefnuna auk þess sem Þórir Ibsen, sendiráðunautur á auðlinda- og umhverfisskrifstofu ut- am-íkisráðuneytisins og Jón Birgir Jónsson, ráðuneytisstjóri í sam- gönguráðuneytinu, munu flytja er- indi. Ráðstefnustjóri verður Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður og formaður samgöngunefndai'. Tveir helstu sérfræðingar Deloitte & Touche í umhverfis- stjórnun era Charlotte Pedersen og Susanne Villadsen frá Danmörku og kynna þær umhverfisstjómun og aðferðarfræði við græn reiknings- skil á ráðstefnunni. I fréttatilkynningu segir: „Græn reikningsskil verða best skýrð með dæmi um t.d. fyrirtæki í vöruflutn- ingum sem ákveður að sýna ábyrga hegðun í umhverfismálum. Fyrir- tækið hefur skráningu á helstu þátt- um í starfseminni sem geta valdið skaða á umhverfinu s.s. útblæstri og úrgangi ýmiss konar. Fyrirtækið setur sér mai'kmið um að minnka óæskileg umhveifisáhrif. Græn reikningsskil era tæki til að mæla árangur og fyrirtækið getur fengið trúverðuga vottun á þann árangur og getur sú vottun verið fyrirtækinu mikilvæg á ýmsum vettvangi. Græn reikningsskil geta verið allt frá því að vera hluti af umfjöllun í ársskýrslu fyrirtækja og upp í sér- stakar vottaðar skýrslur sem ein- göngu snúast um markmið, mæling- ar og árangur í umhverfismálum. Umhverfisstjórnun og græn reikn- ingsskil era að verða hluti af við- skiptum og leiða af sér markaðsleg- an ávinning fyrir þau fyrirtæki sem standa sig vel og ná forskoti á þessu sviði.“ Fynrlestur um næmnigreiningu og sannreyningu PALMI Pétursson flytur fyrirlestur mánudaginn 25. janúar kl. 16 um meistaraprófsverkefni við verk- fræðideild Háskóla íslands, í VR II, stofu 158, Hjarðarhaga 2-6. Rit- gerðin fjallar um næmnigreiningu og sannreyningu á tölvulíkani fyrir Söderberg-rafskaut. í fréttatilkynningu segir: „Við næmnigreininguna er tölvulíkan notað til að athuga áhrif breytinga á kennistærðum á hitastigsdreif- inguna í rafskautinu. Kennistærð- irnar sem eru athugaðar eru efnis- eiginleikar, stærðir og umhverfis- skilyrði. Ut frá niðurstöðum eru síðan valdir þeir eiginleikar sem mikilvægt er að mæla með ná- kvæmni. í framhaldi af næmni- greiningunni er fjallað um athugun á sambandi milli skautbrota og samsetningar á stálkápum fyrir skautið. I síðasta hluta verkefnisins era gerðar mælingar til áð sannreyna niðurstöður líkansins. Mælingamar sýna að hitastigsdreifingin er ósam- hverf um miðjuás rafskautsins og því er nauðsynlegt að nota þrívítt líkan við greininguna. Rafskauta- líkanið sem þróað hefur verið við vélaverkfræðiskor sýndi góða sam- svöran við hitastigsmælingarnar.“ Verkefnið er styrkt af íslenska jámblendifélaginu og í umsjónar- nefnd era Magnús Þór Jónsson, prófessor sem er formaður nefndar- innar, og Helgi Þór Ingason og Þor- steinn Hannesson frá Islenska járn- blendifélaginu. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Mótmæla aðild að NATO EFTIRFARANDI fréttatilkynning hefur borist frá Samtökum her- stöðvaandstæðinga. ,Á sama tíma og Solana, fram- kvæmdastjóri NATO, kemur til ís- lands til þess meðal annars að ræða við íslenska ráðherra um 50 ára af- mæli NATO eru Samtök her- stöðvaandstæðinga að undirbúa dagskrá sem standa mun alla síð- ustu viku marsmánaðar og enda með fundi 30. mars. Tilefnið er 50 ára aðild íslands að NATO en tilgangurinn er ekki að fagna heldur mótmæla aðildinni ■/elina Fegurðin kemur innan frá Laugavegi 4, sími 551 4473. og minna á að NATO hefur ekkert breyst í eðli sínu. Enn er það hern- aðarbandalag ríku landanna í norðri undir forystu gömlu heims- veldanna, enn er því ætlað að standa vörð um hagsmuni þeirra og enn stendur það að vígbúnaði og styðst við kjarnorkuvopn. Áætl- anir um að gera það að einhvers konar sjálfstæðri alheimslögreglu breyta engu um það. Þvert á móti sýna þær áætlanir að aldrei hefur verið brýnna að leggja þetta hern- aðarbandalag heimsveldanna nið- ur.“ Málstofa í hjúkr- unarfræði * PÁLL Biering, hjúkranarfræðing- ur, MS, flytur fyrirlestur í Málstofu í hjúkranarfræði mánudaginn 25. janúar kl. 12.15 í stofu 6 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34. Fyrirlest- urinn nefnist: Meðvirkni og hjúkr- un: Hvernig nýtist hjúkranarfræð- ingum sú sársaukafulla reynsla að alast upp við alkóhólisma. I fréttatilkynningu segir m.a.: „Þessi eigindlega rannsókn var gerð til að kanna tengslin á milli erfiðra uppeldisskilyrða og farsæls^ starfsferils hjúkrunarfræðinga." Tekin voru viðtöl við átta hjúkran- arfræðinga sem uppfylltu tvö skil- yrði; að hafa alist upp við alkóhól- isma og notið farsældar í starfi. Að- ferðafræði rannsóknarinnar byggist á hugmyndum túlkandi fyrirbæra- fræði (hermeneutical phenomen- ology). Hún beindist í meginatrið- um að þremur þáttum í reynslu þátttakenda: Uppvexti og aðlögun í alkóhólískri fjölskyldu, einstak- lingsþroska og tengslunum á milli annars vegai- starfsvals og starfs- ferils og hins vegar reynslu á upp- vaxtaráranum. Greind vora þemu í þessum þáttum sem varpa Ijósi bæði á þau bjargráð (coping) sem þátttakendur beittu til að komast af við erfið uppvaxtarskilyrði og eins á tengslin á milli þessara bjargráða og starfsferils í hjúkran.“ Málstofan er öllum opin. Fundur um verndun Elliðaánna ÖSSUR Skarphéðinsson alþingis-á maður heldur á mánudag kl. 20 op- inn fund umn verndun Elliðaánna með áhugamönnum um stangaveiði. Fundurinn verður í miðstöð hans í Nóatúni 17,2. hæð. Sérstakir gestir fundarins verða stangaveiðimennimir Orri Vigfús- son og Bubbi Morthens sem hafa beitt sér fyrir að borgaryfírvöld grípi til aðgerða til að hefja Elliða- ámar til fyrri vegs og virðingar, segir í fréttatilkynningu. Meðan á fundinum stendur mun Sigurjón Ólafsson, ,nýbakaður verð- launahafi frá heimsmeistaramótinu í fluguhnýtingum, hnýta sérstaka flugu þar sem hann notar meðal annars hár úr höfði þingmannsins,“ ■*. segir í tilkynningunni. Mannlíf í Fjörðum og á Flateyjardal ÁHUGAFÓLK um sögu eyðibyggð- anna austan Eyjafjarðar heldur fund miðvikudaginn 27. janúar kl. 17.15 í húsi Ferðafélags íslands, Mörkinni 6, niðri. I þessum eyðibyggðum er mikil saga orðin og sérkennileg. Hér er um að ræða Látraströnd, Fjörður, Flateyjardal, Flatey á Skjálfanda,, Flateyjardalsheiði og Náttfaravíkur. Viðfangsefni þessa áhugahóps er að halda til haga sögu mannlífs í hinum horfnu byggðum, segir í fréttatilkynningu. Allir áhugamenn um efnið eru velkomnir. Fyrlr árið 2000 KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 • Simi 568 8055 www.islandia.is/kerlisthroun' §

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.