Morgunblaðið - 17.02.1999, Page 5

Morgunblaðið - 17.02.1999, Page 5
I 7. febrúar - 2. mars SJÓNVARP .... .6-40 ÚTVARP .7-41 ÝMSAR STOÐVAR 7-41 Myndagagnrýni . .42-43 Krossgátan . .44 Þriðja þáttaröð Fóstbræðra Ekkert fóstbræðralag . .24 Leiðir Erik Veije Flensborg til sigurs? Þýski handboltinn......35 Morgunblaðið á netinu www.mbl.is Morgunblaöiö / Dagskrá Útgefandi Árvakur hf. Kringl- unni 1 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 5691100 Auglýsingan 5691111. Dagskrá: beinn sími: 5691259 Qroening biðst afsökunar Matt Groening er maðurinn ð bakvið teiknimynda- þættina um Simpson-fjölskyld- una. Groening hefur lengi ver- ið gagnrýndur fyrir að skapa slæma fyrirmynd fyrir krakka. Hann hefur lítið gefið fyrir þessar gagnrýn- israddir en snýr við blað- inu í nýlegu viðtali við New York Times. „Ég á sjö ára og níu ára drengi og verð eiginlega að biðjast afsökunar," segir hann. „Núna veit ég um hvað málið snýst." Groening segir að viðbrögð sín við gagnrýni hafi iðulega verið þau að ef menn vildu ekki að þörnin sín yrðu eins og Bart Simpson þeir ekki að hegða sér eins og Homer Simpson. Nýir teiknimyndaþættir eftir Groen- ing, „Futurama", hefja göngu sína í haust í Bandaríkjunum og gerast þeir í framtíðinni. Síðasta tímabil Ráðgátna vestanhafs Hver er faðir Mulders? Utlit er fýrir aö sjöunda tímabil Ráðgátna í Bandaríkjunum sem hefst í febrúar verði hið síð- asta. Chris Carter, höfundur og framleiöandi þáttanna, stað- festi það nýverið á blaða- mannafundi. „Eins og sakir standa eru allir að búa sig und- ir lokatímabilið," sagði hann. „Ég held að við gerum öll ráð fyrir því. En málin geta þó breyst með nýjum samn- ingum og viðhorfum." Ef til vill var Carter að skírskota til þess að stjörnur þáttanna David Duchovny og Gillian And- erson eru aðeins samn- ingsbundnar fram á vor. „Áttunda tímabilið gæti orðiö að veruleika en ég David Duchovny og Gillian Anderson þori ekki að bö|va mér u6pp í hlutverkum sínum í Ráðgátum Chris Carter höfundur þáttanna um Ráðgátur. á það. Allir gera ráð fyr- ir að þetta verði síð- asta tímabilið en mað- ur á aldrei að segja aldrei. Mikiö veltur á áhuga Duchovny og Anderson." Vísast fer áhuginn dálítiö eftir því hversu feitt launa- umslagið verður. Paul Reiser og Helen Hunt fá 72 milljónir króna fyrir hvern þátt af Ástum og átökum sem er hálftíma iangur og hef- ur dalað í vinsældum. Duchovny og Anderson fá einn tíunda af þeirri upphæð fyrir klukkutíma langa þætti sem hafa sjaldan verið vinsælii og þau fengu 280 milljónir hvort um sig fyrir kvikmyndina. Hvað sem gerist munu Ráð- gátur ekki líöa undir lok. „Ég vona að þættirnir verði að röð kvikmynda á hvíta tjaldinu," segir Carter sem er að vinna að mynd í anda vísindaskáld- sagna um þessar mundir sem nefnist „Harsh Realm" og er byggð á samnefndum teikni- myndasögum. Hann áætlar að næsta kvikmynd eftir Ráðgát- um verði að veruleika árið 2001 eða 2002. Lokatímabil Ráðgátna hefst á sögu í tveimur þáttum þar sem upplýst verður hver er raunverulega faóir Mulders og hvað kom fýrir systur hans, Sa- mönthu. „Við byggjum á því að þetta verði síöasta tímabilið," segir Carter. En hann ætlar þó ekki aö leysa allar ráðgáturnar. „Ég ætla ekki að eyða öllum höfuðstólnum," segir hann. „Ég ætla að ganga úr skugga um að viö höfum nóg til að byggja góðar sögur á." OFólk Skjótur frami Potter • Monica Potter öðlaöist skjótan frama eftir frammistöðu sfna í bresku gamanmyndinni Martha Meet Frank Daniel & Laurence og virðist hafa fest sig í sessi með læknamynd- inni Patch Adams þar sem Robin Williams veröur ástfang- inn af henni. „Ég er rétt farin að átta mig á frægðinni," seg- ir hún í samtali við People. „Sannast sagna yrði ég alveg himinlifandi ef ég yrði beöin um eiginhandaráritun." —■*-*-*■— Reynolds harður af sér • Burt Reynolds er f hlutverki löggu sem er hörð af sér f sjónvarpsmynd- inni „Hard Time". „Mig hef- ur alltaf langað til að leika persónur Ifkar föður mínum sem var lögreglustjóri," segir Reynolds í samtali við Boston Herald. „Og Reynolds, sem var áhættuleikari á sípum yngri árum, segist ennþá leika öll áhættuatriðin sjálfur. „Eftir öll þessi ár get ég ennþá dott- ið," segir hann. „Ég er bara ekki eins fljótur á fætur aftur." —^r^r^r— Aðeins búið að ráða hund • Hundurinn Eddie úr fram- haldsþáttunum Frasier veröur í aðalhlutverki í myndinni „Moose on the Loose". Áætl- aður kostnaður við myndina er 324 milljónir króna. Enginn leikari hefur verið ráðinn í myndina ennþá, aðeins hund- ur. í myndinni sér hundur sem býr við ríkidæmi hversu erfitt lífið getur verið sumum þegar hann bjargar lífi fátæks hunds og eiganda hans. 5

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.