Morgunblaðið - 17.02.1999, Blaðsíða 43
vel Jean Reno fær engu bjargað
sem syrgjandi eiginmaður
heittelskaðrar deyjandi eiginkonu
sinnar, Ofsa fyndið. Bíórásin 2.3.
Skólaskens -
High School High (‘96)
Undirverktakar hjá Zucker-
bræðrum komast hvorki
lönd né strönd í ærsla-
mynd um ungan hugsjónamann í
kennarastétt (Jon Lovitz) við skóla
f sorahverfi. Tímasóun. Stöð 2,
27.2.
Sviðssetning -
Cosi (‘96)
Fyrsta verkefni óreynds
leikstjóra er sviðssetning
Cosi Fan Tutte innan
veggja geðsjúkrahúss. Leikhópur-
inn lítill partur vandamálanna.
Þráttfyrir þátttöku nokkurra kunnra
ástralskra leikara og ágæta hug-
mynd, koðnar myndin niður. Toni
Collette, Ben Mendelsohn og Colin
Friels. Stöð 2, 21.2.
Young Frankenstein (‘74)
Gamla Frankenstein-sögnin
fær líflega og yfirleitt mein-
fyndna andlitslyftingu í
meðförum háðfuglsins Mels
Brooks í hans bestu eftiröpun.
Nýtur góðs af sprellikörlunum
Gene Wilder, Marty Feldman og
Kenneth Mars. Aukinheldur Madel-
eine Kahn og Cloris Leachman.
Sýn, 20.2.
SPENNUMYNDIR
Alræðisvald -
Absolute Power (‘97)
Clint Eastwood leikstýrir og
leikur roskinn innbrotsþjóf
sem óvart verður vitni að
morði, ekki bætir úr skák að
dráþarinn er sjálfur Bandaríkjafor-
seti. Þjófurinn því í vondum mál-
um. Ótrúverðug atburðarás og per-
sónusambönd bjarga engu heldur.
Upphafið er flott. Gene Hackman
og Ed Harris. Stöð 2, 20.2.
Björgunin -
The Rescue (‘88)
Rambóar á fermingaraldri
bjarga feðrum sínum úr
stríðsfangabúðum. Afleit
þvæla. Stöð 2, 19.2.
Dauður -
Gotcha (‘85)
Ungur Bandaríkjamaður
(Anthony Edwards) leitar
ásta og ævintýra í París og
finnur hvorttveggja í fagurri, dular-
fullri kvenpersónu (Lindu Fior-
entino). Blanda spennu og gam-
ansemi reynist (nokkuð óvænt)
besta afþreying. Stöð 2, 22.2.
Forced Vengeance (‘82)
B-karatemyndastjarnan
Chuck Norris fettir sig og
brettir í dáðlausri rútínu-
mynd sem voru hans ær og kýr.
Að þessu sinni sem öryggisvörður í
spilavíti í Austurlöndum fjær. Sýn,
22.2.
Hálendingurinn -
The Highlander (‘86)
Fyrsta og illskásta í mynda-
flokki þar sem franska
gervikempan Christopher
Lambert leikur ódauðlega, göfuga
sál sem berst í gegnum tíma og
rúm við hinn illa (Clancý Brown,
sem er mun brattari). Sean Conn-
ery er gestaleikari í dellunni. Kraft-
mikil leikstjórn en einhæf og hug-
myndasnauð. Sýn, 27.2.
Heaven’s Prisoners (‘96)
Alec Baldwin fer fyrir fríð-
um leikhóp í mynd um
löggu sem hefur drukkið
sig úr starfi, gerst beitusölumaður
og dregst útí vond glæpamál er
hann verður vitni að slysi. Það
vindur uppá sig. Langdregin en
fangar vel ókyrrðina í lævísu and-
rúmslofti Louisiana, þar sem tón-
list Georges Fenton leikur stórt
hlutverk. Fín, dökk stemmnings-
mynd frá Phil Joanou. Mary Stuart
Masterson, Kelly Lynch, Eric Ro-
berts. Bíórásin 17.2.
í eldinum -
Backdraft (‘91)
Ábúðarmikil, heimskuleg
átakamynd um slökkviliðs-
menn, ástir þeirra og
hetjudáðir. Það eina sem stendur
uppúr eru magnaðar eldbrellur.
Kurt Russell, Glenn Scott, William
Baldwin og Jennifer Jason Leigh,
öll frekar slöpp, einkum tvö þau
síðastnefndu í ömurlegu ástaratriði
(uppá brunabíl í útkalli, ef minnið
bregst ekki). RÚV, 19.2.
Lifepod {‘93)
Ron Silver reynir að bregða
sér í fötin meistara
“ Hitchcocks og leikstýrir út-
geimsútgáfu af Lifeboat, þeirri fá-
séðu perlu (þar sem karlinn laum-
ar sér inní myndina í dagblaðsaug-
lýsingu). Maltin segir útkomuna í
ágætu meðallagi. Forvitnileg. Sýn,
28.2.
Minnisleysi -
Amnesia (‘97)
Slangur af afdönkuðum
| leikurum (Saily Kirkland,
Ally Sheedy, Martha Kell-
er, John Savage) er það óvenju-
legasta við þessa nýju sjónvarps-
mynd um mislukkuð fjársvik,
minnisleysi og framhjáhald. VMG
segir myndina rétt þolanlega. Sýn,
19.2.
Night Falis on Manhattan (‘97)
Ein af mörgum myndum
leikstjórans Sidneys Lumet
um spillingu innan lögregl-
unnar á Manhattan. Andy Garcia
góður sem ungur saksóknari sem
reynir að komast til botns í morð-
máli þar sem lögreglan kemur við
sögu. Kynnist samtryggingu, spill-
ingu og gruggugum aðferðum þar
sem síst skyldi. Bíórásin, 17.2.
Rússíbaninn -
Rollercoaster (‘77)
Stórslysamynd í slakari
kantinum. Richard Wid-
mark og George Segal
leika gæslumann og alríkislög-
regluþjón á hælum fjárkúgara
(Timothy Bottoms) sem notar
skemmtigarða við iðju sína. Fínn
leikhópur hefur úr litlu að moða.
Stöð 2, 19.2.
True Crime (‘97)
Alicia Silverstone leikur
táningsstúlku sem fer að
hnýsast í morðmál og
lendir á slóð fjöldamorðingja. VMG
segir þetta bærilega afþreyingu.
Kevin Dillon. Bíórásin 3. 3.
BARNA- OQ
FJÖLSKYLDUMYNDIR
Batman og Robin (‘97)
Fjórði kafli báiksins er hor-
tittur og George Clooney
mélkisulegur leðurblöku-
maður. Arnold Schwarzenegger úti
að aka sem Hr. Frost og litla, sæta
Alicia Silverstone gerir illt verra.
Uma Thurman stendur ein uppúr
lífvana mynd. Stöð 2, 26.2.
HROLLVEKJUR
Jason fer til heljar -
Jason Goes to Hell (‘93)
Farið hefur fé betra. Ní-
undi, útjaskaður lokakafli í
óvenju ómerkilegri og
subbulegri unglingahrollvekjuröð.
Sýn, 26.2.
12:01 (‘91)
Maltin segir í rösku meðal-
lagi þennan sjónvarpshroll
um mann sem gerir sér
einn grein fyrir að tíminn stendur í
stað. Tilbrigði við Groundhog Day?
Jonathan Silverman, Helen Slater.
Sýn, 25.2.
DANS- OQ SÖNQVAMYNDIR
The Band Wagon (‘53)
Sígild mynd, enda
stórdansararnir Fred
Astaire og Cyd Charisse í
aðalhlutverkunum, undir stjórn
Vincente Minelli. Astaire leikur
fallna Hollywood-stjörnu sem reyn-
ir fyrir sér á Broadway og árangur-
inn lætur ekki á sér standa. Maltin
gefur hæstu einkunn. Meistara-
verk. TNT, 19.2.
Ég elska þig víst -
Everyone Says I Love You (‘96)
Woody Allen sýnir á sér
nýja hlið, ásamt leikhópn-
um sínum, Natasha
Lyonne, Lukas Haas, Edward
Norton, Alan Alda, Julia Roberts,
Goldie Hawn, Drew Barrymore; öll
syngja þau og dansa einsog þau
hafi aldrei gert annað. Standa sig
vel á dansgólfinu en inntakið
kunnuglegt úr þessari áttinni -
vandamál ástarinnar. Stöð 2.
Sæbjörn Valdimarsson
43