Morgunblaðið - 11.05.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.05.1999, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ± Morgunblaðið/Árni Sæberg HORFT yfir Astjörn og til Hafnarfjarðar. Gatnagerð í fyrsta áfanga Ásahverfis stendur nú sem hæst, en gert er ráð fyrir, að byggingaframkvæmd- ir geti hafizt þar í lok júlí eða byijun ágúst. Verið er að vinna að deiliskipulagi fyrir næsta áfanga Ásahverfís. í þeim áfanga er gert ráð fyrir um það bil 420 íbúðum aðallega í einbýli og parhúsum en eitthvað í ljölbýlishúsum. Áformað er að úthluta þar ldðum fyrir um 140 íbúðir á ári. Hafnarfjörður Mikil umframeflirspurn eflir lóðum í Áslandi MUN fleiri sóttu um lóðir en fengið gátu í fyrsta áfanga Ásahverfís í Hafnarfirði, en lóðaúthlutun á þessu svæði var afgreidd í bæjarráði Hafnarfjarðar í síðustu viku. Út- hlutað var lóðum fyrir 40 einbýlis- hús, en umsóknir um þær voru 72. Einnig var úthlutað 20 lóðum fyrir parhús og raðhús, en umsækjendur voru 27. Svanur Bjarnason, verkfræðing- ur hjá Hafnarfjarðarbæ, skýrði svo frá, að gatnagerð á þessu svæði stæði nú sem hæst og gengi sam- kvæmt áætlun, en byggingafram- kvæmdir ættu að geta hafízt í lok júlí eða byrjun ágúst. Verið væri að vinna að deiliskipulagi fyrir næsta áfanga í Áslandi, sem nær jfir 24 hektara og í þeim áfanga verða um það bil 420 íbúðir aðallega í einbýli og parhúsum en eitthvað í fjölbýlis- húsum. Gert væri ráð fyrir, að úthluta þar lóðum fyrir um 140 íbúðir á ári, þannig að lóðaúthlutunin færi fram á þremur árum. Það svæði er ofar og norðar í hlíð Ásfjalls og er stefnt að því, að það verði tilbúið í lok júlí og fyrsta lóðaúthlutun þar fari fram í haust. Byggingarframkvæmdir ættu þá að geta hafízt næsta sumar. Margir bíða eftir Ióð „Við reiknum með mikilli eftir- spurn,“ sagði Svanur. „Þeir eru greinilega margir, sem bíða eftir því að fá lóð á þessu nýja svæði, en það er jafnvel enn betra en það svæði, sem úthlutað var í fyrsta áfanga. Á stórum hluta svæðisins verður út- sýni yfir Hafnarfjörð og allt höfuð- borgarsvæðið en einnig til fjalla- hringsins í suðri.“ Svanur kvað skýringuna á þess- ari miklu eftirspurn eftir lóðum í Áslandi felast að nokkru í því, að þarna er um mjög gott byggingar- land að ræða. „Það er t. d. yfirleitt mjög grunnt ofan á fast eins og sagt er á byggingamáli," sagði hann. „Að hluta er skýringin líka sú, að nú er lítið til af öðrum byggingarlóðum hér í Firðinum. Umhverfi byggingarsvæðisins við Ástjöm er líka frá náttúrunnar hálfu bæði sérstætt og fallegt. Ás- tjöm er náttúruperla, sem gefur landslaginu mikla sérstöðu, en hún er ásamt umhverfi sínu friðaður fólkvangur. Landslagið er að öðm leyti fjölbreytt, allt frá hrauni í lág- lendi við Ásvelli til aflíðandi og brattra hlíða í Ásfjalli með miklu út- sýni. Uppbygging á félagslegri þjón- ustu á þessu svæði er þegar hafin, en nú stendur yfir jarðvinna fyrir stórt fjölnota íþróttahús, sem Hauk- ar hyggjast reisa við íþróttasvæði sitt á Ásvöllum." Fasteignasölur í blaðinu í dag Ás bls. Ásbyrgi bis. Berg ws. Bifröst bis. Borgir ws. Eignaborg ws. Eignamiðlun -ws. Eignanaust ws. Eignaval bis. Fasteignasala lögm. Rvík us. Fasteignamarkaðurinn bis. Fasteignamiðlun ws. Fasteignamiðstöðin bis. Fasteignasala íslands bis. Fjárfesting bts. Fold bis. Frón bis. Gimli bis. Hátún bis. HÓII bls. Hóll Hafnarfirði bis. Hraunhamar bis. Húsakaup bis. Húsvangur ws. HÖfðÍ bls. Kjörbýli bis. Kjöreign bis. Lundur bis. Lögmenn Suðurlandi ws. Miðborg «s. Séreign bis. Skeifan bis. Stakfell bis. Valhús bis. 10 14 17 4 7 31 15 28 6 27 11 29 26 21 24 5 21 20 29 30 25 13 9 14 3 24 22 12 31 23 31 8 27 27 Valhöll bis. 16-17 Þingholt bis. 19 Mikill áhugi hér á fasteignum á Spáni SUMARHÚS á Spáni af ýmsum stærðum og gerðum eru til sölu hjá Borgum. Verð á tveggja til þriggja svefnherbergja húsum er frá um 3,5 milljónum króna. SÆVARGARÐAR 15 eru til sölu hjá Lundi. Þetta er glæsilegt hús með útsýnisturni og er ásett verð 22,5 millj. kr. Glæsileg húseign á Seltjarnarnesi FASTEIGNASALAN Borgir býður nú til sölu í samstarfi við fasteigna- sölu á Spáni ýmsar gerðir af fbúð- um, raðhúsum og einbýlishúsum af öllum stærðum í Torrevieja, sem er nálægt Alicante á Spáni. Fasteigna- salan býður bæði nýbyggingar og eins eldra húsnæði, allt eftir óskum kaupenda. Verðið er frá 2,5 milljónum króna fyrir litlar stúdíóíbúðir en algengt er að kaupendur hafi augastað á tveggja til þriggja svefnherbergja húsum og er verð á þeim frá um 3,5 milljónum króna. Kaupendum standa til boða bankalán til tíu ára á lágum vöxtum fyrir allt að 60% kaupverðs. Þetta kom fram í viðtali við Hall- stein Sigurðsson hjá Borgum, en hann er flestum hnútum kunnugur að því er varðar fasteignamarkað- inn á þessu svæði Spánar. Hall- steinn hefur rætt við áhugasama kaupendur undanfarið og segir hann óhætt að fullyrða, að áhugi Is- lendinga á að eignast eigið athvarf á Spáni sé mikill. Hagstætt veðurfar og verðlag „Veðurfar og verðlag er þar ákaf- lega hagstætt," segir Hallsteinn. ,jLð auki skiptir það fólk miklu máli að auðveldar samgöngur eru til Spánar.“ Hallsteinn verður kaup- endum til aðstoðar við alla samn- ingagerð og allt til þess að húsnæð- ið verður afhent og aðstoðar jafn- framt við kaup á húsgögnum og öðrum búnaði sé þess óskað. Að sögn Hallsteins er mjög ódýrt að eiga og reka húseign á þessum stað og allt mannlíf hið þægilegasta og engin ástæða til að víggirða svæðið af öryggisástæðum. „Allt í kringum Torrevieja eru fallegar strandir og mikil bátamenning og höfnin þama er mjög falleg. Onnur afþreying er af öllum gerðum og má þar t.d. nefna að golfvellir eru þarna margir og góðir. Torrevieja er mjög vinsælt hjá Norðurlandabúum og Bretum sem hafa keypt þar húsnæði sem dvalar- stað bæði til skemmri eða lengri tíma og ekki síður sem góða fjárfest> ingu,“ sagði Hallsteinn að lokum. TIL sölu hjá fasteignasölunni Lundi er einbýlishúsið Sævargarðar 15 á Seltjarnamesi. Þetta er 230 ferm. hús með rúmgóðum bílskúr. Það er steinsteypt, byggt 1976 og er nán- ast á einni hæð, en útsýnisskáli er á húsinu er á annarri hæð. Heitur pottur er í garðinum, sem fyrir nokkni fékk verðlaun fyrir fegurð. „Þetta er glæsilegt hús og vel um gengið,“ sagði Ellert Róbertsson hjá Lundi. „Húsið er vel staðsett innst í lokaðri götu og glæsilegt út- sýni er til allra átta úr fyrrnefndum útsýnisturni. Húsið skiptist í forstofu, gesta- snyrtingu og rúmgott hol, eldhús, þvottahús, stofu, borðstofu og þrjú til fjögur svefnherbergi. Arinn er í stofu og baðherbergi með fallegum innréttingum. Allar innréttingar em vandaðar, svo og gólfefni. Ásett verð er 22,5 millj. kr., en húsið gæti losnað fljótlega."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.