Morgunblaðið - 11.05.1999, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 C 19 *
Lóðir fyrir einbýlishús og
parhús í Höfðahverfi
UPPDRÁTTUR af Höfðahverfi í vesturhluta Mosfellsbæjar. Ljósu reitirnir sýna þau svæði, þar sem nýjar
lóðir eru nú til úthlutunar. Þar af eru fjórtán einbýlishúsalóðir við Hrafnshöfða, en af þeim verða tólf lóðir
byggingarhæfar 1. júní nk. og tvær 1. nóvember á þessu ári. Samkvæmt skipulagi eru fjórar þessara lóða fyr-
ir minni einbýlishús. Við Súluhöfða eru til úthlutunar 23 einbýlishúsalóðir og 8 parhúsalóðir og verða þessar
lóðir byggingarhæfar í maí á næsta ári. Umsóknarfrestur um þessar lóðir er til 17. maf nk.
Jafnframt hefm- afhendingartími
nýrra íbúða einnig verið að styttast
miðað við það sem eitt sinn var, sem
kemur einnig fram í hagstæðara
verði, þar sem fjármagnskostnaður
verður minni. Þessu valda aukin af-
köst í byggingariðnaðinum, sem er
fyrst og fremst að þakka betri
byggingartækni og tækjabúnaði.
Um leið eru húsin orðin vandaðri,
en það má þakka strangari bygg-
ingarreglugerð.“
Lóðaskortur leiðir
til hækkandi verðs
Ibúðirnar eni til sölu hjá fast-
eignasölunni Gimli, en ásett verð er
10,7 millj. kr. á íbúðirnar á efri hæð
en 10,5 millj. kr. á íbúðirnar á neðri
hæð. „Lóðaskortur hefur orðið til
þess að hækka verð á nýjum íbúð-
um yfirleitt,“ segir Ólafur Blöndal,
sölustjóri hjá Gimli. „Nú er svo
komið, að nýjar íbúðir hafa aftur
náð verði notaðra íbúða, sem er að
sjálfsögðu eðlileg þróun.
Það er ekki langt síðan nýjar
íbúðir voru sýnu lægri en notaðar
íbúðir. Ástæðan var sú, að á sam-
dráttarárunum kepptust bygging-
araðilarnir við að hagræða til að
geta selt. Þessi hagræðing náðist
ekki hvað sízt fram með magninn-
kaupum, en það gefur auga leið, að
það er hagkvæmara að kaupa
kannski tuttugu eldhúsinnréttingar
í heila blokk en eina staka eld-
húsinnréttingu í íbúð. En verð á
nýjum íbúðum var orðið óeðlilega
lágt, þegar það komst lægst.“
„Vegna aukinna lánamöguleika
fara þeir, sem eru að kaupa í fyrsta
eða annað sinn, í stærri íbúðir en
áður og margir byrja þá með því að
fara í 4ra herb. íbúð.“ segir Ölafur
ennfremur. „Þetta er ekki ósjaldan
fólk, sem er að koma úr námi og er
komið með fjölskyldu. En það er í
góðu starfi og með góðar tekjur.
Lánamarkaðurinn hefur lagazt
mikið, ef litið er til þarfa þessa
fólks. Þar má nefna bæði fasteigna-
lán banka og lánastofnanna. Ef tek-
ið er sem dæmi íbúðirnar við
Hjallahlíð, þá er veðhæfni þeirra
fullbúinna um 9,8 millj. kr. Af því
getur fólk fengið 7,4 millj. kr. í hús-
bréfum og mismuninn í fasteigna-
lánum. Hér er miðað við 70% hús-
bréfalán."
„Fólk leitar þvl gjarnan í stærri
eignir en áður, þegar það er að
kaupa í fyrsta sinn,“ segir Ólafur
Blöndal að lokum. „Byggingaraðilar
hafa líka verið að átta sig á því, að
það borgar sig ekki að byggja eins
mikið af 2ja til 3ja herb. íbúðum og
áður, því að þær seljast síðast. Ann-
að sem er áberandi er, að nú af-
hendast íbúðir í blokkum gjarnan
fullbúnar en síður í sérbýli. Astæð-
an er sú, að í dýrari eignum vill fólk
fá að ráða sér meira sjálft.“
Ásókn í lóðir í Mosfells-
bæ hefur verið mikil
á undanförnum árum
og nýjar lóðir þar í bæ
vekja því ávallt athygli.
Magnús Sigurðsson
fjallar hér um fyrirhug-
aða lóðaúthlutun
í Höfðahverfi í viðtali
7
við Asbjörn Þorvarðar-
son byggingarfulltrúa.
MOSFELLSBÆR auglýsti í síðustu
viku til úthlutunar lóðir í Höfða-
hverfi í vesturhluta bæjarins. Þar af
eru fjórtán einbýlishúsalóðir við
Hrafnshöfða, en af þeim verða tólf
lóðir byggingarhæfar 1. júní nk. og
tvær 1. nóvember á þessu ári. Við
Súluhöfða eru til úthlutunar 23 ein-
býlishúsalóðir og 8 parhúsalóðir og
verða þessar lóðir byggingarhæfar í
maí á næsta ári.
Umsóknarfrestur um þessar lóðir
er til 17. maí nk., en alls eru þetta 45
lóðir. „Það hefur verið gífurleg eftir-
spum eftir lóðum í Mosfellsbæ og
mikill þrýstingur á okkur að úthluta
sem mestu, en þær lóðir, sem við
höfðum til úthlutunar á síðasta ári,
fengu fæm en vildu,“ segir Ásbjöm
Þorvarðarson, byggingafulltrúi bæj-
arins. „Það er markmiðið, að árleg
íbúafjölgun í Mosfellsbæ verði ekki
yfir 3%, en reynslan hefur sýnt, að
þau sveitafélög, sem hafa verið með
mjög öra fólksfjölgun, hafa gjarnan
lent í fjárhagserfiðleikum.“
Lóðaúthlutun fari
fram á vorin
Á næstunni verða auglýstar til út-
hlutunar iðnaðar- og þjónustulóðir
við Völuteig í austurhluta bæjarins, í
grennd við nýja Álafosshlutann. Síð-
an verður úthlutað verzlunar- og
þjónustulóðum við Háholt, milli
gamla og nýja Vesturlandsvegarins
og lóðum á iðnaðarsvæði við Flugu-
mýri. Loks verður úthlutað verzlun-
ar- og þjónustulóðum við Lækjahlíð,
sem er í beinum tengslum við Hlíða-
hverfi en við hliðina á grunnskóla,
sem þar á að rísa og leiksskóla, sem
þegar er byrjað að byggja.
Asbjörn telur það mikilvægt að út-
hluta lóðum með góðum fyrirvara,
áður en þær era byggingarhæfar.
„Fólk þarf að gera fjárhagsáætlanir
fram í tímann,“ segir hann. „Margir
eiga eign fyrir, sem þarf að selja.
Sumir eru að stækka við sig en aðrir
eru að fara í minna og það getur ver-
ið erfitt að fá hönnuði og iðnaðar-
menn. Það er því nauðsynlegt, að
fólk hafi góðan tíma, er það sækir
um lóð, en það tekur gjarnan um eitt
ár að undirbúa húsbyggingu.
Það ætti að vera markmiðið að
hafa lóðir byggingarhæfar að vori,
þannig að fólk geti notað veturinn til
undirbúnings, en notað sumarið til
framkvæmda, en það er auðvitað
hentugasti tíminn. Það er t. d. ekki
heppilegt að úthluta lóðum í desem-
ber, því að þá sér fólk sig gjarnan
knúið til að byrja á byggingarfram-
kvæmdum strax, en framkvæmdir
að vetrarlagi geta verið erfiðleikum
bundnar vegna veðurfars og bygg-
ingarkostnaður verður meiri af þeim
sökum.“
Ásbjöm Þorvarðarson vék að lok-
um að fyrirhuguðum byggingafram-
kvæmdum byggingafyi'irtækisins
Ulfarsfells í landi jarðarinnar Blika-
staðir og sagði: „Það hefur verið lögð
inn beiðni til Mosfellsbæjar um upp-
byggingu á íbúðarbyggð á jörðinni og
það mál er nú til meðferðar hjá bæj-
aryfírvöldum. Samkvæmt gildandi
aðalskipulagi bæjarins, sem nær til
ársins 2012, er ekki gert ráð fyrir, að
Blikstaðalandið verði tekið undir
íbúðarbyggð fyrr en eftir þann tíma.
Til þess að hægt sé að byrja á
byggingaframkvæmdum þar, þarf
því að endurskoða og breyta aðal-
skipulagi bæjarins og sú vinna er nú
í gangi. Eins þarf að vinna að og fá ^
samþykkt deiliskipulag áður en
þessar framkvæmdir hefjast."
533 3444
Suðurlandsbraut 54, blau husin
Geir Þorsteinsson
sölustjóri
Erla Waage
skjalavinnsla
Knstinn Erlendsson
sölumaður
Þórður H. Svemsson hdi.
löggiltur fasteignasali
Opið virka daga frá kl. 9-18, þjónustusími 896 8090 og 863 1717.
Bræðraborgarstígur - vesturbær.
Fallegt 185 fm timburhús sem
er kjallari, hæð og ris. Húsið er
eitt af s.k. skipstjórahúsum,
byggt 1898 og á sér merkilega
sögu. Húsinu er vel við haldið
og mikið endurnýjað. s.s. lagn-
ir, rafm. o.fl. Nánari uppl. á
skrifstofu Þingholts. Verð 17,3
millj. 4044
einbýli
Garðsstaðir - á einni hæð.
Vorum að fá í einkasölu ca 150 fm einbýli
ásamt 30 fm bílskúr. Afhent tilb. til innr., til-
búið utan. Lóð grófjöfnuð. Frábært útivistar-
svæði og golfvöllur. 14,3 millj. 4030
V
Miðbærinn - einbýli. 105 fm
miklð endurnýjaö jámklætt timburhús á
steyptum grunni, kj„ hæð og ris. Húsið
stendur í porti norðan Vesturgötu. Nýtt raf-
magn og frárennsli, nýl. járn og þak. Stór
sólpallur. Útigeymsla og einkabílastæði.
Áhv. ca 5,8 millj. Verð 10,9 millj. 3381
Reykjavegur - Mos. Faiiegt 285
fm einbýlishús á tveimur hæðum. Arinn í
stofu. 40 fm garðskáli. Fallegur garður. Verð
17,0 millj. 4025
IMPI&B
Háaleitisbraut - 5 herb. Falleg
116 fm íbúð á 3. hæð. 4 svefnherb. Parket
og filsar. Allt nýl. á baði. Frábær aðstaða
fyrir börnin. Áhv. 4,9 millj. Verð 9,9 millj.
4037
Laugarnesvegur - Ris. snyrti-
leg 62 fm risíbúð. Tvö herb og tvær stofur.
Áhv. 3,6 millj. Verð 6,4 millj. 4031
Tryggvagata. Faiieg 93 fm ibúð á 2.
hæð. Parket og flísar. Sérsmíðaðar eikar-
innréttingar. Verönd út frá hjónaherbergi.
Verð 7,5 millj. 1914
flÍIQIHKSIEGEB
Hraunbær - laus. góö 63 fm ibúð
á 3. hæð í nýl. viðgerðu fjölb. Sérinng. af
svölum. Áhv. 3,4 millj. Verð 6,3 millj. 4006
Klapparstígur - m. bíla-
geymslu. Stórglæsileg 95 fm íbúð á 2.
hæð í lyftuhúsi. Tvö stór svefnherbergi með
miklu skápaplássi. Glæsilegt eldhús. Stofa
með útsýni. Svalir út I garðinn. Sérbilastæði
í lokaðri bllageymslu. Toppeign. Verð 11,2
millj. 3397
Þórufell. Mjög góð ca 80 fm íbúð á 2.
hæð (mjög snyrtilegu fjölb. 2 herb. og stofa.
Suðvestursvalir með fallegu útsýni. Húsið
stendur fremst í Fellunum. Verð 7,3 millj.
4039
2ja herb.
Ásbraut - Kóp. Snotur ca 37 fm íb.
á 3. hæð í fjölb. Áhv. 1,8 millj. Verð 4,1
millj. 4053
Fálkagata - vesturbær. Falleg
ca 60 fm fbúð á 1. hæð I góðu þríbýli. Til-
valin fyrir háskólafólkið. Verö 6 millj. 3402
Krummahólar - m. bílskýli.
50 fm íbúð á jarðhæð. Herbergi, stofa, eld-
hús og baðherb. Stæði f bílgeymslu. Verð
5,3 millj. 4029
Laufvangur - Hfj. Falleg íbúð á 1.
hæð. íbúðin er ca 70 fm og herbergi stór.
Verð 6,850 þús. 3390
atvinnuhúsnæði
Reykjavíkurvegur. 228 tm at-
vinnuhúsnæði á 2. hæð. Húsnæðið er opið
rými í dag og býður upp á ýmsa möguleika.
Verð 13,9 millj.
Smiðjuvegur. 175,4 fm á jarðhæð.
Einar innkeyrsludyr í tvö bil. Tilvalið fyrir all-
an léttan iðnað. Eigninni fylgir 5 ára leigu-
samningur. Verð 8,8 millj. 3389