Morgunblaðið - 11.05.1999, Síða 28
28 C ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
iL
ö EIGNA
J^NAUST
Þóraninn Jónsson hdl.
Löes. fasíeisna- oa skipasali
Sími: 55 18000 • Fax: 55 11160
VilastÍH 13 • 101 Reykjavfk
Sólarorka
og þvagskál
fyrir konur
Lagnafréttir
Sólfangarar verða æ algengari á þökum
húsa í Evrópu, segir Sigurður Grétar
Guðmundsson. Með þeim er hægt að hita
vatn og framleiða rafmagn.
HVAÐ er nauðsyn? Hvað eru
þarfahlutir? Þetta sækir
óneitanlega á hugann þegar geng-
ið er daglangt um sýningarhallir í
Frankfurt. Sá sem hefur í fjölda
ára eða áratuga snittað og skrúfað
saman rör, saknar ekki tilfinnan-
lega að sjá ekki þau rör og tengi á
sýningunni, en við skulum engan
veginn gera lítið úr þeirri tækni,
hún hefur komið að góðu gagni og
kemur enn.
En það hefur lengi verið til
margs konar annar tengimáti
röra, eirrör hafa oftast verið lóðuð
4 saman, stálrör log- eða rafsoðin og
með bílaöldinni fóru menn að nota
örmjó rör og þá komu til sögunnar
þéttihringurinn og róin, sem enn
eru mikið notuð við vatnslagnir.
Þrýstitengin, þar er Mann-
esmann-kerfið þekktast, hafa náð
mikilli útbreiðslu frá því sú tækni
v kom fram íýrir þrjátíu árum.
Það er athyglisvert hve mikið
framleiðendur röra leggja á sig til
að skapa kerfi, sitt eigið kerfi, fjöl-
breytnin er orðin mikil, jafnvel of
mikil.
Reuhau í Þýskalandi þrykkir
ekki, þar er plaströrið þanið,
stungið upp á nippil og messing-
hólkur dreginn inn yfir nippilinn,
örugg og góð tenging.
Wirsbo er með stórmerka nýj-
ung sem líkist mjög aðferð Rehau,
en í stað málmhrings er notaður
plasthringur úr sama efni og rörið.
Þar er það hringurinn sem er þan-
inn, en hann leitar aftur til upp-
hafs síns og herðir plaströrið að
nipplinum.
Þarfaþing?
Á opinberum stöðum, eins og
lagnasýningu, er mikil þörf á sal-
ernum, enda vel fyrir þeim séð.
Karla megin eru bæði salernis-
skálar og þvagskálar, en fram að
þessu hafa þvagskálar ekki sést á
SÓLFANGARAR verða æ algengari á þökum húsa í Þýskalandi.
REHAU-tengi, töngin tilbúin að renna messinghringnum á sinn stað.