Morgunblaðið - 13.05.1999, Qupperneq 11
Fjölga á skipulögöum hjónanámskeiöum
Fjögurra ára biðlisti
Á LÚTERSKA HJÓNAHELGI
Hjónanámskeið sem haldin
hafa verið í sumum kirkj-
um undanfarin ár hafa
verið mjög vel sótt og að-
sóknin á lúterska hjónahelgi er
slík að nú tekur fjögur ár að kom-
ast að. En hvaða skipulagða
fræðslu býður þjóðkirkjan pörum
og hjónum upp á?
Sr. Örn Bárður Jónsson,
fræðslustjóri hjá biskupstofu, seg-
ir að öflugasta starfið sem hafí
verið á boðstólum fyrir pör og
hjónafólk sé svokölluð lútersk
hjónahelgi, sem er alþjóðleg
hreyfing sem á rætur að rekja til
kaþólsku kirkjunnar á sjötta ára-
tugnum. „Starfið hófst hér á landi
árið 1985 og nú skipta hjónin þús-
undum sem hafa sótt þessa helgi.“
Öm Bárður segir að um 500 hjón
hér á landi séu að bíða eftir að
komast á slíka hjónahelgi en
haldnar em fjórar hjónahelgar á
ári og komast 120 hjón að á ári.
Það er því fjögurra ára biðlisti á
lúterska hjónahelgi.
„Nú síðustu árin hafa einnig
verið haldin hjónanámskeið í söfn-
uðum bæði hér á höfuðborgar-
svæðinu og á Akureyri. Mjög mik-
il aðsókn hefur verið á þessi nám-
skeið og stendur til að Leik-
mannaskóli þjóðkirkjunnar fjölgi
skipulögðum námskeiðum fyrir
pör og hjón á næsta hausti. Þá
munu prestar jafnvel geta bent
verðandi hjónum á að sækja slíka
fræðslu til að undirbúa sig fyrir
hjónabandið."
Myndbönd um hjónabandið?
Þegar Öm Bárður er spurður
hvort frekari nýjunga sé að vænta í
undirbúningi fyrir hjónaband á
vegum þjóðkirkjunnar segir hann
þá hugmynd hafa komið upp að búa
til myndband þar sem rætt verður
um ýmis atriði sem tengjast hjóna-
bandi, sambúð og fjölskyldulífi al-
mennt. „Þá verða jafnvel yngri og
eldri hjón fengin til að tjá sig um
hjónabandið. Myndband sem þetta
gætu prestar síðan lánað pörum.“
Þegar Sr. hann er spurður
hvort ekki sé æskilegt að öll pör
fái undirbúning fyrir hjónaband
segir hann að vissulega sé fræðsla
mjög mikilvæg en hann bendir á
að hún leysi ekki af hólmi þann
undirbúning sem hver og einn fær
á sínu bernskuheimili.
- En hvernig hafa prestar hátt-
að fræðslu til verðandi hjóna?
,Almennt er fyrirkomulagið
þannig að prestur talar við brúð-
hjónin áður en hann gefur þau
saman, hann hittir þau og skrifar
skýrslu og ræðir við þau um
hjónabandið, sambúðina og þau
grundvallaratriði sem varða ham-
ingju og mannleg samskipti.
Oft hefur verið rætt um að
vanda betur til þessa undirbún-
ings og jafnvel hefur verið rætt
um að gera það í formi námskeiða-
halds. Til eru bækur og bæklingar
sem prestar nota í starfi sínu og
lána pörum en annars er prestum í
sjálfsvald sett hvemig þeir haga
þessum tíma með verðandi hjón-
um.“
Rauðarárstíg 14, sími 551 0400
Kringlunni, sími 568 0400
foid@artgaileryfold.com
y
bestu
stund lífsins
{f^níAarkjáhiíc'iga &ftóm
Faxafeni 9 • Sími 568 2560
Twin TwinXL Full FullXL
97x190,5 sm. 97x203 sm. 135x190,5 sm. 135x203 í
152x203 sm. 183x203 sm
Það að sofa vel skiptir höfuðmáli. Serta er amerísk
lúxus dýna sem á sér enga hliðstæðu. Tæplega 70
ára reynsla Serta við dýnuframleiðslu hefur kennt
mönnum réttu aðferðirnar við að búa til dýnur sem
henta mismunandi einstaklingum. Fullkomin dýna
samanstendur af vissum grunnþáttum og svo öðrum
þáttum sem beinast að þörfum hvers og eins.
Grunnþættir eins og styrkur, réttur stuðningur og
ending þurfa að vera fyrir hendi í öllum dýnum, en
þáttur eins og t.d. stífleiki þarf að vera mismunandi
til að mæta ólíkum þörfum. PERFECT SLEEPER®
fjaðrakerfið sem er eingöngu fáanlegt í dýnum frá
Serta hefur þróast á löngum tíma og í dag framleiða
Serta verksmiðjurnar heimsins bestu dýnur.
BELLAMY millistíf
ULTIMA hörð
26.820,-
32.930,-
31.740,-
38.760,-
ULTIMA millistíf
ULTIMA mjúk
35.740,-
39.980,-
41.520,-
47.960,-
51.980, -
57.250,-
57.620,-
61.290,-
68.350,-
69.430,-
76.980, -
55.320,
62.120,- /
62.85C
73.440, -
79.590,-
86.440, -
GRAND millistíf
GRAND mjúk
IMPRESSION stíf
IMPRESSION millistff
IMPRESSION mjúk
SUPREME millistff
SUPREME mjúk
CORNICHE mjúk
43.960,-
49.180,-
49.280,-
53.510,-
58.890,-
62.150,-
69.860,-
V____________
15 ára
ábyrgð!
93.560,-
VtSA
1
69.720,-
79.980,-
89.980,-
94.640,-
MORGUNBLAÐHD fimmtudagur 13. maí 1999 D 11