Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 25
Hann leggur til létt veisluhöld í anda Miðjarðarhafsbúa. Suðræn sveifla undir berum himni Frjálsleg BRÚÐKAUPSVEISLA eir sem vilja hafa y&bragð brúðkaupsveislunnar sinn- ar frjálslegt geta ef til vill fylgt hugmyndum Þorvald- ar Borgars Haukssonar um veisluföng. „Það hefur færst í vöxt að brúð- hjónin vilji hafa frjálslegan blæ á veislunni, eiginlega að hætti Mið- jarðarhafsbúa. Sum pör hafa jafn- vel kosið að hafa veisluna undir berum himni ef veður leyfir. Lögð er áhersla á óformlega dagskrá og létta tónlist. Það færi vel á að hafa sem uppistöðu á hlaðborðið ítölsk brauð eins og mörg bakarí bjóða upp á. Dæmi um brauð sem passa á slíkt borð eru t.d. ólífubrauð, osta- og sveppabrauð, kryddbrauð, hvít- lauksbrauð og frönsk baguette- brauð. Brauðið er skorið niður og borið fram þannig að fólk geti tek- ið sér góða bita, dýft þeim í olíu eða edik og fengið sér meðlæti." Meðlætið margskonar Meðlætið segir Þorvaldur að geti verið margskonar, bragð- miklar niðurskornar kjötpylsur eru frábærar með brauðinu, sól- þurrkaðir tómatar og villisveppir, þistilhjörtu, paprikur, ólífur og hvítlauksrif í kryddlegi. Hann bendir á að ostar séu ómissandi á hlaðborðið og Þor- valdur mælir með að þeir séu skomir í bita. Hann mælir til dæmis með fylltum brie-ostum, feta osti, camembert og reyktum osti. Olíurnar á borðið geta verið nokkrar. „Hvítlauksolía með sinn- epi og aðrar bragðbættar olíur passa vel með brauðunum svo og ýmsar ediksósur.“ Að lokum segir Þorvaldur að ýmsir heitir og kald- ir smáréttir eigi heima á suðrænu veisluborði, bæði fisk- og kjötrétt- ir, allt eftir smekk og efnum. „Með þessum veitingum er drukkið gott rauðvín og auðvitað óáfengt rauðvín haft á boðstólum fyrir þá sem ekki vilja áfengi. A eftir er síðan boðið upp á kaffi, koníak og brúðartertu." Dansað fram eftir Þoraldur Borgar segir að í létt- um veislum sé boðið upp á suð- ræna tónlist og dansað frameftir að hætti Miðjarðarhafsbúa. „Svona veisla er auðvitað allt öðruvísi en hefðbundnar veislur og mismunandi eftir pörum hvaða leið er farin.“ Veisla eins og hér er verið að tala um þarf ekki að kosta háar fjárhæðir og það getur oft skapast góður andi í frjálslegum veislum þar sem ekki er setið til borðs heldur gengur fólk á milli og spjallar. Hér koma uppskriftir að tveim- ur smáréttum sem Þorvaldur mælir með á hlaðborðið. Þorvaldur Borgar er bakara- nemi á samningi hjá Jóa Fel. Hann vann nýlega tii gullverð- launa í Evrópukeppni hótel- og matvælaskóla sem haldin var i Portúgal. Auk þess vann Þor- valdur árlega Komax-keppni bakaranema fyrr á þessu ári. Súrsætar rækjur Rækjur Tilbúin súrsæt sósa ________Deig fyrir rækjur:___ ___________1 kg hveiti_______ ________10 eggjarauður_______ ___________1 / vatn__________ 10 msk. olía ___________lyftiduft_________ 5 tsk. sykur 10 eggjahvítur Öllu blandað saman nema eggjahvítunum. Þær eru þeyttar sér og síöan blandað varlega saman við í lokin. Rækjunum er velt upp úr þessu deigi og þær djúpsteiktar og bornar fram með heitri súrsætri sósu. Kaldar kjötbollur í heitri sósu 4 kg nautahakk 500 g gráðostur sem búið er að ___________stappa____________ ___________4 tsk salt________ olía til steikingar Gráöostur, nautahakk og salt hrært saman og mótaðar litlar bollur sem síðan eru steiktar. Bollurnar má gjarnan búa til fyr- irfram og frysta. SÓSAN: 4 paprikuostar (ekki smurostur) ___________2 tsk. sykur______ 2-4 dósir sýrður rjómi 4 laukar Rífiö ostinn niður í pott og saxiö lauk út í. Blandið sýrða rjóman- um og sykrinum saman viö. Hit- ið að suðu. Berið fram meö kjöt- bollunum. BRUÐARGJAFIRNAR FÁST í IKEA Ef þú leitar að glæsilegu úrvali, gæðum og góðu verði þá kaupir þú gjafirnar í IKEA! Þú getur einnig glatt brúðhjónin með IKEA gjafakorti! GJAFALISTI IKEA Gjafalistinn er nýjung hjá IKEA. Tilvonandi brúðhjón koma og láta okkur fá óskalistann sinn. Þegar þú kemur í IKEA gengur þú að gjöfunum vísum, sparar ómældan tíma og fyrirhöfn og tryggir um leið að brúðhjónin sitji ekki uppi með tugi eintaka af sama hlutnum. OPIÐ ALLA DAGA 10:00 -18:30 VIRKA DAGA 10:00 - 17:00 LAUGARDAGA 12:00-17:00 SUNNUDAGA fyrir cilla inuiti MORGUNBLAÐIÐ fimmtudagur 13. maí 1999 D 25

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.