Morgunblaðið - 13.05.1999, Side 21

Morgunblaðið - 13.05.1999, Side 21
;; I ■ : < •: i Landakoti, einn þeirra presta sem annast það, segir að venjulega sé um að ræða þrjá til fjóra fræðslu- fundi, þar sem fjallað er um eðli hjónabands. „Ég ræði meðal ann- ars um órjúfanieika hjónabandsins. Jesús helgaði þetta band kærleik- ans, sem Guð valdi, og það er eitt af sakramentunum sjö í kaþólskum sið. Ég vek athygli hjónaefna á því að ástin sem þau uppgötva sín á milli er gjöf frá Guði og kærleiki Guðs er þess valdandi að við erum til. Hjón þurfa að treysta því að hjónaband þeirra sé í góðum hönd- um Guðs. Þau þurfa að vera tilbúin að elska maka sinn og vera fórnfús. Ég kynni þeim umfjöllun Biblíunn- ar um hjónaband, sem hefst strax á fyrstu síðum hennar, í 1. Mósebók. Boðskapur Bibh'unnar er boðskap- ur um kærleika og ást og því er hjónaband, ásamt fjölskyldunni, einn mikilvægasti homsteinn í trú- arlífi fólks.“ Hjónaband er órjúfanlegt Sr. Jakob talar af mikilli sann- færingu og heldur áfram: „Hjóna- band er miklu meira en það sem við skynjum. Það er skóli kærleikans til að nálgast leyndardóminn um kærleika Guðs.“ Hann segh- það viðhorf kirkjunnar að hjónaband sé óijúfanlegt og þeir sem einu sinni hafi gengið í hjónaband séu bundnfr maka sínum til æviloka. Börnin eru kaþólsk Kynlíf utan hjónabands sam- ræmist ekki kristilegu líferni og segist sr. Jakob brýna það fyrir sóknarbörnum sínum. Hann seg- ir hjónavígsluna ekki ýkja frá- brugðna vígslu í lúterskum sið. „Einna helsti munurinn er ð þeg- ar tveir kaþólskir ganga í hjóna- band fer fram helgun brauðs og víns og hjónin ganga til altaris ásamt kaþólskum kirkjugestum. Kaþólskir mega ganga í hjóna- band með fólki í öðrum trúfélög- um, en böm hjónanna verða kaþ- ólsk. Kaþólska foreldrið ber ábyrgð á trúarlegu uppeldi barna sinna og hitt foreldrið þarf að samþykkja og virða þessa skyldu maka síns.“ Kaþólsk hjónavígsla er, að sögn sr. Jakobs, hugsuð sem almenn kirkjuleg athöfn. „Kirkjan er opin og allir eru velkomnir þótt þeim hafi ekki verið boðið til brúðkaups. Víða tíðkast það, en hér er sjald- gæft að aðrir en boðsgestir séu viðstaddir brúðkaup. Hugmyndin er sú að allir geti komið í kirkjuna og beðið fyrir brúðhjónunum, þótt þeir þekki þau ekki.“ Prestar koma í kaffi Prestar fylgja brúðhjónum eft- ir og segir sr. Jakob að þeir heimsæki hjón reglulega, banki upp á og ræði málin yfir kaffi- bolla. „Við reynum að vera vinir þeirra og þátttakendur í lífi þeirra í blíðu og stríðu. Jafn- framt hjálpum við þeim gegnum erfiðleika ef þeir koma upp. Við höfum þó hvorki menntun né reynslu til að taka á alvarlegum veraldlegum vandamálum, en ef þau koma upp bendum við hjón- um á að leita til fagfólks, til dæm- is sálfræðinga eða hjónaráðgjafa. Ef hjón eru að hugleiða skilnað er hlutverk okkar að leita að sátt- um og lausnum á vandamálum þeirra, enda eru þau og verða ávallt hjón gagnvart Guði þótt þau ákveði að búa ekki lengur saman. Viðhorf kaþólsku kirkj- unnar er skýrt: Þú gengur aðeins einu sinni í hjónaband, það sem Guð hefur sameinað má maður eigi sundur skilja.“ Múslimar Mohamad Jósef Daglas er flug- maður frá Jórdaníu. Hann hefur búið hér í 10 ár og segir trúará- huga sinn hafa aukist verulega á síðustu árum. „Múslimar hér eru nú um 300, en ekki allir skráðir í trúarsöfnuð okkar.“ Að sögn Mohamads skipa fjöl- skyldur brúðhjóna veigamikinn sess og taka þátt í ölllum ákvörð- unum. „Kóraninn segir að okkur beri að virða þá sem eldri eru. Hafi maður hug á að kvænast fer faðir hans, frændi eða annar innan fjölskyldunnar á fund foreldra stúlkunnar og biður um hönd hennar. Lítist henni og fjölskyldu hennar vel á ráðahaginn trúlofast parið fljótlega.“ Pörin sjaldan ein Kóraninn bannar samkynhneigð og múslimar mega ekki stunda kynlíf íyrir hjónaband. Mohamad segir langflesta virða það. „Pör eru sjaldan ein fyrir brúðkaupið, en hittast með fjölskyldum sínum og undirbúa brúðkaupið, m.a. með því að gera brúðarsamning. Þar lýsa brúðhjónin því yfir að þau vilji ganga í hjónaband og til- greind er fjárhæð sem sem mað- urinn gefur konu sinni. Gjöfin hef- ur táknrænt gildi og þarf ekki að vera há. í samningnum er einnig tilgreind fjárhæð sem manni ber að greiða konu sinni fari hann fram á skilnað. Engin greiðsla er innt af hendi ef konan vill skilnað. Þar sem flestar múslimskar konur eru heimavinnandi skiptir máli að þeim sé tryggður eins konar líf- eyrir ef eiginmaður skilur við þær. Heimanmundur er einnig til- greindur í samningnum, sem síðan er undirritaður heima hjá foreldr- um annars brúðhjónanna.“ Mohamad segir að hjónin klæði sig í betri fót fyrir undirritun samningsins og oft séu nánustu ættingjar viðstaddir. Tveir vottar eru ávallt kallaðir til, til að stað- festa undirskrift hjónanna, og einnig imam, sem er trúarleiðtogi. „Brúðkaupsveislan fer ekki endi- lega fram sama dag, en föstudagur er helgidagur hjá múslimum og því eru brúðkaupsveislur oftast haldnar á fimmtudagskvöldum. Þá klæðir brúðgumi sig í jakkafót og brúður í hvítan síðan brúðarkjól. Hefð er fyrir brúðargjöfum og eru peningagjafir algengar. Æskilegt er talið að hjón komi sér upp eigin heimili og aðstoða foreldrar þau yfirleitt við að finna hentugt húsnæði. Sé það ekki hægt búa þau venjulega heima hjá foreldrum brúðguma." Fjölkvæni leyfilegt Mohamad segir algengast að fólk giftist um tvítugt, en dæmi séu um yngri brúðhjón, sem jafn- vel eru vart komin af barnsaldri. Spurður um fjölkvæni segir hann það heimilt samkvæmt Kóranin- um, en það sé þó ávallt háð sam- þykki eiginkonu. „Fjölkvæni er ekki algengt, en kona getur til dæmis heimilað manni sínum að kvænast annarri konu ef hún er sjúklingur eða getur ekki alið honum börn. Barneignir skipta okkur miklu máli.“ Munur á stöðu karla og kvenna kristallast einnig í því að múslim- skir karlmenn mega kvænast kristnum konum og gyðingum, en múslimskar konur mega eingöngu kvænast múslimum. Börn fylgja trú fóður síns og ber hann ábyrgð á trúarlegu uppeldi þeirra ef móð- ir er annarrar trúar. Hjónabandið og fjölskyldan eru, að sögn Mo- hamads, hornsteinn samfélagsins. „Algengast er að karlinn sé fyrir- vinna og konan beri ábyrgð á heimili og uppeldi barna. Kóran- inn kveður á um að hjón skuli hjálpast að í gegnum lífið og um- gangast hvort annað af virðingu. Þeim ber að leysa ágreining á frið- sælan hátt og vera þess minnug að veraldlegir hlutir veita ekki ham- ingju. Friðsælt fjölskyldulíf er réttur hverrar fjölskyldu og lögð er rík áhersla á það, enda endur- speglast það úti í samfélaginu.“ MORGUNBLAÐIÐ fimmtudagur 13. maí 1999 D 21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.