Morgunblaðið - 13.05.1999, Side 32

Morgunblaðið - 13.05.1999, Side 32
Þó rauðar rósir séu vissulega tákn rómantíkur og hugguleg- heita þá duga þær skammt, einar og sér, í að viðhalda ástinni og færa hjón nær hvort öðru. En hvað er hægt að gera? Heilan helling ef þið eruð tilbúin að sleppa aðeins fram af ykkur beislinu, hætta að vera ofur „skynsöm" svolitla stund og láta það eftir ykkur að bregða aðeins á leik. Þú getur • Bókað ykkur á dansnámskeið. M ræður hvort þú segir maka þínum frá því fyrirfram eða býrð til skemmtÚegan leik úr Rómantík í hjónabandinu því. Nærð í hann í vinnuna og ferð einfaldlega með hann beint í tangó-tímann. • Drifíð makann út í bíl einn góðviðrisdag og ekið með hann að hús- inu sem þú fæddist (hvort heldur sem það var nú í heimahúsi eða á fæðingar- stofnun). Síðan ekur þú sem leið liggur „í gegnum líf þitt“; stoppar við þau hús sem þú hefur búið í, röltir um ná- grennið með makanum og rifj- ar upp helstu minning- amar; t.d. ég hélt alltaf að Guð ætti heima í þessu húsi, þama jörðuðum við fuglinn sem flaug á stofu- gluggann hjá okkur og kon- an sem bjó í þessu húsi gaf mér alltaf appelsínu þegar ég fór út í búð fyrir hana. Þannig veitirðu maka þínum enn meiri hlut- deild í lífi þínu. Daginn eftir getið þið síðan „ekið í gegnum ævisögu hans“. • Bókað ykkur á indverskt mat- reiðslunámskeið saman. • Keypt borðtennisborð og sett það upp í bflskúmum. Síðan getið þið slökkt á sjónvarpinu á miðvikudagskvöldum og sveiflað spöðunum um leið og þið spjallið saman. • Boðið makanum í einhvern leiktækjasal og skorað á hann í keppni í einhverjum leik þar. • Bakað tvær kökur og síðan skreytið þið sitthvora kökuna með bundið fyrir augun. ...að jóðu hjónabandi Nú er stóra stundin runnin upp og þau eru á leiðút í lífið, nýgift og ástfangin. Gagnkvæm virðing og tillitssemi er einn af hornsteinum hjónabandsins ásamt hollu mataræði og heilbrigðu líferni. - við öll tœkitœri • Beðið maka þinn um að setjast niður og skrifa nokkur orð um þá þrjá atburði í hjónabandi ykkar sem honum era kærast- ir. Síðan gerir þú slíkt hið sama. Það á eftir að ylja ykkur um hjartarætur að lesa þetta og svo verða þessar litlu sögur ómetanlegar fyrir bömin ykk- ar í framtíðinni. • Keypt stjömufræðikort, hellt síðan upp á könnuna eitthvert stjömubjart kvöldið og boðið makanum út í garð. Þar getið þið setið, sötrað heitt kaffi og reynt að finna Venus, Júpiter og Mars. • Farið með makann í „óvissu- ferð“ niður í Alþingishús. Þar getið þið tyllt ykkur á bekkina á pöllunum og fylgst með ein- hverjum eldheitum umræðum. Síðan kfldð þið á kaffihús á eft- ir og skiptist á skoðunum um málið. • Sett miða með krúttlegri orð- sendingu undir rúðuþurrkuna á bflnum hans/hennar á bfla- stæðinu fyrir utan vinnustað hans/hennar. • Skreytt bflinn hans/hennar, þar sem hann stendur fyrir ut- an vinnustað hans/hennar, með blöðram, sleikibrjóstsykri, litl- um hjörtum, kortum og bókum um ástina og hamingjuna. Þetta er allt í senn; krúttlegt, út í hött, ofboðslega fyndið og með öllu ógleymanlegt. • Vaknað um miðja nótt og út- búið morgunverð úti í garði. Síðan vekur þú maka þinn rétt áður en sólin kemur upp og saman horfið þið á sólarapp- rásina og borðið nýbakað brauð með osti. • Leigt tvenna hjólaskauta og boðið honum út að skauta. Sennilega munuð þið samt gera meira af því að hlæja en skauta. • Sett bömin í pössun og útbúið skemmtflegan ratleik. Fyrstu vísbendinguna fær makinn þeg- ar hann kemur heim og les mið- ann á ísskápshurðinni. Þar er honum uppálagt að fara út í sjoppu þar sem hann fær aðra vísbendingu. Þriðja vísbending- in er uppi í tré í garðinum hjá tengdó o.s.frv. o.s.frv. Loka- punkturinn getur verið hvar sem er; um borð í Herjólfi þar sem þið siglið til Eyja eða á ein- hverju hóteli í öðra bæjarfélagi, uppi á Esjunni þar sem þú bíð- ur með köflóttan dúk, rauðvíns- flösku og nesti, í tjaldi á tjald- stæði í nágrenninu, í Elliðaár- dalnum þar sem þú ert búin að „dekka upp“ borð með damask- dúk og kristalsglösum o.s.frv. • Útbúið japanskt matarboð fyr- ir tvo þar sem þið sitjið á gólf- inu í silkisloppum og borðið japanskan mat. • Notið hugmyndaflugið! 32 D MORGUNBLAÐIÐ fimmtudagur 13. maí 1999

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.