Morgunblaðið - 23.05.1999, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1999 E 3
/----------------------------------------------------->
Ifiörf í boði hjá Eimskip
Lögmaður
Óskað er eftir lögmanni í starf deildarstjóra
í trygginga- og tjónadeild.
Eimskip starfar i alþjóðlegu umhverfi og
rekur nú 22 starfsstöðvar í 11 löndum. Hjá
Eimskip og dótturfyrirtækjum innanlands
og erlendis starfa um 1.200 manns. Mikil
áhersla er lögð á frœðslu og símenntun starfs-
manna. Öflugt gœðastarf á sér stað innan
fyrirtœkisins þar sem hver og einn er virkj-
aður til þátttöku.
Við leitum að drífandi einstaklingum sem
eru tilbúnir að takast á við spennandi verk-
efni í fyrirtæki sem býður upp á mikla
framtíðarmöguleika.
Umsóknir sendist tO starfsmannastjóra Eim-
skips, Hjördísar Ásberg, Pósthússtræti 2,
101 Reykjavík fyrir 1. júní nk.
Starfssvið
• Dagleg verkstjórn.
• Umsjón tryggingamála.
• Yfirumsjón með hluthafaskrá.
• Vinna við fyrirbyggjandi aðgerðir í tjónamálum.
• Ýmis lögfræðileg sérverkefni.
Viðskiptafræðingur
Óskað er eftir viðskiptafræðingum til starfa
í sérfræðistörf í hagdeildir.
Starfssvið
• Gerð uppgjöra og áætlana ásamt fjölbreyttum
hagdeúdarverkefnum.
Hæfniskröfur
• Viðskiptafræðimenntun af fjármála- eða
endurskoðunarsviði.
• Góð tölvukunnátta (Excel, Power Point).
• Sjálfstæð vinnubrögð.
• Frumkvæði.
• Reynsla af bókhaldi og/eða reikningshaldi æskileg.
• Færni í mannlegum samskiptum.
Hæfniskröfur
• Lögmannsréttindi.
• Sjálfstæð vinnubrögð.
• Skipulagshæfni.
• Góð enskukunnátta.
• Reynsla í almennri tölvunotkun.
• Færni í mannlegum samskiptum.
V,
EIMSKIP
Slmi 525 7373 • Fax 525 7379 • Netfang: info@eimskip.is • Heimasíða: www.eimskip.is
Bmskip leggur áherslu á að auka hiut kvenna
(ábyrgðarstöðum hjá félaginu og stuðla þar með
að því að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði.
Samvinnuháskólinn á Bifröst er fagháskóli á sviði rekstrar, viðskipta
og stjórnunar. Háskólinn útskrifar rekstarfrœðinga að loknu tveggja
ára námi og B.S.-rekstrarfrœðinga að loknu þriggja ára námi. íþessum
140 manna háskóla erfyrst og fremst kennt með verkefnum og hópstarfi,
lögð er sérstök áhersla á raunhœf verkefni, alþjóðleg viðfangsefni og
notkun upplýsingatæknL Til viðbótar við hefðbundna kennslu rekur
Samvinnuháskólinn sérstaka Jjarnámsdeild. Háskólinn er staðsettur
ífögru umhverfi íNorðurárdal íBorgarfirði, um 100 km. frá Reykjavík.
FJARMALASTJORI
Samvinnuháskólinn á Bifröst óskar eftir að ráða fjármálastjóra.
Starfssvið
Yfirumsjón og stjórnun fjármála og fasteigna háskólans. Miðað er við að starf fjármálastjóra
sé hlutastarf (50%) og að hann sinni jafnframt kennslu og rannsóknum við háskólann.
Menntunar og hæfniskröfur
Meistaragráða í fjármálastjórnun, stjórnun, starfsmannastjórnun eða öðrum greinum á fræðasviði
háskólans. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu og/eða þekkingu á tölvuvæddum
upplýsingakerfum.
UPPLÝSINGAFRÆÐI/
BÓKASAFNSFRÆÐI
Samvinnuháskólinn á Bifröst óskar eftir samstarfi við upplýsingafræðing um rekstur
Upplýsingamiðstöðvar háskólans. Starfshlutfall er samkomulag.
Starfssvið
Uppbygging og skipulagning á Upplýsingamiðstöð Samvinnuháskólans. Stjórnun innkaupa
prentaðs efnis og gagna á fræðasviði skólans. Aðstoð við nemendur og kennara varðandi
upplýsingaleit.
Menntunar og hæfniskröfur
Háskólamenntun í upplýsingafræði/bókasafnsfræði. Mjög góð þekking og/eða reynsla á sviði
upplýsingamála, sérstaklega varðandi rafræn gögn og tölvuvædda upplýsingaleit.
Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veita rektor Samvinnuháskólans í síma 435 5000
eða Torfi Markússon hjá Ráðgarði hf. í síma 533 1800.
Umsóknum um ofangreind störf skal skila til rektors Samvinnuháskólans á Bifröst,
Bifröst, 311 Borgarnes eða Ráðgarðs fyrir 4.júní n.k. merktar:
Samvinnuháskólinn á Bifröst" og viðeigandi starfi
Frá Háskóla íslands
Læknadeild
Laust er til umsóknar starf dósents í eitur-
efina- og réttarefnafræði (human toxico-
logy). Starfið tengist sérfræðingsstarfi við
Rannsóknarstofu í lyfjafræði.
Ráðið verður í starfið til 5 ára frá haustmánuð-
um 1999.
Umsóknarfrestur er til 25. júní 1999.
Umsóknum og umsóknargögnum skal skila
í þríriti til starfsmannasviðs Háskóla íslands,
Aðalbyggingu við Suðurgötu,101 Reykjavík.
Umsóknum þarf að fylgja greinargóð skýrsla
um vísindastörf umsækjenda, rannsóknir og
ritsmíðar (ritaskrá), yfirlit um námsferil og
störf, (curriculum vitae) og eftir atvikum vott-
orð. Með umsókn skulu send þrjú eintök af
vísindalegum ritum og ritgerðum birtum og
óbirtum sem umsækjandi óskar að tekin verði
til mats. Ef höfundar eru fleiri en umsækjandi,
skal hann gera grein fyrir hlutdeild sinni í rann-
sóknum sem lýst er í ritverkum. Ef um mikinn
fjölda ritverka er að ræða skal innsending tak-
markast við 20 helstu fræðileg ritverk sem
varða hið auglýsta starfssvið.
Gera skal gera grein fyrir því hverjar rannsókn-
arniðurstöður umsækjandi telur markverðastar
svo og þeim rannsókum sem umsækjandi
vinnur að og hyggst vinna að verði honum
veitt starfið og þá aðstöðu sem til þarf. Um-
sagnir um kennslu og stjórnunarstörf skulu
fylgja eftir því sem við á.
Um meðferð umsókna gilda ákvæði 12. gr.
laga nr. 41/1999 um Háskóla íslands og reglna
nr. 366/1997 um veitingu starfa háskólakenn-
ara. Öllum umsóknum verður svarað og um-
sækjendum síðan greint frá ráðstöfun starfsins
þegar ákvörðun um það hefur verið tekin.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála-
ráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags og rað-
ast starf dósents í launaramma c%
Nánari upplýsingar gefa Jóhann Ágúst Sig-
urðsson, forseti læknadeildar. í síma 525 4880
og Magnús Jóhannsson, prófessor í lyfjafræði,
í síma 525 4397.
http://www.starf.hi.is