Morgunblaðið - 23.05.1999, Side 12
12 E SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MÝRARHÚSASKÓLI
Lausar stöður
skólaárið 1999-2000
Seltjarnarnesbær óskar eftir að ráða
hugmyndaríka og metnaðarfulla starfsmenn.
Mýrarhúsaskóli er einsetinn skóli fyrir 1.-7. bekk með
um 530 nemendur. Starfsaðstaða er góð og skólinn er
vel búinn kennslutækjum. Starfsmönnum gefst kostur
á að vinna að umbóta- og nýbreytnistarfi í skólanum.
• Við óskum eftir að ráða bekkjarkennara á yngsta
stig og miðstig. Æskilegt er að umsækjendur hafi ensku,
náttúrufræði, stærðfræði og eðlisfræði sem valgreinar.
• Ennfremur óskum við eftir að ráða heimilisfræði-
kennara I 2/3 starf.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum KÍ og HÍK
við Launanefnd sveitarfélaga.
Auk þess hafa verið gerðir samningar við kennara
um vlðbótargreiðslur fyrir vinnu til eflingar
skólastarfs á SeltjarnarnesL Samningurinn gildir
til 31. desember árið 2000.
Umsóknir berist til Regínu Höskuldsdóttur skólastjóra,
sem veitir nánari upplýsingar um stöðurnar.
Sími 561-1980, netfang: regina@selnes.is.
Við óskum sérstaklega eftir að ráða starfsfólk sem er
tilbúið til að takast á við spertnandi en krefjandi verkefhi
og telur sig vera frumkvöðla á sínu sviði.
| Umsóknarfrestur
| ertil 31. maí 1999.
Grunnskólafulltrúi
Jolster sveitarfélagið.
Heilbrigðis- og félagsmálasvið.
Jolster er náttúrufagurt hérað þar sem byggðin er i kringum hið
fallega og veiðisæla Jolstervatn. Jelstererí 1/2 tíma ökufjarlægð
frá næsta bæ, Forde, sem er verslunar- og stjórnunarmiðstöð svæð-
isins.
Jolster sveitarfélagið er í mikilli þróun á sviði umönn-
unar- og heilbrigðisþjónustu. Verið er að Ijúka við
vistunarbústaði fyrir aldraða við Skei omsorgscenter
og fljótlega mun hefjast bygging á vistunarbústöðum
við Vassenden omsorgscenter.
( samræmi við samþykkta áætlun um hjúkrun aldr-
aðra verður stöðuheimildum nú fjölgað.
Hjúkrunarfræðingar
Við Vassenden dagvistunarstofnunina fyrir aldraða eru
lausar nú þegar 2 heilar stöður hjúkrunarfræðinga.
Stöðukóði 7174, launaþrep 25- 28, 216.500 -227.300
n. kr. á ári, auk vaktaálags.
Við bjóðum krefjandi starf í umhverfi sem er í þróun.
Sveitarfélagið aðstoðar við útvegun húsneeðis og hér
eru góðir möguleikar á leikskólaplássi. Jolster sveitar-
félagið býður upp á gott umhverfi fyrir börn og fjölbreytt
tækifæri til útiveru og frístunda, bæði sumar og vetur.
Nánari upplýsingar hjá sviðsstjóra í síma
0047 577 27530 eða heilbrigðis- og félagsmálastjóra í
síma 0047 577 26150.
Um stöðuveitingu gilda að öðru leyti venjulegar reglur
og skilyrði sem sveitarfélagið setur.
Umsóknarfrestur er tíl 4. júní 1999.
Seltjarnarnesbær
's~\^
Húsavíkurkaupstaður — bæjarskrifstofa
Skjala- og
upplýsingafulltrúi
Laust ertil umsóknar nýtt starf hjá Húsavíkur-
kaupstað — starf skjala- og upplýsingafulltrúa
á bæjarskrifstofu.
Helstu þættir starfsins eru:
• Uppbygging á skjala- og upplýsingasafni
bæjarins.
• Almenn skjala-, bóka- og gagnavarsla.
• Almenn upplýsingagjöf.
• Samskipti við Héraðsskjalasafn.
• Umsjón með útgáfu kynningarefnis.
• Grisjun upplýsinga.
• Skipulagning námskeiða og fræðslu.
• Almenn skrifstofustörf.
Fyrirhugað er að taka í notkun nýtt tölvuvætt
skjala- og upplýsingakerfi, sem starfsmaður
mun hafa umsjón með. Starfið felst m.a. í að
byggja upp skjalasafn bæjarins og upplýsinga-
miðlun, m.a. í gegnum heimasíðu bæjarins
á Internetinu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og
reynslu á sviði bókasafnsfræði og skalavörslu,
en stúdentspróf og þekking á tölvuvinnslu
kemur einnig til greina. Nánari upplýsingar
um starfið veitir undirritaður. Vakin er athygli
á því að samkvæmt starfsmannastefnu Húsa-
víkurkaupstaðar eru vinnustaðir bæjarins
reyklausir. Umsóknareyðublöðfást á bæjar-
skrifstofunni.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júní nk.
Bæjarritari.
Frá Háskóla íslands
Námsbraut
í hjúkrunarfræði
Áskrifstofu námsbrautar í hjúkrunarfræði er
lausttil umsóknar fullt starf fulltrúa. Krafist
er góðrar almennrar menntunar og reynslu
af tölvuvinnslu og skrifstofustörfum. Háskóla-
menntun er æskileg en ekki nauðsynleg. Góð
islensku- og enskukunnátta er nauðsynleg auk
kunnáttu í einu Norðurlandamáli. í starfinu
reynir mikið á skipulags- og samskiptahæfi-
leika. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjár-
málaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Áætlað er að ráða í starfið frá 1. ágúst nk.
Umsóknarfrestur er til 7. júní 1999.
Skriflegum umsóknum, sem greina frá mennt-
un og starfsreynslu, skal skila til starfsmanna-
sviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu við Suð-
urgötu, 101 Reykjavík. Umsóknir geta gilt í sex
mánuði.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækj-
endum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingarveitir Guðlaug Vilbogadótt-
ir, skrifstofustjóri námsbrautar í hjúkrunarfræði,
í síma 525 4961, netfang gudlaugv@hi.is.
http://wvwv.starf.hi.is
Aðalbókari
Þjónustufyrirtæki í Hafnarfirði óskar
eftir að ráða aðalbókara.
Meginverkefni:
• Umsjón bókhalds
| • Afstemmingar
• Uppgjör og frágangur til endurskoðanda
• Sérverkefna í samráði við framkvæmda-
stjóra
Hæfnisköfur:
■ Haldgóð þekking og skilningur á bókhald
• Starfsreynsla nauðsynleg
• Nákvæmogöguð vinnubrögð
• Metnaður í starfi
Mjög gott framtíðarstarf hjá traustu
fyrirtæki, þar sem góður starfsandi
ríkir.
Umsóknarfrestur er til og meö 27. mai nk.
Nánari uppplýsingar veittar á skrifstofu
Liösauka, sem opin er kl. 9-14 og á heima-
síðunni:www.lidsauki.is
Fó/fr ogr þekking
Udsauki ®
Skipholt 50c, 105 Reykjavik sími 562 1355, fax 562 3767
Netfang: www.lidsauki.is
Tölvupóstur: lidsauki@lidsauki.is
^mKmmm&s; ~ f.
)ntræoingur
Framleiðslufyrirtæki í
matvælaiðnaði óskar eftir því að
ráða vélstjóra/iðnfræðing til starfa.
Starfssvið:
• Viðhald á vélum og tækjum
• Pöntun á varahlutum
• Suðuvinna
Leitað er að véistjóra eða tæknimenntuðum
starfsmanni með reynslu af viðhaldi véla og
tækja. Góð ensku- og tölvukunnátta
(iðntölvur PLC) er nauðsynleg.
Skriflegar umsóknir óskast sendar til
Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers
merktar „Vélstjóri" fyrir 28. maí nk.
Upplýsingar veita Drífa Sigurðardóttir og
Jóney H. Gylfadóttir hjá Ráðningarþjónustu
PricewaterhouseCoopers í síma 550 5300.
Netföng: drifa.sigurdardottir@is.pwcglobal.com
joney.h.gylfadottir@is.pwcglobal.com
PrICM/ATeRHOUsEQdPERS §
Höfðabakka 9
Rétt þekking 112 Reykjavík
á réttum tíma Sími 550 5300
-fyrir rétt fyrirtæki Bréfasími 550 5302
www.pwcgiobal.com/is
>
Landbúnaðarráðuneytið
Lögfræðingur
óskast tímabundið
í starf deildarstjóra
Lögfræöing vantartil að gegna deildarstjóra-
stööu á lögfræöisviöi landbúnaðarráðuneytis-
ins frá 1. júní nk. og til ársloka 1999.
Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um
fyrri lögfræðistörf. Æskilegt er að með umsókn-
um fylgi meðmæli eða vísun á meðmælendur.
Um laun fer eftir kjarasamningum opinberra
starfsmanna.
Upplýsingar veitir Guðmundur Sigþórsson,
skrifstofustjóri, í síma 560 9750 virka daga.
Umsóknarfrestur er til 27. maí nk.
áh
Mosfellsbær
Leikskólinn Hlaðhamrar
Ráðskona
Vegna forfalla er staða ráðskonu laus nú þegar.
Áhersla er lögð á einfaldleika og hollustu í
fæði. Kjör samkvæmt kjarasamningi Starfs-
mannafélags Mosfellsbæjar.
Nánari upplýsingar gefur undirrituð í síma
566 6351.
Leikskólastjóri.
Kennarar — kennarar
Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru eftirfarandi
stöður lausar til umsóknar: Almenn kennsla,
kennsla yngri barna, mynd- og handmennt,
raungreinar, danska, tónmennt.
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar er einsetinn og
verða nemendur um 140 næsta ár og einn
bekkur í árgangi. í skólanum er góð vinnuað-
staða fyrir kennara sem tekin var í notkun á
þessu ári. Kennarar eru um 13 auk skólastjóra
og aðstoðarskólastjóra. Kennurum er útvegað
ódýrt húsnæði og flutningsstyrkur greiddur.
Umsóknarfrestur er til 5. júní 1999.
Upplýsingar veitir Hafsteinn Halldórsson
skólastjóri í síma 475 1224, 475 1159 og 861
1236, netfang hafhall@eldhorn.is.
Skólastjóri.