Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 4
26. mai - 8. júní
SJÓNVARP .....6-23 I
ÚTVARP.......30-43
Morgunblaðið á
netinu www.nibl.is
Ýmsar Stöðvar .30-43
Krossgátan .........46
Þrautin þyngri . . . .45 |
íþróttir
Beinar útsendingar
í sjónvarpi .............11
Danslagakeppni
í tilefni af Ári aldraðra
Óskað eftir
dægurperlum..........15
Með fiðrildi í maganum
Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva . . . .26-27
Morgunblaöið / Dagskrá Útgefandi Áivakur hf. Kringl-
unni 1 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 5691100
Auglýsingar 5691111. Dagskrá: beinn sími: 5691259
Ben Lee er kærasti Claire Danes
Þurftu að fela sig
í gamalli kirkju
Þegar Ben Lee var aöeins fjórtán ára gamall gaf hann út ásamt
hljómsveit sinni Noise Addict smáskífuna I Wish I Was Him sem
var eins og ósk um frama í rokkinu.
Nú hefur Lee
fengiö ósk sína
Ben Lee hefur
unnió hug og
hjarta leikkon-
unnarungu
Claire
Danes.
4* uppfyllta því nýjasta
L..plata hans, Breathing
Tornados, hefur fengiö
Á.Mf* mikið lof gagnrýnenda í
heimalandi hans, Ástralíu. Ekki
er nóg með aö tónlist hans hafi
fengið viðurkenningu heldur á
hann fræga kærustu, enga aöra
en leikkonuna ungu Claire Danes.
Danes varö svo hrifin af fyrri
_ plötu Lees, Grandpaw Would, aö
hún sendi símbréf til útgáfunnar
þar sem hún stakk upp á því aö þau
Lee hittust. Þau búa nú saman í
stórri þakíbúð á Manhattan í New
York. Ben segir aö frægðin hafi sína
fylgifiska eins og berlega kom í Ijós
þegar hann fór með kærustuna til
Ástralíu. „Þegar við Claire vorum í Sydn-
ey vorum við hundelt af Ijósmyndurum
og þurftum aö fela okkur í gamalli
kirkju. Eftir dálitla stund fórum við út úr
kirkjunni og þar náði Ijósmyndari mynd
af okkur. Myndin var birt og sögusagnir
fóru á kreik um að við værum nýgift! “
Ekki eru þau Lee og Danes þó búin
að ganga upp að altarinu ennþá, þótt ekki væri annað hafa þau
engan tíma til þess. Danes er upptekin við leikinn en nýjasta mynd
hennar er Mod Squad þar sem hún leikur heldur villtari stúlku en
venjulega. Ben Lee er einnig að fylgja eftir nýju plötunni sinni.
„Ástralar hafa svo mikla minnimáttarkennd að ég ákvað að segja
öllum að nýja platan mín væri hreint út sagt frábær og líklega
besta ástralska platan sem gefin hefur veriö út!" segir Lee.
Kotroskin kynning drengsins á tónlistinni vakti að vonum athygli,
en Lee segist ekki vera jafn yfirlýsingaglaður á öllum sviðum og vill
halda einkalífi sínu og Claire Danes frá fjölmiðlum.
Stjörnur
leika sér
•Tveir af aðal-
leikurum Strand-
varðaþðttanna,
þau Angelica
Bridges og Jose
Solano, fengu að
spreyta sig í
Grand Tourismo í
veislu Sony-fyrirtækisins á
dögunum. Leikararnir
skemmtu sér vel en sögðu að
þá vantaói frekari æfingu í
leiknum og að „leikjatækn-
inni" væri örlítið ábótavant.
——
Shaun Cassidy
hefur komið
víða við
•Táningastjarn-
an Shaun Cass-
idy hefur skrifað
undir þriggja ára
samning viö
Barry Diller kvik-
myndaverið sem
metinn er á 35 milljónir króna.
Leikarinn hefur skuldbundið sig
til að gera 13 þætti í kapal-
sjónvarpi Diller fyrirtækisins og
vonast er til að það efni verði
tilbúið í byrjun næsta árs.
Shaun bjó til sjónvarpsþættina
„American Gothic" og einnig á
hann heiðurinn af þáttunum
„Roar" sem Fox sjónvarpsstöð-
in framleiddi.
Bóndinn í Ballykissangel látinn
Leikarinn Birdie Sweeney er fór
með hlutverk bóndans Eamon
Byrne í þáttunum „Ballykissang-
el“ lést á sjúkrahúsi í Dublin
11. maí síðastliðinn. Leikarinn
sem er átta barna faöir var í
Dublin í nokkra daga til að
slaka á áður en tökur hæfust á
þáttunum á nýjan leik en veikt-
ist þá skyndilega. Pat Loughrey
hjá BBC sjónvarpsstöðinni lýsir
Birdie sem einstökum hæfi-
leikamanni. Hann var ekki
menntaður leikari en hóf feril
sinn sem gamanleikari og tók
síðar að leika alvarlegri hlut-
verk. Hann lék til að mynda í
myndinni „Divorcing Jack" sem
sýnd var hérlendis nýverið og
bráðum veróur sýndur t bresku
sjónvarpi einn þáttur sem hann
lék í þáttaröðinni „Give My
Head Peace".
Chris Clough, framleiðandi
Ballykissangel þáttanna sagði
að allir í leikarahópnum hefðu
elskað Birdie. „Það er sorglegt
að hann skildi falla frá á toppi
ferils síns."
Ný þáttaröð er hafin af
Ballykissangel í Sjónvarpinu en
margir eiga sjálfsagt eftir að
sakna bóndans sem var ávallt
svo skemmtilega utan við sig.
r| i
Ife/ i
Birdie (lengst til hægri í efri röð) ásamt
félögum sínum í Ballykissangel.
4