Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 47
Hinsvegar er myndin gott dæmi um hversu illa kvenstjörnur eldast í Hollywood miðað við karlana. Nú er Turner svo gott sem týnd og tröllum gefin en frægðarsól Nicolas Cage skín í hádegisstað. Leikstjóri Francis Ford Coppola. RÚV, 4. júní. Uglan og kisulóran - The Owl and the Pussycat (70) jj Barbra Streisand leikur ítur- W vaxna en illa lesna gleðikonu og George Segal snobbaðan menn- ingarvita og roðhænsn, í mynd sem skemmti manni í den, en ég lofa hana með fyrirvara um hugsanlega slæma ellidaga. Stöð 2, 30. maí. \SPENNUMYNDIR Einn á móti öllum - Against All Odds ('84) áEndurgerð Out of the Past, film noir-myndar frá '47, um ástir morð og svik - undirstöðukryddum slíkra mynda. Jeff Bridges leikur ruðningsleikara sem er búinn að vera og verður að taka að sér hæpið verk- efni hjá James Woods - að finna stúlkuna hans (Rachel Ward), niður í Mexíkó. Ekki er allt sem sýnist og Amor leggur ör á bogann. Heldur skemmtileg en ófullnægjandi afþrey- ing, áhorfandinn gjaman mataður einsog einfeldningur. Ward er kyn- þokkinn uppmálaður og ástarsenur þeirra Bridges svo magnaðar að þóndi hennar (Bryan Brown) sat svitastorkinn yfir þeim á tökustað. Stöð 2, 28. maí. í skuggasundum - Mean Streets (71) Myndin sem vakti athygli á ein- um besta leikstjóra samtíðar- innar, Martin Scorsese. Það má líta á hana sem æfingu fyrir þær gæða- myndir sera fylgdu í kjölfarið og ber flest einkenni meistarans. Harvey Keitel og Robert De Niro leika vini í Litlu Ítalíu-hverfinu á Manhattan. De Niro er í klandri og Keitel reynir að hjálpa honum úr klóm okurlánara. Keitel er magnaður. Góð en ofmetin. Sýn, 3. júní. Litbrigði næturinnar - Color Of Night ('94) , Frá því tímaþili er flestir álitu T að ferill Bruce Willis væri allur, * þessi mynd einn helstur nokkurra lík- kistunagla. Dæmalaust ómerkileg og auðgleymd della um sálfræðing sem flækist í undarleg glæpamál. Bíórás- in, 4. júní. Lífið að veði - Donaldo and Daughter ('93) / Feðgin í lögreglu Los Angeles- W borgar (Charles Bronson, Dana Delaney), vinna saman að rannsókn fjöldamorða og líf dótturinnar kemst í hættu. Ekkert merkileg þras- og átakamynd, minnisstæð fyrir óvænt- an, kraftmikinn leik Delaney, sem virtist alltof góð fyrir þetta efni. Frami hennar hefur þó látið standa á sér. Sýn, 3. júní. Miðnætti í Pétursborg - Midnight in St. Petersburg ('94) Síðasta (fjórða) myndin í r bálknum um leyniþjónustu- manninn Harry Palmer (Michael Caine). Endar að mati Apollo Guide, jafn hroðalega og hann hófst vel - með The Ipcress File, þrem áratugum áðurl Aðeins fyrir forhertustu aðdá- endur Caine og Palmers. Bíórásin, 7. júní. Myrðum Zoe - Killing Zoe ('94) / Franskir bankaræningjar sjá W rautt er þeir gn'pa í tómt. Inni- haldsrýr og stefnulaus ofbeldismynd, franskættaðar Tarantinoæfingar. Til- þrifin valda yfirieitt vonþrigðum. Eric Stoltz, Julie Delpy. Sýn, 29. maí. Námur Salómons konungs - King Solomon's Mines ('50) t? Sú eina samma, með Stewart Granger og Deþoruh Kerr. Leik- stjóranum, J. Lee Thompson, og hans ágæta fólki, tekst undur vel að fanga ævintýri H. Riders Haggard, um Ijós- hærða og bláeyga ofurhuga and- spænis svörtustu Afnku, týndum demantanámum, óargadýum, norn- um og villimönnum. TNT, 8. júní. BARNA-OQ FJÖLSKYLDUMYNDIR | Angus ('95) / Box Office er W. velviljað þessari sjónvarpsmynd um margvíslegan vanda fituklumpsins Angus. Illa liðinn í skóla, afinn að giftast stúlku sem gæti verið barnabarn hans og mamman ekur trukk. Tímaritið er hrifnast af skemmtilegum samleik Charlies Talberts hins unga, og gamla refsins George C. Scott, sem afinn. Kathy Bates er mamman undir stýri. Bíórásin, 5. júní. Benji (74) / Undrahundurinn Benji, eina 9 stjarna þessarar myndar, þjarg- ar tveimur krökkum úr höndum mannræningja. Sæmileg afþreying fyrir böm og unglinga en varla mikið meira. RÚV, 28. maíþ Blaðadeilur - The Paper Brigade ('96) / Stórborgardrengur (Kyle 9 Howard), kemst að því er hann flytur í úthverfi, að þau eru ekki jafn friðsæl og af er látið. Lærir sína lexíu í blaðaþurðinum. V.M.G., gefur sæmiiega einkunn sem afþreying fyrir alla fjölskylduna. Robert Englund. RÚV, 30. maí. Krókur - Hook ('91) / Peter Banning (Robin Williams) 9:. á allt sem hugurinn girnist en er búinn að gleyma baminu í sér. Þegar börnunum hans tveimur er rænt heldur hann á eftir þeim inn í ævintýraland krökkt af álfum, haf- meyjum og blóðþyrstum sjóræningj- um í von um að finna þau og þarnið í sjálfum sér. Líflítið þeningabruðl, hálfgerð misþyrming á ævintýrinu um Peter Pan, þrátt fyrir leikstjórn Spiel- bergs og væna aukaleikara (Dustin Hoffman, Bob Hoskins, Maggie Smith). Fyrir yngstu börnin á bænum. RÚV, 29. Maí. Körfuboltaliðið - Annie 0 ('95) / Efnileg íþróttastúlka kemst ekki 9 í körfuboltaliðið svo hún snýr sér að strákaliðinu. Video Movie Guide segir myndina í rösku meðal- lagi og Coco Yares standa sig vel í aðalhlutverkinu. RÚV, 6. júní. The Three Musketeers ('48) j/ Af mörgum talin ein besta kvik- w myndagerð (af sex, sjö), hinnar frægu sögu Alexanders Dumas. Söguhetjurnar musterisriddaramir og skylmingarhetjurnar þrjár, í Frakk- landi á tímum Loðvíks 13. Lana Turner er talin sýna sinn þesta leik á mishæðóttum ferii sem hin illvíga Lafði DeWinter, Gene Kelly, June Allyson, Van Heflin, Vincent Price. Halliwell gefur myndinni næstbestu einkunn. TNT, 5. júní. DANS- 0Q SÖNQVRMYNDIR On the Town ('49) u. Þn'r sjóliðar í W sólarhringsleyfi mála New Yorkborg rauða með söng og dansi, enda heita þeir Frank Sinatra, Gene Kelly og Jules Munshin, og stúlkurnar þeirra eru ekki síðri; Vera- Ellen, Betty Garrett og Ann Miller. Kvikmyndahandbækur fara um myndina lofsamlegum orðum, Maltin segir hana meistaraverk. Þar sem söngur og dans sé í fyrirrúmi en söguþráðurinn í aukahlutverki. MGM dans- og söngvamynd einsog þær gerðust bestar, hér geta menn t,d. heyrt frumflutning þess ódauðlega lags New York, New York, sem síðar varð vörumerki Sinatra. Halliwell seg- ir myndina þá bestu í sínum flokki sem gerð var í Hoilywood, hún veröur ekki látin dansa afskipt framhjá mínu sjónvarpstæki. TNT, 3. júní. VESTRAR Síðasti vagninn - The Last Wagon ('56) n Afbragðsmann- ÉB skapur stendur að baki þessa hálffimmtuga vestra; leikstjórinn/ handritshöfundurinn Delmer Daves, tónskáldið Lionel Newman og hörkutólið Richard Wid- mark, sem leikur kynblending, einu von landnema í vagnalest sem liggur undir árásum indíána. Maltin segir myndina góða og forvitnileg er hún vestraunnendum. Sýn, 1. júní. Sæbjörn Valdlmarsson Hf i á Meistaraverk Góð Sæmileg 9 Léles 47

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.