Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 28
□ fóllc
Israelska söngkonan Dana International
7-Eskudraumurinn
varð að veruleika
„Ég myndi leggja
allt í sölurnar fyrlr
draumaprinsinn. Ég
gæti ekki annað því
hjartað er huganum
yfirsterkara."
Fyrir ári kom ísraelska listakon-
an Dana International fram á
sjónarsviðið með látum er hún
sigraöi í Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva með
lagi sínu „Diva“. Söngkonan
sjálf vakti ekki síður athygli en
sigurlagið, ekki síst vegna þess
að hún var eitt sinn karlmaður.
Evrópubúar tóku henni opnum
örmum, kannski vegna þess að
þar veröur allt setp eru „öðru-
vísi“ áhugavert. í ísrael á hún
ekki sama fylgi að fagna. Þar er
Dana af mörgum álitin framandi
furðuverk frekar en venjuleg
söngkona og hefur nafn hennar
flækst inn f deilur heittrúaðra.
HÆTT AÐ VERÐA SÁR
„Ég hef eytt miklum tíma í
aö reyna aö sannfæra fólk um
að ég eigi rétt á því að vera
til,“ segir Dana. „Núna stendur
mér á sama. Ég er hætt að
verða sár. Tónlist mín er ekki
fyrir það fólk sem efast um til-
verurétt minn. Það getur veriö
reitt og liðið illa fyrir mér,"
bætir hún ákveðin við.
í upphafi skapaði Guð karl-
mann, í Dönu tilfelli dökkhærð-
an og glaölegan dreng að nafni
Yaron Cohen. Faðir hans var
einkaritari dómara í Tel Aviv og
móðir hans heimavinnandi.
Yaron var yngstur þriggja systk-
ina og fór ungur að árum að
nema söng. Er hann horfði á
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva eitt áriö og sá full-
trúa ísraels fiytja þar lag ein-
setti hann sér að standa ein-
hvern daginn sjálfur á sviði og
syngja í keppninni. Þá grunaði
hann að það myndi hann gera
sem kona.
UNGLINGSÁRIN
Þegar Wham og Duran
Duran æðið gekk yfir heim-
inn í byrjun níunda áratug-
arins hélt Yaron mest upp
á Boy George. „Það var frá-
bær tími,“ rifjar Dana upp
brosandi. „Karlar og konur
gátu gengið í eins fötum.
Þá sannfærðist ég endan-
lega um að ég ætti að vera
það sem ég sjálf vildi
vera."
Hinn 16 ára Yaron fór að
nota farða og honum til
mikillar ánægju var komiö
fram við hann eins og
stelpu.
Yaron breytti nafni sínu í
Sharon er hann tók þátt í
drag-sýningu þar sem hann
söng lög þekktra söngkvenna.
Þegar hann hafði safnað sér
nægum pening flaug hann til
London og fór í kynskiptaaö-
gerð. „Margir eiga erfitt með
að átta sig á þessu," útskýrir
Dana varfærnislega. „En líttu
svona á málin: Þegar ég var
sautján ára var ég sólgin í
vanilluís og mér finnst hann
ennþá mjög góöur. Þannig aö
í bernsku var Dana ungi
drengurinn Yaron Choen.
þótt þú breytir líkama þínum
þá hefur það ekki áhrif á heila-
búiöi"
SÖNGVAKEPPNIN
Áriö 1993 gaf Dana út sína
fyrstu plötu í Israel sem varð
mjög vinsæl og sömu sögu er
að segja um þær sem fylgdu á
eftir. Hún náöi til mjög breiös
áheyrendahóps og haföi já-
kvæð áhrif á umræðu um sam-
kynhneigöa í landinu. En í Eg-
yptalandi og Jórdaníu var tón-
list hennar bönnuð og hún tal-
in spilla æsku þjóöanna.
Þegar hingað var komið sögu
átti Dana enn eftir að uppfylla
æskudrauminn um að syngja í
Söngvakeppninni. Hún ákvað
að reyna að komast í keppnina
með lagið „Diva" og það gekk
eftir. Þá höfðu ísraelar ekki átt
sigurlag í keppninni síðan árið
1979. Þegar sigur Dönu var í
höfn dansaöi fólk á götum Tel
Aviv og skemmti sér fram undir
morgun.
Dana átti unnusta á þeim
tíma en foreldar hans voru
sambandi þeirra andvígir og að
lokum lét pilturinn undan þrýst-
ingi frá foreldrunum og sleit
sambandinu. Dana lét ekki
bugast heldur gaf sig alla í
vinnuna, ferðaðist um Evrópu
og söng sigurlagiö víöa.
Þó segist hún ekki ham-
ingjusöm í dag og telur að vel-
gengni skipti engu máli ef
enginn er til að deila gleðinni
með. „Ég myndi leggja allt í
sölurnar fyrir draumaprinsinn.
Ég gæti ekki annaö því hjartaö
er huganum yfirsterkara. Þeg-
ar ég verð ástfangin vil ég
eyða öllum tíma meö kærast-
anum," segir hún og brosir en
veröur sfðan alvarleg. „Ég hef
aldrei vitað hvernig tilfinning
það er að vera sannur karl-
maöur. Ef ég hefði vitað það
hefði ég ekki farið í aðgeröina.
Ég mun þó aldrei halda því
fram að ég sé 100% kvenmað-
ur því ég get ekki alið börn."
Hún bendir á lokum á þá stað-
reynd að ekki sé hægt að öðl-
ast lífshamingju nema að vera
sáttur við sjálfan sig. „Hver og
einn veröur síðan að gera upp
við sig hvaða leiö hann vill
fara að því markmiöi."
VARIILBOD
28