Morgunblaðið - 23.07.1999, Qupperneq 2
2 C FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Eyjamenn taka á móti
MTK á Hásteinsvelli
FOLK
■ GUÐNI Bergsson, leikmaður
Bolton Wanderers, á enn við meiðsl
að stríða. Hann er einn fjölmargra
leikmanna Bolton sem eru frá
keppni vegna meiðsla en alls eru sex
varnarmenn liðsins frá.
■ TONY Adams, fyrirliði Arsenal,
verður frá keppni fyrstu sex vikurn-
ar í deildinni sem hefst 7. ágúst nk.
Adams gekkst nýlega undir upp-
skurð vegna kviðslits og missir
einnig af tveimur næstu landsleikj-
um Englendinga, gegn Lúxemborg
4. september og gegn Póllandi fjór-
um dögum síðar.
■ ERIC Cantona mun leika með og
stjórna heimsúrvali leikmanna í há-
tíðarleik þess gegn Man. Utd sem
áætlaður er 11. október nk. Þetta
var tilkynnt í gær en um er að ræða
ágóðaleik fyrir Alex Ferguson,
knattspyrnustjóra United. Búist er
við að uppselt verði á leikinn en það
þýðir um 56.000 áhorfendur á Old
Trafford. Agóðinn af leiknum mun
renna til ýmissa líknarfélaga.
■ HIBERNIAN, lið Ólafs Gott-
skálkssonar í skosku úrvalsdeildinni
hefur samið við þýska varnarmann-
inn Matthias Jack frá Fortuna Diis-
seldorf.
■ GUSTAVO Poyet mun líklega
skrifa undir nýjan samning við Chel-
sea innan skamms. Poyet, sem er
landsliðsmaður Úrúgvæ , var á dög-
unum orðaður við Roma á Ítalíú en
forráðamenn Chelsea vilja ekki
missa þennan sterka leikmann.
■ DIETMAR Hamann, þýski lands-
liðsmaðurinn, gekk í gær endanlega
frá skiptum yfír í Liverpool frá
Newcastle. Kaupverð hans er tæp-
lega 900 milljónir króna og þar með
hefur Liverpool pungað út 24,45
milljónum punda fyrir nýja leikmenn
að undanförnu. Það er aðeins
500.000 pundum frá því að jafha
mestu leikmannakaup félagsins fyrir
eina leiktíð en 1995 keypti Liverpool
firnin öll af leikmönnum, þeirra á
meðal Stan Collimore frá Notting-
ham Forest fyrir metfé.
■ FORRÁÐAMENN Middlesbrough
segja ekkert hæft í orðrómi þess efnis
að Brasilíumaðurinn Leonardo sé á
leið til liðsins og muni fá í vikukaup
um 60.000 pund, eða sem nemur um
sjö milljónum króna. Leonardo hefur
leikið undanfarin ár með AC Milan á
Ítalíu en er líklega á fórum þaðan.
Annar leikmaður ítalska liðsins, Þjóð-
verjinn Christian Ziege, verður hins
vegar leikmaður Middlesbrough.
■ WATFORD á í markmannsvand-
ræðum en aðalmarkvörður liðsins,
Alec Chamberlain, meiddist á fingri
á æfingu og er úr leik í bili. Chris
Day, varamarkvörður liðsins, tekur
stöðu hans en óvíst er hvort Cham-
berlain verður klár í slaginn fyrir
fyrsta leik nýliðanna í úrvalsdeild-
inni - gegn Wimbledon 7. ágúst nk.
Þeir Chamberlain og Day léku sinn
háifleikinn hvor í afínælisleik á dög-
unum gegn KR á Laugardalsvelli.
EYJAMENN ieika heimaleik
sinn gegn ungverska meist-
araliðinu MTK Búdapest á
Hásteinvelli í Vestmannaeyj-
um nk. miðvikudag kl. 19.
Hásteinsvöllur er á undan-
þágu frá Knattspyrnusam-
bandi Evrópu (UEFA), en Jó-
hannes Ólafsson, formaður
ÍBV, sagði við Morgunblaðið í
gær að sú undanþága ætti
einnig við um leikinn gegn
MTK í 2. umferð forkeppn-
innar að Meistaradeild Evr-
ópu.
Engin skipuleg áhorfendastæði
eru við Hásteinsvöll og hann
er af þeim sökum á undanþágu í
keppni, bæði á vegum KSI og
UEFA, eins og fram kom í Morg-
unblaðinu á dögunum. I fyrra
fengu Eyjamenn undanþágu frá
reglunum til að taka á móti
júgóslavneska liðinu Obilic úti í
Eyjum í fyrstu umferð forkeppn-
innar og hið sama gerðist í ár er
IBV tók á móti albanska meistara-
liðinu SK Tirana. Fari Eyjamenn
lengra í keppninni er hins vegar
líklegra að Laugardalsvöllurinn
verði vettvangur heimaleiks þeirra
í næstu umferð.
„Við höfðum
strax samband við
Geir Þorsteinsson,
framkvæmdastjóra
KSÍ, og hann vill að
við höldum okkar
striki. Þess vegna
er undirbúningur
fyrir heimaleikinn á
miðvikudag nú
kominn á fullt,“ seg-
ir Jóhannes. Hann
sagði Eyjamenn af-
ar káta með góðan
árangur IBV í Evr-
ópukeppninni, sig-
urinn ytra væri
mikil hvatning og
skipti knattspyrnu-
deildina að auki
miklu máli í fjár-
hagslegu tilliti.
Eftirlitsmaður
UEFA á heimaleik
ÍBV gegn SK
Tirana á dögunum
var frá Belgíu.
Hann lauk lofsorði á
heimavöll Eyjamanna, sagði að-
stæður allar hinar ákjósanlegustu,
að sögn Jóhannesar. „Hann benti
auðvitað á skort á aðstöðu fyrir
áhorfendur, en að öðru leyti var
hann mjög hrifinn. Ekki síst af
hinu magnaða landslagi sem um-
lykur völlinn."
Morgunblaðið/Golli
GORAN Aleksic, sem hér sést í baráttu við Skagamennina Jóhannes Harðarson og Ragnar Hauks-
son, leikur ekki með ÍBV næstu tvær til þrjár vikurnar.
Rúmenskur
miðherji
til MTK
MÓTHERJAR Eyjamanna, ungverska liðið
MTK frá Búdapest, hafa verið iðnir við
kolann við kaup á nýjum leikmönnum að
undanförnu. Eins og sagt var frá í gær
keypti Iiðið hollenska leikmanninn Glenn
Helder. Hann mun hitta fyrir hollenska
þjálfarann Henk ten Cate, sem tók við
þjálfun MTK fyrir rúmum mánuði. Helder
er ekki fyrsti leikmaðurinn sem Cate hef-
ur keypt, því í sl. viku keypti hann rúm-
enska miðheijann Nicolae Ilea frá ung-
verska liðinu Debrecen. Ilea er 30 ára og
var annar markahæsti leikmaður 1. deild-
ar keppninnar á sl. keppnistímabili - skor-
aði 17 mörk.
Kilmamock
í Þýskalandi
Skoska úrvalsdeildarliðið Kilm-
arnock, andstæðingur KR í
Evrópukeppni félagsliða, hefur
dvalið í æfmgabúðum í Þýskalandi
til þjálfunar áður en liðið mætir ís-
lenska liðinu í Evrópukeppni fé-
lagsliða.
Kilmarnock, sem mætir KR hér
á landi 12. ágúst og ytra 26. sama
mánaðar, hefur æft í Bitburg og
leikið æfingalek gegn Mainz, liði
Helga Kolviðssonar, og tapaði 3:0.
Bobby Wiliamson, knattspyrnu-
stjóri Kilmarnoek, segir að þýsk
Opin híóna- 02 parakeppni
á Hólmsvelli Leiru
laugardaginn 24. júlí
Ræs! út frá kl. 10:00 — 13:00
. SKEMMTILEGT LEIKFYRIRKOMULAG: VÍXLBOLTI
Skráning er í síma 421 4100
Verðlaun verða veitt fyrir besta
skor og fyrir 5 efstu sætin
með forgjöf.
Nándarverðlaun á 3. og 16. braut.
Mótsgjald er kr. 2.000,- fyrir parið.
Mótanefnd
Jóhannes Ólafsson, formaður ÍBV
Ætlum okkur
enn lengra
lið séu komin lengra í æfingaáætl-
uninni heldur en skosk og því gefi
úrshtin ekki rétta mynd af
frammistöðu síns liðs.
„Við hefðum getað farið auð-
veldari leið og leikið gegn slakari
liðum í Skotlandi en það hefði ekki
komið hðinu til góða þegar kemur
að leikjum í úrvalsdeildinni," sagði
Williamson. Ekki fer sögum af úr-
slitum leikja Kilmamock í Þýska-
landi.
Ber KR vel söguna
Williamson var á Islandi fyrir
skömmu og fylgdist með KR gegn
Víkingi í efstu deild. Knattspyrnu-
stjórinn bar KR vel söguna og
sagði að liðið væri í betri leikæf-
ingu heldur en sitt lið. Hann líkti
KR við írska liðið Shelboume, sem
hann sagði að hefði gert
Kilmarnock skráveifu.
Ally McCoist hefur framlengt
samning sinn við Kilmarnock til
eins árs. Leikmaðurinn, sem er 36
ára, hyggst enda feril sinn hjá fé-
laginu. Hann lék um hríð með
Glasgow Rangers.
DREGIÐ verður í þriðju umferð Meistaradeildar-
innar í dag og þá kemur í Ijós hver verður
mótherji sigurliðsins úr viðureignum IBV og MTK
frá Búdapest.
Jóhannes Ólafsson, formaður ÍBV, segir að það
verði fróðlegt að sjá hveijir hugsanlegir mótheij-
ar verði. „Við ætlum okkur enn lengra í keppn-
inni - metnaður allra stendur til þess. Þó er Ijóst
að mótherjarnir eru sterkir, MTK er besta lið
Ungveija um þessar mundir og að því stendur
mjög ríkur eigandi, sem lét sig ekki muna um að
fljúga einkaþotu sinni til lands á dögunum til að
fylgjast með heimaleik IBV gegn SK Tirana,“ seg-
ir hann.
Jóhannes segist annars lítið þekkja til mótheij-
anna. „Við eigum eftir að afla okkur frekari upp-
lýsinga og Bjarni [Jóhannsson þjálfari] á eflaust
eftir að kynna sér þá vel. Eg las í Morgunblaðinu
[í gær[ að þeir væru að kaupa nýja Ieikmenn og af
því að dæma eru þeir sterkir og ætla að styrkja
sig enn frekar."
Liðin sem mætast
LIÐIN sem mætast í annari umferð forkeppni Meist-
aradeildar Evrópu eru:
Rapid Vín (Austurríki) - Valletta (Mölltu)
A Famagusta (Kýpur) - Slovan Bratislava (Slovakíu)
Partizan Belgrade (Júgóslavíu) - Rijeka (Króatíu)
CSKA Moskva (Rússlandi) - Molde (Noregi)
Litex Lovech (Búlgaríu) - Widzew Lodz (Póllandi)
Haka (Finnlandi) - Rangers (Skotlandi)
Dynamo Tbilisi (Georgíu) - Zimbru (Moldavíu)
Dnepr Transmash-Mogilev (H-Rússlandi) - AIK
Stokkhólmur (Svíþjóð)
Sloga (Makedóníu) - Brondby (Danmörku)
Rapid Búkarest (Rúmeníu) - Skonto Ríga (Lettlandi)
Besiktas (Tyrklandi) - Hapoel Haifa (ísrael)
Dynamo Kiev (Úkraínu) - Zalgiris Vilníus (Litháen)
ÍBV - MTK Búdapest (Ungveijal.)
Maribor Teatanic (Slóveníu) - Genk (Belgíu)
• Fyrri leíkir eru 28. júlí, seinni leikir 4. ágúst.