Morgunblaðið - 23.07.1999, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
iann skoraði annað mark KR.
i Bjarka.
laðra
inná en þegar þeir missa sinn mann útaf
ákvað ég að halda áfram með sama lið.
Það var við ramman reip að draga einum
færri en ég ákvað að skipta ekki inná eft-
ir að það voru jafn margir í hvoru liði og
tuttugu mínútur eftir til að gefa þeim
möguleika. Auðvitað má deila endalaust
um hvort skiptingar hefðu átt að koma
fyrr eða síðar. í sjálfu sér breyttist ekk-
ert við skiptinguna hjá okkur en það var
rétt að breyta einhverju og freista þess
að skora þegar við vorum komnir tveim-
ur mörkum undir.“
Fer Skagaliðið ekki að rétta úr kútn-
um bráðlega? „Við höfum leikið þrjá af
átta leikjum okkar að mestu einum leik-
manni færri. Einnig hafa menn gert mik-
ið úr þessu markaleysi hjá okkur en ég
held að við höfum unnið bug á því. Við
höfum skorað fullt af mörkum og þó að
þau séu fá í deildinni, alltof fá, tel ég að
með tilkomu nýrra manna eins og Kenn-
eth og Stefáns eigum við meiri mögu-
leika á að koma boltanum í netið,“ bætti
Logi við og aðspurður um hvort ein-
hverjai’ breytingar í þjálfaramálum væru
á döfinni sagði hann: „Ég er ráðinn hing-
að sem þjálfari og það hefur ekkert verið
rætt við mig um annað.“
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999 C 5
KNATTSPYRNA
Sigurður
skor-
aði gegn
Newcastle
SIGURÐUR Jónsson, fyrir-
liði íslenska landsliðsins í
knattspyrnu og leikmaður
Dundee United, skoraði
þriðja mark liðsins er það
vann Newcastle í hátíðarleik
í tilefni 90 ára afmælis
skoska félagsins í gærkvöldi,
3:1. Dodds skoraði fyrsta
mark liðsins eftir aðeins sex
mín., síðan bætti Patterson
(20. mín.) og Sigurður (62.
min.) áður en Robinson skor-
aði fyrir gestina á 85. mín.
Sigurður Elí
í Víking
SIGURÐUR Elí Haraldsson,
varnarmaður ungmenna-
landsliðsins, hefur ákveðið
að skipta yfir í herbúðir Vík-
ings en hann hefúr verið á
mála hjá FH að undanförnu.
Sigurður EIí er alinn upp í
Fram en skipti úr Safamýr-
arliðinu á siðustu leiktíð yfir
í FH og lék sextán leiki með
liðinu í 1. deild í fyrra. Hann
á að baki leiki með öilum
yngri landsliðum Islands og
að auki tíu leiki í efstu deild
með Fram.
Enn óvíst
með Rút
STJÓRN knattspyrnudeildar
ÍBV hefur enn ekki tekið af-
stöðu til máls miðjumannsins
Rúts Snorrasonar, sem seg-
ist hættur að leika með lið-
inu. Nokkur lið munu hafa
lýst yfir áhuga sínum á Rúti,
en ekkert mun afráðið í
þeim efnum. Telja má þó
fullvíst að Eyjamenn vilji fá
talsverða upphæð fyrir Rút,
enda er hann samningsbund-
inn félaginu og enn ungur
að árum. Rútur hyggst ræða
við forráðamenn nokkurra
félaga á höfiiðborgarsvæð-
inu um helgina og í fram-
haldi ræðst með hvaða liði
hann mun leika það sem eft-
ir lifír Islandsmóts. .
Reimt
í Vfldnni
ÞAÐ er reimt í Víkinni, bækistöðvum knattspyrnuliðs Víkings.
Margumtalaður falldraugurinn hefur þegar gert vart við sig á
þeim bænum, nú þegar keppni í úrvalsdeild á íslandsmótinu er
rétt hálfnuð. Draugaganginn mátti vel merkja á algeru lánleysi
liðsins í baráttu sinni á botni úrvalsdeildar í gærkvöld, þegar lið-
ið tapaði 3:2 fyrir Keflvíkingum suður með sjó.
skrifar
Leikmenn Víkingsliðsins náðu
með mikilli einurð að jafna metin
í dæmigerðum botnslagnum eftir að
hafa lent tveimur
Edwin mörkum undir, en
Rögnvaldsson þegar öllu var á
botninn hvolft reynd-
ist allt erfiðið vera til
einskis því örfáum andartökum síðar
fengu þeir á sig mark - og það beint
úr hornspyrnu - sígilt feigðarmerki.
Lið Keflavíkur, sem má vissulega
muna sinn fífil fegurri, leit á leikinn
sem kjörið tækifæri til að spyrna sér
af botni deildarinnar og var því stillt
upp með öðrum hætti en oft áður í
sumar. í þetta sinn tefldu Gunnar
Oddsson og Sigurður Björgvinsson,
þjálfarar Keflvíkinga, fram ögn
sókndjarfara liði með leikaðferðina
3-5-2 að leiðarljósi, í stað 4-5-1 skipu-
lagsins sem liðið hefur stuðst við að
undanförnu. Þá var „bjargvættur-
inn“ svonefndur, Þórarinn Kristjáns-
son, í fremstu víglínu ásamt manni
leiksins, Kristjáni Brooks, en sá
fyrmefndi hefur oftast nær verið
varamaður.
Breytingin bar augljósan árangur
fyrir leikhlé, en þá höfðu heimamenn
mikla yfirburði og gerðu tvö mörk án
þess að Víkingar næðu að svara.
„Bjargvætturinn“ var réttur maður
á réttum stað er hann gerði fyrra
markið og Ragnar Steinarsson gerði
það síðara með því að reka lærið í
knöttinn eftir hornspyrnu.
Þar sem Keflvíkingar voru komnir
tveimur mörkum yfir, gátu þeir varp-
að öndinni ögn léttar og leikgleði
þeirra virtist aukast. Þá stóð Víking-
um enn meiri ógn af heimaliðinu og
svo virtist sem Keflvíkingar ætluðu
að kaffæra Reykjavíkurliðið á blaut-
um vellinum, sem var svo blautur að
Keflavík 3:2 Víkingur
Þórarinn K. (28.)
Ragnar S. (35.)
Eysteinn H. (66.)
3-5-2
BjarkiG.
Snorri Már J.
Krístinn G.
Garðar N.
Róbert S.
Gunnar 0.
Ragnar S.
Eysteinn H.
Gestur G.
(Jóhann B. 42.)
Þórarínn K. J»
Krístján B. J» J»
Keflavíkurvöllur, 22. júlí
Aöstæður: S-A stinnings-
kaldi og blautur völlur.
Áhorfendur: 350.
Gult spjald: Ragnar Stein-
arsson, Keflavlk (14. -
brot), Garðar Newman,
Keflavík (36. - brot); ðg-
mundur Rúnarsson, Víking-
ur (68. - óviðeigandi fram-
koma), Valur Úlfarsson,
Víkingur (78. - brot).
Rautt spjald: Enginn.
Dómarl: Gylfi Orrason,
Fram - 7.
Aðstoöard.: Garöar ðrn
Hinriksson og Eyjólfur M.
Kristinsson.
Markskot: 18 - 9.
Rangstaða: 0 - 0.
Horn: 12 -1.
Sváfnir G. (57.)
Þrándur S. (64.)
5-3-2
Ógmundur R.
Tryggvi B.
(Amar Hrafn J. 81.)
Þorri Ó.
G. Hunter
Þrándur S.
Amar H. Láras H.
Bjarai H.
(Valur Ú. 69.)
Hólmsteinn J.
Sumariiði Á.
Sváfnir G.
(C. McKee 81.)
1:0 (28.) Róbert Ó. Sigurösson gaf fyrir frá hægri viö endamörk. Skotinn
Gordon Hunter reyndi aö bægja hættunni frá, en af honum fór boltinn yfir félaga
hans í vörninni og til Þórarins Kristjánssonar, sem skaut viöstööulaust í mark
Víkinga af stuttu færi.
2:0 (35.) Eysteinn Hauksson tók hornspyrnu frá hægri og barst boltinn úr
henni að nærstöng. Þar var Ragnar Steinarsson, sem rak læriö í boltann svo
hann sveif í boga yfir marklínuna.
2:1 (57.) Bjarki Guömundsson, markvöröur Keflvíkur, varöi skot Þránds
Sigurössonar og í kjölfariö var skot Arnars Hallssonar stöövaö á marklínu af
Róbert Ó. Sigurössyni, en í þriðja sinn fór boltinn loks í marknetið - eftir skot
Sváfnis Gíslasonar.
2:2 (64.) Arnar Hallsson gaf fyrir frá vinstri og rataöi boltinn á höfuö Þránds
Sigurðssonar, sem var einn og óvaldaður á vítateig heimamanna og skallaði
hann boltann örugglega í vinstra hornið.
3:2 (66.) Keflvíkingar fengu hornspyrnu frá vinstri í fyrstu sókn sinni eftir mark
Víkinga. Eysteinn Hauksson skoraöi beint úr spyrnunni, þegar varnarmenn og
markvöröur Víkinga, Ögmundur Rúnarsson, gerðu sig seka um slæm mistök.
leikmenn mynduðu stundum mynd-
arlegar vatnsgusur á brölti sínu.
Snemma í síðari hálfleik urðu þó
ótrúleg umskipti, en þá var engu
líkara en að leikmenn beggja liða
hefðu einfaldlega skipst á búning-
um. Gestirnir bættu manni í sókn-
ina á kostnað varnarinnar og kom
það í hlut Þrándar Sigurðssonar
fyrirliða. Víkingsliðið var mun at-
kvæðameira gegn sljóum Keflvík-
ingum og var eldfljótt að jafna met-
in, en það gerði Þrándur sjálfur
með fallegu skallamarki þegar rúm-
ar tuttugu og fimm mínútur lifðu
leiks. Sjö mínútum áður hafði
Sváfnir Gíslason minnkað muninn
eftir þunga sókn og mikinn darrað-
ardans í vítateig Keflavíkur.
En þá dundi ógæfan yfir, einmitt
er leikurinn virtist loks í þann mund
að snúast lánlitlum Víkingum í hag.
Rétt eftir að hafa hafið leik að nýju á
miðju vallarins eftir jöfnunarmark
Fossvogsliðsins, vai'ði Ögmundur
Rúnarsson, mistækur markvörður
Víkinga, skot Gunnars Oddssonar
með stakri prýði og úr varð horn-
spyrna - hornspyrnan sem svipti
Víkinga stigi - og stig vaxa ekki á
trjám í Fossvoginum í sumar.
Komum brjálaðir
í næsta leik
Kristján Brooks, framherji Kefl-
v
kvíkinga, sagði að þrátt fyrir 3:2-
sigur gegn Víkingum væri sitt lið
enn að glíma við
Qlsli sömu vandamálin og
Þorsteinsson það hefði gert í allt
skrifar sumar. „Við eigum
það til að missa ein-
beitinguna þegar síst skyldi og það
sást vel gegn Víkingum. Við vorum
komnir í þægilega stöðu en fengum
tvö mörk á okkur með skömmu milli-
bili. Sem betur fer náðum við að
skora strax aftur og vorum betri eft-
ir það. Það er erfitt að segja hvað
veldur þessum vandræðagangi hjá
okkur, en ef við náum að fækka mis-
tökunum og einbeita okkur betur að
leiknum er ég bjartsýnn á framhald-
ið í deildinni."
Kristján sagði gríðarlega mikil-
vægt að vinna Víkinga og komast
skör ofar í deldinni. „Við höfðum
möguleika á að nýta færin betur og
setja fleiri mörk á þá, en það gekk
ekki eftir. Það sem skiptir máli er að
sigur vannst og hann gefur okkur
aukið sjálfstraust í baráttunni í
deildinni og við komum brjálaðir í
næsta leik, sem er gegn Fram. Við
erum enn við botninn en þurfum að
vinna næsta leik til þess að koma
okkur ofar í deildinni.“
Getur endað með ósköpum
með sama áframhaldi
Þrándur Sigurðsson, fyrirliði Vík-
inga, vildi ekki segja að falldraugur-
inn væri kominn á kreik í herbúðum
síns liðs þrátt fyrir fjóra tapleiki í
efstu deild í röð, en sagði að með
sama áframhaldi gæti sumarið endað
með ósköpum. „Við viljum nú geyma
umræðuna um falldrauginn um sinn,
enda töluvert eftir af mótinu. En því
er ekki að neita að með sama áfram-
haldi getur sumarið endað með
ósköpum."
Þrándur sagði að Víkingar hefðu
ekki leikið sem ein heild í fyrri hálf-
leik og það hefði komið niður á lið-
inu. „Við lékum ekki sem liðsheild og
hjálpuðum ekki hver öðrum nægi-
lega vel í erfiðum aðstæðum, þar
sem við vorum gegn vindi í fyrri
hálfleik. Þeir ná síðan að skora tvö
mörk þar sem við fylgdum þeim ekki
nægilega vel eftir. En við vorum
staðráðnir í að selja okkur dýrt í
seinni hálfleik og uppskárum sam-
kvæmt því. Það var yndislegt að ná
að jafna leikinn en því miður fengum
við á okkur slysalegt mark strax á
eftir og upp frá því datt botninn úr
leik okkar.“
Þrándur sagði að Víkingsliðið væri
búið að fá á sig of mörg mörk í und-
anförnum leikjum og að gera þyrfti
bragarbót á varnarleik liðsins. „Við
þurfum að koma í veg fyrir þennan
markaleka og ná í þau stig sem eru
eftir í pottinum enda seinni umferð
rétt að byrja. Þetta verður erfitt en
við verðum einfaldlega að sýna styrk
í næstu leikjum og berjast fyrir fé-
lagið.“
Rúnar með
stórleik
Rúnar Kiistinsson átti enn einn
stórleikinn í gærkvöldi þegar
Lilleström lagði Brann að velli í
norsku 1. deildarkeppninni. Rúnar,
sem stjórnaði leik liðsins á miðjunni
- var besti leikmaður vallarins, skor-
aði annað markið með þrumuskoti á
73. mín., en hann lagði upp fyrra
markið, sem Arild Sundgot gerði á
22. mín. Kjell Olsen, markvörður Br-
ann, bjai'gaði liðinu frá stærra tapi á
Árásen-leikvellinum „Kristinsson er
er mjög góður leikmaður og leikur
lykilhlutverk hjá okkur,“ sagði Arne
Erlandsen, þjálfari Lilleström.
Klaus Agenthaler, þjálfari austur-
ríska liðsins Graz AK hefur mikinn
hug á að fá Rúnar til sín og hefur
boðið Lilleström um 50 millj. ísl. kr.
fyrir Rúnar. Hann segist vera tilbú-
inn að bæta við þá upphæð.
„Þetta var góður sigur fyrir okk- *
ur. Við lékum vel sem liðsheild. Við *
verðum með í meistarabaráttunni,"
sagði Rúnar, sem vildi sem minnst
gera úr umræðum um áhuga annara
liða á sér. „Ég hef það gott hér í Lil-
leström.11
Þess má geta að Coventry er til-
búið að borga um 110 millj. ísl. kr.
fyrir Runar Normann, félaga Rún-
ars hjá Lilleström. 1