Morgunblaðið - 23.07.1999, Side 7

Morgunblaðið - 23.07.1999, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999 C 7' BÖRN OG UNGLINGAR Lands liðið vann pressu liðið ÞÓRÐUR Lárusson, landsliðsþjálf- ari kvenna í knattspyrnu, fylgdist af athygli með pæjunum á Gull- og silf- urmótinu um helgina. Hann var ánægður með það sem hann sá og taldi að íslensk kvennaknattspyima ætti sér bjarta framtíð ef stúlkurnar í Kópavoginum um helgina héldu áfram. I hlut Þórðar kom að stýra landsliði, sem valið var af mótstjórn og atti kappi við pressuliðið, sem Jörundur Aki Sveinsson, mótstjóri og þjálfari meistaraflokks_ kvenna hjá Breiðabliki, stýrði. í sínum fyrsta landsleik hafði Þórður 1:0 sig- ur í hörkuleik þar sem bestu stúlk- urnar sýndu skemmtilega takta. Landsliðið og pressuliðið LANDSLIÐIÐ: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, KR, Bryndis Bjarnadóttir, Breiðabliki, Guðný Einarsdóttir, Sindra, Tinna M. Antonsdóttir, KS, Hólmfríður Ósk Samúelsdóttir, Breiðabliki, Berglind Þórðardóttir, ÍBV, Una M. Árnadóttir, Þrótti, Ragna D. Marinósdóttir, Keflavík, Elfa Dögg Grímsdóttir, (BV, Anna Berglind Jónsdóttir, KR. Pressuliðið: Mist Rúnarsdóttir, Þrótti, Oddný Kristjánsdóttir, KR, Eydís Ein- arsdóttir, Sindra, Guðríður Hannesdóttir, Breiðabliki, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, BÍ, Sólveig Þórarinsdóttir, KR, Karítas Þórarins- dóttir, ÍBV, Erna Dögg, ÍBV, Ásdís Jóna Sigurjónsdóttir, KS, Tinna Hauksdóttir, KR. Þórður Lárusson er með liðunum á myndinni. ÞRÓTTARSTELPURNAR Elín Sigurðardóttir, Áslaug Júlíusdóttír, Kristín Sveinsdóttir, Solveig María Eyjólfsdóttir, Ástrós Þórjónsdóttir, Helena Dögg Þórarinsdóttir og Anna María Ingadóttir, sem taldi að myndatakan tæki of langan tíma. Mættu til leiks stríðsmálaðar MEÐ stríðsmálningu mættu Þróttarstelpur til leiks og voru vígalegar - eins og 7 og 8 ára stelpur geta orðið. Þær voru margar að taka þátt í sínu fyrsta móti og skemmtu sér prýðilega. Skemmtilegast þótti þeim að spila við önnur lið og sögðust ætla að vera lengi í fótbolta, að minnsta kosti í nokkur ár eða svona ijögiir. Þeirra á meðal var Anna Mar- ía Ingadóttir sem er ársgömul og var máluð í framan eins og hinar stelpurnar. Þjálfarar stúlknanna sögðu að Þróttur hygðist gera stóra hluti í fram- tíðinni og því væru efnilegar stúlkur, eins og Anna María, sóttar inn á leikskólana. LUKKUTRÖLLLID Rakel Bima fannst eðlilegt að hún myndi tróna á toppnum þegar Sindrastelpurnar stilltu sér upp fyrir myndatöku. EKKI gekk fótboltahelgin áfallalaust hjá öllum, því Snjólaug Jóhannsdóttir úr Stjömunni handleggsbrotn- aði í úrslitaleik. Hún bar sig þó vel og mætti á verð- launaafhendinguna með handlegginn í fatla. RAKEL Hlynsdóttir, kotroskin í kjól, fyrir miðri mynd með vinkonum í ÍBV. Úr leikskólan- um á fót- boltavöllinn m FIMM ára yngismey úr Eyjum, Rakel Hlynsdóttir, var með yngstu keppendum á Gull- og silfurmótinu um helgina en mikill áhugi er á knattspyrnu meðal barna og ung- linga í Eyjum. Rakel hætti á leik- skólanum Rauðagerði í vpr og byrj- aði strax að æfa með ÍBV - fór beint af leikskólanum á fótboltavöll- inn - enda fótbolti í uppáhaldi hjá henni. „Mér finnst skemmtilegast að spila fótbolta og gaman að hitta svona marga hérna,“ sagði Rakel. Hún hefur lengi ætlað sér feril í knattspyrnunni og áður en hún hætti á leikskólanum lét hún eitt sinn koma skilaboðum til þjálfar- ans: að hún kæmist ekki æfingu því hún slyppi ekki af leikskólanum. Lukkutröll Sindra Sindrastelpur í 4. flokki voru með lukkutröll, ef hægt er að kalla hina tveggja ára Rakel Birnu tröll. Þrátt fyrir að litla tröllið sé tveggja ára hefur hún þrisvar komið á Gull- og silfurmótið í fylgd með foreldr- um sínum enda móðir hennar, Védís Armannsdóttir, þjálfari stúlknanna og faðir hennar, Bjöm Guðbjörns- son, formaður Sindra. Að sögn Vé- dísar þjálfara er mikill áhugi á knattspyrnu hjá stelpunum á Hornafirði og nánast tveir þriðju hlutar stúlkna þar í fótboltanum og Björn formaður bætti við að þar sé stelpunum gert jafn hátt undir höfði og strákunum. „Ég hef komið hingað fjórum . sinnum og það er alltaf mjög gam- an,“ sagði Jóhanna Ingólfsdóttir, tólf ára knattspyrnukona frá Sindra á Hornafirði, í stuttu spjalli á sunnudaginn. „Við komum keyrandi frá Hornafirði og það var svolítið erfitt en skemmtum okkur vel á kvöldvökunni með Skítamóral - við fórum ekki á hinar kvöldvökurnai-, v heldur í tívolí.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.