Morgunblaðið - 23.07.1999, Qupperneq 8
Mfúm
KNATTSPYRNA
Gríndvfldngar
stigu stríðsdans
GRINDVÍKINGAR hafa góða reynslu af því að leika gegn Frömur-
um á Laugardalsvelli, hafa raunar ekki tapað gegn þeim á þjóð-
arleikvanginum til þessa. Leikur liðanna í gærkvöldi var alveg í
samræmi við það, í járnum framan af og eftir markalausan fyrri
hálfleik tók sannkölluð markaveisla við í þeim síðari. Heima-
menn náðu forystunni með ágætu marki, en það dugði skammt
og á undraskömmum tíma hrukku Grindvíkingar í gang, skoruðu
þrjú mörk og tryggðu sér öruggan 3:1-sigur. Sigurinn var Suður-
nesjaliðinu afar mikilvægur og stigu Grindvíkingar sannkallaðan
stríðsdans í leikslok.
Framarar heiöra
Guðmund og
Guðrúnu
HJÓNIN Guðmundur Jóns-
son og Guðrún Jóhannes-
dóttir voru heiðursgestir
Fram í leik liðsins gegn Gr-
indavík á Laugardalsvelli í
gærkvöld. Guðmundur
„Mummi" Jónsson er einn
sigursælasti þjálfari Fram
og sá einnig ásamt eigin-
konu sinni um hússtjórn í
félagsheimili félagsins í
Skipholti um árabil.
Guðmundur lék með
meistaraflokki félagsins
1948-54 og þjálfaði hjá lið-
inu um árabil. Hann var
þjálfari meistaraflokks fé-
lagsins 1962 og gerði liðið
að Islandsmeisturum sama
ár. Guðmundur þjálfaði lið-
ið einnig 1970-73 og undir
hans sljórn varð Fram ís-
landsmeistari 1972.
Fyrri leikur liðanna, sem fram fór
í fyrstu umferðinni suður með
sjó, endaði með jafntefli, og framan
BBHMhí aí í gærkvöldi stefndi
Björn Ingi allt á sömu lund.
Hrafnsson Jafnræði var með lið-
skrífar unum, heimamenn
voni þó öllu sterkari
og réðu að mestu gangi leiksins.
Helst var að Grindvíkingar minntu á
sig með snörpum skyndisóknum og
nutu þar helst til mikillar gestrisni
varnarmanna Fram. Þeim tókst þó
ekki að færa sér það í nyt, næstur
því komst Sveinn Ari Guðjónsson
eftir hálftíma leik en skot hans varði
Olafur Pétursson með tilþrifum.
Skömmu áður hafði Sinisa Kekic,
miðjumaður Grindvíkinga, átt
hörkuskot beint úr aukaspymu sem
small ofan á markslánni.
Seinni hálfleikur var enn hressi-
legri og þá litu mörkin einnig dags-
ins ljós. Sigurvin Ólafsson, sem ný-
stiginn er upp úr erfiðum meiðslum,
var allt í öllu í leik Framara og
komst nærri því að skora fyrsta
markið í upphafí seinni hálfleiks, en
laus skalli hans reyndist Alberti
markverði Sævarssyni ekki mikil
þraut. Litlu síðar skaut Ágúst Gylfa-
son yfir með sannkölluðu hörkuskoti
og í næstu sókn á eftir náði Albert
markvörður að verja með næsta æv-
intýralegum hætti ágætan skalla
Marcels Oerlemans rétt upp við
samskeyti markslái- og stangarinnar.
Það var því eftir gangi leiksins að
Framarar næðu forystunni. Voru
heldur engin firn að þar skyldi Sig-
urvin vera að verki. Hann fékk send-
ingu frá Ásmundi Amarsyni og
skallaði knöttinn öragglega í netið af
stuttu færi. Heimamenn því komnir
verðskuldað með forystuna og útlit
fyrir fyrsta heimasigur þeirra gegn
Grindvíkingum.
Svo fór þó alls ekki og hljóta
Framarar eftir á að velta fyrir sér
hvers vegna. Á undraskömmum tíma
snérist leikurinn nefnilega gjörsam-
lega í höndum þeirra og upp í hrein-
ustu martröð. Áðurnefnd gestrisni
varnarmanna liðsins reið ekki við
einteyming og lykilmenn gerðu sig
seka um grundvallarmistök. Grind-
víkingar gengu fyrir vikið á lagið,
þökkuðu kærlega fyrir sig og
tryggðu sér sætan sigur með þremur
góðum mörkum. Lykilmenn á bak
við þau öll voru þeir félagar, Grétar
Ólafur Hjartarson og Sinisa Kekic.
Hinn fyrrnefndi átti sannkallaðan
stjörnuleik í seinni hálfleiknum,
skoraði fyrsta markið og lagði svo
upp tvö þau síðari. Kekic lagði upp
fyrsta mark sinna manna, skoraði
svo það síðara og fylgdist svo með
Fram
1:3 Grindavík
Sigurvin Olafsson (69.)
3-4-3
Ólafur P.
Sævar P.
Jón Sveinss.
Ásgeir H.
Freyr K. J8
(Halldór Hilmiss. 72.)
Ágúst G. m
Steinar G.
Anton Bjöm (Ásmundur A. 46.) m
Hilmar B. m
M. Oerlemans Sigurvin Ó. m
(Valdimar S. 88.)
Laugardalsvöllur, 22. Júli
Aðstæður: Þokkalegar.
Blautur völlur, en lítill
vindur.
Áhorfendur: 451.
Gult spjald: Jón
Sveinsson, Fram (47.) - f.
brot. Sveinn Ari
Guðjónsson (30.) - f. brot,
Paul McShane (78.) - f.
mótmæli, báöir Grindavík.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson,
Víkingi - 7.
Aðstoðard.: Gisli H.
Jóhannsson og Haukur
Ingi Jónsson.
Markskot: 11 - 14.
Rangstaða: 3 - 3.
Hom: 4 - 4.
Grétar Hjartarson (73.)
Sinisa Kekic (86.)
Scott Ramsay (89.)
3-4-3
Albert S. ®
Guðjón Á. S. Vorkapic m
Óli Stefán. Sveinn Ari m
Hjálmar H. S. Kekic m m
P. McShane S. Ramsay m
(Vignir Helgas. 89.)
Grétar H. m m
D. Mijuskovic
(Jóhann Aðalgeirss. 81.)
1:0 (69.) Slgurvin Ólafsson skoraði með glæsilegum skalla eftir góða fyrirgjöf
Ásmundar Arnarsonar.
1:1 73.) Sinisa Kekic sendi glæsilega stungusendingu inn á Grétar Ó.
Hjartarson sem jafnaði metin með laglegri vippu.
1:2 (86.) Sinisa Kekic fékk nú sendingu frá Grétari, stakk sér fram fyrir
varnarmann og skallaði í netið.
1:3 (89.) Grétar stakk góðri sendingu inn á Scott Ramsay sem lék á markvörð
Fram og setti knöttinn síöan auöveldlega í netið.
SIGURVIN Ólafsson er búinn að senda knöttinn í net Grindvíkinga
Morgunblaðið/Jim Smart
' það mark dugði ekki Fram.
Grétari gefa snilldarsendingu inn
fyrir Framvörnina á Scott Ramsay
sem tryggði endanlega sigurinn. Svo
rosaleg vora kaflaskiptin í leiknum,
að Grindvíkingar fengu enn fleiri
færi til að skora á þessum fáu mínút-
um sem eftir vora.
í liði heimamanna stóð Sigurvin
upp úr meðalmennsku á flestum
sviðum. Liðið sótti sig þó talsvert í
seinni hálfleik og Ásmundur Arnar-
son, sem skipt var í leikhléi inn á
fyrir Anton Björn Markússon, átti
ágætar rispur. Hilmar Björnsson
var duglegur í framlínunni, en lítið
sást hins vegar til Hollendingsins
Oerlemans sem virðist nú heillum
horfínn upp við mark andstæðing-
anna. Aðeins frábær skalli hans
stendur eftir í minningunni, en ann-
ars vissi hann hvorki í þennan heim
né annan.
Leiknum töpuðu Framarar hins
vegar fyrir hrikalegan klaufagang í
vörninni og hljóta þjálfarar liðsins að
velta fyrir sér hugsanlegum breyt-
ingum á varnarleiknum í kjölfar
hransins á lokamínútunum í gær-
kvöldi. Þær minntu mjög á leikinn
gegn Val á dögunum, er Framarar
misstu unninn leik niður í jafntefli á
mettíma.
Grindvíkingar sýndu enn einu
sinni að með baráttu og aftur bar-
áttu er allt hægt í knattspyrnunni.
Enn sem fyrr vora Grétar og Kekic
bestu menn liðsins, sýndu oft frá-
bæra takta og varnarmenn Safamýr-
arliðsins gátu lítið gert annað en að
narta í hælana á þeim. Áfram eru
Suðurnesjamennirnir í bullandi fall-
baráttu, en með áframhaldandi bar-
áttu og útsjónarsemi virðast þeim þó
flestir vegir færir.
„tJrðum hrein-
lega að vinna“
Grétar Ólafur Hjartarson átti
sannkallaðan stórleik fyrir Gr-
indvíkinga, skoraði eitt mark og
lagði önnur tvö upp. Hann var enda
afar kátur í leikslok og sagðist
kunna mjög vel við sig á Laugar-
dalsvelli, þar hefði hann skorað
fjögur mörk í þremur leikjum sín-
um á vellinum.
„Þetta var sannkallaður baráttu-
sigur. Við urðum hreinlega að vinna
og náðum að tryggja okkur sigurinn
með mikilli baráttu undir lokin. Svo
virðist sem við getum heldur ekki
tapað fyrir Frömuram héma á
Laugardalsvellinum,“ sagði hann
hlæjandi.Sigurinn fleytir Grindvík-
ingum upp í 5. sæti deildarinnar og
Grétar segir að það sé algjört lykil-
atriði að halda liðinu áfram í hópi
þeirra bestu. „Þetta virðist óþægi-
lega jafnt á botni og miðju deildar-
innar og aðeins á toppnum virðast
KR-ingar skera sig úr. Þeir era
greinilega með besta lið deildarinn-
ar um þessar mundir. Þetta er al-
gjör einstefna hjá þéim.“
„Eins og við getum ekki
unnið Grindvíkinga“
Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram,
var hundfúll eftir leikinn, enda
misstu leikmenn hans góða 1:0-
stöðu niður í l:3-tap á undra-
skömmum tíma. „Eg held að ég geti
ekki verið annað,“ sagði hann og
bætti við: „En svona er knattspym-
an og það er eins og við getum ekki
unnið Grindvíkinga.“
Ásgeir sagði að slakur varnar-
leikur sinna manna undir lokin hefði
reynst dýrkeyptur. „Varnarleikur
okkai- var alveg þokkalegur í fyrri
hálfleik, en reyndar gerðum við
nokkur mistök. Við hófum svo
seinni hálfleik af krafti, náðum að
skora og á þeim tíma virtist sem að-
eins eitt lið væri á vellinum. Á
skömmum tíma hrandi leikur okkar
hins vegar og reyndir menn eru að
gera grandvallarmistök og fyrir
vikið náðu þeir skyndisóknum og
tóku öll stigin.“
Ásgeir segir að keppni í deildinni
sé að mestu leyti afar jöfn og spenn-
andi og þeir átta leikir sem Framar-
ar eigi eftir séu allir sannkallaðir
úrslitaleikir.
„Við reynum auðvitað að vera
sem næst toppbaráttunni, en sem
stendur virðist sem KR-ingar séu
líklegastir. Þeir era með heitasta
liðið í dag, en enn er mikið eftir og
margt getur gerst.“