Morgunblaðið - 24.08.1999, Side 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐÍÐ
faémR
FOLK
■ GUÐJÓN Guðmundsson hefur
tekið við þjálfun 1. deildarliðs Víðis
í Garði. Hann tekur við starfi
Magna Blöndal Péturssonar, sem
hætti störfum samkvæmt sam-
komulagi við knattspyrnudeild fé-
lagsins á föstudag. Guðjón lék áður
með Víði og þjálfaði liðið eitt tíma-
bil.
■ JÓHANN Guðmundsson var í
leikmannahópi Watford er lagði
Bradford 1:0 í ensku úrvalsdeild-
inni á laugarag. Hann kom ekki inn
á í leiknum.
■ HERMANN Hreiðarsson var í
leikbanni er Brentford gerði jafn-
tefli við Bury í ensku 2. deildinni.
■ LÁRUS Orri Sigurðsson og fé-
lagar í Stoke unnu Millwall 3:1 í 2.
deildinni í Englandi.
■ SIGURÐUR Jónsson lék að nýju
meðDundee Utd sem tapaði 4:1 fyr-
ir Rangers í Skotlandi um helgina.
Þá lék Ólafur Gottskálksson með
Hibernian sem gerði l:l-jafntefli
við St. Johnstone.
■ EIÐUR Smári Guðjohnsen lék
með Bolton sem tapaði 1:0 fyrir
Ipswich í 1. deildinní Englandi.
Einum leikmanni Ipswich var vikið
af velli eftir að hafa brotið á Eiði
undir lok leiksins en Bolton tókst
ekki að færa sér liðsmuninn í nyt.
■ WALSALL, sem Sigurður Ragn-
ar Eyjólfsson og Bjamólfur Lárus-
son leika með, tapaði 4:1 fyrir
Crewe í 1. deildinni í Englandi um
helgina. Sigurður Ragnar kom inn
á í leiknum en Bjarnólfur lék allan
leikinn. Ray Graydon, knattspyrnu-
stjóri Walsall, sagði að leik loknum
að sér fyndist sem hann hefði verið
rændur. Hann sagði að Walsall
hefði leikið einstaklega vel en ekki
nýtt tækifærin. Dario Gradi, knatt-
spymustjóri Crewe, sagði heppni
að fá þrjú stig því Walsall hefði yfir-
spilað Crewe lengst af í leiknum.
■ KILMARNOCK, andstæðingar
KR í forkeppni Evrópukeppni fé-
lagsliða, tapaði 1:0 fyrir Motherwell
í Skotlandi á laugardag. Bobby
Williamson, knattspymustjóri
Kiimamock, sagði að þrátt fyrir
ósigur um helgina, og að liðið hefði
ekki unnið mörg afrek á keppnis-
tímabilinu, væri hann bjartsýnn fyrir
síðari leikinn gegn KR á fimmtudag.
■ BRIAN Kidd knattspyrnustjóri
Blackburn, sagði að leikmenn liðs-
ins hefðu verið logandi hræddir
gegn Barnsley í ensku 1. deildinni
um helgina. Barnsley vann 2:1 og er
Blackburn án sigurs í deOdinni að
loknum þremur umferðum.
■ LIVERPOOL tapaði sínum öðr-
um leik í röð er það mætti Middles-
brough um helgina. Brian Deane
skoraði sigurmarkið í leiknum fyrir
Boro.
■ PAOLO Maldini, fyrirliði ítalska
liðsins AC Milan, brákaði tábein á
vinstri fæti í leik við @texti:Parma
um titilinn meistarar meistaranna
um helgina. Talið er að hann verði
frá keppni í um þrjár vikur. Leikn-
um lauk með sigri Parma, 2:1.
■ CLARENCE Seedorf, hollenskur
miðvallarleikmaður spænska liðsins
Real Madrid, segist hafa gefist upp
á baráttu um sæti í aðalliðinu, en
hann fékk ekki að spreyta sig í
fyrsta leik tímabilsins, gegn Mall-
orka, um helgina. Seedorf hefur
verið á mála hjá liðinu í þrjú ár.
■ SEEDORF segir að með þessu sé
þjálfarinn, John Toshack, að gefa í
skyn að kraftar hans verði ekki
nýttir hjá liðinu og að hann hafi
rætt við stjómarmenn félagsins um
að yfirgefa liðið.
■ PETER Schmeichel, danski
markvörðurinn, sem gekk nýverið
til liðs við Sporting frá Lissabon í
Portúgal frá Evrópumeisturum
Manchester United í Englandi,
þótti ekki lipur á mOli stanganna og
fékk á sig tvö mörk í fyrsta leik sín-
um í Portúgal um helgina. Sporting
náði naumlega jafntefli, 2:2, við
Santa Clara.
KNATTSPYRNA
Reuters
Allt á suðupunkti á Highbury. Ray Parlour inni í miðri þvögu, óhress með að Jaap Stam tók Patrik Viera háistaki. Fyrir framan Stam er
Roy Keane. Lengst tii vinstri heldur Denis Irwin um Viera - þeir Fredrik Ljungberg og Nicky Butt standa fyrir framan Viera, sem
var heppinn að fá ekki að sjá rauða spjaldið eins og United-mennirnir Kean og Stam.
Hólmganga á Highbury
MANCHESTER United vann einvígið við Arsenal á Highbury og er
komið á kunnuglegar slóðir á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Tottenham fer vel af stað og hefur unnið þrjá leiki í röð. Það
sama er ekki hægt að segja um Newcasfle sem lenti í vandræð-
um gegn lærisveinum Egils Olsen í Wimbledon. Robbie Keane,
sem keyptur var fyrir metfé til Coventry, hóf ferilinn í úrvalsdeild
með eftirminnilegum hætti og tryggði félaginu sínu þrjú stig með
tveimur mörkum.
Roy Keane, frændi Robbie,
skoraði tvívegis fyrir
Manchester United er liðið vann
einvígið gegn Arsenal 2:1 á Hig-
hbury á sunnudag. Fredrik Ljung-
berg kora heimamönnum yfir á 41.
mínútu fyrri hálfleiks en Keane
jafnaði á 58. mínútu og skoraði sig-
urmark leiksins tveimur mínútum
fyrir leikslok. Skömmu áður lenti
Keane í ryskingum við Patrick Vi-
era, leikmann Arsenal, og í kjölfar-
ið brutust út átök milli leikmanna.
Dómari leiksins hafði tækifæri til
þess að vísa Keane og fleiri leik-
mönnum út af en ákvað að aðhafast
ekkert.
Raimond Van Der Gouw, sem
leysti Mark Bosnich af hólmi í
marki United, þurfti að fara út af
meiddur í síðari hálfleik og lýsti
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
liðsins, því yfir að hann hefði tölu-
verðar áhyggjur af stöðu mála
þrátt fyrir sigur, enda óvíst hve
Van Der Gouw yrði lengi frá vegna
meiðsla. Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, sagði að
ósigur liðsins kæmi sér illa því
Manchester United hefði unnið sál-
rænan sigur í upphafi baráttunnar
um Englandsmeistaratitilinn. „Við
máttum ekki tapa þessum leik.
Jafntefli hefði verið í lagi en ósigur
kom sér illa,“ sagði Wenger.
Ruud Gullit, knattspymustjóri
Newcastle, varð fyrir enn einu
áfallinu er liðið hans gerði 3:3 jafn-
tefli gegn Wimbledon á St. James
Park. Heimamenn voru 3:1 yfir í
leiknum en Wimbledon náði að
jafna leikinn á síðustu mínútunum.
Gullit sagði meiðsli í sínu liði þess
valdandi að það hefði ekki unnið
leikinn og benti á að Alain Goma
varnarmaður og Temuri Ketsbaia
framherji hefðu þurft að fara af
velli af þeim sökum. „Mér fannst
vörn liðsins standa sig vel fram að
því að Goma fór af velli.“ Alan She-
arer, framherji liðsins, var ekki
með í leiknum en hann tók út leik-
bann. Fjölmiðlar í Englandi herma
að grunnt sé á því góða milli knatt-
spyrnustjórans og fyrirliða enska
landsliðsins og vildi Gullit ekki
staðfesta í samtali við blaðamenn
að Shearer yrði með er liðið léki
gegn Sheffield Wednesday á mið-
vikudag. Egil Olsen, knattspyrnu-
stjóri Wimbledon, var hæstánægð-
ur með að ná stigi gegn Newcastle.
„Heimamenn fengu mun fleíri færi
í leiknum en í heild var leikurinn
ekki svo afleitur því okkur tókst að
vinna upp tveggja marka forskot."
Tottenham, undir stjórn Geor-
ges Grahams, hefur farið vel af
stað í ensku úrvalsdeildinni það
sem af er. Tottenham vann sinn
þriðja leik í röð er liðið lagði Sheffi-
eld Wednesday 2:1. Graham sagði
að þrátt fyrir góða byrjun í mótinu
væri nóg eftir og hann liti ekki á
stöðuna í deildinni fyrr en í lok
október, þá væri hægt að meta ár-
angur liðsins. „Mér finnst of mikið
gert úr árangri okkar og fólk er
farið að gera sér of miklar vonir.“
Danny Wilson, knattspyrnustjóri
Sheffield Wednesday, getur ekki
glaðst yfir sama árangri, en lið
hans er í neðsta sæti með eitt stig
að loknum fjórum leikjum. „Ég er
mjög ósáttur við frammistöðu okk-
ar í síðari hálfleik. Við hófum leik-
inn ágætlega en misstum sjálfs-
traustið er þeir skoruðu fyrsta
markið. Ég átta mig alveg á þeirri
stöðu sem liðið er í en við höfum
tækifæri til þess að gera betur er
við mætum Derby á miðvikudag.“
Chelsea tryggði sér l:0-sigur á
Aston Villa á Stamford Bridge.
Sigurmarkið var sjálfsmark sem
Ugo Ehigo skoraði. Gianluca Vialli
knattspyrnustjóra var greinilega
létt í leikslok og sagði að sitt lið
hefði gert vel að halda stigunum
þremur. „Við sköpuðum okkur
nokkur færi en sýndum einnig góð-
an varnarleik og það er framför,"
sagði Vialli og vísaði á bug gagn-
rýnisröddum um að lið sitt hefði
ekká burði til þess að gera atlögu
að meistaratitlinum.
Robbie Keane, norður-írski tán-
ingingurinn sem nýlega var keypt-
ur frá Wolves til Coventry fyrir
metfé, byrjaði vel í sínum fyrsta
leik fyrir sitt nýja félag og skoraði
bæði mörkin í 2:0 sigri á Derby.
„Mig dreymdi alltaf um að skora í
úrvalsdeildinni en ég get varlað
trúað því ennþá að ég hafi gert tvö
mörk. Tilfinningin var einstök,“
sagði Keane, sem lofaði nýja félag-
ið sitt í hástert og Gordon Strach-
an, knattspyrnustjóra Coventry.
„Ég hugsa að liðið verði um miðja
deild þegar upp verður staðið."
Hann sagðist lítið hugsa um það fé
sem Coventry reiddi fram fyrir
hann, sem er um 700 milljónir ísl.
króna. „Ég ætla fyrst og fremst að
einbeita mér að því að spila fót-
bolta.“
Southampton fékk skell er liðið
mætti Everton á Goodison Park
um helgina. Lokatölur leiksins
urðu 4:1 heimamönnum í vil. Dave
Jones, knattspyrnustjóri Sout-
hampton, kenndi afleitum varnar-
leik um hvernig fór. „Ef við leikum
ekki nægilega góðan varnarleik má
búast við slíkri útreið. Við virðumst
leggja það í vana okkar að gera
sjálfum okkur erfitt fyiir með því
að gefa andstæðingum okkar nokk-
ur mörk, en því verður að linna.“
Walter Smith, knattspyrnustjóri
Everton, var mun ánægðari með
úrslit leiksins og sagði að lið sitt
hefði stjórnað leiknum frá upphafi.
Hann sagði að sigurinn gæfi liði
sínu góð fyrirheit um framhaldið.
Watford heldur áfram að koma á
óvart í úrvalsdeildinni. Liðið vann
Liverpool 1:0 á Anfield Road fyrir
rúmri viku og nú Bradford 1:0 á
heimavelli, Vicarage Road - bæði
skiptin með mörkum frá Tommy
Mooney. Graham Taylor, knatt-
spyrnustjóri Watford, bar lof á
framherjann og sagði ljóst að hann
héldi áfram þar sem frá var horfið
á síðasta tímabili. Paul Jewell,
knattspyrnustjóri Bradford, var
vonsvikinn yfir fyrsta tapi liðsins á
tímabilinu en viðurkenndi að Wat-
ford væri vel að sigrinum komið.
„Við sköpuðum okkur fá tækifæri
og vorum á eftir í öllum aðgerð-
um.“
Sheff. Utd. skoðar Ríkharð
RÍKHARÐUR Daðason, leikmað-
ur íslenska landsliðsins og norska
úrvalsdeildarliðsins Viking, er
sagður hafa vakið athygli enska
1. deildarliðsins Sheffield United.
Á spjallsíðu enska Iiðsins er
sagt að Ríkharður sé einn þeirra
Ieikmanna sem Adrian Heath,
knattspyrnustjóri þess, hafi
áhuga á að fá til sín.
Ríkharður hefur skorað ellefu
mörk fyrir Viking það sem af er
tímabili í Noregi og hefur í sumar
vakið athygli margra liða í álf-
unni. Enska liðið hefur ekki riðið
feitum hesti í 1. deild er þrjár um-
ferðir eru búnar af móti, með eitt
stig og í neðsta sæti.