Morgunblaðið - 24.08.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 'B 13
KNATTSPYRNA
íslenska kvennalandsliðið náði jöfnu í Úkraínú á elleftu stundu í Dónetsk
Tvo mork dæmd af liðmu
„ÞAÐ var ánægjulegt að ná
stigi gegn tíkraínu. Aðstæður
voru okkur ekki í hag, um 30
stiga hiti, en við vorum betri
mestan part leiksins og ljóst að
íslenska liðið er í góðu líkam-
legu ástandi. Síðustu mínút-
urnar fór leikurinn einkum
fram í vítateig úkraínska liðs-
ins og ef við hefðum fengið
nokkrar mínútur í viðbót hefði
sigurinn fallið okkar megin,“
sagði Þórður Lárusson, lands-
liðsþjálfari islenska kvenna-
landsliðsms, er gerði 2:2-jafn-
tefli við tíkraínu í borginni Dó-
netsk í undankeppni Evrópu-
móts kvennalandsliða á sunnu-
dag.
Þórður sagði að fslenska
landsliðið hefði hafið leikinn
varfærnislega en náð yfirtök-
unum eftir 20 mínútur. Hann
sagði að íslenska liðið hefði
skorað mark um það leyti en
það hefði verið dæmt af vegna
rangstöðu. „Við töldum dóminn
hæpinn og í stað þess að ná for-
ystunni náði úkraínska liðið að
skora rótt fyrir leikhlé." Þórð-
ur sagði að íslenska liðið hefði
haldið uppteknum hætti i siðari
hálfleik og náð að jafna er Ra-
kel Ögmundsdóttir skoraði á
57. mínútu.
„Úkraínsku stúlkurnar tókst
að komast yfír á 65. mínútu eft-
ir sjaldséð varnarmistök ís-
lenska liðsins en við náðum að
jafna leikinn fijótt á eftir, en
sem fyrr var markið dæmt af
eftir að dómari leiksins hafði
ráðfært sig við línuvörð. Ást-
hildur Helgadóttir skoraði en
talið var að brotið hefði verið á
markverði heimamanna. Við
vorum mjög ósátt við þann dóm
en dómarinn vildi ekki gefa
neinar skýringar á ákvörðun
sinni.“ Þórður sagði að íslenska
liðið hefði tekist að jafna leik-
inn er tvær mínútur voru
komnar fram yfir venjulegan
leiktfma er Ásthildur Helga-
dóttir skoraði.
„Ég er ánægður með árang-
urinn í fyrsta leik sem gefur
góð fyrirheit um framhaldið,
því íslenska liðið tapaði 1:0 fyr-
ir tíkraínu ytra í fyrra. Næsti
leikur er gegn Ítalíu heima
þann 22. september og vonandi
að liðið nái hagstæðum úrslit-
um.“ Þórður sagði að aðbúnað-
ur allur í tíkraínu hefði verið
ágætur og liðið hefði leikið á
góðum velli sem tæki 50 þús-
und áhorfendur, en um eitt þús-
und fylgdust með leiknum.
Þórður sagði að ferðalagið til
tíkraínu hefði reynst erftt og
að það hefði tekið um 30
klukkustundir. Hann sagðist í
gær gera ráð fyrir tæplega 19
klukkustunda ferðalagi aftur til
íslands.
Stórsigur á
Ungveijum
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
knattspyrnu, skipað leikmönnum
18 ára og yngri, komst áfram í
milliriðil Evrópukeppni landsliða
er liðið vann alla andstæðinga sína
í forkeppni mótsins, sem leikin var
í Ungverjalandi um helgina. ís-
lenska liðið vann stórsigur á Ung-
verjum, 9:0, í síðasta leik sínum á
sunnudag.
Bryndís Jóhannesdóttir gerði
þrjú mörk, Ema Sigurðardóttir og
Rakel Logadóttir tvö hvor. Þá
gerðu Bára Gunnarsdóttir og Guð-
rún Gunnarsdóttir eitt hvor.
Islenska liðið hlaut níu stig í riðl-
inum, en það vann einnig Ira, 2:0,
og Eistlendinga, 11:0. Islenska lið-
ið komst áfram og leikur í Sviss í
október ásamt landsliðum frá
Sviss, Spáni og einu liði, sem ekki
er vitað hvað er.
Markvörður Ham
borgar skotviss
MÖRG áhugaverð atvik litu dagsins Ijós í annarri umferð þýsku
knattspyrnunnar um liðna helgi. Mörg frábær mörk voru skoruð í
leikjum sem margir hverjir voru stórskemmtilegir. Þá urðu einnig
mörg óvænt úrslit. Menn dagsins voru þeir Sebastian Deisler hjá
Berlin, 19 ára unglingur sem sannaði að þar er stórefni á ferð og
Ribbeck hefur þegar valið hann í landsliðshóp sinn. Jörg Butt,
markvörður Hamburg, skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum og hefur
þar með skorað fleiri mörk en nokkur annar markvörður í sögu
fyrstu deildarinnar í Þýskalandi - níu talsins. Hann hefur aldrei
misnotað vítaspyrnu í deildarkeppninni.
Reuters
JORG Butt, markvörður Hamborgar, er búinn að senda
knöttinn í annað sinn fram hjá markverði Stuttgart.
Brasilíumennirnir þrír hjá
Leverkusen voru sannarlega í
essinu sínu gegn Bayern Miinchen í
stórleik umferðai’innar, þeir Emer-
son, Ze Roberto og Ponte. Leikur
Leverkusen og Bæjara var frábær
skemmtun frá upphafi til enda. Ba-
yern Munchen, sem lék án margra
fastamanna, kom á óvart með mjög
góðum leik og með smá heppni
hefði liðið auðveldlega getað sigrað.
I leikhléi var staðan 0:0 og hefði
eins getað staðið 3:3 - svo fjörugur
var leikurinn.
Bæði liðin léku sóknarleik og
stóðu þeir Daum og Hitzfeld við lof-
Táningurinn
Nano kom
inn á fyrir
Rivaldo
FERNANDO Maceda,
sautján ára hægri útherji
Barcelona, fékk í fyrsta sinn
tækifæri með aðalliðinu í
deildarkeppninni um helgina -
varð þannig yngsti leikmaður
deildarinnar frá upphafi,
sautján ára og fjögurra mán-
aða. Maceda, sem gengur und-
ir nafninu Nano, hefur verið
undir smásjá enska liðsins Ar-
senal. Louis van Gaal, knatt-
spyrnustjóri Barcelona, ákvað
að verðlauna hann fyrir
tryggð sína við félagið, því
hann hafnaði kostaboði frá
enska félaginu síðastliðið
tímabil eftir að hafa staðið sig
vel í Evrópukeppni landsliða,
sem skipuð eru leikmönnum
sextán ára og yngri.
Nano, sem fæddist í
Barcelona, var himinlifandi
eftir frumraun sína með aðal-
liðinu, en hann kom inn á fyrir
Brasilíumanninn Rivaldo þeg-
ar tuttugu mínútur voru eftii-
af sigurleiknum við Real Zara-
goza.
orð sín að sókn væri besta vömin.
Ulf Kirsten skoraði fyrsta mark
Leverkusen á 79. mínútu eftir
glæsilega sendingu frá Emerson og
seinna mark Leverkusen kom fimm
mínútum fyrir leikslok - tvímæla-
laust mark umferðarinnar þegar
Oliver Neuville skoraði af 30 metra
færi í samskeytin og inn - sannkall-
að draumamark.
Allir nemar Bæjarar eru ánægð-
ir með þennan sigur Leverkusen,
vilja sem sagt fá spennandi keppni,
en ekki eins og síðasta ár þegar
Bæjarar stungu af í fyrstu umferð-
unum. Þjálfarar Dortmund og
Schalke eru undir miklum þrýst-
ingi. Þeir unnu báðir mikilvæga
sigra; Schalke á útivelli gegn
Bremen, 1:0, og Dortmund vann
knappan sigur á síðustu mínútu
gegn Wolfsburg, 2:1, þar sem
Andreas Möller skoraði sigur-
markið úr vítaspyrnu um fimm
KEPPNISTÍMABIL knatt-
spyrnumanna á Spáni hófst um
liðna helgi. Meistarar Barcelona
héldu velli, en erkifjendur Fþeirra,
Real Madrid, tókst að knýja fram
nauman sigur á Mallorka. Meistara-
efnin í Celta frá hafnarborginni Vigo
töpuðu mjög óvænt fyrir Oviedo.
Leikmenn spænska stórliðsins Real
Madrid náðu með naumindum að
vinna sigur í fyrstu umferð deildar-
keppninnar þar í landi er þeir
mættu Mallorka á útivelli. Heima-
menn höfðu gert eina mark leiksins
er langt var liðið á viðbótartíma
dómarans vegna tafa fyrr í leikn-
um. Þá tóku Madrídarbúar til sinna
ráða og Fernando Morientes jafn-
aði metin. Örfáum andartökum síð-
ar, er leikmenn Mallorku gáfu eftir
í hörðum leiknum, tryggði Raul
Gonzales gestunum sætan sigur,
2:1, með hnitmiðuðu skoti yst úr
vítateignum.
Endirinn var ótrúlegur, því Ma-
drídarliðið hafði farið illa með mark-
tækifærin fyrr í leiknum, fyi-irliðinn
Hierro misnotaði m.a.s. vítaspyrnu,
mínútum fyrir leikslok. Wolfsburg
var yfir, 0:1. Áhangendur Dort-
mund-liðsins, sem þykja meðal
þeiiTa bestu í Þýskalandi, bauluðu
á lið sitt eftir fyrri hálfleik. Liðið
lék síðan skínandi vel í síðari hálf-
leik og vann verðskuldaðan sigur.
Fjölmiðlar í Þýskalandi hrósa
leik Hamborgarliðsins í hástert og
spyrja hvort nýtt glanstímabil sé í
uppsiglingu hjá því. Volkspark
Stadion, sem hefur allur verið end-
urnýjaður og tekur nú 55.000 áhorf-
endur í sæti, var þétt skipaður þeg-
ar leikmenn Hamborgar léku sér að
Stuttgart eins og köttur að mús.
3:0-sigur Hamborgar var síst of
stór og ljóst að Stuttgart á erfiðan
vetur fyrir höndum.
Leikur Rostock og Ka-
iserslautem var með ólíkindum í
fyrri hálfleik, þar sem Rostock var
yfir, 4:2. Djorkaeff, hinn nýi leik-
maður Kaiserslautern, átti frábær-
an leik og skoraði fyrsta mark sitt
fyrir liðið. Rostock vann verðskuld-
að, 4:2, og var leikurinn frábær
skemmtun allan tímann. Virðist
Rostock hafa gott tak á Ka-
iserslautern, sem hefur aldrei unnið
í Rostock.
Leikmenn Berlínai- jöfnuðu á síð-
ustu mínútum gegn nýliðum Bi-
elefeld á útivelli, og var þar að verki
hinn 19 ára Deisler með mark úr
og örvænting virtist grípa um sig.
Urslitin koma sér þó vel fyrir John
Toshack, þjálfara Real Madrid.
Hann tefldi franska táningnum
Nicolas Anelka fram í bvrjunarlið-
inu, en skipti Steve McManaman inn
á á 65. mínútu. Báðir komu þeir frá
Englandi fyrir tímabilið, Anelka frá
Arsenal eftir mikið japl, jaml, fum
og fuður, en Englendingurinn
McManaman frá Liverpool. Hann
virtist fremur taugaóstyrkur í fyrstu
og var ragur við að sækja að varnar-
mönnum Mallorka, en lagði þó upp
j öfnunarmar kið.
Nági’annalið Real í höfuðborg
Spánar, Atletico Madrid, tapaði illa
fyrir nýliðum í efstu deild, Rayo
Vallecano, 2:0. Mistök markvarðar-
ins, Toni Jimenez, urðu til þess að
þeir skoruðu fyrra markið á 41.
mínútu. Það gerði Francoise Hern-
andez með skalla eftir að mark-
verðinum hafði mistekist að slá
boltann frá marki.
Juan Ferron gerði síðara markið
eftir skyndisókn, er Atletico freist-
aði þess að jafna. Sigurinn var verð-
aukaspymu af 30 metra færi. Þetta
er annað mark hans úr aukaspyrnu
í tveimur leikjum og þar er sannar-
lega stórefni á ferð. Eyjólfur Sverr-
isson átti frekar slakan dag og fékk
skuldaður. Hollenski landsliðsmað-
urinn Jimmy Floyd Hasselbaink var
í liði Atletico, en hann var nýlega
keyptur frá enska liðinu Leeds
United. Hasselbaink þótti ekki
nægilega ógnandi í leiknum.
Meistarar Barcelona báru sigur-
orð af Real Zaragosa, 2:0, með
tveimur snilldarmörkum. Luis Figo,
hinn portúgalski, gerði það fyrra er
hann tók við fyrirgjöf Pep Guardiola
með brjóstinu og skilaði boltanum
umsvifalaust í marknetið. Dani
Garcia innsiglaði síðan sigurinn með
öðru glæsimarki. Hann skoraði við-
stöðulaust við nærstöng eftir fyrir-
gjöf Sergi Barjuan.
Liðið Deportivo frá hafnarborg-
inni Coruna fór létt með Alaves, 4:1.
Hollenski landsliðsmaðurinn Roy
Makaay gerði þrennu. Hann var
keyptur frá Tenerife skömmu áður
en tímabilið hófst. Kom hann nýju
liði sínu til bjargar eftir að Alaves
hafði gert fyrsta markið. Eftir það
var hins vegar um algera einstefnu
að ræða.
Óvæntustu úrslit helgarinnai’
5 í einkunn hjá tímaritinu Kicker.
Preetz, landsliðsmaður Berlínar og
markaskorari, handarbrotnaði í
fyrri hálfleik og verður frá a.m.k.
næstu fjórar vikurnar.
komu eftir leik Oviedo og meistara-
efnanna í Celta frá Vigo. Frederic
Danjou kom heimamönnum Oviedo
yfir á 57. mínútu og þrátt fyrir
myndarlegan og tilkomumikinn
samleik, gerði Celta ekki mikinn
usla í vörn lítilmagnans Oviedo.
Þá beið Valencia ósigur í leik við
Racing Santander. Valencia gerir
sér vonir um spænskan titil næsta
vor, en fagnar ekki sigri með þeim
leik er það sýndi um þessa helgi.
Lokatölur urðu 2:1, Santander í hag.
Vai-narmistök urðu til þess að Salva
Ballesta gat komið fæti í auka-
spyrnu Pedros Munitis og stýrt
boltanum í mark Valencia eftir tutt-
ugu mínútna leik.
í kjölfarið voru dæmdar þrjár
vítaspyi’nur. Gaizka Mendieta í liði
Valencia minotaði þá fyrstu. Bal-
lesta skoraði úr þeirri næstu og kom
þannig Santander í 2:0, en Mendieta
hefði getað bætt um betur úr þeirri
þriðju. Valencia sótti stíft undir lok-
in, en leikmenn liðsins misstu móð-
inn er félagi þein-a, Amadeo Car-
boni, var rekinn af velli.
Sigrar erkifjendanna á Spáni