Morgunblaðið - 08.09.1999, Side 9

Morgunblaðið - 08.09.1999, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 C 9. Fiskverkunin Hamrafell í Hafnarfirði kaupir allan físk til vinnslu á mörkuðum Höfum verið réttum megin við strikið Hjónin Laufey Sigurþórsdóttir og Björgvin Kjartansson eiga og reka saman fískverkunina Hamrafell í Hafnarfirði. Þau byggja vinnsluna á fískkaupum á mörkuðum og senda afurðirnar út ferskar, frystar eða saltaðar. „Þrátt fyrir að keypt sé á mörkuðum,“ segir Björgvin í samtali við Hjört Gíslason, „höfum við verið réttum megin við strikið enda höfum við ekki bakland til að standa í taprekstri.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Hjónin Björgvin Kjartansson og Laufey Sigurþórsdótlir hafa rekið fiskverkunina Hamrafell í um áratug. Þau byrjuðu í ferskum fiski, en frysta og salta líka. Reksturinn hefur gengið vel og þau hafa náð að byggja fyrirtækið myndarlega upp. „Við byi’juðum með þennan rekstur ái-ið 1990,“ segir Björgvin í samtali við Verið. „Vorum bara tvö fyrsta veturinn og eingöngu í ferskum fiski. Síðan hefur þetta undið upp á sig og við erum nú með um 15 manns í vinnu. Fyrstu árin vorum við eingöngu í ferskfiski, en rákum okkur fljótt á að illmögulegt er að vera eingöngu í ferskum fiski og framleiða upp í pantanir. Til þess eru sveiflumar of miklar, annað- hvort þarf þá að vinna allan sólar- hringinn eða ekki neitt. Við fórum því smám saman að bæta við frystingu og svo nú síðasta árið höfum við farið út í söltun og þurrkun, aðallega á ufsa. Með þessu reynum við að auka fjölbreytnina í vinnslunni, en við kaupum allan okkar fisk á mörkuðum. Það gefur okkur því mun meiri stöðugleika í vinnslunni að geta valið úr fiskteg- undum eftir því hvort við erum að setja í flug, frysta eða salta. Það er mjög mismunandi hvernig vinnslunni er háttað, það fer eftir aðstæðum hverju sinni. Það er eitt uppboð klukkan 11 að morgni og síðan annað upp úr hádeginu og þar ræður verð og framboð því hvemig vinnslan verður daginn eftir, hvaða fisktegund verður unnin og í hvaða pakkningar. Saltfiskurinn gerir okkur kleift að vera með sveigjan- leika. Ef ég næ ekki í fisk einhvern daginn getum við snúið okkur að saltfiskinum til að hafa eitthvað að gera fyrir mannskapinn. Þetta er helzti kosturinn við saltfiskinn miklu frekar en hagnaðai’vonin, sem er afar lítil að mér sýnist." Svíður samkeppnismismununin Hvernig gengur að reka fisk- vinnslu undir þessum kringumstæð- um? „Eins og staðan er í dag er mjög erfitt að byggja fiskvinnslu á kaup- um á mörkuðum, en þetta gæti ver- ið miklu betra. Það sem okkur svíð- ur mest er þessi samkeppnismis- munun sem við búum við. Við fáum ekki tækifæri til að bjóða í fisk, þótt við getum gert úr honum miklu meiri verðmæti en sá sem hefur í rauninni hendur á honum. Mér dettur oft í hug yfirlýsingar frá Arnari Sigurmundssyni, for- manni Samtaka fiskvinnslustöðva, þegar hann er að segja að afkoma frystingar og landvinnslu almennt sé slæm vegna þess að hráefnisverð sé of hátt. Hráefnisverð sé komið upp í 60% sem hlutfall af verði seldra afurða. Við erum rosalega hamingjusamir ef við komumst nið- ur í 70%. Hinir tala um að hlutfallið megi ekki vera hærra en 55%. Við, sem erum að kaupa á mörkuðum, erum hins vegar að tala um á milli 70 og 80%. Við verðum því að reka okkar fyrirtæki allt öðruvísi og við eigum að geta skilað hagnaði á þessu. Málið er bara að ná í fisk. Vísað frá samkeppnisstofnun Fyrir nokkrum árum voru stofn- uð Samtök fiskvinnslu án útgerðar, SFÁÚ. Eitt af meginmarkmiðum félagsins var að berjast gegn þeirri grófu samkeppnismismunun sem er á milli fiskvinnslu, sem hefur yfir kvóta að ráða, og hinna sem engan kvóta hafa. Við kærðum þessa sam- keppnismismunun til Samkeppnis- stofnunar, það að fyrirtæki með út- gerð og fiskvinnslu gátu verið að fénýta úthlutaðar aflahéimildir út- gerðarinnar og nota það fé til fisk- kaupa inni á markaði í samkeppni við okkur. Þessu var bara hreinlega vísað frá hjá Samkeppnisstofnun. Mér sýnist nú að þetta mál sé í eng- um grundvallaratriðum frábrugðið því þegar Póstur og sími var skikk- aður til að vera með aðskilinn rekst- ur, annars vegar á einkaleyfis- bundna hlutanum og hins vegar því sem var á almennum samkeppnis- markaði. Við erum að berjast í þessum málum og bindum miklar vonir við nýjan sjávarútvegsráðherra, Árna Mathiesen. Við áttum fund með honum fyrir nokkru og virtist hann hafa skilning á okkar málum. Þetta eru svo margir þættir sem koma að þessari samkeppnismismunun. Þar má nefna vigtarmál. Fiskistofa hef- ur sett reglur um það að ekki megi vigta með yfirvigt á hafnarvogum. Ef um dagróðrabáta er að ræða, má ekki gera ráð fyrir meiru en 3% ís. Sé um að ræða ker með 500 kílóum af fiski, eru þar aðeins 15 kfló af ís, sem er alltof lítið. Fyrir vikið forð- ast menn það að ísa aflann. Rýrnun og yfirvigt Annað dæmi er að þegar nýjum fiski er landað að kvöldi til er hann vigtaður, en þegar við kaupum fisk- inn að morgni, samkvæmt vigtun kvöldsins áður, hefur rýmunin yfir nóttina verið 3 til 5%. Þá rýmun verðum við að taka á okkur. Við verð- um því að taka þessa rýmun með í dæmið, þegar við metum á hvaða verði við getum keypt fiskinn. Þegar þessi sami bátur sendir afla sinn á markað í Bretlandi eða Þýzkalandi getur kaupandinn verið ömggur um 3 til 4% yfirvigt. Það sagði einu sinni fiskkaupandi í Grimsby að yfirvigtin borgaði vinnulaunin í hans vinnslu. Þetta er enn ein mismununin. Þessi stærri hús sem hafa heima- vigtunarleyfi og em að taka fisk af eigin bátum, sýna allt að 50% nýt- ingu í þorski, þegar þeir sem kaupa á markaði em bara með 40 til 42%. Þá er allt talið, flök og mamingur. Þetta segir sitt um yfirvigtina annars vegar og „undirvigtina“ hins vegar. Alfarið seljendamarkaður Ástæðan fyrir því að við fáum litlu breytt með markaðina, bæði þessi vigtarmál, gæðamál og að fá leiðréttingar, er sú að þetta er alfar- ið seljendamarkaður. Það fer allur fiskur á háu verði og verðmunur á góðum fiski og lélegum er alltof lítill. Það er veruleg samkeppni á milli markaðsblokkanna tveggja, ís- landsmarkaðar og Reiknistofu fisk- markaða. Það em til dæmis tveir markaðir í Þorlákshöfn, Grindavík, Sandgerði, fyrir vestan og í Ólafsvík og sitthvor blokkin í Reykjavík og Hafnarfírði. Þegar starfsmenn markaðanna hafa ætlað að sækja einhverjar leiðréttingai' fyrir okkur til útgerðarmanna, hefur viðkvæðið oft verið þannig að útgerðarmaður- inn segii’ einfaldlega: „Heyrðu, ef þú ætlar að koma svona aftan að mér, fer ég bara með fiskinn á hinn markaðinn og sel þar.“ Breyta verður reglum Við vildum gjaman að mark- aðslögmálin réðu meira og þessir markaðir myndu sameinast. Það yrði bara einn markaður í hverri höfn. Við þurfum einhverja vemd, þegar þessi seljendamarkaður ríkir. Það gengur ekki að það sé alltaf verið að halda seljandanum góðum á kostnað kaupendanna. Fiskistofa verður ennfremur að breyta þess- um reglum sínum um vigtun afla, að markaðimir fái alfarið vigtunarleyfi og fái að selja fískinn með það mik- illi yfirvigt að hún standi rétt er kaupandi fær fiskinn í hendur. Það vora settar reglur um að vigta skyldi allan gámafisk áður en hann færi úr landi, en gildistöku þeirra hefur verið frestað. Það væri mikil hagsbót yrðu þær reglur látnar gilda.“ Aðskilja þarf rekstur útgerðar og fiskvinnslu Hvemig viljið þið hafa þetta? „Draumsýn okkar fiskkaupenda án útgerðar er að allur fiskur fan á markaði. Við geram okkur grein fyrir því að tæpast verði sett lög þess efnis að skylda verði að setja allan fisk á markað. Við bindum meiri vonir við að aðskilinn verði rekstur útgerðar og fiskvinnslu. Þá væri allt annað uppi á borðinu. Þá fengjum við sjómannaforystuna um allt land með okkur í því að þessi fiskur færi á markað eða yrði mark- aðstengdur. Þá þyrfti vinnslan sem í dag er að tapa á því að borga sjó- mönnum sínum 80 krónur fyrir þorskinn að meðaltali, meðan við kaupum hann á 130 krónur, að gera betur. Þá kæmu allar upplýsingar upp á borðið og það myndi ýta meiri fiski inn á markaðina. Viljum fá að bjóða í gámafiskinn Það er annað sem vert er að nefna. Það kemur stundum fyrir að búið er að tilkynna að bátur sé á leið í land með afla til löndunar á fisk- markaði. Við mætum á markaðinn fullir bjartsýni um gott framboð, búnir að láta umbjóðendur okkar hér vita og þeir kaupendur úti. Þá kemur bara í ljós að allt hefur farið í gám og við ekki fengið tækifæri til að bjóða í afíann. Okkur finnst að við ættum að fá að bjóða í þann fisk sem ætlunin er að setja í gáma, en í raun ætti allur þessi fiskur að fara á markaðina hér heima. Útlendingarnir gætu þá komið og boðið í hann á móti okkur. Þeir eru velkomnir hingað. Eg hef enga trú á því að þeir séu tilbúnir að kaupa fiskinn hérna á sama verði og við, setja hann í gám og flytja hann út og taka á sig þá vigtarrýrnun og gæðarýmun sem óhjákvæmilega verður. Við gætum á hinn bóginn keypt fiskinn á þriðjudegi til dæmis, hann væri kominn út á flugvöll á miðvikudagsmorgni og kominn til kaupanda síðdegis. Það skipti miklu máli að við fengjum tækifæri til að bjóða í „gámafiskinn". Vigta verður aflann fyrir útflutning Nú eru hugmyndir uppi um að af- nema þetta svokallaða kvótaálag, sem er á útflutningi á ferskum, óunnum fiski. Við komum því á framfæri meðal annars við sjávarút- vegsráðherra að við endurskoðun þessara reglna þætti okkur það mjög mikilvægt að allur afli yrði vigtaður hér heima áður en hann færi út og við fáum tækifæri tfl að bjóða í hann. Þegar steinbítsvertíðin hefst á vorin safna margar minni útgerðir í gám og senda út á erlenda uppboðs- markaði. Sjómennimir fá svo verðið gefið upp og miða við það, þegar verið er að bera saman verð á fisk- mörkuðum hér heima og ytra. Það kemur auðvitað kvótafrádráttur á steinbítinn við útflutninginn, þann frádrátt taka þeir ekki alltaf með í reikninginn. Ekki vigtarrýrnunina á leiðinni og ekki yfirvigtina. Gámur sem skilar kannski 15 tonnum í Bretlandi, hefði líklega skilað 17 tonnum hér, þegar allt er tekið með í reikninginn. Þetta skekkir allt myndina verulega og því er nauð- synlegt að vigta gámafiskinn áður en hann fer utan. Lokaður klúbbur Það er þessi lokaði klúbbur sem fær úthlutað ókeypis veiðiheimild- um sem gerir okkur svolítið erfitt fyrir. Eg get nefnt þér eitt dæmi um hvernig þetta hefur virkað. Einn félagi okkar í Samtökum fisk- kaupenda án útgerðar var frum- kvöðull í því að skera flökin niður í bita og lausfrysta fyrir markaðinn í Bretlandi. Hann hefur gert þetta í langan tíma, allt að 15 ár, og hefur náð mjög góðum árangri þrátt fyrir að kaupa allan sinn fisk af óskyldum aðilum, mest á mörkuðum. Svo fara þessi stóra fyrirtæki, ÚA og Snæ- fell, að bylta rekstrinum og fara í þessa bitavinnslu, bjóða þessa fram- leiðslu inn á sama markað, en þá kemur í ljós að þessir stóra bjóða kfló af bitum á verði sem er einu pundi, um 120 ki’ónum, lægra en frumkvöðullinn hafði verið að fá. Þetta gætu þeir ekki gert án ókeyp- is aflaheimilda og borgað sínum sjó- mönnum 80 krónur fyrir kflóið af þorskinum. Hinn aðilinn hefur keypt þorskinn á mörkuðum á að meðaltali um 130 krónur kflóið fyrstu 6 mán- uði þessa árs og skilað hagnaði. Þetta sýnir vel hve sérkennilegar þessar aðstæður era. Þeir sem geta gert mest úr fiskinum fá hann ekki nema vera eins og útspýtt hund- skinn um allt land og fá reyndar alls . ekkert í sumum tilfellum. Þetta er lýsandi dæmi um stöðuna hjá okkur. Misjafnar aðstæður Við fiskkaupendur án útgerðar fóram á fund hjá sjávarútvegsnefnd Alþingis í fyrra til bera okkar mál upp þar. Við vildum að settar yrðu einhverjar reglur, sem ekki endi- lega skylduðu allan fisk inn á mark- að, heldur yrði það fýsilegur kostur. Jafnvel mætti hugsa sér út frá þjóð- hagslegri hagkvæmni að komið yrði á einhverri kvótaívilnun til þeirra sem lönduðu fiski til vinnslu innan- lands, enda yrði virðisaukinn við vinnsluna eftir í landinu, en ekki fluttur út. Nefndarmenn töldu hættu á því að ef skylda ætti út- gerðarmenn til að landa á innlend- um fiskmörkuðum myndu þeir flytja vinnsluna út á sjó. Við bentum á að ef samkeppnismununinni milli sjó- og landvinnslu yrði eytt, kvið- um við ekki þeim valkosti. Ég heyrði það reyndar eftir kaupanda í Bretlandi að algengt væri að verð á sjófrystum afurðum væri um 10% hærra en verð á land- frystum afurðum. Vissulega er sjó- frystur fiskur ferskari, um það efast enginn, en stærsti kosturinn sem. brezki kaupandinn sá við að kaupa sjófrystan fisk var að hann var að fá svo góða yfírvigt. Kvótinn reiknað- ist bara af lönduðum afla, það er án yfirvigtar. Nú er reyndar komið eitthvert eftirlit um borð í skipin, en þeir sjá um það sjálfir. Við getum líka tekið dæmi um að ég sé að kaupa fisk af ormaslóð, sem frystitogararnir era líka á. Flak úr ormafiski kostar mig kannski 300 krónur. Ég myndi aldrei horfa upp á það að stúlkurnar í snyrtingunni hentu því í afskurð. Þær yrðu heldur að eyða miklum tíma í að snyrta það. Það þarf eng- inn að segja okkur hvað er gert úti á sjó, þetta flak fer beint í afskurð- eða í hafið aftur. Enda er afskurður frá frystitoguram talinn kjarakaup, þar era oft heilu flökin. Ef við gæt- um skilað okkar fiski, sem er svona, myndum við auðvitað gera það.“ Hvernig lízt þér þá á framtíðina? „Ég held að fyrirtæki eins og Hamrafell eigi framtíð íyrir sér, þar sem sveigjanleiki er mikill og yfir- bygging í lágmarki, en til þess þarf samhentan stai’fsmannahóp og hann höfum við góðan. Útlitið gæti hins vegar verið mun bjartara ef meiri fiskur kæmi á markaðina og við fengjum til dæmis að bjóða í harní fisk sem sendur er óunninn á mark- aði ytra. Það er ýmis mismunun í gildi samkvæmt lögum, sem gerir okkur erfitt fyrir. Það eru einkum vigtunar- og gæðamálin sem þarf að lagafæra ásamt fleiri þáttum. Við hljótum að búast við því að mismun- un verði útrýmt og þá er framtíðin björt,“ segir Björgvin Kjartansson. *

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.