Morgunblaðið - 08.09.1999, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 C 11,
FRÉTTIR
Olís leggur áherslu
á alhliða þjónustu
Hafa selt hátt í 200
háþrýstiþvottavélar
I OLÍS hefur á undan-
förnum árum lagt
meiri áherslu á alhliða
þjónustu við sjávarút-
veg. Einn liður í þeirri
þróun voru kaup félagsins á Vélsleðaþjónustunni en samfara þeim kaupum
hóf félagið að þróa háþrýstiþvottavél sem byggist á íslensku hugviti. Há-
þrýstiþvottavélarnar heita IceClean og hafa notið mikilla vinsælda í landi
og úti á sjó. í dag er búnaðurinn notaður í hátt í 200 fískvinnslufyrirtækjum
og frystitogurum víða um heim.
Thomas Möller, framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Olís, segir að
háþrýstiþvottavélarnar séu ekki
einungis notaðar við sjávarútveg
heldur hafí aðrir matvælageirar
tekið tækið í sína þjónustu.
„Við seldum til að mynda nýlega
nokkur tæki til kjötvinnslu í
Hollandi. Petta tæki er gott dæmi
um þróunarverkefni sem er að skila
sér. Þetta sýnir að íslenskt hugvit
er gott hugvit sem er samkeppnis-
fært á öllum mörkuðum."
Á íslensku sjávarútvegssýning-
unni sýndi Olís karaþvottavél sem
tengist IceClean háþrýstiþvottavél-
unum. Thomas segir að hún hafí
verið í þróun undanfarna mánuði og
vinnan hafi verið unnin í samstarfi
við fískvinnslufyrirtæki í landinu.
„Pessi vél er afsgrengi háþrýsti-
þvottavélarinnar. I stað þess að
handþvo körin eru þau send á færi-
bandi í vélina sem sér um þetta.
Vélin afkastar um 25 körum á
klukkustund og skilar mjög hreinum
körum af sér.“
Thomas segir að það sé nýtt fyrir
Olís að sinna öðru en olíusölu. „Þetta
er hins vegar sjálfsögð þróun fyrir fé-
lagið. Þetta er að skila sér og við ætl-
um að halda áfram á þessari braut.“
Morgunblaðið/Golli
Hendrik Berndsen og Thomas Möller hjá Olís standa vígreifir í
stærstu trekt landsins og þótt víðar væri leitað.
, Morgunblaðið/Golli
Mikill fjöldi gesta skoðaði sýningarbás Marels hf. á Islensku sjávarútvegssýningunni.
„Sýningin gæti vaxið enn“
MAREL hf. og
Góð aðsókn á bás Marels
á sjávarútvegssýningunni
° J » Islensku sjavarut-
vegssýningunni, mesta áherslu á bitavinnslu og sýndu m.a. lausfrysti, sjálf-
virka innmötun á flokkara, flokkun, skurðarvél og vogir. „Þessi búnaður
hefur vakið mikla athygli,“ sagði Lárus Ásgeirsson, sölu- og markaðsstjóri
Marels hf., í samtali við Verið, „enda er iðnaðurinn sífellt að þróast meira og
meira í átt að bitavinnslu."
Lárus sagðist mjög ánægður með
sýninguna. Allt fyrirkomulag og
umgjörð væri til fyrirmyndar og
metnaður sýnenda sjálfra væri
sömuleiðis greinilega mun meiri en
á fyrri sýningum. „Þetta er ein
besta sýning sem ég hef tekið þátt í.
Hún er mjög fjölsótt, á básinn til
okkar hafa komið fulltrúar fyrir-
tækja víða að úr heiminum, svo sem
Ástralíu, Brasilíu, Chile og víðsveg-
ar frá Asíu. Eins hefur aðsókn frá
Evrópu verið góð. Sýningin er enn-
fremur mun fjölbreyttari en fyrir
þremur árum. Þannig eru hugbún-
aðarfyrirtækin mun meira áberandi
núna og gaman að sjá hve fyrir-
tækjunum sem koma að þessum
iðnaði hefur fjölgað. Ég vil sérstak-
lega nefna í því sambandi Tel-
eMedlce og fjarlækningabúnaðinn
þeiiTa."
Nauðsynlegt að taka
þátt í sýningum
Lárus telur ekkert því til fyrir-
stöðu að Islenska sjávarútsvegssýn-
ingin gæti vaxið enn frekar. „Hélsta
vandamálið sem hér er við að etja
er takmarkað hótelpláss og margir
hafa lent í talsverðum vandræðum
vegna þess. Það er því ljóst að ef er-
lendum gestum á að fjölga þarf að
gera ráðstafanir vegna þessa.“
Lárus sagði nauðsynlegt fyrir
fyrirtæki að taka þátt í sýningum af
þessu tagi. „Við tökum þátt í sýn-
ingum til að kynna nýjungar, koma
á nýjum tengslum, hitta viðskipta-
vini, fylgjast með straumum og ’’
stefnum í iðnaðinum og hvað keppi-
nautarnir eru að gera. Á þessum
dögum hittum við langflesta sem
koma að þessum iðnaði. Kostnaður-
inn við að fara og heimsækja þessa
aðila yrði gríðarlegur og mun meiri
en kostnaðurinn við þátttöku í sýn-
ingunni. Hér er einnig hægt að sýna
tæki og búnað í vinnslu og ná
þannig athygli sem ekki væri hægt
að gera í styttri heimsóknum. Við
tökum þátt í hátt í 30 sýningum á
ári, bæði stórum alþjóðlegum sýn-
ingum en einnig svæðisbundnum
sýningum. Við erum því sannfærð-
ir um að þátttaka borgar sig, svo
framarlega sem gestir koma á
sýningarnar," sagði Lárus Ás-
geirsson.
ATVIMIMA
Ráðningarþjónusta sjávarútvegsins
Menn strax!
Sérhæfö ráðningarþjónusta fyrir sjávarútveginn.
Útvegum gott starfsfólk til sjós og lands.
Símar 562 3518 og 898 3518 (Friðjón).
Vélstjóri
óskar eftir starfi
1500 KW réttindi VS1. Ýmislegt kemurtil greina.
Áhugasamir leggi inn nafn og síma á af-
greiðslu Mbl., merktan: „Traustur — 3703".
I KVÓTI 1 S ^ón xzAsbjSznsson kfi.
,—, 1
kvAtabankinnI
Þorskaflahámark til sölu. Sími 565 6412, fax 565 6372, Jón Karlsson. • Sigurnaglalína — ábót — beita • Sími 551 1747.
TIL SOLU I
Flatningsvél Til sölu Baader 440 flatningsvél ásamt Odd- geirs hausara með slítara. Lán geta fylgt. Einnig Marel flaka-flokkari. Tækin eru í góðu ásigkomulagi. Upplýsingar í síma 893 6060. Saltfiskvinnsla Saltfiskvinnsla til sölu á einum besta stað á Suðvesturhorninu. Frábært tækifæri fyrir áhugasama aðila. Upplýsingar í síma 564 3749 alla daga.
BÁTAR/SKIP
Þessir bátar eru til sölu
ít IN 't\ •; .... ... ■ ■■■ ■■ ■ ■■
}\ , ^ .V*-“ — — —- • —— ibiií'ií ~ v'~r ".1: íSl
51 brúttótonna eikarbátur, útbúinn á línu,
net og troll. Smíðaður í Stykkishólmi árið
1970, lengd 18,4m. vél 408 hp. Caterpillar, árg.
1985. Báturinn selst kvótalaus en með
veiðiheimild.
20 brúttótonna eikarbátur, útbúinn á
rækju o.fl. Smíðaður á Skagaströnd árið 1972,
lengd 13,68 m. Vél 300 hp. Cummins, árg.
1998. Innfjarðarrækjukvóti geturfylgt, 31 tonn.
snurvoð. Smíðaður á Akureyri árið 1972,
lengd 14,10 m. Vél 153 hp. Skania, árg. 1983.
Öll tæki nýleg. Báturinn selst kvótalaus en með
veiðiheimild.
Skipasalan Bátar og búnaður,
Barónsstíg 5,
sími 562 2554, fax 552 6726. 4