Morgunblaðið - 22.09.1999, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.09.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 B 5 Minni afli á helstu nytjastofnum heims ■■■■■^■^^^^■■■^^■■■(■■■■■IH AFLI þremur Afli gæti verið meiri í Ind- BS^SJSS landshafí og Kyrrahafl al!»*auí“ og bryn- 0 ■' stirtlu for mmnkandi á árunum 1995 til 1997. En á sama tíma jókst afli á síld, spænskum makríl, japanskri ansjósu og loðnu og eru þessir stofnar í fjórða til sjöunda sæti yfir mest nýttu fisktegundir í heimi. Þorskur er í níunda sæti yfir mest nýttu tegundirnar og jókst aflinn hægt og bítandi á þessu tímabili. Athuga verður að þessar tölur eru um afla áður en E1 Ni~no herjaði á Kyrrahafið og vegna hans hefur afli Suður-Ameríkuþjóða á ansjósum og brynstirtlu minnkað enn frekar. Samkvæmt skýrslu Matvæla- og þróunarstofnunar Sameinuðu þjóð- anna (FAO) fer afli á helstu haf- svæðum heims minnkandi og telja sérfræðingar stofnunarinnar að vaxtarmöguleikar í fiskveiðum séu takmarkaðir. Þó benda þeir á nokkur svæði þar sem afli gæti verið meiri. Horfa menn sérstak- lega til Indlandshafs í því sam- hengi en stofnar þar hafa verið vannýttir, sérstaklega vegna van- þróaðra veiðiaðferða sjómanna á þeim slóðum. Einnig er bent á að hægt væri að veiða meira á sumum svæðum á Kyrrahafinu. 20 mest veiddu tegundirnar 1997 og samanburður við 1996 og 1995 Tegund 1 Ansjósa 2 Aiaskaufsi 3 Makríll (Chilean Jack) 4 Atlantshafssíld 5 Makríll (Chub) 6 Japönsk ansjósa 7 Loðna 8 Túnfiskur (Skipjack) 9 Atlantshafsþorskur 10 Silfuráll 11 Túnfiskur (Yellowfin) 12 Evrópsk sardína 13 Smokkfiskur 14 S-Amerísk sardína 15 Brislingur 16 Lýsa 17 Sardinella níí*® 18 Lýsingur 19 Smokkfiskur (Japanese flying squid) 20 Meinhaddur ,x^> 1997 1996 1995 7.685 8.864 8.645 4.368 4.549 4.809 3.597 4.379 4.955 2.533 2.332 2.354 2.423 2.171 1.581 1.667 1.254 972 1.605 1.527 749 1.426 1.497 1.573 1.362 1.333 1.270 1.201 1.281 1.244 1.128 994 1.055 1.031 1.001 1.220 959 641 521 722 1.494 1.503 701 672 602 698 627 542 647 669 427 634 661 636 603 716 513 598 492 472 5( l mestu fiskveiði- 1 þjóðir heims Sæti ’97 ('96) Afli í þúsundum tonna RÍKI 1997 1996 1 (1) Kína 15.722 14.222 2 (2) Perú 7.870 9.515 3 (4) Japan 5.882 5.964 4 (3) Chile 5.812 6.693 5 (5) Bandaríkin 5.010 5.001 6 (6) Rússland 4.662 4.676 7 (7) Indónesía 3.649 3.730 8(8) Indland 3.602 3.492 9 (9) Tæland 2.912 3.138 10(10) Noregur 2.857 2.638 11 (12) ísland 2.206 2.060 12(11) S-Kórea 2.204 2.414 13(15) Danmörk 1.827 1.682 14(13) Filippseyjar 1.806 1.790 15(16) Mexíkó 1.489 1.423 16(17) Argentína 1.351 1.238 17(18) Malasía 1.173 1.131 18(19) Spánn 1.102 1.055 19(24) Víetnam 1.066 811 20(20) Tævan 1.038 967 21 (21) Kanada 945 901 22 (23) Bretland 887 868 23 (25) Myanmar 830 805 24(22) Bangladesh 830 874 25(28) Marokkó 784 638 26(26) Brasilía 750 799 27 (36) NýjaSjáland 596 421 28 (30) Pakistan 575 537 29(27) Ekvador 553 685 30(29) Frakkland 542 542 31 (34) Suður-Afríka 509 436 32 (35) Senegal 507 436 33(32) Venesúela 494 485 34(31) Tyrkland 454 522 35(39) Holland 452 363 36(33) Ghana 446 477 37 (37) Úkraína 373 417 38(49) Nígería 366 238 39(43) Pólland 362 342 40(38) Svíþjóð 357 371 41 (41) Jansanía 357 357 42 (42) íran 350 352 43 (40) Ítalía 350 359 44(47) Egyptaland 345 265 45 (45) Færeyjar 330 304 46 (44) írland 293 333 47 (46) Namibía 291 267 48 (50) Þýskaland 259 237 49(51) SriLanka 240 225 50 N-Kóera 236 Herferð gegn fískveiðum UMHVERFISSAMTÖKIN PETA í Bandaríkunum hafa hleypt af stokkunum herferð gegn fiskveið- um. Markmiðið er að sannfæra neytendur um að fiskveiðar séu í raun morð á fiskum. „Við viljum hvetja fólk til að láta flska í friði í hafinu því þar eiga þeir heima,“ sagði Dawn Carr, talsmaður her- ferðarinnar. „Fæstir hafa velt því fyrir sér að fískar finna líka til.“ Herferðin hófst í júní sl. með sjón- varpsauglýsingum sem sýndar voru víðs vegar um Bandaríkin þar sem meðal annarra kom fram Linda heitin McCartney en hún var félagi í PETA. í herferðinni er lögð áhersla á að upplýsa almenn- ing um að þegar fiskur er „myrtur" verði hann „hræddur, kvalinn og kafni smám saman um leið og hann er hífður upp úr vatninu." Heimsaflinn er 122 milljónir tonna og mikil aukning frá 1996 SAMKVÆMT töl- Kína er mesta fiskveiðiþjóð s°í heims Off Island í 11. sæti meinuðu þjóðanna ° (FAO) sló heimsafli á fiski árið 1997 öll fyrri met. Aflinn var hátt í 94 milljónir tonna og jókst um 150 þúsund tonn frá árinu áður. Ef eldisfiski er bætt við töluna nær hún 122 milljónum tonna, en það er aukning um eina milljón frá 1996. Samkvæmt skýrslu FAO fór stærstur hluti aflans til manneldis eða um 92,5 milljónir tonna. 29,5 milljónir tonna fóru í dýrafóður og til annarrar framleiðslu. Kína er mesta fiskveiðiþjóð heims ef teknar eru inn tölur um úthafsveiði og fiskeldi. Afli þeirra árið 1997 var tæplega 16 milljónir tonna, sem er helmingi meira en afli Perúmanna, sem eru næstafla- hæstir. Afli Perúmanna minnkaði um tæpar tvær milljónir milli ára vegna E1 Ni~no-straumsins sem hefur neikvæð áhrif á helstu nytja- stofna þeirra. Tölur fyrir síðasta ár benda til að veiðar þeirra hafi ekki enn náð að rétta úr kútnum. Chile var þriðja mesta fiskveiðiþjóð heims, sé miðað við tölur frá 1996 en fellur niður um eitt sæti milli ára. Astæðumar eru þær sömu og eru á bakvið minnkandi afla Per- úmanna. Japanir færa sig upp um eitt sæti, úr því fjórða í þriðja þrátt fyrir að afli þeirra hafi minnkað lít- ið eitt milli ára. Bandaríkjamenn og Rússar skipa fimmta og sjötta sæti yfir mestu fiskveiðiþjóðir heims. Afli þeirra hélst stöðugur milli ára og eiga Rússar gi’einilega langt í land að ná þeim aflatölum sem Sovétrík- in sálugu veiddu á sínum tíma. Helsta ástæðan fyrir auknum afla er metnaður Kínverja til að nútímavæða útveginn í landinu. En Kínverjar hafa ávallt verið mikil fiskveiðiþjóð og eru einnig mjög stórtækir í fiskeldi. Stjórnvöld í landinu beina augum sínum í sí- auknum mæli til fiskveiða og spá sérfræðingar því að innan fárra ára muni fiskveiðar Kínverja verða af áður óþekktri stærðargráðu. En þrátt fyrir þessar spár eru uppi ýmsar áhyggjuraddir sem benda á að framleiðni í kínverskum sjávar- útvegi, sérstaklega í eldinu, sé frekar lág og sú staðreynd kunni að standa þeim íyrir þrifum í ná- inni framtíð. Islendingar eru í ellefta sæti yfir mestu fiskveiðiþjóðirnar og færa sig upp um eitt sæti frá 1996. Afli íslendinga árið 1997 var 2.205.944 milljónir tonna og jókst um rúm 200 þúsund tonn milli ára. Ástæðan fyrir aukningunni var góð loðnu- vertíð það árið. í tölum yfir fisk- veiðar Islendinga vegur uppsjávar- fiskur þyngst. ÖLL MÁL LEYST FYRIR KLUKKAN TÍU CkHÍ upp i bátiwt Morgunblaðið/Golli • OPT er margt um manninn á morgnana í viktarskúrnum við höfnina í Grundarfirði. Skip- stjórar, trillukarlar og gamlir sjómenn líta inn í kaffí til Rósants Egilssonar hafnarvarð- ar og ræða málin. Rósant segir að margt beri á góma en öll málin séu leyst fyrir klukkan tíu. Þegar blaðamenn litu þar inn á dögunum var klukkan far- in að ganga ellefu og fararsnið á mönnum. Að lokum voru að- eins tveir eftir, Jón Elbergsson og Sigurður Lárusson. Báðir eru þeir fyrrverandi sjómenn þótt Jón hafí hætt sneinma á sjónum og lengst af verið fangavörður á Kvíabryggju. Sigurður var lengi í verkalýðs- málunum. Þeir segjast oft líta inn í viktarskúrinn til að fá sér kaffisopa og fylgjast með hjá þeim sem enn stunda sjóinn. Þeir sögðu að kvótinn væri enn ekki kominn á dagskrá í um- ræðunum á viktinni þótt búið væri að birta kvótann í Verinu. Það væri kannski af þvf að trillukarlarnir hefðu lítið sést að undanförnu. Umhverfið í viktarskúrnum er viðeigandi. Rósant hefur sett upp myndir af sjómönnum og úrklippur sem tengjast útgerð og sjómennsku í Grundarfirði. Rússar á Rockall SJÓMENN frá Murmansk hafa í auknum mæli leitað að fískimiðum út fyrir Barentshaf og æ fleiri hafa far- ið á Rockallsvæðið vestan við Skotland. Fregnir hafa borist af góðri ýsuveiði þar í sumar og hafa rússneskir togarar fengið um 15 til 20 tonn að meðaltali á dag, sam- kvæmt írétt í Worldfísh Report. Veiði hefur dregist saman í Barentshafi og því hafa Rússar leitað annað. Að minnsta kosti tvö einkafyr- irtæki sendu togara sína á Rockall- svæðið í júlí og ágúst og létu vel af nema hvað ýsan þótti helst til smá. s Islenskur sjávarútvegur www.mar.is Selvörehf., sími 511 2121. mar@mar.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.