Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 2
ÚTGEFANDI 24-7 RITSTJÓRI Stefán Unnar Sigurjónsson [DerKonigl UMBROT Siggi Sveinn [slaveboyl PRÓFÖRK Kristján Már Ólafsson [Kristur] LJÓSMYNDARI Kjartan Már Magnússon TEXTAHÖFUNDAR Christof Wehmeier Haraldur V. Sveinbjðrnsson [Rauða Ljónið] Finnur Beck Stefán Unnar Sigurjónsson [DerKonig] Úlfhildur Dagsdóttir Róbert Arnar Úlfson FYRIRSÆTUR Eskimo Models STÍLISTI Anna M. Helgadóttir FÖRÐUN Jóna Sólbjört Ágústdóttir UPPLAG 80.000 eintök AUGLÝSINGAÖFLUN Snorri Jónsson [Baróninn] Andrea Róberts Kári Sturluson Smirnoff Vodka Martini drykkir eru án efa eitt af sterkari einkennum James Bond, ásamt Walther PPK byssunni hans og fallegum konum. Hver kannast ekki við hin ódauðlegu orð "... shaken, not stirred”. Saga sambands 007 og Smirnoff er löng og hófst hún með fyrstu James Bond myndinni, Dr. No, sem kom út árið 1962. Síðan þá hefur Bond valið Smirnoff sem sinn drykk í þeim átján myndum sem komið hafa út. Að sjálfsögðu verður Smirnoff svo í farteskinu í nýju myndinni, The World Is Not Enough. En saga Smirnoff er miklu lengri en sambandið við Bond segir til um og spannar hún nærri tvær aldir. Snemma á 19. öldinni stofnaði maður að nafni Piotr Arsenyewitch Smirnov bruggverksmiðju í Moskvu og nefndi hann vínandann eftir sér. Hann lagði allan sinn metnað í að þróa vodkað sem hann framleiddi og var meðal annars sá fyrsti í heiminum til þess að nota kol til síunar á vökvanum ásamt svokallaðri stöðugri eimun. Árið 1886 útnefndi Alexander III, rússlandskeisari, Smirnov vodka sem þann drykk er konunglega hirðin skyldi njóta. Á 20. öldinni tóku svo Bolsjévikarnir völdin og hrifsuðu til sín verksmiðjur Smirnov með þeim afleiðingum að Vladimir Smirnov, þá yfirmaður verksmiðjanna, þurfti að flýja land. Hann fór víða áður en hann endaði í París þar sem hann ákvað að hefja framleiðslu á ný. Það fyrsta sem hann gerði var að breyta nafni vörunnar í Smirnoff til þess að laga það að nýjum markaði. Árið 1930 var svo stofnað dreifingafyrirtæki í Bandaríkjunum en það var ekki fyrr en eftir seinni heimsstyrjöldina að vinsældir Smirnoff fóru að vaxa verulega. Það var með drykk eins og "Moscow Mule” sem inniheldur Smirnoff, bjór og lime. Síöar komu drykkir á borð við “Screwdriver” sem er sagður hafa fengið nafn sitt af því að verkfræðingar sem drukku drykkinn hrærðu í honum með skrúfjárni, “Bloody Mary”, “Vodkatini”, “Bullshot” og margir fleiri. Fyrirtækiö má líka þakka velsæld sína þeirri stefnu sem tekin hefur verið að þróa sífellt vöruna eftir fremsta megni til þess að vera í takt við tímann. Má í því sambandi nefna fjórar nýjar tegundir sem komnar eru á markaðinn en þær eru: Smirnoff Black n' Blue sem er með sól- og bláberjabragði, Smirnoff Creamed sem hefur sterkan vanillukeim, Smirnoff Bloody, sem er kryddað eins og Bloody Mary og Smirnoff Twisted sem inniheldur milt sítrus bragð. Einnig er komin fram á sjónarsviðiö ný útgáfa af Smirnoff flöskunni og hefur hið klassíska útlit fengið töluverða andlitslyftingu, nýtt útlit fyrir nýja tíma. Saga Smirnoff er löng og fer vegur þess sífellt vaxandi og til marks um það má nefna að í dag selur Smirnoff meira en 15.500.000 kassa af vodka í yfir 140 löndum á degi hverjum eða meira en 500.000 flöskur. Að lokum er vel þess virði að benda lesendum á að smella sér inn á heimasfðu Smirnoff. Hún er einstaklega vel gerð og er hægt að nálgast allskyns áhugaverðan fróðleik auk annarra skemmtilegra hluta þar. Inni á síðunni er hægt að nálgast skrínseiver sem telur niöur dagana til árþúsundamóta, allar upplýsingar um drykkina og uppskriftir að sniðugum kokteilum. Svo er þarna að sjálfsögðu allt það sem ykkur fýsir að vita um samband James Bond við guðaveigarnar. Heimasíðan er á slóðinni: www.smirnoff.com.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.