Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 14
"M/ÆÆr/Æ//s^"f£ÆÆÆÆÆÆÆ//Æ 007 Ætfa 0//ÖTJTI7Æ/Æ/ÆÆÆÆÆÆtf&ÆÆÆ&r Æ//&Æ//Æ& /jFÆrÆÆÆÆ Herramennskan er þó ekki einhlít og hefur Bondinn löngum legið undir ásökunum um karlrembu og kvenfyrirlitningu,[...] Góður biti í hákarlskjaft ( myndinní Tomorrow Never Dies (1997) hittir hinn fðilfagri Brosnan-Bondari fyrir bor nokkurn, allstóran og vígalegan sem borar sig fyrst gegnum skip f þágu vonda mannsins en verður honum sfðan sjálfum að bana. ( glæsilegri en vannýttri splattersenu þrýstir Bond fjölmiðlakónginum stórmennskubrjálaða inní eigin bor, þar sem hann tætist samviskusamlega í sundur. Borinn sá, með sinn tennta kjaft, minnir ekki Iftið á hákarlskjafta þá sem Bondar fyrri mynda eiga ( strfði við, en hákarlar, krókódflar og önnur ævintýraleg kvikindi eru vinsælir andstæðingar Bondanna, og furðu oft virðast þessi ágætu dýr eiga samleið með Bond-píunum. Hákarlar birtast í fjórum Bondum, Thunderball (1965), The Spy Who Loved Me 1977), For Your Eyes Only (1981) og Licence to Kill (1989). I þeirri sfðastnefndu, sem var sfðari mynd Timothy Daltons, er brúðguminn og bestí-vinur-Bonds, Felix Leiter hrifinn úr faðmi konu sinnar á brúðkaupsnóttina, bara til að lenda f gini hákarls; honum er sfðan skilað á þurrt aftur með áfestri orðsendingu: "He disagreed with something that ate him". Matur og kynlff hafa alltaf verið tveir nátengdir hlutir (eins og allir vita sem hafa haft góð kynni af kokkum) og hérna verður mjög skemmtileg samfella millí áts og kynlffs þarsem brúðguminn er beinllnis étinn á brúðkaupsnóttina. Bent hefur verið á að auglýsingaplakatið fyrir hina ágætu hákarlamynd Jaws (1975) stillti upp nokkuð áhugaverðri samllkingu milli konu og hákarls. Plakatið sýnir mynd af nöktum kvenlfkama á sundi og beint fyrir neðan konuna gln opinn og glæsilega tenntur skoltur óvættarinnar. Slfkar uppstillingar eru þekktar úr málverkum 19. aldar en þar var einmitt vinsælt að stilla konum upp við hlið óargadýra sem stóðu með opinn gin rétt við miöbik konunnar. Augnaráðið sem beinist að þessari miðju lendir þvf óhjákvæmilega beint I gini Ijónsins, ef svo má segja, eða, eins f Jaws, í gini hákarlsins. Þessir komplexar með hákarla og konur birta á mjög skemmtilegan hátt þá ógn sem sálgreinendur hafa löngum talið stafa af kynfærum kvenna. Félagi Freud var afskaplega upptekinn af þessu og reit heila grein um það að kynfæri kvenna minntu á gorgónuna Medúsu. Hún var ófreskja mikil með snáka í stað hárs og þótti svo skelfing Ijót að hver sem hana augum leit - og það voru náttúrulega allt karlmenn f leit að þeirri hetjudáð að drepa Dúsu greyiö - fraus og varð umsvifalaust að steini. Þessa steingerfingu tengdi Freud kvenmannsklofi: að hver sem þá óvætt liti yrði frá sér af skelfingu og að steini. Sem betur fer var kallinn ekki það húmorslaus að hann áttaði sig ekki á tvíræðni stirðnuninnar: hún stafar semsé af ótta og engu öðru. Þar hafiði það. Það virkar kannski dálftið furðulegt að ég skuli eyða svona miklu púðri f að fjalla um óttan við kvenfólk f greinarkorni um kvennabósann Bond. Málið er að samskipti Bonds einkennast einmitt af þessari tvfræðu stirðnun, þvf kvennamál hans eru alltaf pokkuð áhættusðm og ekki nema stðku kona sem á endanum reynist honum hættulaus. Skemmst er að minnast hinnar langleggjuðu Onatop sem kæfði menn bókstaflega I klofi sfnu f myndinni Goldeneye (1995), en hlaut sfðan á endanum samskonar dauðdaga, kramin I yfsilonlöguðu tré (Y). Einnig má minna á næturheimsókn hins pilsbúna Bonds, Georges Lazenby f On Her Majestys Secret Service (1969), sem einmitt upplifði dulitla stirðnun undir borðum þegar ein glæsimeyjan málaði [...] það þarf ekki pung til að geta tekið þátt í hasar,[...] herbergisnúmerið sitt á innanlæri hans með varalit. Þegar hann skundaði síðan glaður til fundar við hana varð fyrir honum allt önnur og mun ógnvænlegri kona, hin miðaldra fröken Bunt, og hann rotaður með það sama. Allt frá fyrstu myndinni Dr. No (1962), er konan spegluð í einhverju hættulegu dýri, sem iðulega er bjtvargur. Sean Connery fær þessa líka fínu kónguló uppí til sín eina nóttina þegar hann er kvenmannslaus. Hann kann ekki gott að meta og eftir aö loðnir fætur lóu hafa strokið nakinn líkama hans um stund stekkur hann á fætur, varpar dýrinu framúr og myrðir vesalingin. Aðalbondpía þeirrar myndar Ursula Andress reynist síðar vera kóngulóarkona, og hún segir honum áhugaverða sögu af sjálfri sér, en henni hafði verið nauðgað. í hefndarskyni smeygði hún Svartri ekkju (sem er kóngulóartegund) undir flugnamöskva mannsins: "A female, and they are the worst. It took him a whole week to die” segir hún og horfir stolt á Bond sem bregst hinn versti við. “Did I do wrong”, spyr hún sakleysislega, "well it wouldn’t do to make a habit of it” svarar hann. Þetta grófa skeytingarleysi um konuna, samfara ákveðinni meðaumkun með nauðgaranum stangast óþægilega á við ímynd Bonds sem herramanns, en meira um það síðar. í næstu mynd, From Russia With Love (1963), vantar reyndar dýrið, en enn felst hættan í gini konunnar sem, eins og allir vita, speglar kynfæri hennar (það er þetta með varir og varir). Rússneskur njósnari er skotinn þegar hann reynir að flýja út um leynidyr á húsi sínu. Húsið er skreytt risastórri auglýsingu sem sýnir konuandlit með hálfopnar varir og viti menn, leynidyrnar liggja einmitt út milli tanna konunnar og þar næst rússinn. “She should have kept her mouth shut" segir Bond og hnykkir þannig á hættum þeim sem konumunni fylgja. Ein fallegasta hákarla-háska-senan er í The Spy Who Loved Me, en sú mynd er jafnframt fyrsta Bondmyndin sem keyrir húmorinn og sjálfsmeðvitundina alveg í botn. Myndin er full af vísunum hingað og þangað, mest áberandi er vísunin í Kaftein Nemo og svo að sjálfsögðu Jaws. Jaws slær nefnilega saman við Bond í formi málmtennts risavaxins illmennis sem kallaður er Jaws, og minnir ekki svo lítið á Frankenstein skrlmsliö góðkunna. En félagi Jaws er ekki eini hákarlinn þarna, því illmennið Stromberg (sem er einskonar kafteinn Nemo) heldur nokkra gæluhákarla í fiskabúri sínu, sem er geymt bakvið risavaxnar endurgerðir af nokkrum helstu málverkum evrópskar listasögu. Þar á meðal er hin fræga mynd Botticellis af Venus, þar sem ástargyðjan sjálf, fædd af sjávarlöðrinu, er að stíga af skel sinni yfir á þurrt land. Stromberg hefur uppgötvað að ritari hans hefur svikið hann, og hefnir sín með því að láta hana (ritarar á þeim tíma voru að sjálfsögöu einungis kvenkyns) falla ofan í búrið til hákarlsins. í alveg ólýsanlega stórkostlegri senu rennur Venus Botticellis frá glugga, og bakviö hann sést vel tenntur hákarlinn gæða sér á konunni, við elegant undirleik Bach. Vanur áhorfandi veit að sjálfsögðu að Bond kemur til með að kynnast þessari hákarlagildru en hann bjargar sér með því að glenna út klofið (!) og sleppa þannig við að falla niður um hákarlahlerann. Á endanum er það sjálfur Jaws sem endar hjá hákarlinum og bítur hann ógleymanlega á háls. Mr. Kiss Kiss Bang Bang “Nobody does it better” söng Carly Simon á sfnum tíma og viðskipti Bondanna við hitt kynið hafa verið þungamiðja myndanna, allt frá þvf að Sean Connery komst f kynni við kóngulóarkonuna Úrsúlu Andress. Bond kemur sér vel við allar konur, hvort sem þær eru skaðræðisgripir eða skaðlausar; helstu undantekningarnar á þessu eru þó miðaldra konur, sem oft reynast Bond fjötur um fót, en þær teljast heldur varla til kvenna, eða hvað? Kjarni Bonds eru í raun samskipti hans við konur eins og berlega kom fram f Tomorrow Never Dies, en þar er hann einfaldlega gerður út af örkinni til að fleka gamla kærustu og 'pumpa' hana um upplýsingar, Sú mynd. sem gerir á hvað mest áberandi hátt út á kyntðfra Bondsins er þó From Russia With Love. Þar gengur plottið út á að rússneskur njósnari I uppljóstranahugleiðingum gefur sig út fyrir að verða ástfangin af Bond, og neitar að eiga samskipti við neinn annan. Hún hafði séð mynd af honum í skjalasafni KGB og oröið ástfangin, að eigin sögn. Auðvitað átti þetta bara allt að vera tvöfalt plott hinna númeruðu illmenna i samtökunum Spectre, og auðvitað varð stúlkan á endanum alvöru ástfangin. En það áhugaverða er að f þessari mynd er það Bond sjálfur sem er fyrst settur upp sem kynferðislegt viðfang, en ekki einungis kvennabósi. Þetta er slðan undirstrikað f hliðarplotti sem fjallar um leyndar kvikmyndanir á samförum Bond og hinnar rússnesku Nataliu. Tilgangur þessa heimavfdeós er vfst sá að ná tangarhaldi á Bond, en. sllkt er náttúrulega ekki til I dæminu og þegar hann hefur sigrað illmennin og tamið pfuna þá fær hann filmuna f hendur. I lokaatriðinu sigla þau skðtuhjúin á gondóla um feneyskt sfki. "We are being filmed" segir Natalia glöð og bendir á túrista með myndavél, og þetta minnir Bond á aðra upptöku sem hann hendir með það sama út I slkið; kannski ekki nðgu öruggur með að frammistaðan sé nógu góð til að þola þá netdreifingu sem Pam og Tommy fengu. Sjarmi Bonds felst ekki sfst I þvl hvað hann er mikill heimsmaður og herramaður (strákar takiö eftir), auk þess sem frásagnir af bólfærni hans fara greinilega hátt, eins og fjar-ást Natalíu bar með sér. Herramennskan er þó ekki einhlft og hefur Bondinn löngum legið undir ásökunum um karlrembu og kvenfyrirlitningu, fyrir utan það að vera maður sem aldrei staldrar lengi viö; “Mr. Kiss Kiss Bang Bang". Dionne Warwick tekur saman ( þvf lagi alla kosti/lesti kvennabósans Bonds; “He’s suave and he’s smooth and he can soothe you like vanilla, the gentleman's a killer” ('killer' vfsar hér náttúrulega bæði til drápsleyfis Bondsins og orðspors hans sem 'ladykiller'), enda er hann “from the school that loves and leaves them". Enn koma hákarlar við sögu, en núna er það Bond sjálfur sem tekur á sig hákarlslfki: “and like a shark he looks for trouble, thats why the zero's double". Harðasta dæmið um kvenfyrirlitningu Bonds er fyrrnefnt kæruleysi um kóngulóarkonuna I Dr. No, og framan af er óhætt að segja að samskipti Bonds við konur séu á tfmum varhugaverð með meiru. Hann hikar ekki við að pína konur til sagna með þvf að snúa upp á handleggina á þeim, og þess á milli slær: hann hverja pfuna á fætur annarri utan undir. Og þá j eru ótalin þau fjölmörgu skipti sem hann notar konurj sem skildi gegn ofbeldi sem að honum er beint, þannig að þær fá ýmist á sig hðgg eða skot. I myndinni The Man With the Golden Gun (1974) hittir hann fyrir eina aðstoðarkonuna sem greinilega er gömul kærasta. Hún verður að láta sig hafa það að dúsa inni f fataskáp meðan kærasta mannsins með gylltu byssuna verður aðnjótandi blíðu Bonds. En batnandi mönnum er best að lifa. Frá og með The Spy Who Loved Me hættir Bond að beita konur líkamlegu ofbeldi og til að hnykkja enn betur á þessari bragabót taka vondu kallarnir strax til við utanundirsláttinn. Margar hafa bent á að kvenhlutverk í Bondmyndunum hafi sjaldan verið sláandi umfangsmikil. Konurnar eru iðulega notaðar til skrauts og ef einhver töggur reynist í konu þá er hún iöulega illkvendi, eöa þá að töggurinn er úr henni um leið og hún fellur fyrir Bond. Slík kvenhlutverk eru reyndar enginn einkaréttur Bonds heldur einmitt óþarflega almenn á þeim tíma sem fyrstu Bondmyndirnar eru gerðar. Hins vegar var Bondarinn nokkuð lengi að taka við sér hvað varðaði ný viðhorf til kvenhlutverka, en á undanförnum tveimur áratugum hafa kvenhlutverk í kvikmyndum verið að taka hægfara breytingum. Hrollvekjur áttunda áratugarins sýndu og sönnuðu að áhorfendur voru meira en tilbúnir til að taka við kvenhetjum sem gátu séð um sig sjálfar. Það var þó ekki fyrr en í Tomorrow Never Dies sem Bond treysti sér til að taka bardagaglaöa dömu upp á arminn. Sú var náttúrulega fegurðardrottningin, ballettdansarinn og bardagameistarinn Michelle Yeoh sem skyndilega er ekki bara aukahlutur á armi Bonds, heldur kann aö berja frá sér sjálf. í fyrstu Pierce Brosnan myndinni, Goldeneye, var þegar farið að bregða fyrir ákveðnum breytingum á kvenhyllinni, en þar var nýji ‘M-inn’ orðinn ‘Emm-a’ j (Judi Dench). í þokkabót var hún pirruö á Bond og virtíst hafa smitað hina trúföstu Moneypenny (Samantha Bond) og gert hana afhuga öllu vinnustaðadaðri. Svo langt gekk grínið að Bond var bent pent á að kynferðisleg áreitni hefði nú verið opinberlega tekin upp í orðabók Bond-skólans. En sem betur fer áttuðu Emman og Moneypennían sig í tíma fyrir Tomorrow Never Dies, og eru þar orðnar venjuleg Bond-fön eins og við hin(ar). í staöinn er unnið skemmtilega með breytinguna úr ‘M’ í ‘Emmu’i í umræðum um eistu og pumpanir; en þar sýnir Dench að það þarf ekki pung til að geta tekið þátt í hasar, auk þess sem þær tvær gera með sér samsæri i um að senda Bond uppí til gamallar kærustu í uppljóstrunarleit. Þannig er Bond beinlínis seldur fyrir upplýsingar; og gott ef ekki læðist að konu sá grunur að þessi söluvænleiki Bondarans hafi verið stef í myndunum allan tímann? Úlfhildur Dagsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.