Morgunblaðið - 01.02.2000, Síða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Olafur og
Guðjón
dæmaí
Portúgal
ÓLAFUR Öm Haraldsson og Guð-
jón L. Sigurðsson, handknattleiks-
dómarar, hafa verið settir dómar-
ar á Ieik ABC Braga frá Poi-túgal
ogjúgóslavneska Iiðsins Lovcen
Osiguranje Cetinje í fjórðungs-
úrslitum EHF-keppninnar í næsta
mánuði. Er þetta sjötti leikurinn
sem þeir félagar dæma utan land-
steinana á leiktíðinni auk þess sem
þeir dæmdu sex leiki á HM 21 árs
liða í Qatar sem fram fór í ágúst
og september á sl. ári. Félagar
þeirra, Stefán Amaldsson og
Gunnar Viðarsson, hafa einnig
verið á faraldsfæti á leikt íðinni og
alls dæmt átta leiki í Evrópu.
Nýtt Evrópupar
Anton Gylfí Pálsson og Hlynur
Leifsson fengu á dögunum réttindi
sem EHF-dómarar, þ.e. em svo-
kallað Evrópupar. Þeir tóku próf í
Slóveníu á dögunum og stóðu sig
með prýði en þess má geta að tvö
pör féllu á prófínu. Þau vora
reyndar ekki íslensk. EHF-dómar-
ar hafa réttindi til þess að dæma í
Evrópukeppni félagsliða.
„Flensu-
leikar" í
Sydney?
NOKKURS kvíða er farið
að gæta meðal lækna í
Sydney í Ástralíu um að
inflúensa sú sem herjað
hefur á Evrópubúa upp á
síðkastið berist til lands-
ins og plagi keppendur,
starfsmenn, áhorfendur
og aðra þá sem verða á
Olympíuleikunum sem
fram fara í Sydney í sept-
ember. Inflúensan sem um
er að ræða á upptök sín í
Sydney en fór að gera
vart við sig í Evrópu í
haust. Nú er reiknað með
að hún snúi til baka á
heimavígstöðvar þegar
liða tekur á árið, um það
leyti sem vorið verður í
hámarki í Sydney. Það er
einmitt á þeim tíma sem
Ólympíuleikarnir eiga að
fara fram.
Silfur og
brons á
NM
TVEIR íslendingar unnu til
verðlauna í flokkum ungl-
inga á Norðurlandamótinu í
taekwondo sem fram fór í
Ósló á dögunum. Einar Carl
Axelsson úr Fjölni hlaut
silfurverðlaun í -63 kg
flokki og tapaði naumlega
fyrir Norðmanni, 8:7, í úr-
slitaviðureign. Trausti Már
Gunnarsson úr Fjölni fékk
bronsverðlaun í -67 kg
flokki og lagði Svía í úrslit-
um um þau. Islendingar
áttu einnig tvo fulltrúa í
flokki fullorðinna, þá Norm-
andy Del Rosario og Örn
Sigurbergsson sem báðir
koma úr Fjölni, en þeir
féllu út í fyrsta bardaga.
Vala Flosadóttir stökk yfir 4,10 m á móti í Malmö um helgina.
Morgunblaðið/Hasse Sjögren
„Skemmtilegur
tími framundan“
JÓN Arnar Magnússon og Guðrún Arnardóttir tryggðu sér um
helgina þátttökurétt á Evrópumeistaramótinu i frjálsum íþróttum
innanhúss sem fram fer í Gent í Belgíu 25.-27. febrúar. Þar með
er Ijóst að ísland á fjóra keppendur á mótinu því Vala Flosadóttir
og Einar Karl Hjartarson höfðu þegar náð lágmarkinu - Einar með
því að setja íslandsmet í hástökki innanhúss á föstudagskvöldið
þegar hann fór yfir 2,24 metra og Vala með því að stökkva 4,30
metra fyrir skömmu.
Jón Amar og Guðrún
náðu EM-lágmörkunum
Víðir
Sigurðsson
skrifar
Jón Arnar varð í öðru sæti í á Erki
Nool-sjöþrautarmótinu sem
fram fór í Tallinn í Eistlandi um
helgina. Jón Arnar
fékk 6.149 stig, sem
er þriðji besti árang-
ur hans í þrautinni
frá upphafi og hon-
um tókst að sigra mótshaldarann,
Erki Nool, í fyrsta skipti. Roman
Sebrle frá Tékklandi sigraði með
6.358 stig, sem er tékkneskt met, og
Nool varð þriðji með 6.137 stig. A
eftir komu Michaealenko frá Úkra-
ínu með 5.984 stig, Kaseorg frá
Eistlandi með 5.830 og Korkizoglou
frá Grikklandi með 5.817 stig.
fslandsmet
í langstökki
Jón Arnar setti Islandsmet í lang-
stökki innanhúss í þrautinni þegar
hann stökk 7,76 metra. Þess má geta
að langstökksmet Jóns utanhúss er 8
metrar sléttir.
Árangur hans var sem hér segir:
60 m hlaup: 6,90 sekúndur.
Langstökk: 7,76 metrar.
Kúluvarp: 16,10 metrar.
Hástökk: 2,01 metrar.
60 m grind: 8,13 sekúndur.
Stangarstökk: 4,75 metrar.
1.000 m hlaup: 2:48,78 mín.
Samtals 6.149 stig en íslands- og
Norðurlandamet Jóns er 6.293 stig,
sem hann náði á HM í Maebashi á
síðasta ári. Greinilegt er á árangrin-
um í Tallinn að Jón Arnar er á réttri
braut á ný eftir að hafa misst af
bróðurparti síðasta keppnistímabils
vegna meiðsla í hné.
Léttir að sjá að allt sé í lagi
„Það er fyrst og fremst mikill létt-
ir að hafa farið í gegnum þessa þraut
og séð að allt er í lagi og Jón í góðu
standi. Hnéð hélt fullkomlega og
þessi árangur hans lofar góðu,“
sagði Gísli Sigurðsson, þjálfari Jóns
Arnars, í samtali við Morgunblaðið í
gær. Þeir félagar voru þá á leið til
Malmö en þar dvelja þeir við æfing-
ar fram að meistaramóti íslands um
aðra helgi.
„Fyrri dagurinn var frábær, enda
náði Jón þá besta árangri sínum frá
upphafí, bætti sig um 14 stig. Það
var ánægjulegt að ná langstökks-
metinu, gott fyrir sjálfstraustið og
stemninguna. Seinni dagurinn var
ekki eins góður og stangarstökkið
var slakt, enda fór Jón þar aðeins
byrjunarhæðina. Hann hafði heldur
ekki stokkið áður í vetur með fullri
atrennu,“ sagði Gísli.
Jón náði að sigra Erki Nool í
keppni í fyrsta skipti. Það er vænt-
anlega líka góður áfangi?
„Já, það var skemmtilegt að ná
loksins að sigra hann en það hafði
hvorki tekist áður í sjöþraut né tug-
þraut. Það munaði reyndar ekki
miklu, aðeins 12 stigum, en Jón gerði
það sem þurfti í 1.000 metra hlaup-
inu, hélt sig nógu nálægt Nool allan
tímann til að eiga ekki á hættu að
missa hann fram fyrir sig á stigum."
Hvernig verður undirbúningnum
fyrir EM háttað?
„Við munum dvelja í Malmö við
æfingar til 11. febrúar og einbeita
okkur að hraða og tækni. Það er
skemmtilegur tími framundan fyrst
öll pressa varðandi lágmarkið er úr
sögunni. Jón kemur heim á meist-
aramótið um aðra helgi og tekur þar
á af fullum krafti. Ég á ekki von á að
Þórey ekki með í vetur
ÞAÐ liggur nú endanlega fyrir hverjir fulltrúar íslands verða
á Evrópumeistaramútinu í Gent en ekki er líklegt að aðrir nái
lágmörkum. Þórey Edda Elísdóttir, stangarstökkvari, hefði
án efa komist í þennan hóp en hún hefúr ekkert getað æft í
vetur vegna brjóskloss í baki og sleppir innanhússtímabilinu
alveg. Að sögn Vésteins Hafsteinssonar telja læknar að hún sé
komin yfír þessi meiðsli og verði tilbúin fyrir utanhússtimabil-
ið í vor.
um önnur mót verði að ræða fram að
Evrópumeistaramótinu,“ sagði Gísli
Sigurðsson.
Guðrún náði lágmörkum
þrátt fyrir veikindi
Guðrún Arnardóttir náði lág-
mörkunum í 400 metra hlaupi og 60
metra grindahlaupi á móti hjá East
Tennessee-háskólanum í Bandaríkj-
unum. Hún veiktist um helgina en
keppti samt og tókst að ná tilskildum
árangri. Hún varð þriðja í 400 metr-
unum á 54,34 sekúndum en íslands-
met hennar er 53,35 sekúndur. Sig-
urvegarinn, Miki Barber, hljóp á
53,68 sekúndum. Guðrún varð síðan
fímmta í 60 metra grindahlaupinu á
8,47 sekúndum en met hennar er
8,34. Sharon Jewell sigraði á 8,12
sekúndum.
Guðrún hyggst undirbúa sig fyrir
EM með þátttöku í mótum í Evrópu.
Hún er síðan væntanleg til Malmö
um miðjan febrúar verður þar í æf-
ingabúðum með Völu Flosadóttur
fram að Evrópumeistaramótinu.
Vala stökk 4,10 metra
Vala Flosadóttir keppti á móti í
Malmö um helgina en það var fjórða
mót hennar á tímabilinu. Hún sigr-
aði, stökk 4,10 metra, en Vala fór yfir
4,30 metra á dögunum og náði þá
bæði Ólympíu- og EM-lágmarki.
Vala prófaði nýja og stífa stöng á
mótinu og fann sig vel, að sögn Vé-
steins Hafsteinssonar, verkefnis-
stjóra Sydney-hóps FRI.
FRJALSIÞROTTIR