Morgunblaðið - 01.02.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.02.2000, Blaðsíða 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ TENNIS KNATTSPYRNA Andre Agassi og Davenport hlutskörpust í Melbourne Ukraínumaðurinn Andryi Shevchenko gerði þrennu á að- eins sjö mínútum fyrir AC Milan í 3:0-útisigri liðsins á Perugia, á sama velli og félagið tryggði sér ítalska meistaratitilinn í fyrra í lokaumferð deildarkeppninnar. Þetta var þriðji sigur Milan á úti- velli. Aður en Shevchenko hóf hina tilkomumiklu sýningu, sem tuttugu þúsund áhorfendur á heimavelli Per- ugia göptu yfir, hafði slæm nýting hans úr upplögðum marktækifæram gefið viðstöddum vísbendingu um að stórliðið yrði af dýnnætum stigum í titilvöm sinni. Cagliari, sem ákaft berst gegn falli í næstefstu deild ít- ölsku knattspyrnunnar, fylgdi góð- um sigri sínum á Roma í bikarkeppn- inni í liðinni viku með dýrmætu jafntefli við Juventus, 1:1, á heima- velli síðarnefnda liðsins, Delle Alpi- leikvanginum. Filippo Inzaghi kom heimamönnum yfir á upphafsmínút- unni, en Giovanni Sulcis jafnaði tólf mínútum síðar. Hann er aðeins níundi leikmaðurinn á leiktíðinni sem skorar hjá Edwin Van Der Sar, hollenskum markverði Juventus. Ju- ventus er með fjörutíu stig eftir nítján leiki. Lazio frá Róm greip tækifærið og minnkaði forskot Juventus í deildai’- keppninni í eitt stig með sigri á Bari á Olympíuleikvanginum í Rómaborg. Síðastliðinn miðvikudag sló Lazio Juventus út úr bikarkeppninni og greiddi stórliðinu frá Tórínó annað þungt högg með sannfærandi leik gegn Bari, en þar fóra leikar 3:1. Sinisa Mihajlovic skoraði úr víta- spyrnu, sem dæmd var rúmri mínútu eftir að flautað var til leiks, og Chile- búinn Marcelo Salas bætti öðra marki við áður en Gionatha Spinesi minnkaði muninn fyrir gestina á 42. mínútu. Tékkinn Pavel Nedved gerði síðasta mark leiksins þremur mínút- um fyrir leikhlé. Argentínumaðurinn Gabriel Omar Batistuta gei'ði eina mark leiksins í sigri Fiorentina á Reggina í Flórens. Heimamenn áttu þó lengstum undir högg að sækja í leiknum, sem kemur ekki á óvart miðað við árangur liðs- ins að undanförnu, en leikmenn Reggina megnuðu ekki að verjast einstaklingsframtaki Batistuta. Enn fagnaði Agassi á sfórmóti BANDARÍKJAMAÐURINN Andre Agassi sigraði á Opna ástralska mótinu í tennis eftir að hafa lagt Jevgení Kafelníkov að velli í úr- slitaleik í Melbourne um helgina. Sá síðarnefndi hafði betur í fyrsta settinu, en þá tók Agassi völdin og sigraði í næstu þremur. Lindsay Davenport, landi Agassis, varð hlutskörpust í kvennaflokki. Hún bar sigurorð af hinni svissnesku Martinu Hingis i tveimur settum í úrslitaleiknum. Barcelona í nyt SPÁNARMEISTARAR Barcelona urðu af tækifæri sinu til að taka forystu í deildarkeppninni í heimalandi sínu, í það minnsta tíma- bundið, er liðið gerði jafntefli við nágranna sína, Espanyol, 1:1, á Ólympíuleikvanginum í Barcelona-borg, heimavelli Espanyol, á laugardag. Agassi, sem er 29 ára, er óumdeil- anlega bestur allra tennis- manna heims um þessar mundir. Síð- an í júní í fyrra hefur hann fagnað sigri á Opna franska mótinu og því bandaríska, til viðbótar við nyfeng- inn sigur í Ástralíu. Þá varð hann í öðru sæti á Wimbledon síðastliðið sumar. Hafi einhverjir efast um stöðu þessa magnaða íþróttamanns er hann var við það að knésetja Kafelni- kov í úrslitaviðureigninni, sannfærð- ust þeir er Agassi náði þremur ásum í síðustu lotunni. Agassi er fyrsti tennismaðurinn, sem kemst í úrslitaleik á öllum fjór- um stórmótum sama árs síðan Rod Laver gerði það árið 1969. Hann hef- ur nú unnið tæplega einn og hálfan milljarð króna í verðlaun á ferli sín- um en hann fékk tæpar 35 milljónir króna fyrir sigurinn í Melbourne. Leið Agassis til sigurs í Ástralíu var þyrnum stráð, firnafastar upp- gjafir heimamannsins Mark Phil- ippoussis og Pete Sampras vora á meðal viðfangsefna hans í mótinu ásamt margrómaðri fjölhæfni Ka- felnikovs. „Eg þurfti að hafa mikið fyrir þessum sigri, en hann er þeim mun sætari fyrir vikið,“ sagði Agassi. Hingis þraut örendi „Ég þoli ekki að keppa við þig,“ sagði Hingis í gamansömum tóni eft- ir viðureignina, en með sigri sínum batt Davenport enda á þriggja ára sigurgöngu andstæðings síns á mót- inu. „Hún segir þetta ekki við hvern sem er,“ sagði Davenport og kvaðst taka orðum Hingis sem einu mesta lofi sem hægt væri að bera hana. „Hún er svo gríðarlega sterk og sjálfsöragg. Þetta er mesta hrós sem hægt er að fá.“ Davenport sigraði öragglega í fyrsta settinu, 6:1, og þurfti aðeins eitt stig til viðbótar til að leika það eftir í því næsta. Þá sýndi Hingis fá- dæma keppnishörku og linnti ekki látum fyrr en þær höfðu báðar unnið fimm lotur í öðra setti. Þá þraut hina nítján ára gömlu Hingis örendi og Davenport gekk á lagið. „Hún sýndi hvers hún er megnug, mikla þrautseigju,“ sagði Davenport um Hingis. „Ég fylgdist með klukk- unni. Ég vildi aðeins að leikurinn stæði yfu’ í meira en klukkustund," sagði sú svissneska. Henni tókst „ætlunarverk“ sitt, leikurinn stóð yf- ir í eina klukkustund og fimm mínút- ur. Davenport, sem er 23 ára, þarf að- eins að sigra á Opna franska mótinu til að fullkomna „fernuna" svo- nefndu, þ.e. sigur á öllum fjóram stærstu tennismótum heims, sem er sjaldséð. „Mér gekk allt í haginn, mér gekk mjög vel. Mér tókst undantekninga- lítið að leika þoltanum á þann stað sem ég vildi. Ég varð vissulega mjög taugaóstyrk þegar ég náði góðri for- ystu í öðra settinu og við það náði hún yfirhöndinni. Jafnvel þótt maður hafi fagnað sigri á stórmóti áður, virðist alltaf jafn erfitt að stíga síð- asta skrefið í átt til sigurs. Ég hefði átt að ljúka leiknum fyrr,“ sagði Davenport. ,þUlt getur gerst í úrslitaleik á stórmóti," sagði Hingis. „Eftir fyrsta settið reyndi ég að halda reisn og tapa með sæmd. Ég lifði eigi að síður í voninni um að mér tækist að snúa taflinu við og sigra, en ég varð of æst þegar staðan var fimm fimm í öðra settinu, byrjaði á að misnota tvær uppgjafir í röð. Það var eins og ég reyndi of mikið," sagði Hingis. GRAHAM Kavanagh, lykilmað- ur enska knattspyrnuliðsins Stoke City, lýsti yfir mikilli ánægju með Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóra, og störf hans hjá félaginu í samtali við staðarblaðið The Sentinel í gær.Kavanagh segist njóta sín mun betur en áður eftir að Guð- jón gaf honum aukið frelsi til að taka þátt f sóknarleik liðsins. „Guðjón er mjög sterkur persónuleiki og það er létt yfir iiiTiwwMriiTiMTiiimTnTMrTin~irirr'iivi Með sigri hefðu lærisveinar Lou- is van Gaals komist upp fyrir Deportivo La Coruna. Því var ekki að heilsa og Espanyol, sem hefur ætíð staðið í skugga stórliðsins í borginni, komst yfir á 22. mínútu með marki frá Miguel Angel Benitez, sem varn- armönnum Barcelona yfirsást er homspyrna var tekin og skoraði leik- maðurinn með skalla. Hollendingur- inn Patrick Kluivert jafnaði fyrir Barcelona í viðbótartíma dómarans í fyrri hálfleik. Hann varð á undan tveimur varnannönnum Espanyol og skallaði boltann yfir Juan Luis Mora, markvörð heimamanna. Þetta var fyrsti leikur Kluiverts í byrjunarliði Barcelona eftir að hafa „afplánað" fimm leikja keppnisbann. Hann þótti leika vel og ógnaði vöm Espanyol stöðugt með áhrifaríkri samvinnu við Brasilíumanninn honum, en hann þolir engan fíflaskap þegar menn eiga að einbeita sér að leiknum. Guðjón sagði mér strax og hann tók við liðinu að hann væri ánægður með minn leikstíl og sagði að ég hefði hlutverki að gegna í áætl- unum hans með liðið. Það hafði mikið að segja fyrir sjálf- straustið. Það er Ijóst að félagið er á mikilli uppleið eftir yfír- töku íslendinganna," sagði Graham Kavanagh. Rivaldo og Finnann Jari Litmanen. I síðari hálfleik réðu leikmenn Barcelona gangi mála að mestu, en tókst ekki ætlunarverk sitt, að skora og taka þannig forystu í kapphlaup- inu um Spánarmeistaratitilinn. En eftir að hafa fylgst með kepp- inautum sínum í baráttunni um meistaratignina hiksta og eygja þannig von um fimm stiga forskot með sigii á Valladolid degi síðar, beið Deportivo skipbrot og tapaði, 4:1. Victor Femandez gerði þrennu fyrir lágt skrifað lið Valladolid, sem berst við falldrauginn á hinum enda efstu deildarinnar á Spáni. Fernandez gerði þrjú síðustu mörk liðsins eftir að Jose Luis Caminero hafði komið því yfii’ í fyrri hálfleik. Valladolid tefldi í fyrsta sinn hinum japanska Shoji Jo í byrjunarlið sitt. Ekki bætti úr skák fyrir Deportivo er leikmaður liðsins, Flavio Conceicao, var rekinn af leikvelli í síðari hálfleik. Þó tókst gestunum að minnka muninn, þó litlu skipti, manni færri með marki Tura Flores úr víta- spyi’nu. Fyrir vikið er forysta Deportivo tvö stig eftir leiki helgarinnar. Real Zaragoza er í öðru sæti eftir 2:l-sig- ur á Sevilla á heimavelli. Juanele Castano og Xavi Aguado gerðu mörk Zaragoza áður en Vassilis Tsai’tas minnkaði muninn þrettán mínútum fyrir leikslok. Svipaða sögu var að segja af Celto Vigo eins og meisturanum. Liðið tap- aði fyrir Atletico Madrid á heima- velli, 1:0, og tókst því ekki að velgja efstu liðum deildarinnar nægilega undir uggum. Juan Carlos Valeron skoraði sigurmarkið fyrir Madrídar- liðið á 27. mínútu. Celta er í fjórða sæti. Kavanagh ánægður með Guðjón Bandaríkjamaðurinn Andre Agassi fagnar sigri á Yevgeny Kafelnikov. Deporlivo færði sér ekki mistök Shevchenko gerði þrennu á sjö mínútum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.