Morgunblaðið - 01.02.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000 B 11
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Eva Björk Hlöðversdóttir úr Gróttu/KR stóð í ströngu gegn Haukum f Hafnarfirði á sunnudaginn en hrósaði sigri. Hér reynir hún að
brjótast framhjá Hörpu Melsteð og Auði Hermannsdóttur.
Grótta/KR á toppinn
„VIÐ erum komnar á skrið eftir
dapra byrjun eftir jól og þetta
er allt á réttri leið,“ sagði
Fanney Rúnarsdóttir, mark-
vörður Gróttu/KR, sem fór á
kostum í öruggum 24:26 sigri á
Haukum í Hafnarfirði á sunnu-
daginn og varði 22 skot. Fyrir
vikið er Grótta/KR komið á
topp deildarinnar á ný en
Haukastúlkur sitja eftir í 5.
sætinu.
alls ekki líklegar til að geta nokkru
um breytt því sóknarleikur þeirra var
óagaður og staður. í stöðunni 18:14
slökuðu gestirnir aðeins á klónni svo
að Haukar skoruðu fjögur mörk í röð
en lengra komust þær ekki.
„Við byijuðum svo sem nógu vel en
svo misstum við leikinn frá okkur
þegar leikmenn fóru að takaóþarfa
áhaettu," sagði Judit Rán Esztergal,
þjálfari Hauka, eftir leikinn. „Við
verðum að bregðast við þessu aga-
leysi. Að vísu gat Auður ekki leikið á
fullu þar sem hún var veik en hún hef-
ur stjómað leiknum hingað til.“ Hjör-
dís Guðmundsdóttir í markinu, Inga
Fríða Tryggvadóttir og Hanna G.
Stefánsdóttir voru bestar Hauka.
„Við sýndum góðan karakter í lið-
inu þegar við náðum okkur á strik eft-
ir að hafa orðið undir í byijun,“ sagði
Fanney, markvörður Gróttu/KR, eft-
ir leikinn. „Við vissum að þetta væru
mjög svipuð lið og það þyrfti að berj-
ast fyrir sínum hlut því heppnin gæti
gengið í lið með öðru hvoru liðinu en
við höfðum fulla trú á að við gætum
unnið þennan leik,“ bætti Fanney við
en hún, Jóna Björg Pálmadóttir, Alla
Gorkorian og Ágústa Edda Bjöms-
dóttir voru bestar hjá Gróttu/KR auk
þess sem Kristín Þórðardóttir átti
góðan sprett í lokin.
FOLK
■ FALUR Harðarson skoraði eitt
stig þegar nýja liðið hans, Tapiolon
Honka, vann BC Nokia á útivelli,
86:77, í finnsku úrvalsdeildinni í
körfuknattleik um helgina. Honka
er með yfirburðaforystu í deildinni
og hefur unnið 19 leiki af 22.
UFRANZ Wohlfahrt, landsliðs-
markvörður Austurríkis í knatt-
spymu sem hefur leikið með Stutt-
gart undanfarin ár, hefur gengið lrá
tveggja ára samningi við sitt gamla
félag, Austria Vín, og fer þangað
eftir tímabilið í Þýskalandi.
■ CARLOS Timoteo Griguol var í
gær rekinn úr starfi sem þjálfari
spænska knattspymufélagsins Sev-
illa, sem er í hópi neðstu liða efstu
deildar þar í landi. Griguol, sem er
65 ára Argentínumaður, var ráðinn
til Sevilla fyrir þetta tímabil en hann
hafði ekki áður starfað í Evrópu.
■ GUUS Hiddink frá Hollandi og
Radomir Antic frá Júgóslaviu hafa
verið nefndir til sögunnar sem lík-
legir arftakar Griguols hjá Sevilla.
■ XAVJER Gravelaine var um
helgina seldur frá Watford til
franska liðsins Le Havre. Gravelai-
ne kom til Watford í byrjun nóvem-
ber án greiðslu og lék í framlínunni
með Heiðari Helgusyni í tveimur
fyrstu leikjum Dalvíkingsins með
félaginu.
■ MARTIN Edwards, stjómarfor-
maður Manchester United, hefur
hafið samningaviðræður við Teddy
Sheringham, en samningur hans við
félagið rennur út í sumar.
Þá stendur til hjá Edwards að setj-
ast niður með Denis Irwin, en samn-
ingur hans við Evrópumeistarana
rennur einnig út í sumar eins og
samningur Sheringhams.
■ GERARD Houllier, knattspymu-
stjóri Liverpool, segist ekkert vera
að leita fyrir sér með kaup á fram-
herja nú þegar Robbie Fowler verð-
ur frá um tíma og Michael Owen á
einnig við meiðsli að stríða en sögu-
sagnir hafa tengt Houllier við ýmsa
þekkta markaskorara á síðustu dög-
um.
■ MICHAEL Johansen, danski
knattspyrnumaðurinn hjá Bolton,
fer til heimalandsins í vor en þar
hefur hann gert fjögurra ára samn-
ing við AB frá Kaupmannahöfn.
Hafnfirðingar byrjuðu af miklu
kappi, staðráðnir í að kaffæra
gesti sína strax á fyrstu mínútunum
og náðu 3:0 og 8:4
Stefán foi7stu- f?að 6ekk
Stefánsson eftlr um tlma en Þa
skrifar braust Grótta/KR
upp og hóf að saxa á
forskotið en þar munaði um að Fann-
ey, markvörður þeirra, fór að sýna
sparihliðarnar. A fyrstu mínútum síð-
ari hálfleiks komust Gróttu/KR-
stúlkur yfir í fyrsta sinn og héldu for-
ystunni þrátt fyrir skjóta þrívegis í
stöng Haukamarksins því Fanney
var komin í ham. Haukastúlkur vom
■ SUÐUR-KÓREA tryggði sér um
helgina ^ sæti í handknattleiks-
keppni Olympíuleikanna í Sydney
með því að sigra Japan, 22:20, í úr-
slitaleik Asíuriðilsins í Kumamoto.
Kyun-Shin Yoon, risinn frá Gumm-
ersbach, skoraði 11 mörk fyrir
Kóreubúana.
■ ARNO Ehret, þjálfari þýska
handknattleiksliðsins Gummers-
bach, á nú í viðræðum við Sviss-
lendinga um að taka við landsliði
þeirra í sumar af Urs Muhlethaler.
Ehret þjálfaði Sviss með góðum
árangri frá 1986 til 1993.
Helga fór hamförum
í marki Víkinga
„ÞAÐ munaði miklu að fara vel af stað, þá er betra að ná góðri
stemmningu í liðinu og það skilar sér auk þess sem vörnin var
góð og Helga var traust í markinu hjá okkur,“ sagði Helga Birna
Brynjólfsdóttir fyrirliði Víkinga eftir 23:16 sigur á Val að Hlíðar-
enda á laugardaginn en sigurinn fleytti þeim í efsta sæti deildar-
innar við hlið Gróttu/KR á meðan Valur situr eftir um miðja deild.
Víkingar geta þakkað umræddri Helgu Torfadóttur markverði fyr-
ir framlag hennar því hún fór hamförum í markinu og varði 26
skot. Fyrir norðan sigruðu KA-stúlkur ÍR 16:15 og í Mosfellsbæn-
um stóð UMFA uppi í hárinu á Stjörnunni en tapaði þó 26:24
Valsstúlkur hófu leikinn á laug-
ardaginn en Helga í marki
Víkinga gaf strax tóninn þegar hún
varði tvívegis í
fyrstu sókninni.
Varnir voru grimm-
ar og mörkin voru
ekki mörg til að
byrja með en þá misstu Valsstúlkur
taktinn í sókninni - skoruðu ekki
mark í níu óöruggum sóknum á
meðan gestimir skoruðu 5 og náðu
fjögurra marka forystu, 7:3. Eftir
það varð hlutskipti heimasætnanna
að Hlíðarenda að reyna að vinna
upp muninn og það er alltaf erfitt. I
byrjun síðari hálfleiks náðu þó
Valsstúlkur að saxa á forskotið á
meðan sóknarleikur Víkinga var
frekar staður en á móti kom að
Helga markvörður sló hvergi af.
Þegar ekkert gekk að jafna um
miðjan síðari hálfleik misstu Vals-
stúlkumar móðinn um stund og það
létu gestimir úr Fossvoginum ekki
bjóða sér tvisvar, bættu við forskot-
ið og sigmðu örugglega enda nýtt-
ust aðeins þrjár af 14 síðustu sókn-
um Vals.
„Við komum alls ekki rétt
stemmdar til þessa leiks því við get-
um þetta alveg og verðum að taka
okkur saman í andlitinu,“ sagði Sig-
urlaug Rúna Rúnarsdóttir leikmað-
ur Vals eftir leikinn.
„Við þurftum að elta þær uppi
allan leikinn, sem er alltaf mjög erf-
itt og lukum að auki sóknum okkar
illa.“ Sigurlaug Rúna, Helga Orms-
dóttir, Brynja Steinsen og Eivor-
Pála Blöndal voru bestai- hjá Val.
Því fer fjarri að Víkingum hafi
verið spáð efsta sæti deildarinnar
en liðinu hefur gengið allt í haginn
og tapaði ekki leik fyrir jól. Marka-
hlutfall liðsins er eigi að síður ekki
það besta því þrjú lið hafa betra
hlutfall, en Víkingsstúlkur geta
samt státað af því að hafa fengið á
sig fæst mörk.
„Það er gott að vera á toppi deild-
arinnar en líka erfitt en við hugsum
minnst um það og ætlum bara að
spila okkar leik og hafa gaman af
þessu,“ bætti Helga Birna fyrirliði
við, en er ekki gaman að vera fyrir-
liði þegar svona vel gengur? „Það
skiptir minnstu máli heldur er mest
gaman að vera í liðinu.“ Sem fyrr
segir átti Helga stórleik í marki
Víkinga en Guðmunda Kristjáns-
dóttir, Svava Sigurðardóttir og
Helga Bima voru einnig góðar auk
þess sem Kristín Guðmundsdóttir
tók duglega við sér í lokin.
KA lagði ÍR fyrir norðan
Mikið var fagnað fyrir norðan
þegar KA-stúlkur lögðu ÍR að velli,
16:15. Jafnt var með liðunum og
staðan 8:8 í leikhléi en heimasæt-
urnar náðu þriggja marka forystu,
15:12, þegar skammt var til leiks-
loka. Gestirnir jöfnuðu 15:15 þegar
tæp mínúta var eftir en tíminn
nægði KA-stúlkum til að skora sig-
urmarkið. „Við ætluðum að hrista
þær af okkur en það gengur ekki
gegn ÍR,“ sagði Hlynur Jóhannes-
son þjálfar KA eftir leikinn. „Við
þurftum líka á sigrinum að halda og
það er léttara yfir liðinu.“
Gott hjá Mosfeliingum
Mosfellingar ætla sér að sigra í
vetur og gerðu sitt besta þegar
meistarar Stjörnunnar sóttu þær
heim á laugardaginn. Það dugði
ekki til, staðan í hálfleik var 10:16
Garðbæingum í vil. En eftir hlé
lögðu Aftureldingarstúlkur allt sitt
í leikinn og skoruðu 14 mörk á móti
tíu frá Stjömunni. Eftir stendur þó
sigur Stjörnunnar, sem færði sig
upp í fjórða sæti deildarinnar en
Aitureldingarstúlkur geta verið án-
ægðar með baráttuna þó að Jolanta
Limbaite hafi ekki verið með.
l