Morgunblaðið - 01.02.2000, Blaðsíða 9
8 B ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
+
EM í KRÓATÍU
stóðst áhlau
Þakka
Wislander
sigurinn
MAGNUS Wislander er maðurinn sem
Svíar þakka fyrst og fremst sigurinn
á Evrdpumótinu í Krdatíu. Þessi 35
ára gamli og fjölhæfi handknattleik-
smaður skoraði ekki bara úrslita-
markið í seinni framlengingunni -
það var hans 10. mark í 13 tilraunum
í leiknum og úrslitaleikurinn gegn
Rússum er vafalftið hátindurinn á
annars glæsilegum ferli Wislanders.
Hann fékk hæstu einkunn, 5 stjörn-
ur, hjá Aftonbladet, og þá umsögn að
hann yrði stöðugt betri með aldrinum
og væri lykilmaður í sdkn og vörn.
Wislander var að leika sinn 311.
landsleik á 15 ára ferli með landslið-
inu.
„Staðan virtist vonlítil þegar við
vorum sex mörkum undir í hálfleik.
Það var ekki auðvelt að hefja seinni
hálfleikinn en það eina sem við gátum
gert var að gera okkar besta. En svo
hélt ég að sigurinn væri okkar þegar
Thorsson komst í gegn undir lok
leiksins. Hann skaut hinsvegar í stöng
og í staðinn fyrir 23:20, okkur í hag,
minnkuðu Rússar muninn í 22:21.
Þegar komið var fram í seinni fram-
lenginguna sagði ég við einn Rúss-
anna að það væri sennilega best að
við deildum gullinu og hann tdk undir
það!“ sagði Wislander við Afton-
bladet.
Wislander er farinn aftur til Kiel í
Þýskalandi þar sem hann, Staffan
Olsson og Stefan Lövgren freista þess
að veija þýska meistaratitilinn. Eftir
sumarfrí tekur sfðan við undirbúning-
ur fyrir Ólympfuleikana í Sydney, en
dlympfutign er eini stdri titillinn sem
þetta magnaða sænska lið hefur ekki
náð að krækja f til þessa.
Svíar vörðu Evrópumeistaratitilinn eftir harða baráttu við Rússa
Sænska stál
FRANSKI leikmaðurinn Jackson Richardson var kosinn besti
leikmaður Evrópumótsins, eins og í HM á íslandi 1995. Hann var
einnig valinn í úrvalslið mótsins, sem besti leikstjórnandinn í
keppninni. Svíinn Peter Gentzel var valinn besti markvörðurinn,
Castillo Guijosa frá Spáni besti hægri hornamaðurinn, Iran Sma-
jlagic, Króatíu, bestur í vinstra horninu, Andrij Chtchepkine,
Spáni, besti iínumaðurinn, Carlos Resende, Portúgal, besta
hægri handarskyttan og Patrick Cazal, Frakklandi, besta vinstri
handarskyttan.
etta val var tilkynnt eftir æsi-
spennandi úrslitaleikinn milli
Svía og Rússa á sunnudag.
Afmæli markvarðanna
Markverðirnir héldu upp á af-
mæli í Króatíu. Bergsveinn Berg-
sveinsson og Guðmundur Hrafn-
kelsson, markverðir íslenska liðs-
ins, héldu báðir upp á afmælið sitt
í Króatíu. Bergsveinn átti 32 ára
afmæli 25. janúar og Guðmundur
hélt upp á 35 ára afmælið 21. jan-
úar. Þeir fengu tvær afmælistertur
frá króatískum aðstoðarstúlkum ís-
lenska liðsins á Evrópumótinu.
Þær afhentu strákunum terturnar
eftir síðasta leikinn í keppninni, við
Úkraínu, í Rijeka á laugardaginn.
Tomas Svensson, markvörður
Svía, varði flest skot að meðaltali í
keppninni, varði 52 skot af þeim
122 sem hann fékk á sig, eða
42,62%. David Barrofet, Spáni, var
með 87 skot varin af 215 sem hann
fékk á sig, eða 42,07%. Peter Gen-
tzel, Svíþjóð, var í öðru sæti. Hann
varði 54 skot varin af þeim 137
sem hann fékk á sig, eða 39,42%.
Guðmundur Hrafnkelsson lenti í
15. sæti með 49 skot varin af 167,
eða 29,34%.
Patrekur átta sinnum
rekinn af velli
Patrekur Jóhannesson var sam-
kvæmt tölfræði mótshaldara næst-
grófasti leikmaður keppninnar.
Hann var átta sinnum rekinn út af
í tvær mínútur og einu sinni úti-
lokaður - rautt spjald. Mike Bezd-
icek frá Þýskalandi var í efsta sæti
á þessum lista, með sjö brottvísan-
ir og tvö rauð spjöld.
Richardson stal
flestum boltum
Frakkinn Jackson Richardson
stal flestum boltum leikmanna á
EM. Richardson tók 14 bolta í sjö
leikjum eða tvo að meðaltali í leik.
Eduardo Coelho, Portúgal, var í
öðru sæti með 7 bolta í sex leikj-
um, eða 1,17 bolta að meðaltali.
Landi hans, Carlos Resende, tók
sex bolta í sex leikjum eða einn
bolta í leik. Ólafur Stefánsson var í
flmmta sæti, með fimm stolna
bolta í sex leikjum, eða 0,86 boltar
í leik.
Wislander varði flest skot
Magnus Wislander, leikmaður
sænska liðsins, varði flest skot frá
andstæðingum sínum í vörn, níu
skot í sjö leikjum, eða 1,29 að með-
altali. Goran Perkovac, Króatíu,
varði sjö skot í sex leikjum, eða
1,17 í leik. Bozidar Jovic, Króatíu,
varði jafn mörg skot. Patrekur Jó-
hannesson var í fjórða sæti með
sex varin skot í sex leikjum. Ólafur
Stefánsson var í fimmta sæti með
rússneska
fimm varin skotr í sex leikjum, eða
0,83 skot í leik.
Svíar prúðastir
Svíar voru með prúðasta lið
keppninnar, samkvæmt tölfræð-
inni. Þeir fengu aðeins 17 brottvís-
anir í fimm leikjum. Úkraínumenn
komu næstir með 19 brottvísanir
og Norðmenn voru þriðju með 23.
íslenska liðið fékk samtals 30
brottvísanir auk þess sem Patrek-
ur Jóhannesson fékk einu sinni
rauða spjaldið. Portúgal var með
grófasta liðið, 32 brottvísanir og
tvær útilokanir.
Róbert með bestu
skotnýtinguna
Róbert Sighvatsson var með
bestu skotnýtingu íslensku leik-
mannanna í keppninni. Hann gerði
16 mörk úr 20 skotum, sem er 80%
nýting. Guðjón Valur Sigurðsson
var næstur honum í skotnýtingu,
með 7 mörk úr 9 skottilraunum,
sem er 78% nýting. Julian Robert
Duranona var hins vegar með lök-
ustu skotnýtingu liðsins, með að-
eins 5 mörk úr 22 skotum, sem er
23% nýting.
bjamarins
eins Gentzel markvörður. Rússar
voru klaufar að ná ekki sigri, þeir
köstuðu frá sér tækifærinu til þess
í tvígang. Ekki bætti úr skák að
grísku dómararnir voru frekar
óhliðhollir þeim og virtust gera i
því að knýja fram framlengingu í
bæði skiptin. Moskalenko var besti
leikmaður liðsins ásamt Filippov
og Kouzelev.
Leikurinn bauð upp á mikla
spennu og hafði mikið skemmtana-
gildi og ætti að vera góð auglýsing
fyrir handboltann.
SVÍAR sýndu það og sönnuðu að þeir eru yfir aðrar hand-
boltaþjóðir hafnir er þeir vörðu Evrópumeistaratitilinn í hand-
knattleik í Zagreb í Króatíu á sunnudag. Þeir unnu Rússa, 32:31, í
hörkuspennandi úrslitaleik sem var tvíframlengdur. Svíar eru þar
með fyrstir til að verja Evróputitiiinn, hafa reyndar unnið gull í
þremur af þeim fjórum Evrópumótum sem haldin hafa verið, árið
1994,1998 og 2000. Spánverjar unnu Frakka með eins marks
mun, 24:23 í frekar daufum leik um bronsverðlaunin.
ValurB.
Jónatansson
skrifar
frá Zagreb
Rússneski björninn náði að bíta
vel frá sér í fyrri hálfleik og
sænska stálið var sem smjörlíki í
höndum hans.
Stjörnumaðurinn
Eduard Moskalen-
ko fór á kostum á
línunni og raðaði
inn mörkum, skor-
aði fjögur mörk í fyrri hálfleiknum
og fiskaði auk þess tvö vítaköst.
Það var ótrúlegt að vita til þess að
þessi frábæri leikmaður væri að
spila með íslensku félagsliði. Hann
ætti að geta nýst Stjörnunni vel
þegar hann kemur heim í toppæf-
ingu. Rússar voru ávallt með
frumkvæðið í hálfleiknum og
gerðu fjögur síðustu mörk hans og
staðan þá 15:9.
Svíar hertu stálið og byrjuðu
síðari hálfleikinn með mikilli
skrautsýningu. Peter Gentzel tók
stöðu Tomasar Svenssonar í mark-
inu og nánast lokaði því og á að-
eins tíu mínútum voru Svíar búnir
að jafna, 18:18. Rússneski björnin
var sem lamaður og Maximov
þjálfari tók þann kost vænstan að
taka leikhlé og blása nýju lífi í
björninn. Það tókst og leikurinn
hélst í járnum. Þegar tvær mínút-
ur voru eftir kom Igor Lavrov
Rússum yfir 24:23, en Mathias
Franzen jafnaði þegar hálf mínúta
var eftir, 24:24. Rússar fengu
tækifæri til að komast yfir er Vor-
onin fór inn úr horninu á lokasek-
úndum venjulegs leiktíma, en fékk
dæmdan á sig ruðning, sem þótti
nokkuð umdeildur dómur. Því varð
að grípa til framlengingar.
Rússar náðu undirtökunum í
fyrri hálfleik framlengingar og
gerðu tvö mörk, Pogorelov og Fil-
ippov, án þess að Svíar næðu að
svara. Bættu svo þriðja markinu
við 27:24 og virtust á góðri leið
með að landa gullinu. Þá kom And-
reas Larsson ferskur inn í fyrsta
sinn í sóknina hjá Svíum og gerði
gæfumuninn og Gentzel lokaði
markinu. Larsson minnkaði mun-
inn í tvö mörk og Wislander flaug
inn af línunni og minnkaði í eitt
mark þegar tvær og hálf mín. voru
eftir. Allt var á suðupunkti meðal
7.500 áhorfenda og mikil spenna í
loftinu. Moskalenko fór inn af lín-
unni og gat tryggt Rússum titilinn,
en Gentzel sá við honum. Svíar
brunuðu upp og Pierre Thorsson
fór inn úr hægra horninu og sneri
boltanum fimlega fram hjá Lavrov
í markinu, 27:27, og aftur var
framlengt.
Það átti greinilega ekki að liggja
fyrir Rússum að sigra. Þeir voru
búnir að fá til þess tækifæri í tví-
gang og nú skyldi reynt í þriðja
sinn. Larsson kom Svíum yfir í
upphafi fyrri hálfleiks í síðari
framlengingunni, en Pogorelov
jafnaði, 28:28. Svíar skoruðu
næstu tvö, Franzen og Wislander,
en Filippov náði að minnka mun-
inn fyrir leikhlé, 30:29. Moskalen-
ko jafnaði fyrir Rússa í fyrstu
sókninni eftir hlé og Kouzelev kom
þeim yfir 30:31 þegar rúmar þrjár
mínútur voru eftir. Lövgren jafn-
aði með þrumuskoti og Gentzel
varði frá Rússum í næstu sókn.
Það fór vel á því að Magnus Wisl-
ander tryggði liðinu sigur með
tíunda marki sínu í leiknum þegar
um mínúta var eftir, 32:31.
Svíar eru vel að sigrinum komn-
ir. Hjá þeim er valinn maður í
hverju rúmi og ef einn stendur sig
ekki er næsti tekinn af bekknum.
Það er ekki sjá að ellimerki sé á
liðinu. Bengt Johansson, þjálfari,
veit hvað hann syngur og virðist
alltaf eiga tromp í erminni ef illa
gengur. Wislander var frábær og
Richardson bestur
+
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000 B 9
EM í KRÓATÍU
Morgunblaðið/Ásdís
Thomas Svensson, markvörður Svía, Staffan Olsson og Bengt
Johansson, þjálfarinn sigursæli, með Evrópubikarinn.
Svíþjóö - Rússland 32:31
Úrslitaleikur Evrópukeppninnar, sem leikinn var í Zagreb, 30. jan-
úar. Eftir tvíframlengdan leik. Staðan að loknum venjulegum Ieik-
túna var 24:24. Eftir fyrri framlengingu, 28:28.
Mörk Svía: Magnus Wislander 10, Pierre Thorsson 6, Stefan
Lövgren 5, Ljubomir Vrapjes 5/1, Mathias Franzen 3, Andreas
Larsson 2, Staffan Olsson 1.
Mörk Rússa: Dmitri Filippov 6/1, Edourad Moskalenko 5, Oleg
Khodkov 4, Dmitri Kouzelov 4, Lev Voronin 4, Serguei Pogorelov
3, Alexandre Toutshkine
2, Oleg Koulechov 2/1, Igor Lavrov 1/1.
Önnur úrslit:
Um 9. sætið: Þýskaland - Danmörk 19:17, Um 7. sætið: Noregur -
Portúgal 27:30, Um 5. sætið: Króatía - Slóvenía 24:25. Undanúrslit:
Frakkland - Rússland 23:30, Spánn - Svíþjóð 21:23. Um bronsið:
Spánn - Frakkland 24:23
Bengt Johansson, þjálfari Evrópumeistara Svía
Með viljann
að vopni
SVÍAR vörðu Evrópumeistaratitilinn í handknattleik með því að
sigra Rússa i tvíframlengdum úrslitaleik mótsins í Zagreb á
sunnudag. Bengt Johansson, þjálfari sænska liðsins, sagðist
ánægður með að hafa náð að verja titilinn því það væri alitaf erf-
itt, mun erfiðara en að vinna hann í fyrsta skipti. Hann sagði ís-
lenska liðið ósannfærandi i keppninni og að árangur þess hefði
valdið vonbrigðum.
Johansson sagði um úrslitaleik-
inn gegn Rússum að hann
hefði verið erfiður og spennandi.
„Þetta var mjög
■■■■■■■ erfiður leikur fyrir
ValurB. okkur. Við lentum
Jónatansson sex mörkum undir í
fSíagreb hálfleik, 15:9, og
það tók mikinn
kraft að ná að vinna þann mun
upp. Við ákváðum í hálfleik að loka
meira á línuna og láta þá skjóta
fyrir utan því þeir voru búnir að
leika okkur grátt með línuspili
sínu. Ég skipti einnig um mark-
mann, setti Peter Gentzel inn fyrir
Thomas Svensson sem varði ekki
vel í fyrri hálfleik. Peter varði vel
og við náðum að loka á línuspilið
og þá fór þetta að ganga betur. í
lokin var þetta mjög jafnt og mikil
spenna, en við höfðum viljann til
að vinna og það kom ekkert annað
til greina en sigur. Ég er mjög
ánægður með liðið, sérstaklega
hvernig það náði að vinna sig út úr
vandamálunum sem sköpuðust í
vörninni í fyrri hálfleik,“ sagði
Johansson við Morgunblaðið.
Meiri breidd en áður
Hvað finnst þér um mótið í heild
og var eitthvað lið sem kom þér á
óvart?
„Já, Slóvenía, Portúgal og Úkra-
ína komu mér nokkuð á óvart.
Þessar þjóðir hafa bætt sig veru-
lega í handboltanum og ljóst að
það er góð uppbygging í kringum
þessi lið. Það eru því fleiri sterkari
Evrópuþjóðir sem eru að bítast
um sæti á EM og HM en áður.
Þetta eykur breiddina í evrópskum
handbolta og það er af hinu góða.“
Er handboltinn á uppleið, eða
hefur hann staðið í stað?
„Ég held að það hafi verið frek-
ar lítil þróun í handboltanum síð-
ustu árin. Það eru of mörg mót á
skömmum tíma og því þarf að
breyta. Álag á leikmenn er orðið of
mildð og það stendur þróun íþrótt-
arinnar fyrir þrifum. Ég er á því
að halda eigi Evrópukeppnina og
heimsmeistaramótið á fjögurra ára
fresti eins og Ólympíuleika. Sem
dæmi um það erum við að taka
þátt í þremur stórmótum á einu
ári, EM núna í janúar, Ólympíu-
leikunum í Sydney í september og
síðan HM í Frakklandi í janúar á
næsta ári. Þetta er of mikið.“
Svíar fremrí öðrum liðum
í hraðaupphlaupum
Hefur þú orðið var við einhverj-
ar nýjungar hér í keppninni?
„Ég hef ekki hugsað mikið um
það. En ég er mest undrandi á því
hvað önnur lið standa okkur Svíum
langt að baki í hraðaupphlaupum.
Við vinnum flesta leiki okkar á vel
útfærðum hraðaupphlaupum. Við
erum ekki að skjóta mikið af níu
metra færi, heldur meira af sex
metrunum. Hin liðin hafa verið að
reyna mikið að stöðva sóknarleik
okkar með því að leika' 5-1-vörn á
móti okkur, en hingað til hafa þau
ekki fundið svar við okkar leik.“
Hefur þú í hyggju að breyta
Ieikskipulagi sænska liðsins í
framtíðinni?
„Nei, ég sé ekki ástæðu til þess
eins og staðan er í dag. Það getur
vel verið að ég geri það ef breyt-
ing verður á leikmannahópnum. Á
meðan við höfum leikmenn eins og
Wislander og Staffan Olsson er
ekki ástæða til þess að breyta.“
Nú eru Ólympíuleikarnir í Sydn-
ey næsta stórmót. Hvert verður
markmiðið þar?
„Við ætlum okkur gullið þar.
Allir leikmennirnir hafa það sitt
stærsta markmið að vinna til gull-
verðlauna á Ólympíuleikum og það
hef ég sjálfur líka.“
íslendinga vantaði
sjálfstraust
Hvað viltu segja um árangur ís-
lenska liðsins í Evrópukeppninni?
„Það eru margir góðir leikmenn
í íslenska liðinu. Ég sá það leika
vel í síðari æfingaleiknum gegn
Frökkum í byrjun janúar er það
náði jafntefli. Leikur liðsins lofaði
góðu þá. Ég veit ekki alveg hver
skýringin er á slöku gengi íslenska
liðsins hér í Króatíu. Líklega hefur
undirbúningur liðsins ekki verið
nægilega góður.
_ Liðið vann aðeins lokaleikinn við
Úkraínu og ég held að það hefði
þurft að byrja keppnina með að-
eins meira sjálfstrausti og krafti
en það gerði. Liðið var alls ekki
sannfærandi í keppninni og getur
ekki gert annað en bætt sig,“ sagði
þessi sigursæli þjálfari Svía, sem á
aðeins eftir að vinna gull á Ólymp-
íuleikum til að fullkomna þrennuna
- gull á EM, HM og ÓL á rúmu
ári.
Slóvenía náði
ólympíusæti
SLÓVENÍA kom mest á
úvart allra þjóða á Evrópu-
mótinu í Króatiu með því að
ná fimmta sætinu og tryggja
sér þar með farseðilinn á 01-
ympíuleikana í Sydney í sept-
ember. Slóvenar tryggðu sér
einnig þátttökurétt á heims-
meistaramótinu í Frakklandi.
Slóvenar unnu Króata í leik
um fimmta sætið, 25:24. sem
var eina lausa sætið á ÖL. Þá
voru Rússar, Svíar, Júgóslav-
ar, Spánverjar, Þjóðverjar og
Frakkar búnir að tryggja sér
sæti á leikunum.
Þátttaka og árangur landsliðsins í handknattleik í stórmótum frá 1984
6. sæti E 6. sæti 118. sæti m 1. sæti B 9. sæti
6 3 1
304 6222
43% 50%
JL Þjálfari: Bogdan Kowaiczyk Þjáifari: Þorbergur Aðalsteinsson Þjáifari: Þorbjörn Jensson