Morgunblaðið - 01.02.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.02.2000, Blaðsíða 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ KÖRFUKNATTLEIKUR Mikilvægur sigur hjá Keflavík „MENN voru ekki einbeittir allan leikinn og því náðu þeir að vinna upp forskot okkar, en sigurinn skipti öllu máli,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, eftir sigur á vesturbæjarliði KR í Keflavík, 101:98, eftir spennandi lokamínútur. Keflvíkingar höfðu 25 stiga forystu undir lok fyrri hálfleiks. Með góðri baráttu tókst KR-ing- um að vinna þann mun upp í síðari hálfleik og þegar skammt var til leiksloka munaði aðeins einu stigi. I Btöndal hálfleik var staðan skrifar 58:43. Keflvíkingar voru nánast óþekkj- anlegir frá fyrri leikjum og þeir fóru hreint á kostum í fyrri hálfeik þar sem þeir settu 58 stig. Guðjón Skúla- son átti þá afbragðsleik og setti átta 3ja stiga körfur. Um tíma leit út fyrir stórsigur hjá Keflvíkingum þegar þeir náðu 25 stiga forystu, 57:32. En ' KR-ingar vöknuðu þá við vondan draum og náðu að rétt sinn hlut nokkuð og munurinn í hálfleik var 15 stig, 58:43. I síðari hálfeik virtust Keflvíking- ar ætla að halda fengnum hlut en tveir afleitir kaflar komu KR-ingum inn í leikinn að nýju og þegar skammt var til leiksloka munaði að- eins einu stigi 94:93. En Keflvíkingar voru sterkari á lokasprettinum og unnu ákaflega þýðingarmikinn sigur eftir slakt gengi I síðust leikjum. „Það var fyrst og fremst fyrri hálf- leikur sem varð okkur að falli en ég er ánægður með þá baráttu sem menn sýndu eftir að vera komnir 25 stigum undir. Síðan er bara að ein- beita sér að næsta leik sem er úr- slitaleikurinn í bikarkeppninni," sagði Ingi Þór Stefánsson, þjálfari KR eftir leikinn. Bestir í liði Keflavíkur voru Guð- jón Skúlason, Hjörtur Harðarson og Jason Smit en bestu menn KR voru þeir Keith Vassel, Ólafur Ormsson og Jesper Sörensen. Ingimundur Ingimundarson skrifar Grindvíkingar reyndust sterkari Leikur Skallagríms og Grindavík- ur í Borgamesi var ekki sérlega skemmtilegur á að horfa og æði köf- lóttur. Gestimir höfðu yfír í hálfleik, 34:41, og lokatölur urðu 87:93. Þegar þrjár mínútur vom liðnar af leiknum varð nýi leikmaður- inn í liði Skallagríms, Enrique Cha- ves, að fara meiddur af leikvelli og kom ekki meira við sögu. Allt annað var að sjá til liðs Skal- lagríms en í síðasta heimaleik. Vand- ræðagangur og léleg skotnýting einkenndi leik liðsins í fyrri hálfleik. Gestirnir skoraðu tíu stig í röð er Skallagrímsmenn höfðu lagað stöð- una í 21:24 eftir dræma byrjun- .Heimamenn löguðu enn stöðuna í 34:38, en gestirnir áttu síðustu körf- una í fyrri hálfleik og staðan í leikhléi var 34:41, gestunum í vil. Skallagrímsmenn byrjuðu vel í seinni hálfleik og breyttu stöðunni i 38:41 og hrandu fyrstu fjóram sókn- um Grindvíkinga. Allt virtist á réttri leið fyrir heimamenn en Bjami Magnússon rýrði vonarglætuna með þremur þriggja stiga körfum í röð. Síðar komust Grindvíkingar í 71:52. Skallagrímsmenn gáfust ekki upp og sýndu baráttuvilja. Er þrjái' mín. Iifðu leiksins var staðan orðin 72:82 og er 56 sek. vora eftir breytti Birgir Mikaelsson stöðunni í 83:89. En nær komust heimamenn ekki. Skömmu fyrir leikslok fékk Tómas Holton mikið högg í andlitið og leit út fyrir að hann væri nefbrotinn. Heima- menn fengu vítaskot sem þeir nýttu ekki. Lið Skallagríms var ekki eins létt- leikandi og í síðustu leikjum og mun- aði miklu að Tómas Holton náði sér ekki á strik í upphafi. Nýtingin úr þriggja stiga skotum var mun síðri en í fyrri leikjum og vegur það þungt. En liðið sýndi skapstyrk að gefast ekki upp eftir mjög slæman kafla, en sú barátta kom of seint. Torrey John, Hlynur og Tómas vora bestir í liði heimamanna. Leikur Grindvíkinga virðist byggjast upp í kringum Bren- ton Birmingham. Á meðan honum var haldið niðri ríkti úrræðaleysi hjá liðinu. Það var þá sem Bjarni Magn- ússon bjargaði því. Þessir tveir vora bestu menn liðsins. Leiðinlegt var að heyra einstaka leikmenn gestanna vera með sífellt röfl í dómuram. Njarðvíkingar sigruðu Hamar í Ljónagryfjunni Vð réðum ekki við svæðisvörnina hjá þeim í síðari hálfleik og því fór sem fór. Það gengur ekki að leika vel í 15 mínútur það þarf að leika vel all- Btöndal an leikinn. Ég er skrifar náttúrlega ekki sátt- ur við tap en þetta er þó minnsta tapið hjá okkur á Suður- nesjum,“ sagði Pétur Ingvarsson þjálfari og leikmaður Hamars frá Hveragerði eftir að lið hans hafði tapað, 95:74, í Ljónagryfjunni í Njarðvík á sunnudaginn. í hálfleik var staðan 47:45. Hvergerðingar vora þó sterkari í byrjun og náðu 11 stiga forskoti í upphafi leiks, 20:9, og þeir leiddu nánast allan fyrri hálfleikinn eða þar til á síðustu sekúndunum að Njarð- víkingum tókst að komast yfir þegar þeir settu niður þriggja stiga körfu. Njarðvíkingar komu síðan mjög ákveðnir til síðari hálfleiks og ekki leið á löngu þar til þeir vora komnir með afgerandi forystu, 65:53. Ekki bætti úr skák hjá gestunum að fjórir í liðinu vora þá komnir með fjórar villur og Njarðvíkingar voru ekki í neinum vandræðum með að innbyrða öraggan sigur í leiknum. Bestu menn í liði Njarðvíkur vora Friðrik Ragnarsson, Teitur Örlygs- son og Hermann Hauksson. En hjá Hamri vora Skarphéðinn Ingason, Pétur Ingvarsson og Grandon Titus bestir. Valur Ingimundarson klædd- ist búningi á ný í sigurleik Leikur Tindastóls og KFÍ á Sauð- árkróki hófst með mildlli bar- áttu og hraða, og náðu Tindastóls- menn strax „... forystunni, létu bolt- Bjömsson ann SanSa vel °S skrifar léku góða vörn, en á það hefur skort und- anfarið. Lokatölur urðu 87:74, heimamönnum í hag. Gestimir frá ísafirði vora seinir í gang, en innan tíðar velgdu þeir gestgjöfum sínum undir uggum. Þó vora þeir lengstum skrefinu á eftir þar til Baldur Jónasson gerði þrjár þriggja stiga körfur í röð og jafnaði, 40:40. Þá tóku heimamenn leikhlé, þéttu vörnina og náðu fjögurra stiga forskoti áður en blásið var til leik- hlés. í síðari hálfleik hélt baráttan áfram. Tindastólsmenn höfðu fram- kvæðið, en f sfirðingar héldu þeim við efnið og slepptu þeim ekki frá sér. Lengstum skÚdu liðin tvö til sex stig. Þegar fimm mínútur vora til leiks- loka kom mjög góður kafli hjá heima- mönnum og gerðu þeir þá út um leik- inn og breyttu stöðunni úr 72:69 í 84:69. Eftir það lék enginn vafi á hvort liðið færi með sigur af hólmi. ■ Morgunblaðið/Kristján Haukamaðurinn Ingvar Guðjónsson sækir að Þórsaranum Sigurði Sigurðssyni. Þeir tókust hressilega á í leik liðanna á Akureyri í gærkvöld. Á þessum tíma misstu ísfirðingar Vinco Patelis útaf með fimm villur og máttu ekki við því. Sigur Tindastóls hefði getað orðið stærri, en á síðustu mínútunum er stig vora í höfn leyfðu menn sér að láta agaðan leik lönd og leið. KFÍ minnkaði muninn, en loka- stigin komu frá gamla jaxlinum Kristni Friðrikssyni, sem skaut frá miðlínu í spjaldið og í körfuna um leið ogþíminn rann út. í liði Tindastóls átti Svavar Birgis- son stórleik, firnasterkur í sókn, með mjög góða skotnýtingu. Þá var Myers mjög góður, lék vel fyrir liðið, sífefit ógnandi og lét boltann ganga vel. Ánægjulegt var að sjá þjálfarann Val Ingimundarson aftur í liðinu eftir langt hlé frá því í haust, en hann sýndi að hann hefur engu gleymt. Hjá KFÍ var Clifton Bush bestur og lék mjög vel. Þá var Baldur Jónas- son einnig mjög góður og virtist um tíma ekki þurfa nema að komast yfir miðlínu til að skora. Ekkert fékk stöðvað Kim Lewis á Akranesi Skagamenn sátu enn og aftur eftir með sárt ennið eftir viðureign sína við Snæfell á Akranesi. ÍA hefur að- eins unnið einn leik á yfirstandandi keppnistímabili, en í þetta sinn var munurinn aðeins fjögur stig. Kim Lewis, erlendur leikmaður Snæfells, var heimamönnum óþægur ljár í þúfu og hélt liði sínu á floti. Hann gerði 35 stig, nítján stig á örsk- ammri stundu í síðari hálfleik, en fram að því hafði leikurinn verið í járnum. Ægir Jónsson lék mjög vel fyrir Skagamenn og gerði 29 stig. Haukar stungu af HAUKAR halda áfram að kljást í toppbaráttu úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik eftir öruggan sigur á Þór í íþróttahöllinni á Akur- eyri í gær. í leikhléi var útlit fyrir jafna og spennandi viðureign, staðan 48:50 gestunum í vil, en frammistaða Þórs í seinni hálf- leik var arfaslök og annaðhvort sameinast menn um að gleyma þessum hálfleik eða nota upptöku af honum sem refsivönd á lið- ið. Haukartóku öll völd og sigruðu auðveldlega; lokatölur 106:82. Stefán Þór Sæmundsson skrifar Það tók Hauka nokkurn tíma að ná framkvæðinu í fyrri hálfleik en með góðum kafla þar sem þriggja stiga skotin rötuðu niður tókst þeim að komast 10- 15 stigum fram úr. Bæði lið urðu fyrir áfalh í hálfleiknum. Þórsarinn Ein- ar Örn Aðalsteinsson fékk sína 4. villu eftir 6,30 mín. og Jón Arnar Ingvarsson, fyrirliði Hauka, fór meiddur af velli. Þórsarar fóru að bíta frá sér, aðallega þó Óðinn Ás- geirsson og Maurice Spillers. For- skot Hauka minnkaði jafnt og þétt. Staðan breyttist úr 29:42 í 40:45 og í leikhléi munaði aðeins tveimur stigum. Þórsarar jöfnuðu í upphafi seinni hálfleiks en síðan fraus allt fast hjá þeim meðan Haukarnir byrjuðu aft- ur að raða niður þriggja stiga körf- um. Sex leikmanna liðsins gerðu alls 12 þriggja stiga körfur og mun- ar um þau 36 stig. Leikmenn Þórs hittu aðeins úr þremur slíkum skot- um. Hittnin var afleit hjá liðinu í seinni hálfleik. Uppskeran eftir 15 mínútur var aðeins 20 stig og þá var staðan 68:84. Vörnin bilaði líka og Haukarnir léku á als oddi, allir leik- menn liðsins komust á blað og hittu úr ólíklegustu færum. Boseman átti stórleik en hjá Þór var Spillers sá eini sem lét að sér kveða í seinni hálfleik, auk þess sem Sigurður Sigurðsson tók eilítinn sprett. Liðið verður að gera betur ætli það sér að komast í úrslitakeppnina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.