Morgunblaðið - 01.02.2000, Síða 16
Bjami geríst umboðsmaður
BJARNI Sigurðsson, fyrrver-
andi landsliðsmarkvörður í
knattspyrnu, bíður þessa dag-
ana eftir því að fá leyfi frá FIFA
til að starfa sem umboðsmaður
knattspyrnumanna. Bjami er í
La Manga á Spáni að fylgjast
með Norðurlandamótinu og
skoða nokkra leikmenn þar.
Hann sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann væri búinn að
taka öll tilskilin próf á íslandi
og væri bara að bíða eftir heim-
ild frá FIFA um að hefjast
handa.
„Þetta verður örugglega
gaman. Eg verð í félagi við
nokkra umboðsmcnn í Skand-
inavíu og við eram með menn á
öllum Norðurlöndunum og í
Þýskalandi og það er verið að
vinna í því að koma á sambandi
í Grikklandi," sagði Bjarai.
Það eru knattspyrnusambönd
viðkomandi landa sem sjá um að
þeir sem sækja um þurfa að
fara í gegnum ákveðna mennt-
un þar sem meðal annars er far-
ið yfir leikmannaskiptareglur
og annað sem við kemur þessum
málum. Þegar viðkomandi um-
sækjandi hefur staðist próf hjá
KSI er send beiðni til FIFA um
að viðkomandi verði heimilt að
starfa sem umboðsmaður og eft-
ir slíkri heimild bíður Bjarni.
hSkuS?
Morgunblaðið/Kristinn
Atli Eðvaldsson þjálfari klappar Indriða Sigurðssyni á kollinn eftir að hafa kallað hann af leikvelli
Finnar
reyna að fá
Litmanen
JARI Litmanen, einn besti
leikmaður Finna, er ekki
komin til La Manga en
Finnar ætla að reyna að fá
hann. Litmanen leikur með
Barcelona og lék aðeins
annan hlálfleikinn með liði
sinu um helgina og vonast
þjálfari Finna til að hann
geti skotist til La Manga í
dag og leikið á móti Islend-
ingum á morgun. Litmanen
hefur leikið 59 landsleiki
fyrir Finnland og gert 14
mörkíþeim.
Nils Johan Semb,
þjálfari Noregs
íslending-
arsækjaá
„ÉG er nokkuð sáttur með hvemig
mitt lið lék í dag, ekki með allt en í
heildina séð er ég nokkuð ánægður
með leik þess þó svo við næðum ekki
að skora,“ sagði Nils Johan Semb,
landsliðsþjálfari Norðmanna, eftir
leikinn við íslendinga. „Þetta var erf-
iður leikur fyrir bæði lið, þið eruð með
nýjan þjálfara og ég átti þvi von á
mikilli baráttu eins og kom á daginn.
Islensku leikmennimir em mjög
sterkir og [Hermann] Hreiðarsson
var frábær í vörninni," bætti hann við.
Hann sagðist ánægður með þá fjöl-
mörgu íslensku leikmenn sem leika í
Noregi. „Þeir era frábærir og hafa
staðið sig vel, bæði innan vallar og ut-
an. Það er mjög gott að hafa íslend-
ingana í norskri knattspymu, þeir era
landi og þjóð til sóma og ég get ekki
betur séð en bilið milli íslenskrar
knattspymu og þess sem Svíar, við og
Danir höfum verið að gera, sé að
minnka mikið. Þið eigið orðið marga
góða leikmenn," sagði norski þjálfar-
inn.
Norðmenn átlu í miklum vanda
„ÉG er sáttur með eitt stig úr leiknum og með leikinn í heild sinni.
Hann varfínn í fyrri hálfleik á meðan við notuðum allar þær kanónur
sem við höfðum í boði. Ég er einnig sáttur með leik nýliðanna því
þótt þeir hafi allir verið inná undir lokin lentu þeir ekki í neinum telj-
andi vandræðum með reynda landsliðsmenn Noregs,“ sagði Atli
Eðvaldsson eftir að hafa stýrt landsliðinu fyrsta sinni í gær á móti
Norðmönnum.
Spurður um skiptingamar sagði
Atli að Indriði hefði fengið höf-
uðverk og orðið að fara útaf, Heiðar
Helguson fékk slæmt
^■■■■■i spark í sig undir lok
Skúli Unnar fyrri hálfleiks og kom
Sveinsson ekki inná eftir hlé.
SfráSpáni Meiðsli hans era ekki
alvarleg og gæti
hann þess vegna verið með á mið-
vikudaginn. „Eg vildi halda Ríkharði
inná eins lengi og ég gat, bara vegna
háu sendinganna, en hann var orðinn
svo þreyttur í lokin. Tryggvi virtist
eitthvað þreyttur og því var honum
skipt útaf.“
Atli sagði að norska liðið hefði ekki
komið sér á óvart, það hefði leikið
eins og búist hefði verið við. Spurður
um hvort munurinn á liðunum
minnkaði þegar sterkustu menn
beggja þjóða væra ekki með sagði
hann: „Ég veit það eiginlega ekki.
Ég veit ekki hvort dregið hafi saman
milli okkar og Norðmanna. Mér
fannst strákamir leika vel, þeir vora
agaðir og þeir vora þolinmóðir og
það skiptir svo miklu máli. Það slitn-
aði lítið á milli varnar og miðju þar
sem þeir héldu boltanum og léku
honum þvert frekar en negla honum
fram og yfir miðjumennina. Við vit-
um að það er ekkert mál að leyfa
Norðmönnum að hafa boltann því
þeir gefa háar sendingar inn á teig-
inn þar sem þeir treysta á sterka
skallamenn sína. Við vitum að við er-
um með sterka skallamenn og það
kom í Ijós í dag. Það kom líka í ljós í
dag að með réttri leikaðferð á eitt
erfiðasta lið í heimi, Norðmenn, í
vandræðum."
Varnarlínan var á stundum nokuð
flöt, er það meðvitandi eða er þetta
bara hlutur sem geríst?
„Já, vörnin var stundum nokkuð
flöt, en þeir vora oft rangstæðir og
ég held að með meiri þjálfun verði
það ekki vandamál. Leiðin sem
Norðmenn hlaupa þegar þeir sækja
er þannig að það þarf að stíga fyrir
þá þannig að þeir verði að breyta að-
eins til. Við gleymdum þessu stund-
um en það er bara eðlilegt í fyrsta
leik á þessum tíma árs. Það lagast
með æfingunni,“ sagði Atli.
Ákveðinn sigur
„Okkur langaði virkilega til að
sýna að við eram með gott lið og ég
held það hafi tekist. Ég neita því
samt ekki að við hefðum kosið að
vinna, sérstaklega kannski þeir okk-
ar sem spila í Noregi, það hefði ekki
verið leiðinlegt að fara til Noregs eft-
ir að hafa sigrað," sagði Rúnar Krist-
insson, fyrirliði islenska landsliðsins.
„Það er virkilega gaman að vera
hérna með liðinu, aðstæður era frá-
bærar og góður andi í liðinu. Það er
ákveðinn sigur fyrir okkur að gera
jafntefli við Norðmenn, sérstaklega
þegar haft er í huga að við eram með
nýjan þjálfara, mikið af nýjum
mönnum og nýtt leikkerfi. Við fóram
nánast ekkert yfir sóknarleikinn fyr-
ir þennan leik þannig að ég held við
getum verið nokkuð ánægðir. Við
ætluðum að halda ákveðnu bili milli
varnar og miðju og koma þannig í
veg fyrir að Norðmenn kæmust þar
inn, það gekk vel að mínu mati.
Menn fóru léttir í leikinn, ákveðnir í
að hafa gaman af því að leika fótbolta
á grænu grasi í janúar. Það losnaði
fljótlega um þessa spennu sem fylgir
oft leikjum og okkur tókst að halda í
við þá, það er sjaldan sem norskt
landslið fær svona fá marktækifæri
og það er sigur fyrir okkur. Við á
hinn bóginn sköpuðum okkur ekki
heldur mörg marktækifæri en ég
held að þau markmið sem við settum
okkur fyrir leikinn hafi náðst.“
Með ódrepandi baráttuanda
„ÉG er aldrei ánægður með að vinna ekki og því er ég óánægð-
ur með eitt stig úr leiknum, mér fannst við vera betra liðið og
verðskulda sigur,“ sagði Staale Solbakken, miðjumaðurinn
sterki hjá Norðmönnum, eftir leikinn.
„Hins vegar lékum við ekki nógu vel allan tímann. Við byrj-
uðum ágætlega og enduðum ágætlega en í 45 mínútur lékum
við illa. Islenska liðið er gott og mér sýnist munurinn vera að
minnka á milli þeirra sem kallajlar hafa verið litlu þjóðirnar og
hinna stærri á Norðurlöndum. íslensku leikmennirnir eru rosa-
lega líkamlega sterkir og baráttuandinn ódrepandi og því erfítt
að eiga við þá. Þeir einbeittu sér að því að verjast í dag og
gerðu það vel og fengu fyrir vikið ekki mikið af færum. Við
fengum hins vegar nokkur og ég hefði viljað sigra,“ sagði Sol-
bakken.
Gylfi
Orrason
rak einn
útaf
GYLFI Orrason dómari
dæmdi leik Færeyinga og
Finna í gær og þótti standa
sig með miklum ágætum.
Hann varð að vísa einum
Finnanum af velli í leiknum
eftir að hann hafði sýnt hon-
um gula spjaldið í tvígang.
Jarkko Wiss, sem Gylfí rak
útaf, verður því í leikbanni á
miðvikudaginn þegar Finnar
mæta Islendingum.
Finnar máttu þakka fyrir
að sigra Færeyinga í gær,
Antti Sumiala gerði eina
mark leiksins á 57. inínútu.
Áður en það kom höfðu Fær-
eyingar meðal annars átt
skot í þverslá.
Svíar unnu Dani 1:0 og var
sigurinn sanngjara því Svíar
voru talsvert sterkari. Það
var Marcus Allbaack sem
gerði eina mark leiksins.