Morgunblaðið - 18.02.2000, Side 1

Morgunblaðið - 18.02.2000, Side 1
/ / Hljóð rýtingsstungunnar Felix og Tom KÉNittisarí ÞsiréViáðu wiröaliáðir HVAÐA hlutverki gegna kálhausar í kvikmyndum? Eða kókoshnetur? Plastpokar? Svörin liggja ekki í augum uppi en þau heyrast hins vegar á hljóð- rás myndanna. Frekari upplýsingar eru í grein Sigurbjörns Aðalsteinsson- ar leikstjóra og hand- ritshöfundar. íslensku kvikmyndirnar í Berlín Aldrei betri ÍSLENSKU bíómyndirnar sem sýndar hafa verið á kvikmyndahátíð- inni í Berlín, sem nú stendur yfír, hafa hlotið meiri athygli og betri við- tökur en áður hefur gerst, að sögn Þorfinns Ómarssonar, framkvæmda- stjóra Kvikmyndasjóðs. „Myrkrahöfðinginn hefur fengið prýðis viðtökur í Panoramahluta há- tíðarinnar og fengið bíódreifingu í Bandaríkjunum, og Englar alheims- ins, Fíaskó og 101 Reykjavík vakið athygli á öðrum sýningum," segir Þorfínnur. „Hátíðir á borð við Tor- onto, Moskvu, Karlovyvary o.fl. hafa sýnt þessum myndum áhuga en yfir þau mál verður farið þegar heim er komið. Þá þurfum við að undirbúa þátttöku okkar í Canneshátiðinni í maí sem einnig verður viðameiri en áður, enda hefur gróskan í íslenskri kvikmyndagerð vakið slíka athygli að kvikmyndablaðið Variety hefur lýst áhuga á að fjalla um hana í sérút- gáfu fyrir Cannes. Ekki sakar að al- þjóðlegar stjörnm- tengjast myndun- um eins og Vlctoria Abril, sem leikur í 101 Reykjavík, og svo auðvitað Björk Guðmundsdóttir, sem semur tónlist- ina og leikur í Dancer In The Dark eftir Lars von Trier en íslendingar eru meðframleiðendur að henni.“ Kosinn í stjóm EFP Þorfínnur Ómarsson var á þriðju- dag kosinn í fimm manna stjórn Eur- opean Film Promotion á aðalfundi samtakanna í Berlín en aðild að þeim eiga um 20 kvikmyndastofnanir í Evrópu. EFP stóð fyrir leikai-akynn- ingunni Shooting Stars í Berlín og mun kynna unga evrópska framleið- endur á Canneshátíðinni í maí. Frek- ara kynningarstarf stendur svo fyrir dyi'um á fleiri hátíðum síðar á áiinu. Meira frá Berlín í Bíóblaðinu í dag greinir Pétur Blöndal frá þeim erlendu myndum sem mesta athygli vekja á Berlínar- hátíðinni en henni lýkur á sunnudag með verðlaunaathöfn. /4 Emily Watson í hlutverki sínu í Metr- oland: Lenti beint á myndbandi. Myndbönd fóðruð f rá Hollywood ÝMSAJt merkar bíómyndir hljóta þau örlög að komast aldrei upp á sýningartjöld bióanna hérlendis, heldur lenda beint á myndböndum. En hver er ástæðan? Sæbjörn Valdi- marsson skoðaði málið og komst að þvi að í fæstum tilfellum sé um að ræða geðþóttaákvörðun íslenska umboðsaðilans. Akvörðunin sé tekin í Hollywood. /9 Sérstök fegurðar- samkeppni • Háskólabíó frumsýnir núna um helgina gamanmyndina „Drop Dead Gorgeous “eftir Mlchael Patrick Jann en nokkrar þekktar leikkonur fara með aðal- hlutverkin í henni eins og KirstieAII- ey, Ellen Barkin ogKirsten Dunst. Myndin gerist í dæmigerðum amer- ískum smábæ og segir af fegurðar- samkeppni sem þarferfram oger öllum meðulum beitt. Kóngar i fjórum bíóum • Bíóhöllin, Kringlubíó, Stjörnubíó og Nýja bíó Akureyri frumsýna banda- rísku ævintýramyndina Þrjá kónga með þeim George Clooney, Mark Wahlberg og lce Cubeí aðal- hlutverkum. Hún gerist í Flóabardaga og segir af því þegar þrír bandarískir hermenn komast að því hvar Sadd- am Hussein geymir gulliö sitt í írak. Væntanlegt Magnolia eftir P. T. Anderson # Hinn 25. febrúar mun Laugarásbfó frumsýna nýjustu mynd hins unga bandaríska leikstjóra Paul Thomas Andersons, sem gerði „Boogie Nights“. Nýja myndin, „Magnolia", er með mörgum af leikurum fyrri mynd- arinnar auk Tom Cruise, sem óskaði sérstaklega eftir því að fá að leika í myndinni en henni er lýst sem mósa- íkmynd um amerískt fjölskyldulíf. Anna og kóngurinn e Sambfóin og Háskólabíó frumsýna ævintýramyndina Anna og kónginn en frægur söngleikur með Yul Brynner var gerður eftir sömu sögu á árum áður. Með aöal- hlutverkin fara Jodie Foster og Chow Yun Fat og segir myndin af því þegar ung bresk kennslukona kemurtil hins forna veldis Sfams á síðustu öld að veita börnum kon- ungsins vestræna þekkingu og brátt laðast hún að kónginum og öfugt. Framtiðar- maður i Stjörnubíói e Ævintýramyndin Framtíöarmaður- inn verður sýnd í Stjörnubíói og Sambfóunum en hún er með Robin Williams í aðal- hlutverki. Hann leik- ur háþróað vél- menni f næstu framtfð er starfar sem þjónn á venju- legu bandarísku heimili en þráir að verða bara venju- legur maður. Leikstjóri er Chris Col- umbus sem áður stýrði Williams \ gamanmyndinni „Mrs. Doubtfire“. NÝTT f BIÓ Ripley fer til italíu e Ný mynd leikstjórans Anthony Minghellas, „ The Talented Mr. Ripl- ey“, veröurfrumsýnd í Regnbogan- um, Sambíóunum Álfabakka og Borgarbíói Akureyri en hún er gerð eftir spennusögu Patriciu Highsmith og segir af því þegar Ripley er sendur til Ítalíu aðfá son iðjuhöldartil þess að snúa afturtil Bandaríkjanna. Það fer þó á annan veg þegar Ripley tek- ur að þrá hið Ijúfa líf milljónamæring- anna. LEIKARAR í kvikmyndum eru yfirleitt sýnilegir en það gildir þó ekki um teikni- myndir. Til þeirra leggja leikaramir að- eins raddir sínar. Felix Bergsson er einn afkastamesti talsetningarleikari okkar og sest nú í sæti Toms Hanks í Leikfanga- sögu2. í JANÚAR á hverju ári flykkjast fulltrúar banda- rísks kvikmyndaiðnaðar til Sundanee. Þar er, eða á að vera, helsti vettvangur sjálfstæðra kvikmynda- gerðarmanna sem starfa utan Hollywood-kerfis- ins. Bandaríski framleiðandinn Jim Stark, skrifar grein um Sundance fyrir Bíóblaðið og segir að það sé einmitt Hollywood-veldið sem njóti góðs af hátíðinni. Nýtt bíó í Smáralind í verslunarmið- stöðinni Smára- lind, sem ráð- gert er að opn- uð verði í októ- ber árið 2001, verður nýtt kvikmyndahús sem Skífan mun reisa. Að sögn Björns Sigurðssonar hjá kvikmyndadeild Skífunnar, sem einnig rekur Regnbogann í Reykjavík og Borgarbíó á Akureyri í samstarfi við Laugarásbíó, Háskólabíó og Stjörnubíó, verður nýja bíóið með fimm fullkomn- um sýningarsölum fyrir alls um 1100-1300 manns. Bíóið verður staðsett í Vetrargarðinum, afþreying- arsvæði Smáralindar í suðurhluta samstæðunnar. Hér sést hvernig bíóið gæti litið út í Vetrargarðin- um. Sannleikurinn um Sundance

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.