Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ BIOF I I Betra Fíi iTTf iiil w F1 I I I VI ÍkJkJCJl I Bullworth, gerö og leikin af Warr- en Beatty, AptPupil, nýjasta mynd Bryans Singer, og verölaunamyndin Gods and Monsters, - hvaö eiga þær sameiginlegt annaö en aö vera vandað ar og forvitnilegar? spyr Sæbjörn Valdimarsson. Ur Bulworth, (’98), nýjustu mynd leikarans og leikstjórans Warrens Beatty: Rammpólitísk, óvenjuleg, metnaðarfull ádeila, sem kom út á myndbandi hérlendis íhaust. JÚ, þær fengu ekki að reyna sig á hefðbundinn hátt, í myrkvuð- um sölum kvikmyndahúsanna, heldur lentu í „óæðri flokkn- um“. Fóru umsvifalaust á myndbandið. Slík afgreiðsla gerist sí- fellt algengari, skrifar. Flestir skella skuldinni á umboðsaðilann eða kvik- myndahúsin, sem er harla ósanngjamt. I fæstum tilfellum eru þessi dapurlegu örlög ekki geðþóttaákvarðanir íslenska umboðsaðilans heldur koma þær beint frá Hollywood. Ef myndir bregðast á heimamarkaðnum eru risarnir tregir til að hætta meira fé, spara þann mikla kostnað sem fylgir dreifingu í Evrópu og á alþjóðamarkaðnum. Lítum nánar á kostnaðarhliðina: I fyrsta lagi kostar sýningareintakið stórfé, textunin sömuleiðis og síðast en ekki síst auglýs- ingaherferðin. Sem felst einkum í hvers konar auglýsingaefni, tímum í ljósvakamiðlum, dálksentimetnim í blöðum. Þessi útgjöld greiðir fram- leiðandinn til að byija með, honum er síðan skipt eftir ákveðnum reglum ef myndimar sýna hagnað (sem flestar gera, sem sleppa í gegnum nálaraug- að). Þama þarf kvikmyndaverið sem- sagt að leggja fram umtalsvert áhættu- fé - sem því þykir sjálfsagt ekki álitlegur kostur eftir að myndin hefur ekki staðist væntingai- heima fyrir. Myndir, sem allir hafa trú á, fæðast andvana á meðan aðrar, sem fyrirfram eru taldar litlu skipta, slá í gegn. íslenskir dreifingaraðilar ákveða sýningarferlið í stöku tilfellum sjálfir, þá einkum minni mynda sem þeir flytja inn á eigin vegum og era á „gráu svæði“, miðað við aðsóknartölur er- lendis frá. Sú var t.d. raunin með Gods and Monsters, eina bestu mynd sem undirr. hefur séð uppá síðkastið. Fleira kemur tíL Karl Dúi Karlsson hjá Skíf- unni, telur að breyttar frumsýningar- hefðir stuðli að þróuninni. Nú, þegar sama myndin er frumsýnd í mörgum kvikmyndahúsum samtímis, gerist það óhjákvæmilega að titlum bíómynda hefur fækkað á ársgrundvelli. Áherslan lögð á myndir sem em vænlegastar til að skila hagnaði. Þá hafi það margsýnt sig að myndir ætlaðar hömndsdökkum (líkt og hin vinsæla Waiting to Exhale), eiga lítið erindi á ísakalt land hvítra, engilsaxneskra mótmælenda. Markaðsstjóri Háskólabíós, Ægir Dagsson, segir að þessi veigamiklu mörk liggi nálægt 3000 áhorfendum. „Listrænar myndir" nái sjaldan þeim árangri. Til dæmis var Einfóld ráða- gerð - A Simple Plan, ein af 10 bestu myndum ársins 1999 að mati allra þriggja kvikmyndagagnrýnenda Morgunblaðsins, víðs fjarri þessari tölu. Sama máli gegndi um Kosningar -Election, aðra gæðamynd sem bíóið tók til sýninga; afraksturinn svipaður; 15-1600 manns. Hvað er til ráða? DVD-tæknin skilar myndinni í fullri stærð til áhorfandans, en slík tæki era fjarri því að vera komin í almenningseign, það breytist þó vafa- laust á næstu ámm. Því virðist sem neytendur (á meðan þeir sýna ekki þessum gæðamyndum meiri áhuga), þurfi enn um sinn að nota myndbands- tæknina, með þeim vanköntum sem henni fylgja (ramminn klipptur á alla kanta). Ægir bendir á að Háskólabíó (og reyndar fleiri kvikmyndahús), hafi sett upp kvikmyndavikur með gæðamynd- um sem ella hefðu farið beint á bandið. Sá böggull fylgir skammrifi að mynd- imar em að sjálfsögðu ótextaðar. En áhugafólk fær gullið tækifæri til að sjá verkin óspjölluð, í sínu eina, rétta um- hverfi. FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 C 9 NOKKRAR BEINT A MYNDBAND 1999 Among Giants: Pete Postlethwait, Rachel Griffith The Governess: Minnie Driver, Tom Wilkinson Hurlyburly: Sean Penn, Kevin Spacey Metroland: Emily Watson In Dreams: Annette Bening. Leikstj. NeilJordan Ravenous: Robert Carlyle How Stella Got Her Groove Back: Angela Bassett, Whoopi Goldberg No Looking Back: Edward Burns, Jon Bon Jovi A Cool Dry Place: Vince Vaughn Slums Of Beverly Hills: Alan Arkin Palmetto; Woody Harrelson, Elizabeth Shue. Leikstj. Volker Schlöndorff Zero Effect: 8/7/ Pullman The Red Violin: Samuel L. Jackson The Truce. John Turturro. Leikstj. Francesco Rosi) This Is My FatherfAidan Quinn, John Cusack, James Caan. D TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA BESTA MYNDIN besti leikari í aðalhlutverki, Kevin Spacey - besta leikkona í aöalhlutverki, Annette Bening - - besta kvikmyndataka - besta leikstjórn - besta klipping - - besta tónlist - besta upþrunalegt handrit - „Eg tuuit hvermr sekúndu" ÓIT Hausverk .Kívtipavín og kavíar fyrir snlino" Á.S. Dv „Kómískt jnmga- vigtarstykki... Yndislegur leikur' A.I. Mbl O.H.T. Rás 2 K.B. Dagur 1O BESTU KVIKMYNDIR SÖGUNNAR i. The Godfarfver - 1972 3 The Showsbanh Redernphon 199/5 4. Schindler's Lisf 1993 5. Casablanco - 194/ 6. Citízen Kane - 1941 7. StorWars- 1977 8. The Godfcther; Port II 1974 9. One jriew 0*/er the Cuchoc's Nest 1975 10. Dr. Sfrangeíove or How i leorned to Stop Worrying cnd Love the Bomb • 1964 GOLDEN GLOBEVERÐLAUN C BESTA MYNDIN BESTILEIKSTJÓRI BESTA HA.MDRIT KEVIN SPACEY ANNETTE BENING AMERICAN BEAUTY ...líttu nær AMERISK FEGURÐ DREAMW0RK5 PICTURESpresenis a JINKS/COHEN COMPANY proouction KEVIN SPACEY ANNETTE BENiNG "AMERICAN BEAUTY" THORA BIRCH ALLISON JANNEY PETERGALLAGHER MENASUVARI WES BENTLEYahd CHRIS COOPER “SfTHOMAS NEWMAN BRUCE COHEM & DAN JINKS WR,,TKAIAN BALLWRfC1í?SAM MENDES /dd/ INlfRNAUONAt ' C) «>1<« VMVViHLKS 11 PtCTURtS PICfURES vucixjnicjs YFIR 17.000 MANNS A ISLANDI SYND I HASKOLABÍOI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.