Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 1
1
jttTSTrf W
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
2000
■ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS
BLAÐ
Guðrún
hættir
eftir ÓL
í Sydney
GUÐRÚN Arnardóttir, grindahlaupari úr Ármanni, hefur ákveðið
að Ólympíuleikarnir í Sydney í haust verði hennar síðasta stór-
mót og þar með Ijúki ferli hennar sem atvinnumaður í íþróttum.
„Ég held áfram að æfa og keppi væntanlega eitthvað, ég hætti
því kannski ekki alveg strax, en eftir Ólympíuleikana verður al-
vöruferli mínum lokið, þá er þessum kafla í lífi mínu lokið og við
taka önnur verkefni,“ sagði Guðrún eftir að Stórmóti ÍR lauk í
Laugardalshöll á sunnudagskvöldið.
Núna var ég að ljúka mínu síðasta
innanhússkeppnistímabili og
því var gaman að geta staðið sig
vel,“ sagði Guðrún ennfremur.
Guðrún sagði nokkuð um liðið síð-
an hún tók þessa ákvörðun og henni
verði ekki breytt. „Það eru að
minnsta kosti tvö ár síðan ég ákvað
að Ólympíuleikarnir í Sydney yrðu
endapunkturinn. Þetta er einfald-
lega orðið gott. Þess vegna er mjög
mikilvægt að mér gangi sem best á
Ólympíuleikunum til þess að enda-
Þórður
sagði af sér
ÞÓRÐUR Lárusson lét í
gær af störfum að eigin
ósk sem landsliðsþjálfari
íslenska kvennalandslið-
sins í knattspyrnu. Hópur
innan kvennalandsliðsins
hótaði því að gefa ekki
kost á sér ef Þórður yrði
áfram þjálfari liðsins.
Þórður ákvað því að láta
af störfum, en hann mun
starfa áfram fyrir Knatt-
spyrnusamband íslands og
hefur tekið að sér verkefni
á vettvangi hæfileikamót-
unar sambandsins, að því
er fram kemur í fréttatil-
kynningu. Eggert Magnús-
son, formaður KSÍ, sagði
að nýr landsliðsþjálfari
yrði ráðinn á næstu dög-
um.
lokin verði sem best. Þegar ég gerði
samninginn við Afreksmannasjóð
fyrir nærri fjórum árum var ákveðið
að hann gilti fram yfir Ólympíuleik-
ana í Sydney og að því yrði stefnt að
ég kæmist í átta manna úrslit í 400
metra grindahlaupi. Nú er þessi tími
að renna upp og ég vonast svo sann-
arlega til að geta staðið við minn
hluta samningsins, það er að komast
í hóp þeirra átta sem hlaupa til úr-
slita. Eftir það verður nóg komið.“
Guðrún sagðist ekkert sjá því til
fyrirstöðu að hún komist í úrslit á
Olympíuleikunum sem fram fara
síðari hluta september. „Ég legg allt
í sölurnar til þess að það takist og
möguleikar mínir eru jafngóðir og
annarra."
Guðrún varð í 10. sæti í 400 m
grindahlaupi á síðustu ÓL sem er
besti árangur sem íslensk frjáls-
íþróttakona hefur náð. Takist henni
að láta draum sinn og fleiri rætast
mun hún því brjóta blað í sögu ís-
lenskra íþróttakvenna.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðrún Arnardóttir fagnar sigri og íslandsmeti í 50 m grinda-
hiaupi. Á myndinni er einnig Susanna Kallur.
Vala fékk bílinn
FYRIR Stórmót ÍR hafði Leppin-umboðið heitið á Völu Flosadóttur
að það myndi gefa hcnni nýja bifreið setti hún Evrópumet á mótinu.
Billinn stóð á gólfi Laugardalshallarinnar meðan mótið fór fram, en
Völu tókst ekki að setja Evrópmetið. Héldu því flestir að þar með
væri bifreiðin henni gengin úr greipum. Svo var ekki, a.m.k. að
ákveðnu leyti því í mótslok var tilkynnt að Leppin-umboðið hefði
ákveðið að Vala hefði bifreiðina til afnota þegar hún væri hér á landi.
Var þetta ákveðið í tilefni þess að tvö ár eru liðin síðan samstarf Völu
og umboðsins hófst. Fékk Vala því lykla bifreiðarinnar afhenta en
ekki varð þess vart að hún æki í henni frá Höllinni að þessu sinni.
Þorbjöm valdi fjóra nýja
ÞORBJÖRN Jensson, þjálfari ís-
lenska landsliðsins í handknattleik,
valdi fjóra nýja leikmenn í lands-
liðshópinn fyrir landsleiki gegn
Svíum 9. og 10. mars, en leikirnir
fara fram í Svíþjóð. Leikmennirnir
eru: Arnar Pétursson, Stjörnunni,
Guðfinnur Kristmannsson, IBV,
Gunnar Berg Viktorsson, Fram,
Ragnar Óskarsson, ÍR. Þessir
leikmenn léku ekki með landslið-
inu er það lék síðast á Evrópumót-
inu í Króatíu.
Landsliðshópurinn er þannig
skipaður: Markverðir: Guðmundur
Hrafnkelsson, Nordhorn. Sebasti-
an Alexandersson, Fram.
Aðrir leikmenn: Guðjón Valur
Sigurðsson, KA. Valdimar Gríms-
son, Wuppertal. Njörður Árnason,
Fram. Magnús Már Þórðarson,
UMFA. Róbert Sighvatsson, Dor-
magen. Dagur Sigurðsson, Wupp-
ertal. Róbert Julian Duranona,
Eisenach. Ai-nar Pétursson,
Stjörnunni. Guðfinnur Krist-
mannsson, ÍBV. Gunnar Berg
Viktorsson, Fram. Ragnar Óskar-
sson, ÍR. Ólafur Stefánsson, Mag-
deburg.
VIÐTAL VIÐ HERMANN HREIÐARSSON / B2, B3, B4, B5
INTER
INTER
INTER
INTER
INTER
BfÍdslVðtöa 20 * i M fteykjávik
■ ‘.io * wwyv i•'i-1’>'11 \\