Morgunblaðið - 03.05.2000, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 E 23
..
<©41^
TÖLVUTEIKNUÐ þrívíddarmynd af skipulagssvæðinu, eins og það horfir við á hægri hönd, þegar ekið er
norður Reykjanesbraut. Neðst til hægri eru lóðir fyrir verzlunar- og þjónustubyggingar. Rauði hringurinn til
vinstri á teikningunni sýnir alhliða íþróttavöll.
Morgunblaðið/Golli
Þórarinn Þórarinsson arkitekt, höfundur skipulagsins í Suður-Mjódd.
Mynd þessi er tekin á svölum félagsheimilis ÍR í Suður-Mjódd.
svæðisins. Gert er ráð fyrir, að bíl-
astæðin geti jafnframt þjónað sem
malbikaðir íþróttavellir fyrir tenn-
is o.fl.
Nýtt
íþróttahús?
A núverandi byggingarreit fyrir
vestan ÍR-húsið er gert ráð fyrir
lóðum fyrir íþróttahús og tengda
stayfsemi.
Á núverandi malarvelli komi
byggingarreitur, hugsanlega fyrir
stórt íþróttahús. Gert er ráð fyrir,
að slíkt hús verði niðurgraflð að
hluta til að minnka umfang þess.
„Stækkunin á íþrótta- og úti-
vistarsvæðinu er í samræmi við
þær hugmyndir, sem urðu til í
upphafi fyrir þetta svæði,“ segir
Þórarinn. „Möguleikarnir verða
fjölbreyttari. Þarna verði bæði
íþróttavellir, skokkbrautir og al-
menn útivistarsvæði. Áherzla verð-
ur lögð á tengsl við Seljahverfið.
Á svæðinu verður líka meiri og
betri aðstaða fyrir boltaíþróttir og
frjálsar íþróttir. Sá möguleiki að
byggja stórt fjölnota íþróttahús á
núverandi malarvelli skiptir líka
máli. En húsið má ekki verða of
hátt gagnvart öðrum húsum í ná-
grenninu og því þyrfti það að vera
aðeins niðurgrafið.“
Syðst og vestast á svæðinu eru
hólar, sem eru alláberandi. Lagt er
til, að þar verði grænt svæði og al-
mennt útivistarsvæði, en hólarnir
endurmótaðir. Tjörnin nyrzt á
svæðinu yrði mótuð að nýju og
gróðursett í kringum hana. Hún
yrði hluti af útivistarsvæðinu.
Lóðir fyrir
atvinnuhúsnæði
Ein aðalbreytingin samkvæmt
skipulagstillögunni felst í því, að
gert er ráð fyrir lóðum fyrir verzl-
un, þjónustu og skylda starfsemi
vestast á svæðinu næst Reykjan-
esbraut. Aðkoma verði frá tengi-
brautinni, sem koma á sem fram-
hald af Álfabakka og tengja saman
byggðina í Reykjavík og Kópavogi.
„Lóðarstærðir á þessu svæði
verða sveigjanlegar eftir óskum
umsækjenda og svæðið hefur þann
stóra kost, að það gæti tengzt
Smárahverfinu í Kópavogi um und-
irgöng auk þess sem það liggur í
þjóðbraut með tilliti til Reykjan-
esbrautar,“ segir Þórarinn Þórar-
insson.
Þess yrði gætt, að húsin yrðu
ekki of há, til þess að þau tækju
ekki útsýnið frá íbúðarhúsunum í
hverfinu fyrir ofan svæðið. Vænt-
anlega yrðu húsin ein til tvær hæð-
ir en gætu orðið hærri að hluta.
Þórarinn kvaðst eiga von á mik-
illi ásókn í þessar lóðir vegna legu
þeirra. „Það er samt ekkert
hægt að segja um að svo komnu,
hvenær þær verða hæfar til út-
hlutunar og gerðar byggingarhæf-
ar,“ sagði hann að lokum.
„Fyrst verður landmótunin á
þessu svæði að eiga sér stað. Hól-
arnir verða endurmótaðir og þeir
munu mynda eins konar skjólgarð
milli þessa nýja verzlunar- og
þjónustusvæðis annars vegar og
hins vegar íbúðarhúsanna í Selja-
hverfi í brekkunum fyrir ofan
skipulagssvæðið.
þær vonir sem við hana voru bundn-
ar. Stundum virkar hún alls ekki.
Og hvers vegna skyldi það vera?
Vegna þess að þar hefur verið kast-
að til höndum og „hent niður slöhg-
um“ - frasi sem oft heyrist slegið
fram af einhverjum úr hópi þeirra
spekinga sem vaðið hafa út í að ger-
ast verktakar og leggja snjóbræðsl-
ur án nokkurrar þekkingar á eðli
þess kerfis eða öðrum þeim þáttum
sem skera úr um hvort vel tekst til
eða ekki.
Mikilvæg atriði
Það er sjálfsagt að gera nokkra
grein fyrir þeim höfuðatriðum sem
verða að vera í lagi ef snjóbræðsl-
ukerfið á að gegna hlutverki sínu.
Fyrst af öllu skulum við þó gera
okkur grein fyrir því að ekkert
snjóbræðslukerfi er svo öflugt að
það hafi við að bræða snjó í hvaða
veðri sem er. Slíkt kerfi er svo ork-
ufrekt að engu tali tekur, það er
eðlilegt að stundum þurfi að moka,
annaðhvort með skóflu eða vél, allt
eftir stærð og umfangi.
í blindbyl, ofankomu og hífandi
roki er kæling og snjósöfnun slík að
ekki er möguleiki að snjóbræðsluk-
erfi hafi við að bræða.
En við mokstur eftir áhlaupið
kemur í ljós að enginn snjór er fros-
inn við flötinn, þar er bræðsla í
gangi og planið verður autt og tand-
urhreint.
En það var ætlunin að fjalla um
minni snjóbræðslukerfin, þau
stærri eru yfirleitt hönnuð af hæf-
um mönnum og einnig lögð af hæf-
um mönnum.
En þau minni eru mjög oft ekki
teiknuð, ekki sett strik á blað og
mjög oft lögð af mönnum sem vita
ekkert hvað þeir eru að gera og við
skulum bara leyfa okkur að kalla þá
fúskara.
Sá sem leggur snjóbræðslukerfi á
einnig að geta teiknað kerfið, það
sýnir að hann skilur lögmálin. Hann
á að geta lagt mat á það hve mikið
vatnsmagn og varma hitakerfi
hússins gefur af sér til snjóbræðslu.
Ut frá því getur hann metið hve
stór svæði hægt er að leggja snjó-
bræðslu í ef einungis á að nýta af-
rennslisvatnið.
Og ef það er einlæg ósk húseig-
anda að leggja í heldur stærra
svæði á sá sem leggur að geta
reiknað út hve mikið þarf að bæta
við af beinu rennsli, en það kostar
peninga. Afrennslið af hitakerfinu
kostar ekkert og það er öllum
frjálst að nýta sér eins og hægt er.
Sá sem leggur á einnig að geta
reiknað út hve margar slöngurnar
þurfa að vera, ef um lítið kerfi við
stórt hús er að ræða. Það verður að
tryggja að flutningsgeta snjó-
bræðslukerfisins á afrennslisvatni
hússins sé nægilega mikil. Snjó-
bræðslukerfið má ekki hindra að
hitakerfi hússins vinni eðlilega.
Dýpt og lega
Eitt mikilvægasta atriðið er dýpt
röranna, ekki síst undir hellum, og
það er alltof algengt að rörin séu of
djúpt við þær aðstæður. Einnig er
millibil mikilvægt og hvernig rörum
er fléttað saman því það verður að
tryggja að bræðslugeta sé næstum
sú sama hvarvetna á svæðinu.
Það gilda önnur lögmál ef lagt er
undir eða í steypt plan eða undir
malbik. Allt þarf að taka með í
reikninginn strax í upphafi.
Ef einhver segir þér að þú eigir
að setja millihitara og frostlög á
kerfið skaltu segja honum að kasta
sínum eigin peningum út um glugg-
ann, því það er ótrúlegt hvað svo
einfeldningsleg fyrirmæli, sem virð-
ast sett fram í bestu meiningu, auka
útgjöldin og það algjörlega að
óþörfu.
Nýjar og
gamlar tröppur
Það eru engar tæknilegar hindr-
anir í því að leggja snjóbræðslu í
hvort sem er nýjar eða gamlar
tröppur. Séu þær nýjar verður
lögnin að koma í réttri röð; áður en
táborðin eru sett í uppsláttinn.
Ef tröppurnar eru gamlar brýt-
urðu þær burt og eftir er tröppu-
bakið. Þar eru járnin og burðurinn,
en engu því viðkomandi hefur verið
raskað.
Og til er þjóðráð sem gerir þér
kleyft að fá snjóbræðslu í tröppurn-
ar án þess að henda peningum í
millihitara og frostlög og þó mun
það engum skaða valda þó í snjó-
bræðslukerfinu frjósi.
Inni þarf að tengja á réttan hátt.
Sérstaklega þarf að taka tillit til
þrýstijafnarans, hvernig þreifirör
hans eru tengd og ekki síður hvern-
ig þreifirör slaufulokans er tengt.
Það er margt að athuga, en samt
engin ástæða til að missa móðinn.
Tvöfaldir efri skápar
Það eru ekki oft tvöfaldir efri skápar í eldhúsum nútímans, en það getur
verið sniðugt eins og hér má sjá.
Bylgju-
hillur
Þessar hillur eru mjög
sérkennilegar, allar í
bylgjum og borðið er líka
allt í bylgjum, það er
hannað af Ron Arad og
hann er höfundur bylgju-
hillunnar líka, hún er
raunar hans þekktasta
verk.
(ol fol (ol
H I B Y L I
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK • VEFFANG HIBYLI@HIBYLI.IS
SÍMI 585 8800 • FAX 585 8808
Ólafur Stefánsson, viðskiptafræðingur og
löggiltur fasteignasali,
Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali.
Verðmetum eignlna þína samdægurs
þér að kostnaðarlausu. tr
Traust og áreiðanleg pjónusta.
Sólvallagata 29 - OPIÐ HUS
Mjög falleg 104 fm íbúð á 2. ha íbúðin er mikið endumýjuð m.a. Suðursvalir. Áhv. 1,8 millj. byggsj. til viðbóðtar byggsj. Laus strax. V sýnir íbúðina í dag, miðvikudag, eð fjórbhúsi. 3 svefnherb. 2 stofur. baðherb. Parket og flísar á gólfum. Hægt að taka allt að 6 millj. húsbréf srð 11,9 millj. Góð staðsetning. Ólöf milli kl. 17 og 21.
Sérbýli
Háalind - Kóp. Skemmtilegt
177 fm tvílyft parhús auk 30 fm bílsk.
Afh. fokh. að innan, fullb. utan fljótl.
Verð 14,0 millj.
Miðbærinn Virðuleg 6 herb. 160
fm íb. á 2. hæð í góðu steinhúsi.
Saml. stofur, 4 svefnherb. Gæti
einnig hentað undir skrifstofur.
Útsýni yfir sundin. Laus 01.07. nk.
Verð 14,5 millj.
Sogavegur Gott 128 fm parhús,
hæð og ris. Góð stofa, parket. 3 svefn-
herb. 17 fm skúr á lóð. Byggleyfi fyrir 45
fm skúr. Áhv. 6 millj. húsbréf.
4ra-7 herb.
Bugðulækur Falleg 121 fm
hæð (efsta) í fjórbhúsi. Saml. stofur,
3-4 svefnherb. Þvottahús í íb.
Tvennar svalir. Hús (góðu standi.
Grenimelur
---------—-----:-----
Falleg 4ra herb. neðri sérhæð í þríbhúsi.
Saml. stofur, 2 svefnh. Parket. Eikarinnr.
Suðursvalir. Gróinn garður. Fábær stað-
setning. Verð 12 millj.
3ja herb.
Glaðheimar vorum að fá í söiu
fallega 86 fm íb. á jarðhæð. 2 góð
svefnherb. íbúðin er mikið endur-
nýjuð. 27 fm bílskúr. Áhv. 4,7 millj.
húsbréf. Verð 12.0 millj. Skipti á
ódýrari fbúð.
2ja herb.
Gamli vesturbærinn góö 56
fm . (b. á 1. hæð í þríbhúsi. Nýleg
eldhúsinnr. Nýi. gler o.fl. Áhv. 4 millj.
langtímalán. Verð 6,9 millj.
Vesturborgin Björt og falleg 2ja
herb. íbúð á 4. hæð i nýlegu fjölbhúsi.
Parket. Tvennar svalir. Stórkostlegt
útsýni. Stórt stæði í bílhýsi. Áhv. 3,7
millj. húsbréf. Laus strax.
Lindargata Lftil 2ja herb. samþ.
íbúð á 1. hæð. Parket. Sérinng. Hús í
góðu standi. Verð 4,2 millj.