Morgunblaðið - 02.07.2000, Side 2
2 E SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000
.^ORGIJNBLAÐIÐ
Grunnskólinn í Hveragerdi
Aðstoðarskólastjóri
Staða aðstoðarskólastjóra við Grunnskólann í Hveragerði er laus til umsóknar.
Kennarastöður
Stöður kennara yngri barna við Grunnskólann í Hveragerði eru lausartil umsóknar.
í gildi eru sérkjarasamningar fyrir kennara skólans. Skólinn fær styrk úr
Þróunarsjóði grunnskóla í verkefnið „Græn vinátta", sem byggir m.a. á
öflugu samstarfi við Garðyrkjuskóla ríkisins, foreldra o.fl. í umhverfismál-
um og fræðslu á því sviði.
Mikil uppbygging á sér stað í tölvu- og upplýsingatækni og gott samstarf er
við tónlistarskólann sem er til húsa í grunnskólanum.
Unnið er samkvæmt umbótaáætlun sem er ætlað að bæta menntun og
skerpa á framtíðarsýn í skólamálum í Hveragerði.
Starfsandi í skólanum er mjög góður og við bjóðum skemmtilegt, metnað-
arfullt og hæfileikaríkt fólk velkomið í hópinn.
í grunnskólanum eru liðlega 360 nemendur í 1.-10. bekk. í bæjarfélaginu eru
tveir leikskólar, tónlistarskóli, bókasafn, félagsmiðstöð, íþróttahús og sund-
laug.
Hér er rekið öflugt æskulýðs- og íþróttastarf. í bæjarstjórn er ríkjandi já-
kvætt og metnaðarfullt viðhorf til skólamála.
Frekari upplýsingar veitir Guðjón Sigurðsson, skólastjóri, í símum
vs. 483 4350 og hs. 483 4950.
Umsóknir skulu sendar Grunnskólanum í Hveragerði, Skólamörk 6, 810 Hvera-
gerði, merktar: „Aðstoðarskólastjóri".
Netfang: grhver@ismennt.is
Vefslóð: http://hveragerdi.ismennt.is
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
: .
íþrótta- og tómstundafulHrúi
Starf íþrótta- og tómstundafulltrúa hjá Hveragerðisbæ er laust til umsóknar.
Starf íþrótta- og tómstundafulltrúa er ný staða hjá Hveragerðisbæ. íþrótta- og
tómstundafulltrúi annast m.a. og ber ábyrgð á rekstri félagsmiðstöðvar, íþrótta-
mannvirkja og annars íþrótta- og tómstundastarfs á vegum Hveragerðisbæjar.
Hann hefur mikil tengsl og samstarf við frjáls félagasamtök í bæjarfélaginu í
þessum málaflokki.
Frekari upplýsingar veitir bæjarstjórinn í Hveragerði, Hálfdán Kristjánsson, vs.
483-4000, GSM 893-4073 eða á skrifstofunni.
Umsóknarfrestur ertil 1. júní 2000.
Umsóknir skulu sendar bæjarstjóra Hveragerðisbæjar, Hverahlíð 24, 810 Hvera-
gerði merktar: „íþrótta- og tómstundafulltrúi".
Einnig má senda umsóknir á netfang hkr@hveragerdi.is
Vefslóð: http://hveragerdi.is
Félagsmálastjóri
Starf félagsmálastjóra hjá Hveragerðisbæ er laust til umsóknar.
Frekari upplýsingar veitir bæjarstjórinn í Hveragerði, Hálfdán Kristjánsson, vs.
483 4000, GSM 893 4073 eða á skrifstofunni.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2000.
Umsóknir skulu sendar bæjarstjóra Hveragerðisbæjar, Hverahlíð 24, 810 Hvera-
gerði merktar: „Félagsmálastjóri".
Einnig má senda umsóknir á netfang hkr@hveragerdi.is
Vefslóð: http://hveragerdi.is
s_______________________________________________________________________/
LANDSPÍTALI
hAskólasjCkrahús
Deildarlæknir
Staða deildarlæknis við göngudeild sykursjúkra
Landspítala við Hringbraut er laus til umsóknar
og veitist frá 1. september nk. til eins árs með
möguleika á framlengingu. Um er að ræða fullt
starf, en því fylgir þjálfun á sviði innkirtlafræði,
sérstaklega sykursýki, ásamt þátttöku í vísinda-
legum rannsóknum.
Nánari upplýsingar veita Ástráður B. Hreiðars-
son, yfirlæknir innkirtlafræðiskorar, netfang:
astradur@rsp.is og Ari Jóhannesson,
kennslustjóri lyflækningadeildar,
netfang: arijoh@rsp.is.
Umsóknir sendist til Ástráðs B. Hreiðarssonar.
Skrifstofustjóri
óskast nú þegar á skrifstofu hjúkrunarstjórnar
geðdeilda á Kleppi. Krafist er góðrar íslensku-
og málakunnáttu og færni á tölvu.
Menntunarkröfur stúdentspróf eða sambærileg
menntun.
Upplýsingar veita Björg Guðmundsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 560 2600/
560 1729, netfang: bjorggd@rsp.isog Sigríður
Vilhjálmsdóttir, skrifstofustjóri, sími 560 2600,
netfang: sigrv@rsp.is.
Hjúkrunarfæðingur
óskast nú þegar á næturvakt á geðdeild Land-
spítala Hringbraut. Mjög fjölþætt og áhugaverð
hjúkrun.
Upplýsingar veitir Björg Guðmundsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 560 2600/
560 1729, netfang: bjorggd@rsp.is.
Hjúkrunarfræðingar
og sjúkraliðar
óskast á hjúkrunardeild K-1 Landakoti. Unnið
er eftir skipulagsformi einstaklingshæfðrar
hjúkrunar og í teymisvinnu. Ýmsir vaktamögu-
leikar eru í boði svo og góður starfsandi.
Upplýsingar veitir Margrét Björnsdóttir,
s. hjúkrunardeildarstjóri, í síma 525 1912,
netfang: margbjo@shr.is
Hjúkrunarfræðingar
og sjúkraliðar
óskast á öldrunarlækningadeild fyrir minnis-
sjúka L-1 á Landakoti og koma ýmsir vakta-
möguleikartil greina. Unnið er eftir skipulags-
formi einstaklingshæfðrar hjúkrunar.
Upplýsingar veitir Gerður Sæmundsdóttir,
hjúkrunardeildarstjóri í síma 525 1925,
netfang: ggsaem@shr.is
Hjúkrunarfræðingar
og sjúkraliðar
óskast á nokkrar deildir öldrunarsviðs.
Á undanförnum árum hefur verið unnið að
uppbyggingu þeirrar fjölþættu starfsemi öldr-
unarsviðs, sem rekin er á Landakoti, Hringbraut
og í Fossvogi. Unnið er í teymisvinnu þar sem
samhentur hópur starfsmanna vinnur að grein-
ingu, meðferð og endurhæfingu aldraðra.
Á öldrunarsviði ríkir góður starfsandi, þar sem
áhersla er lögð á fagmennsku.
Upplýsingar veitir Ingibjörg Hjaltadóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 525 1985.
Netfang: ingihj@shr.is.
Umsóknarfrestur ofangreindra starfa er
til 17. júlí nk. nema annað sé tekið fram.
-. _ .
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra.Umsóknareyðublöð fást f upplýsingum Fossvogi
og Hringbraut, starfsmannaþjónustu Rauðarárstig 31,
starfsmannahaldi Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.landspitali.is og
á job.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.