Morgunblaðið - 02.07.2000, Side 4
4 E SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Lyfsöluleyfishafi óskasf
Hefur þú leyfi fil að selja lyf?
Lyf & heilsa er stærsta fyrirtæki landsins í rekstri
lyfjaverslana; öflugt þjónustufyrirtæki sem veitir
persónulega og faglega ráðgjöf um allt sem snertir
heilsuna. Fyrirtækið á og rekur 17 Lyf & heilsu verslanir,
þar af 10 á höfuðborgarsvæðinu. Við bjóðum upp
á spennandi vinnustað í mótun hjá fyrirtæki í fremstu
röð í nýju og síbreytilegu samkeppnisumhverfi.
Við kappkostum að vera leiðandi fyrirtæki á sviði þjónustu
og nýjunga til hagsbóta fyrir almenning í landinu. Þannig
vinnum við að því að aðstoða viðskiptavini okkar við
að öðlast betri líðan og njóta bættrar heilsu.
Vegna frábærra móttaka viðskiptavina okkar og örrar
stækkunnar fyrirtækisins viljum við bæta fleiri
starfsmönnum í góðan hóp þeirra sem fyrir eru og óskum
því eftir:
Lyfsöíul&yíishafa til að veita forstöðu nýrri og glæsilegri
lyfjaverslun okkar á Akureyri. Við leitum að einstaklingi
sem sýnirframtakssemi,frumkvæði, áreiðanleika og
ábyrgð í starfi.
Lyfjafræðingum til starfa í lyfjaverslunum okkar í
Reykjavík auk þess sem við óskum eftir lyfjafræðingi til
starfa í nýrri verslun okkar á Akureyri. Faglegur metnaður,
sjálfstæð vinnubrögð og færni í samskiptum eru skilyrði.
Við leitum að fólki í fullt starf en vinna hálfan daginn eftir
hádegi kemur einnig til greina.
Lyfjatæknum til starfa í lyfjaverslunum okkar í Reykjavík.
Faglegur metnaður, sjálfstæð vinnubrögð og færni í
samskiptum eru skiiyrði.
Umsóknir berist á skrifstofu Lyf & heilsu að Háteigsvegi
1 eða ítölvupósti með karl@hagraedi.is fyrir 12. júlí.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
m
i I I B 9 ■ 1 ■ 1 ■ i ■ isisssasnii simisiisss „1,HJF.,M.,I,III N ■ ffi i ffl lil B1 3 81 IU ffi ifi 1 S S S S S S | S 8 11 SBISSiSESSSS
Frá Háskóla íslands
Jafnréttisfulltrúi
Starf jafnréttisfulltrúa Háskóla íslands
er laust til umsóknar. Jafnréttisfulltrúi heyrir
undir rektor og hefur í umboöi hans og í sam-
starfi við jafnréttisnefnd HÍ umsjón með fram-
kvæmd jafnréttismála í Háskóla íslands.
Starfssvið jafnréttisnefndar nærtil jafnréttis-
mála í víðum skilningi. Hún leggur áherslu á
að framfylgja ákvæðum laga nr. 96/2000 um
jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og
gerir tillögur til háskólaráðs um jafnréttisstefnu
Háskólans er tekur sérstaklega mið af starfs-
semi hans. Jafnréttisfulltrúi annast daglega
framkvæmd jafnréttisstarfsins, áætlanagerð
og hefur umsjón með framkvæmd jafnréttis-
áætlunar Háskóla íslands. Hann starfar sem
sérstakur ráðgjafi um jafnréttismál innan Há-
skóla íslands.
Umsækjendur um starfið skulu hafa lokið há-
skólamenntun. Reynsla og þekking á sviði jafn-
réttismála er nauðsynleg, menntun á sviði jafn-
réttisrannsókna eða menntun með kynjafræði-
legri áherslu æskileg. Nauðsynlegt er að við-
komandi búi yfir sjálfstæði í starfi, samstarfs-
og skipulagshæfileikum.
Um hálft starf er að ræða og gert er ráð fyrir
að jafnréttisfulltrúi hefji störf þann 1. september
2000. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjár-
málaráðherra og hluteigandi stéttarfélags. Um-
sóknum skal skilað til starfsmannasviðs Háskóla
íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101
Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og með
16. júlí nk. Öllum umsóknum verður svarað
og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfs-
ins. Nánari upplýsingar veita Edda Benedikts-
dóttir, formaður jafnréttisnefndar, sími
525 4276, netfang eb@raunvis.hi.is og Lilja
Þorgeirsdóttir, starfsmannasviði, sími
525 5253, netfang, liljath@hi.is. Heimasíða
jafnréttisnefndar:
h tt p ://ww w. h i. i s/st j orn/jafnrettisn/
http://www.starf.hi.is
„Au pair", London
„Au pair" óskst til London frá 12. ágúst
til að gæta systkina, eins og þriggja ára.
Upplýsingar í síma 565 6546.
Samskipti við erlenda
háskóla og
íslenskt atvinnulíf
í Ijósi aukinna umsvifa auglýsir Háskólinn
í Reykjavík (HR) eftir verkefnastjóra sem
sinnir m.a. samstarfi við erlenda háskóla
□g samskiptum við íslenskt atvinnulíf.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið
háskólaprófi og hafa gott vald á íslensku
og ensku. Reynsla í alþjóðasamskiptum og
undirstöðukunnátta í uppbyggingu og
notkun Netsins er æskileg. Leitað er eftir
einstaklingi sem getur sýnt frumkvæði, er
vel skipulagður og á auðvelt með mannleg
samskipti.
HR er vaxandi fyrirtæki með nýsköpun,
tækniþráun og alþjóðavæðingu að leiðarljósi.
Meginhlutverk skólans er að efla sam-
keppnishæfni íslensks atvinnulífs. HR er skemmt-
ilegur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á að
hver einstaklingur fái að njóta sín.
Allar nánari upplýsingar veitir Agnar
Hansson, forseti viðskiptadeildar HR, í
síma 510 6200 eða með tölvupósti á
agnar@ru.is
Umsóknarfrestur rennur út 12. júli nk.
V
HÁSKÓLINN j REYKJAVlK
REYKJAVIK UNIVERSITY
W SUÐURVERK HF.
▼ Verktakar - vélaleiga
Jarðýtumaður óskast
Suðurverk hf. vill ráða vanan jarðýtumann.
Upplýsingar í síma 892 0067.
SIGLUFJÖRÐUR
Leikskólakennarar
Þroskaþjálfar
Tónlistarkennarar
Staða leikskólastjóra við leikskólann Leik-
skála á Siglufirði er laus til umsóknar.
Um er að ræða ársráðningu með möguleika
á lengri ráðningu.
Einnig eru lausar stöður leikskólakennara.
Leikskálar er gróinn leikskóli í nýlegu húsnæði
og þar er góður aðbúnaður. Unnið er m.a. að
gerð skólanámskrár. í skólanum eru um 100
nemendur í þremur deildum og eru 14,2 stöðu-
gildi við skólann.
Upplýsingar veitir leikskólastjóri í vinnusíma
467 1359; netfang skalar@simnet.is eða
467 1781 heima.
Staða þroskaþjálfa við grunn- og leikskóla
á Siglufirði er einnig laus til umsóknar.
Við Tónlistarskóla Siglufjarðar er laus ein staða
tónlistarkennara. Æskilegar kennslugreinar
eru: Blásturshljóðfæri, píanó og tónfræði.
í skólanum voru í vetur rúmlega 100 nemendur.
Upplýsingar veitirtónlistarskólastjóri í vinnusíma
467 1917; netfang: eliasth@ismennt.is eða
467 1224 heima.
Einnig má hafa samband við skólafulltrúa í síma
460 5600 eða netfang: skolaskr@siglo.is varðandi
þessar stöður.
Siglufjörður er 1.600 manna bær við samnefndan fjörð. Þarer öll
almenn þjónusta s.s. sjúkrahús, heilsugæsla og ýmiss konar verslan-
ir. Par er einnig veglegt síldarminjasafn, blómlegt félags- og tónlistar-
líf. Gott íþróttastarf er hér, sundlaugin er góð og nýlegt iþróttahús.
Gott skíðaland er svo og fjölbreyttar gönguleiðir.
Það er vel þess virði að kynna sér málið betur með því að hafa sam-
band við okkur.
Skólaskrifstofa Siglufjarðar.
Áman
Áman auglýsir eftir starfsmanni, eldri en 20
ára, í sölu- og lagerstarf.
Vinnutími frá kl. 10-14.
Upplýsingar gefur verslunarstjóri, í verslun
Ámunnar (ekki í síma), Skeifunni 11 d, dagana
3.-4. júlí. nk.
Umsóknum skal skilað fyrir 5. júlí nk.