Morgunblaðið - 02.07.2000, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000 E 5
EUROPAYIsland er umboðsaðili EUROCARD/MasterCard, Maestro og JCB
á íslandL Félagið hefur sett sér það markmið að verða eftirsóttasti samstarfs-
aðilinn á sviði greiðslumiðlunar og tengdrar fjármálastarfsemu
Vegna aukinna umsvifa leitum við að fólki með reynslu og menntun sem nýtist
TœknideildEUROPAYíslands. íboði er tœkifæri til að vinna ispennandi
alþjóðlegu umhverfi þar sem þróun er hröð og verkefnin margvísleg.
Tœknideildin sér um rekstur tölvu- og símkerfa EUROPAYIslands. Helstu
þœttir kerfanna eru Windows NTnet ogAS/400 umhverfi, tengd inn á alþjóðanet
Europay International og við íslenska banka- og greiðsluumhverfið.
EUROPAY ísland óskar eftir að ráða í eftirtaldar stöður:
Kerfisfræðingur - AS/400
Viðfangsefnin eru meðal annars að taka þátt í uppbyggingu og þróun AS/400 verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Tölvunarfræði, kerfisfræði eða sambærileg menntun.
• Lipurð í mannlegum samskiptum og skipulagshæfileikar.
Vefstjóri
Viðfangsefnin eru meðal annars að taka þátt í innleiðingu vefverkefna og tæknilegum lausnum í
samráði við Tæknideild.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Reynsla og kunnátta í veflausnum.
• Lipurð, þjónustulund og góðir samskipta- og skipulagshæfileikar.
Kerfisfræðingur - gagnagrunnskerfi
Viðfangsefnin eru meðal annars að vinna við skipulagningu breytinga á tölvukerfum félagsins
og þátttaka í uppbyggingu upplýsingakerfa fyrir stjórnendur.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Tölvunarfræði, kerfisfræði eða sambærileg menntun.
• Reynsla af gagnagrunnskerfum nauðsynleg.
• Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar.
í boði eru góð störf í góðu umhverfi.
Nánari upplýsingar veita Borgar Ævar Axelsson og Herdís Rán Magnúsdóttir
hjá Ráðgarði frá kl. 10-12 í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið umsóknirtil Ráðgarðs fyrir 12. júlí n.k. merktar:
„EUROPAY ísland" og viðeigandi starfi
EUROCARD
MasterCarú.
Starf f marlcaðsdeilcl
Morgunblaðið leitar að kröftugum starfsmanni í markaðsdeild,
einhverjum sem hefur gaman af að vera í lifandi umhverfi og takast
á við ný verkefni. Leitað er að reyklausum einstaklingi sem getur
hafiö störf sem allra fyrst.
Starfssviö:
« Umsjón með markpóstsútsendingum og
auglýsingabirtingum.
• Samskipti viö þjónustuaðila.
• Skipulagning einstakra viðburða og
heimsókna.
• Móttaka auglýsinga- og styrktarbeiðna.
• Samantektir og skýrslugerðir ásamt tilfallandi
aðstoð sem þarf í markaðsdeild.
Hæfni:
• Stúdentspróf.
• Góð mannleg samskipti.
• Skipulagshæfileikar.
• Sjálfstæð vinnubrögð.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
• Kunnátta í Word, Excel, Power Point ofl.
• Hæfni til að læra hratt.
Nánari upplýsingar um starfið gefur
markaösstjóri, Margrét Kr. Sigurðardóttir,
margret@mbl.is eöa starfsmannahald á virkum
dögum kl. 9-16.
Umsóknum skal skila til starfsmannahalds
Morgunblaðsins fyrir 10. júlí nk. Fariö er með
umsóknir sem trúnaðarmál.
Hjá Morgunblfiðmu stui f
r.tfirfsmoim HofutVuóöv
■ tarfa rúnilega 350
óðvat Moi nt inbifið'
Kaupvangsf
Ak U! Ov’l I Al Vflk ,
Morcjuntfl a ð i n s
Hólmavíkurhreppur
RjJK í samvinnu við
Svæðisskrífstofu málefna
fatlaðra Vestfjörðum
Aðstoðarskólastjóri!
Staöa aðstoöarskólastjóra við grunnskólann
á Hólmavík er laus til eins árs. í grunnskóla-
num eru um 90 nemendur í 8 bekkjardeildum.
Launahlunnindi eru í boði, auk þess sem
flutningsstyrkur er greiddur.
Umsóknarfrestur er til 14.júlí 2000.
Nánari upplýsingar gefa:
Victor Örn Victorsson aðstoðarskólastjóri
h.s. 451-3262, farsími 862-3263
Birna Richardsdóttir formaður skólanefndar
h.s. 451-3177.
T ónlistarkennarar!
Staða tónlistarkennara við Tónlistaskóla
Hólmavíkur og Kirkjubólshreppa er laus til
umsóknar. ( starfi tónlistarkennara felst
almenn tónlistarkennsla, kennsla tónmenntar
við grunnskólann, auk þess er möguleiki á
starfi organleikara og kórstjórn við Hólmavíkur-
kirkju. Umsóknarfrestur er til 14. júlí 2000.
Nánari upplýsingar gefa:
Victor Örn Victorsson aðstoðarskólastjóri
h.s. 451-3262, farsími 862-3263
Birna Richardsdóttir formaður skólanefndar
h.s. 451-3177.
Þroskaþjálfar!
Skemmtilegt starf í Strandasýslu
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Vestfjörð-
um óskar eftir þroskaþjálfa til starfa. Starfið
felur í sér yfirumsjón með þjónustu við fatlaða
í Strandasýslu. Leitað er að einstaklingi með
þroskaþjálfamenntun, reynslu eða menntun á
sviði stjórnunar.
Starfshlutfall er samkomulagsatriði.
Framundan er spennandi uppbyggingarstarf í
málefnum fatlaðra í Strandasýslu sem krefst
góðrar faglegrar þekkingar og mikillar skipu-
lagshæfni. Starfsumhverfið er spennandi og
er mikii áhersla lögð á samvínnu og mark-
vissa fræðslu og stuðning í starfi.
Nánari upplýsingar um starfsumhverfi, kaup
og kjör gefur Laufey Jónsdóttir framkvæmda-
stjóri í síma 456-5224.
Umsóknarfrestur er til 14. júlí 2000. Umsókn-
areyðublöð liggja frammi á Svæðisskrifstofu
Vestfjarða að Hafnarstræti 1,400 ísafirði.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum
fjármálaráðuneytisins og Þroskaþjálfafélags
(slands.
Hólmavík er um 450 manna sjávarþorp í Stranda-
sýslu, 270 km frá Reykjavík sem byggir aðallega á
sjávarútvegi og þjónustu. Hómavík hefur margt að
bjóða lifsglöðu fólki. Á staðnum er mjög góð aðstaða
til iðkunar iþrótta t.d. skiðagöngu, vélsleðaaksturs,
jeppaferða, golfiðkunar, gönguferða og veiðiferða.
Einnig eru frábær aðalbláberjalönd við bæjardyrnar.
Grunnskólinn er einsetinn, góð heilbrigðisþjónusta,
heilsdags leikskóli, og svo mætti lengi telja. Hafir þú
áhuga á einhverjum af þessum störfum endilega
hafðu samband.
Sif í Kaupmannahöfn
vantar barnapíu
Dönsk fjölskylda leitarað ungri stúlku frá miðjum
ágúst næstkomandi til þess að passa hana Sif,
sem er 10 mánaða gömul. Við hjónin erum
blaðamenn og störfum hjá danska útvarpinu.
Við búum í stóru einbýlishúsi í Kaupmannahöfn
og við eigum marga íslenska vini.
Þú þarft að hafa áhuga á börnum og mátt gjarn-
an kunna svolítið í dönsku.
Hafðu samband við okkurtil að fá nánari upp-
lýsingar. Þú getur hringt í Karin og Jan í síma
45 3833 3305 eða sent tölvupóst til ian@dr.dk.