Morgunblaðið - 02.07.2000, Síða 19

Morgunblaðið - 02.07.2000, Síða 19
MQRGUNBLAÐIÐ SUNNUpAGUR 2. JÚLÍ 2000 E 19 Sauðárkrókur - verslun Til sölu verslunar-/skrifstofuhúsnæði, 270 fm, við aðaigötuna. Mjög stór lóð fylgir eigninni með mikla möguleika. Laust nú þegar. Upplýsingar í síma 453 5090. \^~—mmmmm—mmmmmm—mmmmmmmmmmJ Fasteignasala Rótgróin fasteignasala í fullum rekstri ertil sölu af sérstökum ástæðum. Góð aðstaða og tæki til rekstrar. Vinsamlegast sendið nafn og símanúmertil auglýsingadeildar Mbl., merkt: „F — 9828". Hárgreiðslustofa Til sölu hárgreiðslustofa á besta stað á Egilsstöðum. Vorum að fá í sölumeðferð rekstur Hársnyrtistofu Hönnu Stínu sem er í fullum rekstri og í eigin 70 fm hús- næði í verslunarmiðstöð Egilsstaða. Frá- bært viðskiptatækifæri. Allar nánari upplýsingar eru á: Fasteigna- og skipasölu Austurlands ehf. í síma 470 2205. PJONUSTA Eignaskipti ilf Ráðgjöf ehf Almenn tækniþjónusta fyrir húseigendur Gerð eignaskiptayfirlýsinga Sími5886944 GSM 696 6944 Ármúla 21 • 108 Reykjavík • fax 588 6945 s M Á A U G L V S 1 IM Œ < u FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í dag kl. 14.00. Héðinsgötu 2, s. 533 1777 Fjölskyldusamkoma kl. 17 Hilmar Kristinsson og Linda Magnúsdóttir þjóna. Jesús er sá sami í dag og fyrir 1.000 árum! Beðið fyrir sjúkum. Þriðjudagskvöld kl. 20.00 Biblíukennsla. Fíladelfía Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Kristnitökuhátíð á Þingvöllum. Vegna Kristnitökuhátíðar falla niður samkomur f Fíla- delfíu sunnudaginn 2. júlí. Gefðu Kristi gaum á kristnihátíð — mættu á Kristnitökuhátíð. Mán.: Marita samkoma kl. 20.00. Mið.: Biblíulestur kl. 20.00. Lau.: Bænastund kl. 20.00. Bænastundir alla virka morgna kl. 06.00. www.gospel.is Miðvikudagskvöld kl. 19.00 Alfanámskeið. Miðvikudagskvöld kl. 20.00 Stuðningsfundur Sóknar gegn sjálfsvígum. 7.—16. júlí Styrkur unga fólks- ins í Menntaskólanum við Sund. freedom@centrum.is Aðalstöðvar KFUM og KFUK, Holtavegi 28. Samkoman fellur niður vegna kristnihátíðar. Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Samkoma ■ kvöld kl. 20:00. Komum og njótum nærveru Drottins. Högni Valsson predikar. Brauðsbrotning. Allir hjartanlega velkomnir. „Ákvæði Drottins eru sannleikur, eru öll réttlát." www.vegurinn.is KROSSINN Sunnudagur: Samkoma frjálsu trúfélaganna á þingpalli neðan við Lögberg á Þingvöllum kl. 17. Þriðjudagur: Samkoma kl. 20.30 undir blessun Guðs. Miðvikuudagur: Bænastund kl. 20.30 Fimmtudagur: Unglingarnir kl. 20.00 Laugardagur: Samkoma kl. 20.30. www.cross.is KIRKJA JESÚ KRISTS hinna Síðarí daga heilögu sabraut2 Garðabæ Sunnudaginn 2 júlí verður samkoma kirkjunnar i kærleikskrók á Þingvöllum á railli Hótel Valhallar og aðaihátíðarsvæðis frá klukkan 16:00 tíl 17:00 Vestur-íslendingar óska tengsla við ættingja sína her heima, sjá www.kristur.net RKJAN l/iítirirk fríkirkja Bíldshöfða 10 Samkoma fellur niður vegna kristnihátíðar á Þingvöllum. verkið á nýrrí öld hlutvcrkid{á boltnail.com TILKYNNINGAR Aruteiknimiðillinn Guðbjörg Guðjónsdóttir tekur í einka- tíma. Teikna áru eða leiðbeinanda, gef andlegar og veraldlegar upp- lýsingar. Uppl. í síma 897 9509. Sálarrannsóknarfélag íslands Sálarrannsókn- arfélagið Sáló 1918-2000. Garðastræti 8, Reykjavík Gönguferð og hugleiðsla mánudaginn 3. júlí, kl. 20.00 verður farin stutt göngu- og hucjleiðsluferð í umsjá Friðbjarg- ar Óskarsdóttur. Allir velkomnir. Hittumst bakvið Olís bensínstöð- ina í Mosfellsbæ. SRFÍ. DULSPEKI Lífsins sýn Viltu skynja fortíð, nútið og framtíð? Uppl. og tímapantanir f sím- um 561 6282 og 692 0882. Geirlaug. EINKAMÁL Einkamál Hávaxinn og unglegur þýsk-kan- adískur karlmaður á sextugsald- ri, á fallegt hús og bíl, hefur góðar tekjur, engar skuldir, mjög "aktrfur". Drekkur hvorki né reyk- ir. Langar að kynnast yngri konu til að dekra við (ekki eldri en 40 ára). Vinsamlegast sendið bréf, með mynd, til: George Guggenberger, 44 Lismar Cr., Winnipeg Mb. R3RIN6, Kanada. Netfang: georggugg1@home.com I : Nöfn skipta máli Krítarkort Nöfn skipta miklu máli á Krít, þau móta manninn og eru hluti af per- sónuleika hans. Hlín Agnarsdóttir kynnti sér nafnvenjur Krítverja og af hverju akis er einatt hnýtt við eft- irnafnið. NIKOS er eitt algengasta karlmannsnafnið í Grikklandi og á Krít. Það er stytting úr nafninu Nikolaous sem eig- inlega þýðir Sigurður. Sigurður er líka eitt algengasta nafnið á íslandi. Á skrifstofunni hér í Kato Stalos eru þrír Nikosar. Til að aðgreina þá er best að nota eftir- nöfnin þeirra. Þá heita þeir Lambaþakis, Christolakis en sá þriðji heitir Lúpasis. Þegar þessi nöfn eru skoðuð nánar kemur í Ijós að fyrstu tvö enda á akis eins og reyndar flest öll eftimöfn hér á Krít. Endingin akis á eftimöfnum er einkennandi fyrir Krítveija og þannig þekkjast þeir úr í eftimafnaflórunni. Akis er smækkun- arending í grísku. Ef akis er bætt aftan við orð eða nafn þýðir orðið eitthvað pínulítið minna. En „nóta bene“ ak- is er nefnifall í karlkyni og síðan er til nokkuð sem heitir ávarpsfall sem er mikið notað í grísku tungumáli, þann- ig að þegar áðumefndir Nikosar em ávarpaðir með eft- imafni er sagt Lambaþaki og Christolaki. En hvers vegna skyldu mennimir allir hafa þessa smækkunarendingu aftan við eftirnafn sitt? Jú, það er sko saga að segja frá því. Þegar Tyrkir réðu Krít mættu þeir mikilli andspymu af hálfu íbúanna sem gerðu þeim flest til miska. Krítverjar vom stilltir og prúðir á dag- inn, en drápu og stálu á nóttunni. Tyrkir áttu fullt í fangi með að bijóta þá á bak aftur. Þeir vissu sem var að Krít- verjar bára fjölskyldunöfn sem þeir vora afar stoltir af. Ein leiðin til að niðurlægja þá og brjóta niður sjálfsvirð- ingu þeirra var að neyða þá til að bæta akis aftan við fjölskyldunöfnin. Fátt er jafn niðrandi og útúrsnúning- ur eða afbökun á nafni manns. Nöfn skipta nefnilega máli, þau móta manninn og era hluti af persónuleika hans. Smám saman vöndust Krítverjar þó þessum nafnagiftum Tyrkja og í dag eru þeir flestir akis og sátt- ir við það, nema þeir sem búa í Sfakia á suðurströndinni, þessir bláeygðu og herskáu sem ég ætla einmitt að heimsækja um helgina. Það sem einkennir þá er sjálf- stæði í hugsun,frjáls andi og stolt göngulag. Þeir létu Tyrki aldrei slá sig niður enda heita þeir ennþá Pol- endas og Koutroupas svo dæmi sé tekið. Það era ekki bara fjölskyldunöfnin sem skipta máli á Krít og í Grikklandi, heldur skiptir fomafnið svo miklu máli að allir eiga sinn nafndag, sem er mikilvægari en afmælisdagurinn. í dag er nafndagur Apostolis og allir sem heita því nafni halda því upp á hann. Morguninn byrjaði á því að Apostolis Maragouakis, samstarfsmað- ur minn hér í Hania, kom inn á skrifstofuna með stóran kassa fullan af dísætum konfektkökum sem hann bauð öllum að smakka. Landar hans óskuðu honum til ham- ingju með orðunum „kronja pola“, en það þýðir: Þú lengi lifi. Apostolis er eitt af mikilvægustu nöfnum sem gefin em á þessum slóðum, því sá sem ber slíkt nafli ber um leið nöfn allra postulanna tólf. I kringum nafndag Apostolisar em ýmis hátíðahöld í kirkjum og kapellum, en nafndagamir em orþodox-siður, þ.e. hluti af helgi- haldi rétttrúnaðarkirkjunnar. Flestöll fomöfn Grikkja era dýrlinganöfn og dýrlingamir em ýmist ættaðir úr heiðnum eða kristnum sið, heita þá nöfnum gamalla guða eða postulanöfnum, svo ekld sé minnst á nöfn þeirra sem fómuðu lífi sínu fyrir trúna í árdaga kristn- innar. Á nafndögum skemmtir fólk sér með fjölskyldu og vinum og sumir dagar, eins og t.d. 21. maí, er mikill partídagur, því þá er nafndagur allra þeirra sem heita Konstantín og Eleni sem em ein algengustu nöfn Grikkja. Eleni var móðir Konstantíns, fyrsta keisarans í Býsans við Bosporussund, en Býsans hlaut síðan nafnið Konstantínópel eða borg Konstantíns. Þar voru höfuð- stöðvar austur-rómverska ríkisins eftir að Rómaveldi klofnaði á 4. öld eftir Krist. Austur-rómverska ríkið hét öðm nafni Býsantíska veldið og hafði gífurlega áhrif á alla menningu við austanvert Miðjarðarhaf allt til ársins 1456 þegar ottomanska heimsveldið tyrkneska lagði Grikkiand undir sig. Já, nöfn skipta máli, ekki bara fyrir menn og líf þeirra, heldur einnig fyrir borgir, lönd og ríki. Stærstu nafndagamir em auðvitað í kringum al- gengustu nöfnin og sumir þeirra tengjast stórhátíðum og helgidögum eins og 15. ágúst sem er dagur heilagrar Maríu guðsmóður. Þá er einnig nafndagur Maríu, en einungis þeirra sem em giftar. Nafhdagur hinnar ógiftu Maríu er aftur á móti 21. nóvember. Nafndagur Nikola- ousar er 6. desember. Þá er ferðamannavertíðin búin og eins gott þurfa ekki að úða í sig dísætu konfekti snemma morguns frá þeim öllum þremur, Lambaþaki, Christol- aki og Loupasi. #Dagbók Háskóla ísiands DAGBÓK Háskóla íslands 3.-9. jú- lí. Allt áhugafólk er velkomið á fyrirlestra í boði Háskóla íslands. Itarlegri upplýsingar um við- burði er að finna á heimasíðu há- skólans á slóðinni: http:// www.hi.is/stjorn/sam/dagbok.html Mánudaginn 3. júlí kl. 16:00 flyt- ur dr. Malcolm S. Pringle frá rannsóknastöð skosku háskólanna í East Kilbride erindi á vegum jarðeðlisfræðistofu Raunvísinda- stofnunar háskólans og Jarðfræða- félags íslands í stofu 104 í Haga, Hofsvallagötu 53. Erindið, sem nefnist „Variation in crustal accr- etion, modelled as function of Icelandic Rift cycle, not pulsating plume“ byggist m.a. á nýlegum al- dursgreiningum á íslensku bergi. Fimmtudaginn 6. júlí kl. 12:05 til 13:00 flytur Sigríður Hafsteins- dóttir, BS-nemi, lokafyrirlestur í hádegisfundaröð Lífeðlisfræði- stofnunar á vormisseri 2000, til heiðurs próf. Jóhanni Axelssyni sjötugum. Fyrirlesturinn er um glákulyf og samdráttargetu og slökun í portæðum og verður flutt- ur í kaffistofu á 5. hæð í Lækna- garði, Vatnsmýrarvegi 16. Sýningar Árnastofnun , Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði við Suðurgötu. Hand- ritasýning er opin kl. 14-16 þriðju- daga til föstudaga, 1. sept. til 15. maí og kl. 13-17 daglega, 1. júní til 31. ágúst. Unnt er að panta sýn- ingu utan reglulegs sýningartíma sé það gert með dags fyrirvara. Þjóðarbókhlaða Reykjavík í bréfum og dagbók- um. Sumarsýning safnsins 10. júní til 31. ágúst Á sumarsýningu safnsins, Reykjavík í bréfum og dagbókum, verður varpað ljósi á líf alþýðufólks í Reykjavík á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar með sér- stakri áherslu á hlutskipti ís- lenskra alþýðukvenna og um leið verða kynntar á nýstárlegan hátt þær heimildir sem varðveittar era á handritadeild Landsbókasafns Islands - Háskólabókasafns. Markmið verkefnisins er að veita almenningi innsýn í hugar- heim alþýðu- og yfirstéttarkvenna í gegnum bréf þeirra og skyggnast ennfremur í dagbækur alþýðu- fólks. Sýningin verður að hluta til sett upp í tveimur stofum. Annars vegar stofu alþýðufólks frá síðari hluta 19. aldar og hins vegar stofu yfirstéttarfólks frá sama tíma. í báðum tilvikum verður gengið út-- frá heimili Jóns Borgfirðings og fjölskyldu hans en um það heimili eru til fjölmargar heimildir. Hug- myndin er að leggja sérstaka áherslu á líf fjögurra kvenna sem allar tengjast ættarböndum (al- þýðustofa) og tveggja karla sem tengjast konunum sem bræður og synir (yflrstéttarstofa). Dagbækur fimm ólíkra einstakl- inga í Reykjavik verða dregnar fram og fjallað um þær í máli og myndum. Aukinn áhugi ungra fræðimanna á bréfum og dagbók- um, sem eru varðveitt í handrita- deild safnsins, er kveikjan að þess- ari sýningu. Ástu Sigurðardóttur minnst, Kvennasögusafn Islands minnist Ástu Sigurðardóttur með sýningu á verkum hennar í Þjóðarbók- hlöðu. Á sýningunni eru meðal annars nokkur málverka Ástu og dúkristur sem hún myndskreytti smásögur sínar með. Þá verða einnig til sýnis kynngimögnuð mannspil sem hún teiknaði á ár- unum 1960-1963. Fyrirmyndir spilanna eru þjóð- sagnapersónur, forynjur og galdramenn. Þar má meðal annars sjá Miklabæjar-Solveigu með rýt- ing í hendi og opið sár á hálsi og*">- Djáknann á Myrká. Sýningin mun standa í forsal þjóðdeildar Landsbókasafns ís- lands - Háskólabókasafns 31. maí til 31. ágúst. Hún er opin á sama tíma og þjóðdeild í sumar, þ.e. frá kl. 9-17 virka daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.