Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 B 3
KNATTSPYRNA
Fimm marka tap
ISLENSKA stúlknalandsliðið, skipað leikmönnum 17 ára og
yngri í knattspyrnu, lék fyrsta leik sinn á Opna Norður- _
landamótinu í gær, en mótið fer fram í Oulu í Finnlandi. ís-
lensku stúlkurnar mættu Þjóðverjum í sínum fyrsta leik og
máttu þola tap, 6:1.
Það var Ijóst allt frá upphafí að þýska liðið var mjög sterkt.
Það sótti hratt á það íslenska sem svaraði fyrir sig með því að
leggja fyrir það hveija rangstöðugildruna á fætur annarri. Á
um 15 mínútna leikkafla brást rangstöðugildran hvað eftir
annað auk þess sem allt féll þýska liðinu í vil og það setti fjög-
ur mörk á 14 minútna kafla.
Ragnhildur Skúladóttir þjálfari stappaði stálinu í lið sitt í
leikhléinu og leikur liðsins var allur annar og betri en hann
hafði verið í fyrri hálfleik. Meiri áhersla var Iögð á það að
verjast aðeins aftar á vellinum og við það fór bitið úr skyndi-
sóknum Þjóðveija. Þeim tókst engu síður að skora fímmta
mark sitt áður en Rakel Þormarsdóttir skoraði eina mark fs-
lands í leiknum. Markið kom á 74. mínútu með glæsilegu skoti
af um 35 metra færi, yfir markvörð þýska liðsins sem hafði
hætt sér of langt út úr marki sínu. Þýska liðið skoraði svo síð-
Það var Guðmundur Steinarsson,
markahæsti leikmaður íslands-
mótsins, sem tryggði Keflvíkingum
sætan sigur en hann
Guðmundur skoraði sigurmarkið
Hilmarsson úr vítaspyrnu 8 mín-
skrifar útum fyrir leikslok.
Gunnar Einarsson braut þá klaufa-
lega á Guðmundi og Gylfi Orrason
dómari sem var vel staðsettur benti
umsvifalaust á vítapunktinn. Þetta
var fjórði leikurinn í röð sem KR-
ingar fá dæmda á sig vítaspyrnu og
það eitt sýnir að menn þar á bæ eru
ekki með fulla einbeitingu.
KR-ingar áttu >
að fá víti
Gylfi, sem dæmdi leikinn annars
nokkuð vel, sást hins vegar yfir brot
í vítateig Keflvíkinga skömmu áður
þegar Jóhann Þórhallsson var tog-
aður niður. Það sveið KR-ingum
eðlilega í leikslok og engum meira
en Pétri þjálfara sem vandaði
dómarastéttinni ekki kveðjumar
eftir leikinn
KR-ingar höfðu klárlega undir-
tökin í leiknum og þá einkum í síðari
hálfleik en gekk ekki vel að skapa
sér færi enda Keflavíkurvörnin vel á
verði. Keflvíkingai- léku mjög
skynsamlega. Þeir lágu frekar aftar-
Morgunblaðið/Jim Smart
Keflvíkingar fögnuðu vel og innilega í búningsklefa sínum eftir sigurinn gegn KR í gær. Hér stíga Þórarinn Kristjánsson, Paul Shep-
ard, Liam O’Sullivan og Zoran Ljubicic léttan sigurdans.
lega og beittu snörpum skyndisókn-
um og upp úr einni slíkri kom fyrsta
mark leiksins á 39. mínútu. Jóhann
Benediktsson átti glæsilega send-
ingu frá vinstri kanti fyrir markið og
þar stökk Hjálmar Jónsson hæst og
skallaði laglega í markið.
í seinni hálfleik hertu KR-ingar
takið á gestum sínum og uppskáru
mark stax eftir 10 mínútna leik. Eft-
ir þunga sókn skaut Victor Victors-
son að marki Keflvíkinga, Gunnleif-
ur Gunnleifsson varði en hélt ekki
knettinum og Jóhann Þórhallsson
var fyrstur að átta sig og skoraði af
stuttu færi. Það sem eftir lifði leiks-
ins sóttu KR-ingar oft og tíðum
nokkuð stíft en náðu ekki að finna
smugur á varnarmúr Keflvíkinga.
KR-liðið var að leika á köflum
ágæta knattspymu en einhvern veg-
inn falla hlutimir ekki með liðinu
þessa dagana. Slæmt gengi að und-
anfömu er greinilega farið að hafa
áhrif á sjálfstraustið í liðinu og
stemmningin í hópnum langt frá því
að vera sú sama og í fyrra. Einar
Þór Daníelsson lék best KR-inga og
hvað eftir annað skapaði hann usla
með góðum rispum sínum upp völl-
inn. Bjarni Þorsteinsson og Sigþór
Júlíusson áttu ágætan leik og Hauk-
ur Ingi var sprækur í síðari hálfleik.
Það þarf samt engan snilling til að
sjá að eitthvað er að í herbúðum KR
og sjálfsagt velta margir stuðnings-
menn vesturbæjarliðsins fyrir sér
hvað sé til ráða. Keflvíkingar léku
þennan leik af mikilli skynsemi. Þeir
léku vamarleikinn af stakri prýði
þar sem Liam O’Sullivan átti stór-
leik en hann hélt Andra Sigþórssyni
í heljargreipum nær allan tímann.
Zoran Ljubicic og Gunnar Oddsson
vom klókir á miðvæðinu og mið-
herjaparið Hjálmar Jónsson og Guð-
mundur Steinarsson héldu varnar-
mönnum KR-inga vel við efnið.
Meistar-
amir falln
MARTRÖÐ KR-inga á knatt-
spyrnuvellinum heldur áfram en
tvöfaldir meistarar síðasta árs
máttu sætta sig við að falla út úr
16-liða úrslitum bikarkeppninni
í gærkvöldi þegar þeir töpuðu á
heimavelli fyrir Keflvíkingum,
2:1. Þetta var fimmti leikur
vesturbæjarliðsins í röð án sig-
urs og annar tapleikur þeirra
röndóttu á KR-vellinum í jafn-
mörgum leikjum og ekki verður
annað sagt en að mikili vand-
ræðagangur herji á ísiands-
meistarana. Hvort þessi vand-
ræðagangur leiði til þess að
Pétur Pétursson þjálfari verði
látinn taka poka sinn skal ósagt
látið en nokkuð víst má telja að
farið sé að hitna undir honum.
ir úr leik
„Dómarinn gaf þeim leikin
BRÚN Péturs Péturssonar, þjálfara KR, var þung í leikslok. Hann
var afar óánægður með dómgæsluna í leiknum og einnig leikað-
ferð Keflavíkur. Gunnar Oddsson, fyrirliði Keflavíkur, var heldur
léttari í lund og ánægður með baráttu sinna manna enda Keflavík
frægt fyrir mikla baráttu í bikarkeppninni.
rátt fyrir að KR-ingar hafi spilað
ágætan sóknarleik uppskáru
þeir ekld það sem þeir vonuðust eftir.
Pétri þjálfara vai-því
mikið niðri fyrir í
frísiBjörk le“- _
Eysteinsdóttur „Domannn sleppti
tveimur vítaspyrnum
sem við hefðum átt að fá og hann gaf
þeim leikinn eins og er búið að gerast
núna í þremur leikjum í röð hjá okk-
ur. Mér finnst það alveg til háborinn-
ar skammar hvemig þessir dómarar
geta látið. Þeir eru ekki lélegir heldur
eru þeir hreint og beint hlutdrægir.
Mér finnst þetta alveg út í hött hjá
Gylfa (Orrasyni), svona reyndum
dómara. Hann horfði á þegar rifið vai’
í skyrtuna hans Jóhanns (Þórhalls-
sonar), en sleppti því að dæma víti en
síðan gaf hann þeim víti alveg um leið,
nákvæmlega eins og á móti Grindavík
og Fram sem var algjörlega út í hött,“
sagði Pétur sem sparaði síst stóru
orðin í garð dómarastéttarinnar.
„KR var betra liðið allan leikinn.
Það eina sem Keflavík gerði var að
negla einhverjum sendingum fram,
með einn framherja, meðan við vor-
um að reyna að spila fótbolta. Mér
fannst mínir strákar standa sig mjög
vel og eiga miklu meira skilið. Sigurð-
ur Örn (Jónsson) tognaði lítillega á
æfingu í gær og gat því ekki verið
með en það komu þama tveir ungir
strákar inn, Victor (Victorsson) og
Jóhann og stóðu sig mjög vel,“ sagði
Pétur í leikslok. Sigurður Öm tognaði
á læri á æfingu í fyrrakvöld og vildi
ekki hætta á að meiðslin versnuðu í
leiknum.
Sætt að vinna KR tvisvar
Það var heldur léttari brúnin á
Gunnari Oddssyni, íyrirliða Keflavík-
ur, í leikslok.
„Ég er mjög ánægður með að
leggja KR-ingana á útivelli. Þeir
komu sem grenjandi ljón og vom ör-
ugglega að spila einn sinn skásta leik í
sumar. HeÚladísirnar voru okkar
megin í þessum leik og við stóðumst
álagið í restina og svona eru bikar-
leikir - baráttuleikir og kannski
minna fyrir augað. Leikið var fast og
það var slatti af færum.“
Hvað fannst þér um vítaspymu-
dóminn?
„Ég sá það nú ekki almennilega en
Gylfí var í góðri aðstöðu til að sjá það.
Þeir hefðu getað fengið víti þegar ég
hélt í Jóhann en þeir (dómararnir)
sáu það ekki og svona er bara boltinn.
Dómarinn sér ekki allt og gerir mis-
tök eins og leikmennimir. Mér fannst
Gylfi ekkert vera að dæma neitt með
okkur í þessum leik.“
Nú hafíð þið unnið KR tvisvar í
sumar, hvað hefur skapað þessa
sigra?
„Mér fannst \ið vera að spila
kannski einn okkar sterkasta leik í
sumar, þegar litið til vamarleiksins.
Gunnleifui’ (Gunnleifsson) var náttúr-
lega mjög traustur í markinu íyrir
aftan. I fyrri hálfleik vomm við að
sleppa inn fyrir þá og voram óheppnir
að vera ekki búinir að setja mark.
Þeir vora að sækja á fimm til sex leik-
mönnum í seinni hálfleik þannig að
það var á brattann að sækja fyrir
okkur. Nú eram við komnir í átta liða
úrslit og mér þætti vænt um að fá
heimaleik.“
6) 9) 14
16) 25) 28
BÓNUSTÖLUR
Söluland
1. vinnings
var Noregur
p \ Alítaf á
w ) oJJ miövikudðgum
Upptý&ktgar
f s/ma S80 2525
TextavarpíÚ 110-113
RÚV281,283 00 284
I
01. 07. 2000