Morgunblaðið - 04.07.2000, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 B 7
ÍÞRÓTTIR
Tilkomu-
mikill akstur
Coulthards
DAVID Coulthard sýndi fádæma baráttuvilja er hann vann sig fram
úr báðum ökuþórum Ferrari-liðsins og ók til glæsilegs sigurs í
franska kappakstrinum í Magny Cours. Fór hann fyrst fram úr Ru-
bens Barrichello og eftir nokkrar atlögur að Michael Schumacher
vann hann fyrsta sætið af honum en svo tvísýnt var teflt og
Schumacher ósamþykkur því að gefa eftir að hjól þeirra snertust.
IKVOLD
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
Kolbeinn Sigþórsson, Víkingi, var útnefndur besti leikmaður Shell-mótsins og hann var einnig
markakóngur - skoraði 25 mörk.
Viktor, sem æft hefur fótbolta í 6
ár, sagði að þessi viðurkenning væri
honum mikil hvatning og hann
myndi æfa sig meira og vonandi
komast í atvinnumennskunna í fram-
tíðinni. „Mínar fyrirmyndir í fótbolt-
anum eru Mark Bosnich hjá Man-
chester United, Atli Knútson hjá
Breiðabliki og svo Birkir Kristinsson
hjá ÍBV.“
Toppar mótið
„Það er virkilega gaman að hafa
verið valinn besti leikmaðurinn á
mótinu en þetta kom ekkert rosalega
mikið á óvart,“ sagði Kolbeinn Sig-
þórsson, Víkingi, eftir að hafa hamp-
að bikamum fyrir að vera besti leik-
maður mótsins. „Það er búið að vera
gaman á mótinu og þessi viðurkenn-
ing toppar mótið eiginlega," sagði
Kolbeinn, sem jafnframt var marka-
hæstm' á mótinu í ár með 25 mörk.
„Það er alltaf gaman að skora mörk
en það vantaði nokkur mörk upp á að
ég skyldi ná að slá markametið því
þá hefði ég unnið veðmál við bróður
minn.“ En bróðir Kolbeins er hinn
markheppni leikmaður KR í efstu
deild, Andri Sigþórsson. Kolbeinn,
sem æft hefur fótbolta í 5 ár, sagði að
bróðir sinn væri sín fyrirmynd í fót-
boltanum og kannski yrði hann betri
en hann í framtíðinni. En það verður
tíminn að leiða í ljós og það verður
gaman að fylgjast með þessum
hressa og skemmtilega strák í fram-
tíðinni.
Áfram Víkingur
„Við ætluðum okkur að vinna
þetta mót,“ sögðu þeir Örn Ingi
Bjarkarson, Oliver Ómarsson og
ívar Marino Kristjánsson sem allir
eru í A-liði Víkings sem sigraði á
mótinu í ár. En kom þetta þeim á
óvart? „Ja, nei, eiginlega ekki,“ sagði
Oliver og félagar hans tóku undir.
„Við erum líka með besta liðið,“
sagði Örn Ingi. Þeir félagar eru bún-
ir að æfa fótbolta í fimm til sjö ár og
þeir eru á því að halda áfram og spila
með landsliðinu eins og Ivar Marino
sagði; „Ég ætla að verða mikið betri
en ég er og spila með landsliðinu í
marki,“ en ívar Marino er einmitt
markmaður í meistaraliði Víkinga.
Þeir félagar héldu áfram að fagna
með félögum sínum í liðinu og heyra
mátti fagnaðaróp eins og „We Are
The Champions" og „Áfram, áfram,
áfram Víkmgur..."
Drengimir héldu síðan heim á leið
á sunnudagskvöldið sælir og ánægð-
ir eftir stranga knattspyrnutöm í
Eyjum. Kannski hafa markmiðin
sem þeir settu sér fyrir mótið gengið
upp og kannski ekki en þá er bara að
standa sig enn betur og gera betur
að ári liðnu. Og hver veit nema
markmiðið eigi eftir að verða að
veruleika?
KNATTSPYRNA
Sigur Coulthards markar tíma-
mót hjá McLaren því liðið hafði
ekki unnið franska kappaksturinn
frá því hann fluttist til Magny Cours
1991. Kappaksturinn var mjög
spennandi frá fyrstu mínútu er
Schumacher og Barrichello beittu
samspili gegn Coulthard á þann veg
að Barrichello komst fram úr Skot-
anum inn í fyrstu beygju. Réði Ferr-
ari því fyrstu tveimur sætunum
framan af en Coulthard gerði hverja
atlöguna að Barrichello af annarri og
komst á endanum fram úr á 22.
hring.
Hóf Coulthard þegar eftirför eftir
Schumacher og dró hann ört uppi.
Að því kom að hann lagði til atlögu
við hann og var það eins og fyrr í
Adeleide-hárnálarbeygjunni sem
hann vann sætið af Barrichello. Á
endanum knúði Coulthard Schuma-
cher til undirgefni, í byrjun 40.
hrings af 72, og eftir það jók hann
forskot sitt jafnt og þétt.
Mika Hakkinen komst á endanum
einnig fram úr Schumacher en í þann
mund fór vélin í Ferrari-bílnum og
stjarna liðsins féll úr leik. Ekki hefur
verið skýrt frá hvað gerðist en ein
kenningin er að Schumacher hafi
sjálfur eyðilagt vélina með því að
skipta niður í of lágan gír er hann ók
inn í sömu beygju og hann varð að
sjá á eftir Coulthard fram úr sér í.
Hakkinen var tekinn að sækja mjög
að honum og virtist Ferrari-fákurinn
rása til að aftan er hann nálgaðist
beygjuna rétt eins og gírað hefði ver-
ið of langt niður með þeim afleiðing-
um að gírinn hafi ekki ráðið við snún-
ingsálag mótorsins.
Hafi sú verið raunin hefur
Schumacher gerst sekur um sjald-
gæf ökumannsmistök en hann getur
huggað sig við að mistök af þessu
tagi felldu Hákkinen í Monza-kapp-
akstrinum í fyrra.
í beinni útsendingu þýsku sjón-
varpsstöðvarinnar RTL frá kapp-
akstrinum hrósaði Niki Lauda, fyrr-
verandi heimsmeistari í Formúlu-1,
akstri Coulthards í brautinni; tók of-
an fyrir honum húfu sína og sagði
hann hafa ekið af einstakri fullkomn-
un, ekki síst er hann tók fram úr
Schumacher og áður Barrichello.
Viðureign Ferrari og McLaren
var að þessu sinni háð á kappakst-
ursbrautinni sjálfri en ekki í bensín-
og dekkjastoppum. Og kappakstur-
inn snerist einvörðungu um keppni
þessara tveggja liða; virðist sem
mótið ætli að þróast á annan veg en í
fyrra er Jordan-bílarnir blönduðu
sér í baráttu þeirra bestu og Heinz-
Harald Frentzen átti möguleika á
heimsmeistaratitli ökuþóra er aðeins
'tvö til þrjú mót voru eftir. Hann hef-
ur átt erfitt uppdráttar í ár og er ein-
ungis búinn að vinna 5 stig eða
tveimur fleira en nýliðinn Jenson
Button hjá Williams.
Með sigrinum í Magny Cours
minnkaði Coulthard forystu
Schumachers í stigakeppninni um
heimsmeistaratitil ökuþóra um 10
stig en jók jafnframt eigin forystu á
félaga sinn Hákkinen. Hefur
Schumacher 56 stig, Coulthard 44,
Hákkinen 38, Barrichello 32.
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
Víkingar, efri röð, urðu sigurvegarar í flokki A-liða, með því að leggja Blika, neðri röð, að velli.
Coca Coia-bikarkeppni karla
(Bikarkeppni KSÍ)
Garðabær: Stjarnan-FH...............20
Víkin: Víkingur - Valur.............20
Landssfmadeild
(Efsta deild kvenna):
Kópavogur: Breiðablik - Stjaman.....20
KR-völlur: KR-Valur.................20
3. deild karla:
Akranes: Bruni - Þróttur V..........20
Djúpivogur: Neisti - Huginn/Höttur..20
Fáskrúðsf.: Leiknir - Þróttur N.....20
Helgafellsv.: KFS - Haukar..........20
1. deild kvenna:
Ásvellir: Haukar - AftureyFjölnir...20
Keflavík: RKV-ÞrótturR..............20
KAPPAKSTUR/FORMULA 1
Rush og Southall með Þrótti
Ian Rush og Neville Southall, fyrr-
um landsliðsmenn Wales og fræg-
ir leikmenn með Liverpool og Ever-
ton á sínum tíma, taka þátt í
sýningarleik með Þrótturum í
Reykjavík fimmtudaginn 13. júlí í
Laugardalnum. Þeir mæta þar ís-
lensku stjörnuliði skipuðu leikmönn-
um á borð við Pétur Pétursson og
Atla Eðvaldsson.
Með Þrótti spila einnig margir
fyrrverandi leikmenn liðsins, svo
sem Willum Þórsson og Þorsteinn
Halldórsson, og þá er talið líklegt að
núverandi þjálfari Þróttara, Ásgeir
Elíasson, taki þátt í leiknum.
Rush kemur til landsins á sunnu-
dag og verður hér í eina viku vegna
knattspyrnuskóla Þróttar sem hann
á aðild að. Southall verður hér með
námskeið fyrir markverði á sama
tíma.
David Griffiths, yfirþjálfari yngri
flokka Þróttar, sagði við Morgun-
blaðið að enskir fjölmiðlar fylgdust
vel með komu Ians Rush hingað til
lands og Sky News fréttastofan
myndi gera íslandsför hans góð skil.
Þróttarar höfðu hug á að fá Rush
og Southall til að spila með þeim
gegn Sindra í 1. deildinni 14. júlí en
að sögn Griffiths hafa þau áform ver-
ið lögð á hilluna.
Bikarstemmning í Víkinni
Víkingur
- Valur
í kvöld kl. 20
tfQn Mætum öll og styðjum okkar menn.
Knattspyrnudeild Víkings