Morgunblaðið - 16.07.2000, Side 8

Morgunblaðið - 16.07.2000, Side 8
8 E SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ HHHHHI >. O 3 < FJARREIÐUSTJORI FJARMALADEILD REYKJAVÍKURBORGAR Reykjavíkurborg óskar eftir að ráða fjárreiðustjóra í fjármáladeiid. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viökomandi geti hafið störf fljótlega. Starfssvið: • Sjóðsstýring. Annast skammtíma lántökur og/eða fjárfestingar borgarsjóðs. Mánaðarleg sjóðsvelta borgarsjóðs er um 1,5 milljarðar króna. • Lánastýring/áhættustýring. Fjármáladeild annast erlendar lántökur fyrir borgarsjóð og fyrirtæki borgarinnar. • Gerð greiðsluáætlana. • Umsjón með innheimtum borgarsjóðs. • Annast fjárhagslegan frágang á samningum vegna eignakaupa og sölu. • Starfsmannastjórnun. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, hagfræði eða sambærileg menntun. • Haldgóð tölvuþekking og kunnátta til að nýta upplýsingakerfi sem stjórntæki. • Góð tungumálakunnátta. • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. • Færni í mannlegum samskiptum. • Kappsemi og metnaðurtil að ná árangri. í boði eru krefjandi og áhugaverð verkefni, góð vinnuaðstaða og möguleiki á endurmenntun. Nánari upplýsingar veita Herdís Rán Magnúsdóttir og Lóa Ólafsdóttir hjá Ráðgarði frá kl. 10-12 í síma 533 1800. Vinsamlegast sendið umsóknirtil Ráðgarðs fyrir 30. júlí n.k. merktar: „Reykjavíkurborg - fjárreiðustjóri í fjármáladeild" fjýtí og öflugt félag á sviði mjólkuriðnaðar óskar eftir að ráða framleiðslustjóra til starfa á Akureyri 'WMí Á liðnu ári keypti Kaupfélag Eyfirðinga alla hluti í MSKÞ ehf. jafnframt stofnaði KEA um síðustu áramót hlutafélag um starfsemi sína í mjólkuriðnaði - MSKEA ehf. Á þessu ári munu félögin tvö ásamt félagi í eigu mjólkurbænda - Granir ehf. renna saman í eitt og öflugt sameinað fyrirtæki sem mun hafa starfsemi á Akureyri og Húsavík. Sameiginleg velta hins nýja fyrirtækis mun verða um 2,2 milljarðar og er fjöldi starfsmanna um 100. Þetta nýja fyrirtæki mun vinna úr u.þ.b. fjórðungi mjólkur í landinu. Framleiðslustjóri í sameinuðu fyrirtæki í mjólkuriðnaði Starfssvið • Dagleg skipulagning og stjórnun framleiðslu • Yfirumsjón með innkaupum • Ábyrgð á framleiðslugæðum • Nýtingar- og kostnaðareftirlit • Þátttaka f stefnumótandi ákvörðunum f fyrirtækinu Menntunar- og hæfniskröfur Lengra nám mjólkurfræðinga ásamt reynslu af framleiöslu- stjórnun eða rekstrarverkfræði/tæknifræðimenntun Reynsla úr matvælaiðnaðinum æskileg Frumkvæði og metnaður til aö ná árangri i starfi Góðir stjórnunar- og skipulagshæfileikar Hæfni f mannlegum samskiptum Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veita Ágúst Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri MSKEA og MSKÞ, agust.thorbjornsson@simnet.is , sími 864 0662 og Heiðrún Jónsdóttir, starfsmannastjóri KEA, heidrun@kea.is i síma 460 3438 og 895 2556 Vinsamlegast sendið umsóknirtil MSKEA, bt. Heiðrúnar Jónsdóttur Hafnarstræti 91-95, 600 Akureyri, fyrir mánudaginn 31. júlf nk. sÉÉÉifc Utanríkisráðuneytið Hjúkrunarfræðingar Störf í Kosovo og Bosníu-Hersegóvínu Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingum til starfa með friðargæslusveitum Atlantshafsbanda- lagsins í Kosovo (KFOR) og Bosníu-Hersegóv- ínu (SFOR). Gert er ráð fyrir að ráðningartíminn verði sex mánuðir og að viðkomandi hefji störf í septem- ber á þessu ári. Leitað er að duglegum, samviskusömum ein- staklingum sem geta unnið sjálfstætt við erfið- ar aðstæður, eiga auðvelt með að umgangast aðra og taka leiðsögn. Nauðsynlegt er að við- komandi hafi reynslu af störfum á bráðamót- töku eða gjörgæslu, gott vald á ensku og hafi mikla aðlögunarhæfileika. Umsóknir með upplýsingum um menntun, fyrri störf, tungumálakunnáttu og meðmæl- endur sendist utanríkisráðuneytinu, alþjóða- skrifstofu, Rauðarárstíg 25,150 Reykjavík. Um- sóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðu- blöðum. Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí 2000. Upplýsingar um kaup og kjör veitir Auðunn Atlason á almennri skrifstofu utanríkisráðu- neytisins. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, nema annað sé sérstaklega tekið fram í um- sókninni. Fyrri umsækjendur sem vilja koma til greina eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Utanríkisráðuneytið. Mosfellsbær Fræðslu- og menningarsvið. Hefur þú áhuga á að vinna með kraft- miklu fólki að metnaðarfullu skólastarfi í ört vaxandi bæjarfélagi? Varmárskóli 1,- 6. bekkur. Vestursetur. Enn vantar okkur sérkennara, sem jafn- framt hefur umsjón með sérkennslu í útibúi Varmárskóla, Vestursetri. Einnig leitum við að grunnskólakennara til að annast almenna kennslu yngri barna e.h. Upplýsingar gefur Jóhanna Magnúsdótt- ir, útibússtjóri, s. 586 8200, hs. 566 8166, GSM 864 0111. Gaanfræðaskólinn í Mosfellsbæ. 7. —10. bekkur Kennara vantar enn í ensku og textíl- mennt, 100% stöður. Einnig leitum við að forfallakennara í 50% starf. Upplýsingar gefur Ragnheiður Ríkharðs- dóttir, skóiastjóri, í síma 566 6186 eða hs. 566 6688. Laun grunnskólakennara eru skv. kjara- samingum Launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ/HÍK. Einnig er í gildi sérsamningur milli grunnskóla- kennara og Mosfellsbæjar. Mosfellsbær er tæplega 6.000 íbúa sveitarfélag. Mikil upp- bygging hefur átt sér stað f skólum bæjarins á síðustu árum og ríkjandi er jákvættog metnaðarfullt viðhorftil skólamála. I bænum er rekið öflugt tómstunda- og íþróttastarf við góðar aðstæður. Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar veitir skól- anum faglega þjónustu og ráðgjöf jafnframt því sem hún aðstoðar við nýbreytni- og þróunarstarf og stendur fyrir simenntun fyrir kennara. Skólafulltrúi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.