Morgunblaðið - 16.07.2000, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 E 15
REYKXALUNDUR
Iðjuþjálfun
— Reykjalundur
Aðstoðarmaður: Óskum að ráða aðstoðar-
mann í iðjuþjálfun sem fyrst. Um er að ræða
fjölbreytt starf sem gefur góða innsýn inn í
starfsemi á iðjuþjálfunardeild. Gotttækifæri
fyrir þá, sem vilja kynna sér iðjuþjálfun með
nám í huga, sem og þá sem hyggja á nám í
öðrum heilbrigðisgreinum.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Ingvarsson,
yfiriðjuþjálfi, í síma 566 6200.
Bónusvídeó
auglýsir eftir aðila til að sjá um rekstur einnar
af myndbandaleigum sínum í Reykjavík,
Um er að ræða mjög skemmtilegt og spenn-
andi starf með mikilli ábyrgð og vinnu. Starfið
felur í sér umsjón með öllum daglegum rekstri,
s.s. innkaupum, skipulagningu vakta o.fl.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir samhenta fjöl-
skyldu.
Áhugasamir sendi upplýsingar um aldur, fyrri
störf o.fl. til afgreiðslu Mbl. fyrir 27. júlí merkt-
ar: „Bónusvídeó — 9873".
Ath.: Ekki eru gerðar kröfur um að viðkomandi
hafi reynslu af afgreiðslu og/eða rekstri á
myndbandaleigu.
Bónusvídeó.
Fasteignasala
— sölumaður
Öflug og lifandi fasteignasala leitar að dugleg-
um sölumanni. Við leitum að aðila, sem ertil-
búinn til að leggja sig fram um að ná árangri
í starfi. Viðkomandi þarf að eiga auðvelt með
að umgangast fólk. Við störfum í lifandi um-
hverfi þar sem nóg er að gera og mjög góð
laun í boði fyrir duglegan sölumann.
Ef þú ert að leita að áhugaverðu starfi, þar sem
reynirá alla þætti í mannlegum samskiptum,
þá er þetta starfið.
Umsóknum skal skila til auglýsingadeildar
Mbl., merktum: „Fasteignasala — 9898".
Kennarar óskast
Af sérstökum ástæðum vantar okkur kennara
að Grunnskólanum í Breiðdalshreppi næsta
skólaár. Um erað ræða blandaða kennslu, þó
mest á yngsta aldursstigi. Kostur væri að við-
komandi gæti sinnt íþróttakennslu að auki.
Upplýsingar gefur Ómar Bjarnþórsson, skóla-
stjóri, í síma 475 6696 eða 855 3533.
Einnig má spyrjast fyrir um starfið á skrifstofu
Breiðdalshrepps í síma 475 6660.
Prentari — prentnemi
Vantar góðan prentara eða mann sem unnið
hefur við prentun. Til greina kemur að taka
prentnema.
Alprent Glerárgötu 24, Akureyri,
símar 462 2844 og 896 6844 (Einar).
Vél- eða iðnfræðingur
óskast
Ketilþjónustan ehf. óskar eftir vél- eða iðnfræð-
ingi til að annast þjónustu og stillingar á kötl-
um. Um er að ræða nýtt og krefjandi starf fyrir
sjálfstæðan og metnaðarfullan einstakling.
Starfið felur í sér ferðalög innanlands og er-
lendis. Uppbygging Ketilþjónustunar er í sam-
starfi við Cochran Boilers sem bjóða upp á
þjálfun og námskeið í stillingum og viðhaldi
á kötlum. Unnið verður með nýjustu og bestu
tæki sem völ er á.
Ketilþjónustan ehf. er stofnuð árið 1999 af Vélaverk ehf.
verkfræðiþjónustu og Vélsmiðjunni Hamar ehf.
Störf á kaffihúsi
Óskum eftir að ráða tvær reyklausar manneskj-
ur til að sjá um lítið kaffihús á móti hvor ann-
arri. Þetta er lítið kaffihús með litlu umstangi,
staðsett í Intersport. Vinnutími kl. 10-14 eða
14-18/19 og annar hver laugardagur kl. 10-16.
Tilvalið fyrir þá, sem vilja komast út á vinnu-
markaðinn og hafa gaman að vera innan um
fólk. Allur aldur kemur til greina.
Umsóknir á skrifstofu frá kl. 10-17 virka daga.
Intersport ehf.
„Au pair"
— San Francisco
Læknishjón óska eftir „au pair" sem fyrst til
að gæta barna og til léttra heimilisstarfa.
Æskilegur aldur 20 ára eða eldri og sé reyklaus
og ábyrg. Uppl. í síma 554 5504 eftir kl. 17.00.
Skóverslun
við Laugaveg
óskar eftir starfskrafti, ekki yngri en 25 ára.
Þarf að byrja 1. september nk.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 21. júlí, merktar: „Reyklaus — 9887."
Au—pair Þúskaland
íslensk fjölskylda í Hamborg óskar eftir au pair
til að gæta 5. ára drengs frá og með 24. ágúst.
Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður og reglu-
samur og ekki yngri en 19. ára. Vinsamlegast
hafið samband í síma 00-49-40-6473535 (Erna)
eða sendið E-mail á hilmar@de.is.is.
Framleiðslustjóri
Kjötiðnaðarfyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
óskar eftir að ráða framleiðslustjóra sem fyrst.
Reynsla af framleiðslustjórnun æskileg.
Áhugasamir leggi inn umsóknir á auglýsinga-
deild Mbl., merktar: „K — 9896", fyrir 20. júlí.
Kvenf ata versl u n
Starfskraft vantar við afgreiðslustörf í kvenfata-
verslun. Þarf að vera glaðlegur með góða þjón-
ustulund. Ekki yngri en 25 ára.
Svör sendist til auglýsingadeildar Mbl. merkt:
„K—9889" fyrir 21. júlí.
W AP !
wap.radning.is
'... '
Aukatekjur
Danskur athafnamaður leitar að áhuga-
sömu fólki í nýja og spennandi vinnu aó
heiman. Verður að tala dönsku og hafa
aðgang að tölvupósti. Pantið frían upp-
lýsingapakka. AH Gruppen, sími (0045)
72183440.
Versunarstjóri
Rafþjónusta Sigurdórs ehf óskar að ráða
verslunarstjóra
Starfssvið:
• Innkaup og sala á heimilistækjum og tengd-
um vörum.
Hæfniskröfur:
•Leitað er eftir framsæknum einstaklingi sem
sýnir frumkvæði.
• Haldgóð reynsla af sölu/ og markaðsmálum.
• Lipurð, þjónustulund og góðir samskipta/
og skipulagshæfileikar.
• Hæfileiki til að vinna sjálfstætt.
Umsóknir óskast sendar Rafþjónustu Sigurdórs
ehf pósthólf 215 300 Akranesi fyrir 29. júlí nk.
ATVIIMIMA ÓSKAST
Laus störf
Á skattstofu Norðurlandsumdæmis vestra
er laus til umsóknar staða deildarstjóra frafn-
taladeildar.
Umsækjandi þarf að hafa lokið prófi í lögfræði
eða viðskiptafræði og/eða hafa yfirgripsmikla
þekkingu og reynslu af skattaframkvæmd.
Góð tölvukunnátta áskilin.
Einnig er laust til umsóknar starf fulltrúa við
endurskoðun skattframtala.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi opinberra
starfsmanna.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skal skilað til Skattstjóra Norður-
landsumdæmis vestra, Túngötu 3, 580 Siglu
firði, fyrir miðvikudaginn 9. ágúst nk. sem jafn-
framt veitir nánari upplýsingar.
Siglufirði, 16. júlí 2000. •
Skattstjóri Norðurlandsumdæmis vestra.
Framtíðarstarf
Maður með víðtæka reynslu af rekstri og
stjórnun innan prentgeirans leitar að framtíðar-
starfi. Margt kemur til greina. Vinsamlega
leggið inn nafn og símanúmer á auglýsinga-
deild Mbl., fyrir 21. júlí merkt: „P — 9884".
Fullum trúnaði heitið og öllum svarað.
Fjölhæfur sjúkraliði
óskar eftir vel launuðu starfi. Ýmislegt kemur
til greina.
Áhugasamir sendi inn svör á auglýsingadeild
Mbl. merkt: „F-9878".