Morgunblaðið - 01.08.2000, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.08.2000, Qupperneq 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Stefán skoraði tvöáMön STEFÁN Þór Þórðarson skoraði tvö niörk og lagði upp það þriðja þegar Stoke City vann auðveldan sigur á 1 landsliði Manar, 5:1, í leik um þriðja sætið á æfinga- móti þar um helgina. Stefán átti einnig hjólhestaspymu í stöng og hann var sagður í besti maður vallarins. Lið Manar kom mjög á óvart á mótinu með því að sigra enska 1. deildarliðið Bum- Iey en átti aldrei möguleika gegn Stoke. Brynjar Bjöm Gunnarsson og Bjarni Guð- jónsson vom báðir í byijun- arliði Stoke og Kristján Sig- , urðsson kom inn á sem varamaður. ■ SELFYSSINGAR hafa náð sér í mikinn liðsauka fyrir lokasprettinn í 2. deildinni í knattspymu. Þeir hafa fengið til sín fimm nýja leik- menn á síðustu dögum og þar á meðal eru Enes Cogic, vamarmað- urinn reyndi úr Fylki sem lék tvo fyrstu leiki Árbæinga í efstu deild í sumar en hefur síðan verið frá vegna meiðsla, og skoski miðjumað- urinn John McLelIand sem lék með Selfyssingum á síðasta tímabili. ■ MIROSLAV Nikolic, sem hætti störfum sem þjálfari og leikmaður Selfoss á dögunum er hinsvegar genginn til liðs við 3. deildarlið Fjölnis. ■ KÁRI Jónsson, sem skoraði 14 mörk fyrir Víði úr Garði á síðasta tímabili, er kominn aftur til félags- ins. Kári hefur undanfamar vikur leikið með Skallagrími í 1. deild en er hættur þar. ■ SIGURÐUR Sigursteinsson, vamarmaður úr Fylki, er genginn til liðs við Skagamenn. Sigurður, sem er þrítugur Skagamaður, lék áður með ÍA en hann spilaði tvo leiki með Fylki í efstu deild snemma í sumar. ■ HEIÐAR Helguson skoraði ann- að marka Watford í 2:0 sigri á Bam- et um helgina. Heiðar hefur því skorað fjögur mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum með Watford á und- irbúningstímabilinu í Englandi. ■ ÓLAFUR Gottskálksson þótti besti maður vallarins, samkvæmt enskum fjölmiðlum, þegar lið hans, Brentford, tapaði fyrir Fulham, 2:0, um helgina. Olafur fór meiddur af velli korteri fyrir leikslok og spilar ekki næsta leik Brentford. Guðni fékk rauða spjaldið GUÐNI Bergsson var rekinn af velli eftir aðeins 24 mín- útna leik þegar lið hans, Bol- ton, beið lægri hlut, 1:0, fyrir Ólympíulandsliði Banda- rfly'anna í knattspymu í Indianapolis á sunnudaginn. Guðni sparkaði í mótherja meðþessum afieiðingum. Þetta var fjórða tap Bolton í fimm leikjum á undirbún- ingstímabilinu. Liðið tapaði þrívegis í Danmörku en vann Indiana Blast, 2:0, í Bandaríkjaför sinni. Þjóðhátíðarlakt ur Eyjamanna Skui Unnar Svemsson skrifar EYJAMENN fundur heldur bet- ur taktinn er þeir tóku á móti Fram á Hásteinsvelli á sunnu- daginn. Gestirnir fundu sig hins vegar aldrei gegn eld- sprækum heimamönnum og þegar flautað var til leiksloka í blíðunni í Eyjum höfðu heima- menn gert sex mörk en gest- irnir eitt. Eyjamenn töpuðu fyrir Stjörn- unni í umferðinni á undan og voru staðráðnir að gera betur en þá. Það í sjálfu sér var ekki erfitt verk því liðið var afskap- lega slakt í Garða- bænum. En það var allt annað upp á teningum í Eyjum á sunnudaginn og svei mér þá ef leikur liðsins minnti ekki einna helst á þegar Eyjamenn voru upp á sitt besta. Allir lögðu sig fram, hraðinn var mikill og hver sóknin af annarri skall á marki Fram og hefði Fjalar Þorgeirsson ekki verið í stuði í markinu er aldrei að vita hversu mörg mörkin hefðu orðið. Það þarf ekki að fara mörgum orð- um um leik gestanna og það kann ef til vill að hljóma furðulega eftir að liðið tapar 6:1 að segja að mark- vörður þess og miðverðir hafi verið sterkustu menn þess. Sú var engu að síður rauninn. Bjarni Geir Viðarsson reið á vað- ið með fyrsta markinu á 13. mínútu, Tómas Ingi Tómasson varð síðan að fara af velli eftir aðrar 13 mínút- ur, tognaði á hægra læri, en hann hafði staðið sig vel fram að þessu. Eftir hálfrar klukkustundar leik sleppti dómarinn því alfarið að dæma vítaspyrnu sem Eyjamenn áttu að fá þegar Steingrímur Jó- hannesson var togaður niður innan vítateigs. Steingrímur skoraði síð- an skömmu síðar með skalla eftir hornspyrnu og hann var aftur á ferðinni tveimur mínútum síðar, á 38. mínútu, er hann komst einn í gegn en Fjalar varði vel. Á sömu mínútu fengu Framarar fyrra færi sitt í fyrir hálfleik, er Ivar Jónsson átti skot fram hjá. Hitt fékk Kristófer Sigurgeirsson á 42. mínútu, en það var nóg um að vera á þeirri mínútu. Fyrst kom besta færi leiksins og Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson Steingrímur fagnaði þremur mörkum gegn Fram. Hér samfagna nokkrir félagar með honum. ef til vill sumarsins þegar Stein- grímur fékk langa sendingu inn fyrir vörn Fram, lék upp að víta- teig og var aleinn, ekki sála í nám- unda við hann. Fjalar kom út undir vítateigslínu á móti, Steingrímur tók gabbhreyfingu og Fjalar lagð- ist fyrir væntanlegt skot. I stað þess að leika fram hjá honum, eða vippa yfir hann þar sem hann lá, skaut Steingrímur beint í hann. Steingrímur skoraði annað mark sitt á sömu mínútunni áður en varnai-maður komst fyrir skot Kristófers. 3:0 í leikhléi. Eyjamenn réðu einnig gangi leiksins framan af síðari hálfleik. Sigurvin Ólafsson átti þó að fá víta- spyrnu í upphafi hans en dómarinn sá ekki ástæðu til þess. Fjórða mark ÍBV og sitt þriðja mark gerði Steingrímur á 53. mín- Sama hvað ég geri mörg mörk útu og við tók barátta á miðjunni þar sem Framarar fengu tvö þokkaleg færi sem ekkert varð úr. Eyjamenn virtust saddir, þægi- leg staða og öruggur sigur en á lokakaflanum dró til tíðinda á ný. Þorbjörn Atli Sveinsson minnkaði muninn fyrir Fram á 77. mínútu en Eyjamenn svöruðu með tveimur mörkum á síðustu mínútunum, fyrst Baldur Bragason og Bjarni Geir lauk leiknum eins og hann hóf hann, með marki. Eyjaliðið lék vel á sunnudaginn, vörnin var þétt og örugg lengst af, miðjan sömuleiðis með þá Mileta og Aleksic sem bestu menn og nú nýttu framlínumenn liðsins sér færin nokkuð vel þó svo Fjalar markvörður Fram hafi séð til þess að heimamenn komust ekki í tveggja stafa tölu. W ÍBV Leikskipulag: 4-4-2 Birkir Krístinsson m Fram Páll Almarsson m Hlynur Stefánsson mm Kjartan Antonsson m (Atli Jóhannsson 65.) Páll Guðmundsson m Goran Aleksic mm Bjami Geir Viðarsson m Hjalti Jónsson m (Baldur Bragason 69.) Momir Mileta mm Tómas Ingi Tómasson íslandsmótið í knattspyrnu Landssímadeild karla, 12. umt. Hásteinsvöllur sunnudaginn, 30. júlí. 2000 Aðstæðun Logn, sól og frábært veður Völlurinn glæsilegur. Áhorfendur: Um 900 Dómari: Kristinn Jakobsson, KR, 4. Aðstoðardómarar: Gísli H. Jóhannsson Magnús Þórisson Skot á mark: 25 - 7 Leikskipulag: 4-4-2 Fjalar Þorgeirsson gBgB Eggert Stefánsson_________ Ingvar Ólason___________JR Valur Fannar Gíslason gB Baldur Knútsson (Ásgeir Halldórsson 55.) Daði Guðmundsson__________ Steinar Guðgeirsson_______ Sigurvin Ólafsson_________ Kristófer Sigurgeirsson |B Ivar Jónsson (Hilmar Bjömsson 55.) (Jáhann Möller 26.) SteingrimurJóhannesson jH Ran2stöður_^^-0__ (ÞorbjömAtli Sveinsson46.) Homspymur: 5-3 Ronny B. Petersen Mér er alveg sama hvað ég geri mörg mörk, bara ef við vinn- um þá skiptir ekki máli hvað maður skorar mikið,“ sagði Steingrímur Jó- hannesson sem gerði þijú marka ÍBV á móti Fram. „Svona getum við leikið á heima- velli. Ef við byrjum strax af krafti þá getum við leikið vel. Varðandi úti- leikina þá þarf að laga eitthvað. Mér finnst bara að við eigum að leika eins á útivelli því við fáum það marga áhorfendur sem halda með okkur, völlurinn er jafn stór og mörkin líka þannig að þetta á ekki að vera neitt mál.“ Er ekki fínt að fá svona sigur fyrír Þjóðhátíðina? „Það er alltaf fjör á Þjóðhátíð, sama hvernig síðasti leikur fyrir hana fer. Það er alltaf nóg af fólki sem vill tala við mann, að vísu eru það þeir sem engan áhuga hafa á íþróttum sem vilja ræða við mann þegar illa gengur en þegar vel geng- ur eru það hinir. Þá sér maður hveij- ir eru tryggir stuðningsmenn," sagði Steingrímur alsæll með sigurinn og mörkin þijú. Aldrei haft eins mikið að gera „Ég held ég hafi aldrei haft eins mikið að gera í markinu," sagði Fjal- ar Þorgeirsson, markvörður Fram. Spurður hvort ekki sé svekkjandi að eiga góðan leik en fá engu að síður á sig sex mörk sagði Fjalar: „Jú, auð- vitað er það svekkjandi, en þegar maður fær hundrað skot á sig í leik þá hlýtur maður að ná að verja ein- hver skot. Svona er þessi bolti. Okk- ur tókst ekki að mæta eins vel stemmdir og við ætluðum og þeir voru mjög vel stemmdir, það vantaði eitthvað mjög mikið í leik okkar að þessu sinni.“ 1:0 (13.) Goran Aleksic komst upp að endamörkum hægra megin og gaf fyrir. Tómas Ingi Tómasson skallaði knöttinn aftur fyrir sig úr miðjum vítateignum og Bjami Geir Viðarsson negldi viostöðulaust í vinkilinn. 2:0 (36.) Momir Mileta tók hornspyrnu frá hægri, sendi yfir mark-teiginn á stöngina fjær þar sem Steingrímur Jóhannesson var aleinn og skallaði í friði og ró í markið. 3:0 (42.) Aleksic átti skot í varnarmann, Bjarni Geir náði frákastinu og skaut en Fjalar varði og boltinn barst til Steingríms sem skoraði af öryggi. 4:0 (53.) Aleksic var enn á ferðinni, sendi fyrir frá hægri, Steingrimur náði skoti sem Fjalar varði vel en hélt boltanum og ekki og Steingrími uðru ekki á nein mistök í seinni tilrauninni. 4:1 (77.) Kristófer Sigurgeirsson komst upp vinstra megin og renndi fyrir markið á Þorbjörn Atla Sveinsson sem skoraði af öryggi af stuttu færi. 5:1 (82.) Eftir enn eina sókn Eyjamanna fékk Baldur Bragason boltann á miðjum vallarhelmingi gestanna, lék í átt að vítateignum og skaut talsvert fyrir utan hann. Boltinn fór í varnarmann og í netið. 6:1 (84.) Mileta skaut föstu skoti utan teigs í varnarmann Fram. Boltinn barst til Bjarna Geirs sem skaut viðstöðulausus skoti neðst í bláhornið hægra megin. Gul spjöld: Hjalti Jónsson, ÍBV (17.) fyrir brot Ivar Jónsson, Fram (19.) fyrir brot Hlynur Stefánsson, IBV (59.) fyrir brot Sigurvin Ólafsson, Fram (79.) fyrir brot Rauð spjölBngin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.