Morgunblaðið - 01.08.2000, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
GOLF
MORGTJNBLAÐIÐ
Vonbríg
Karlalandsliðið í golfi varð í neðsta
sæti Norðurlandamótsins
KARLALANDSLIÐIÐ í goifi olli miklum vonbrigðum á Norður-
landamótinu. Menn höfðu gert sér vonir um góðan árangur en
þess í stað endaði sveitin í fimmta og neðsta sæti, fjórum högg-
um á eftir Norðmönnum og tuttugu höggum á eftir Svíum sem
urðu Norðurlandameistarar. Alls ekki sá árangur sem búist hafði
verið við og í raun er aðeins einn leikmaður landsliðsins, Þor-
steinn Hallgrímsson, sem lék af þeirri getu sem ætlast verður til
af landsliðsmönnum.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
á eftir Svíum.
léku íslensku
Það var í rauninni strax ljóst í
hvað stefndi því í fjórleiknum
á föstudagsmorguninn léku ís-
lensku strákarnir
verst allra ásamt
Norðmönum, og
voru þá strax
kpmnir sjö höggum
f fjórmenningnum
strákarnir á 208
höggum, fimm höggum verr en
Svíar og sjö höggum betur en
Norðmenn. Þegar búið var að
þurrka út versta skor alllra þjóð-
anna var ljóst að Svíar voru með
forystu á 329 höggum átta höggum
á undan íslendingum sem voru í
fjórða sæti, þremur höggum á und-
an Norðmönnum.
Menn voru þó alls ekki á því að
gefast upp heldur ætluðu að taka
sig tak og leika vel í höggleiknum
daginn eftir. Ekki gekk það alveg
eftir því Svíarnir juku forystu sína
og Norðmenn skutust upp fyrir ís-
lenska liðið, léku á sjö höggum
betur en það og fjórum höggum
betur í heildina. Mestu munaði frá-
bær hringur hjá Daniel Gallahen,
sem lék á 66 höggum, fjórum undir
pari vallarins. Gallahen þessi átti
að vera slakasti leikmaður norsku
sveitarinnar en þetta var hans
dagur og hann sá um að ísland
varð í neðsta sæti.
íslensku strákarnir eiga að geta
betur en þeir sýndu í Eyjum. Þeir
hafa margoft sýnt að þeir geta
leikið mun betur, en það er ekki
nóg, menn þurfa að sýna það þegar
á þarf að halda. Mestu munaði
slakur leikur þeirra í fjórleiknum
þar sem Þorsteinn og Ottó ljúka
leik á 66 höggum en hin pörin,
Björgvin og Orn Ævar og Olafur
Már og Ómar á 68. í fjórleik verða
menn að gera betur ætli þeir sér
að vera með í baráttunni. Fjór-
menningurinn var í lagi hjá ís-
lensku sveitinni og munaði þar
mestu um frábæran hring hjá Þor-
steini og Erni Ævari sem luku leik
á 64 höggum eða sex undir pari og
var það besti hringur dagsins. I
fjórmenningi leika pörin einum
bolta þannig að búast má við
nokkru hærra skori en í fjórleikn-
um. Svíar voru eina þjóðin sem lék
betur en íslendingar í fjórmenn-
ingnum og munaði þar öllu góður
leikur þeirra Þorsteins og Arnar
Ævars. Ólafur Már og Ómar komu
inn á einu yfir pari og Björgvin og
Ottó á þremur yfir pari og töldu
ekki.
í höggleiknum á laugardaginn
var í rauninni fátt um fína drætti
hjá íslensku sveitinni, Þorsteinn og
Ólafur Már komu báðir inn á pari
sem er svo sem allt í lagi en þó
ekki fyrir sveitina því aðrir léku
enn verr.
Björgvin lék á þremur yfir pari,
Örn Ævar og Ottó voru höggi þar
á eftir og Ómar náði sér alls ekki á
strik og lék á níu höggum yfir pari.
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundss
Þorsteinn Hallgrímsson reynir að hjálpa boltanum rétta leið í holuna.
Þorsteinn Hallgrímsson lék best í íslenska liðinu
Hefði viljað
leika svona og
vera verstur
ÞORSTEINN Hallgrímsson lék best íslensku strákanna á Norður-
landamótinu, en sumum fannst val hans í liðið orka tvímæiis. Þor-
steinn lét þá gagrýni sem vind um eyru þjóta og var sá eini sem lék
af eðlilegri getu alla þrjá hringina. Raunar lék Ólafur Már Sigurðs-
son einnig ágætlega en aðrir náðu ekki að sýna sitt rétta andlit.
Spenna hjá stúlkunum
ÞAÐ ríkti mikil spenna á golfvellinum í Eyjum á iaugardaginn þegar
stúlkurnar voru að Ijúka leik. Vitað var að staðan var mjög jöfn og
spurningin hvort það yrðu íslendingar, Norðmenn eða Svíar sem
myndu fagna sigri. Þegar allar stúlkurnar höfðu lokið leik og búið
var að telja öll höggin og draga frá lakasta skorið var Ijóst að Norð-
menn höfðu sigrað íslendinga með einu höggi og þær norsku fögn-
uðu fyrsta Norðurlandameistaratitli sínum en íslensku stúlkurnar
urðu að sætta sig við annað sætið, einu sæti hærra en á síðasta
Norðurlandamóti.
Fyrir síðasta hringinn á laugar-
deginum var staðan sú að Svíar
voru með 212 högg, ísland 215,
Norðmenn og Finnar höfðu notað
217 högg og Danir 218.
Þegar stúlkurnar höfðu lokið níu
af átján holum var staðan orðin
þannig að ísland, Noregur og Sví-
þjóð voru öll jöfn, Finnar fimm
höggum á eftir og Danir tveimur
höggum þar á eftir.
Spennan hélt áfram og þegar
stúlkurnar komu inn hver af annari
settust menn niður og reiknuðu út
stöðuna. Þegar fimm stúlkur voru
eftir að koma inn, ein frá hverri
þjóð, var staðan sú að Norðmenn
voru á 11 yfir pari að því að menn
töldu, Svíar 13 og íslendingar 15. Þá
var búið að draga versta skorið frá.
Besti leikmaður Norðmanna,
Suzann Petersen, var enn úti á velli
og var tvo yfir þannig að þá yrði
norska sveitin 13 yfir á hringnum og
alls á 440 höggum. Sænska stúlkan
sem var eftir að koma inn hafði
misst dampinn þannig að Svíar voru
ekki lengur inni í myndinni. Ragn-
hildur Sigurðardóttir var síðasti ís-
lenski keppandinn og hún var einum
undir eftir fyrri níu holurnar og
hafði haldið því að því er fréttir
hermdu. Þegar ljóst var að hún
kláraði á parinu var ljóst að ísland
hafði líka leikið á 440 höggum.
Nú fóru menn að velta fyrir sér
hvort fjórða manneskja teldi í síð-
asta hring eða hvort verstu hring-
irnir í fjórmenningnum og fjórleikn-
um frá deginum áður væru teknir
með. Það var alveg sama hvernig
þetta var reiknað fram og til baka,
Norðmenn voru alltaf sigurvegarar
þar sem lakasti hringur þeirra var
alltaf betri en íslensku stúlknanna,
nema í fjórmenningnum þar sem ár-
angurinn var jafn.
Þegar menn höfðu komist að
þessari niðurstöðu kom reiknimeist-
ari mótsins með rétt skor upp á
töflu í skálanum og þá kom í ljós að
þessar vangaveltur höfðu verið
óþarfar því skor Marianne Ruud,
sem lék í fyrsta ráshóp, hafði verð
ranglega fært inn á töfluna, hún
hafði leikið á 76 höggum en ekki 77
þannig að Norðmenn höfðu tryggt
sér sigur, léku á 439 höggum en Is-
lendingar á 440.
Það var ekki laust við að þungu
fargi væri létt af íslensku stúlkun-
um því þær mínútur sem liðu á með-
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundss
Eigum við að borða þetta? Finnska stúlkan Jenni Kuosa prófar
reyktan lunda eftir að hafa lokið leik og sænska stúlkan Anna
IVbring fylgist með.
an þessu fór fram höfðu mörg högg
flogið í gegum huga þeirra, ekki síst
yngsta keppandans, Kristínu Elsu
Erlendsóttur, sem taldi ekki síðasta
daginn og fannst greinilega að hún
hefði getað gert betur. En þrátt fyr-
ir að verða í öðru sæti, sem er besti
árangur liðsins í Norðurlandamóti,
voru stúlkurnar engu að síður von-
sviknar því það munaði svo litlu að
þeim tækist að sigra, aðeins tveimur
höggum því það hefði ekki verið nóg
að jafna við Norðmenn þar sem þeir
hefðu sigrað á betra versta skori.
Svíar urðu í þriðja sæti á 446
höggum, Finnar í því fjórða á 447
höggum og Danir ráku lestina á 455
höggum.
Þetta gekk vel hjá mér í dag allt
þar til ég kom á sextánda
teig. Ég var þrjá undir pari og var
farinn að sjá að ég kæmi inn á
fimm undir. Á sextándu ætlaði ég
að spila öruggt en dró boltann út í
sjó og fékk tvo yfir pari, par á
sautjándu og einn yfir á þeirri
átjándu með aulalegu þrípútti.
Ég var of grimmur í fyrsta pútt-
inu enda ætlaði ég að fá fugl. Þetta
högg á sextándu er auðvitað ekk-
ert annað en heiladauði. Ég var
ekki búinn að ákveða mér punkt til
að slá á og sló því ekki nógu
ákveðið, algjör byrjendamistök."
Nú ert þú búinn að spila manna
best í íslenska liðinu, ertu ekki
ánægður með það?
„Jú auðvitað er ég sáttur við
það, en ég hefði gjarnan viljað
spila betur. Eigum við ekki að
orða það sem svo að ég hefði verið
sáttur við að spila svona og vera
lélegastur í liðinu. Ég hefði að
sjálfsögðu viljað leika betur sjálfur
en ég hefði líka viljað sjá aðra
gera betur. Við eigum meira inni
en einhverra hluta vegna þá hökti
þetta hjá okkur núna.
Ég tel að í fjórleiknum á föstu-
dagsmorguninn höfum við tapað
hátt í tíu höggum, við verðum að
skora betur í þessu leikfyrirkomu-
lagi.
Undirbúningurinn var mjög góð-
ur, menn léku æfingahringina vel
og ég sé ekki skýringuna svona í
fljótu bragði. Völlurinn og veðrið
hefur verið eins og best verður á
kosið og ég held að þetta mót hafi
verið íslensku golfi til framdrátt-
ar.“
Hvað tekur við hjá þér núna?
„Ég fer til Reykjavíkur í fyrra-
málið til að fylgjast með krökkun-
um mínum í GR á unglingameist-
aramótinu. Svo er smá hvíld fram
að landsmóti nema hvað ég fer í
boðsmót í Hafnarfirði um næstu
helgi. Eigum við ekki að segja að
ég ætli að vera í heimsókn hjá
mömmu og pabba um næstu
helgi,“ sagði Þorsteinn sem stefnir
greinilega að því að láta sjá sig á
Þjóðhátíðinni í Eyjum.