Morgunblaðið - 01.08.2000, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
GOLF
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000 B 5
Ragnhildur Sigurðardóttir tiltölulega sátt við annað sætið á Norðurlandamótinu í Eyjum
Svekkjandi að ná ekki gullinu
„NÚ langar mig til að gráta,“
var það fyrsta sem Ragnhildur
Sigurðardóttir sagði þegar hún
hafði lokið leik og talið var að
Norðmenn hefðu sigur þrátt
fyrir að liðin væru jöfn. „Það er
auðvitað svekkjandi að ná ekki
markmiðinu - gullinu, og það
er ef til vill ennþá meira
svekkjandi af því það munaði
svo sáralitlu. Við náðum samt
öðru sæti og það er það besta
sem við höfum gert þannig að
maður ætti að vera þokkalega
sáttur,“ sagði Ragnhildur.
Við fengum upplýsingar úti á
velli um stöðuna og vissum
hvað þurfti að gera en ég var orðin
pínu svartsýn um tíma því ég vissi
að hinar stelpurnar voru ekki að
leika vel. Þetta var rosalega
spennandi og sérstaklega á meðan
verið var að reikna og finna út
stöðuna. Maður hugsaði um nokk-
ur högg sem hefðu getað farið bet-
ur, en ég lék það vel að það voru
ekkert rosalega mörg högg sem
komu upp í hugann, það voru þá
helst púttin því þau voru ótrúlega
mörg sem stoppuðu á blábrúninni í
stað þess að fara í.“
Það má segja að Ragnhildur sé
óopinber Norðurlandameistari
kvenna því hún lék best allra í
höggleiknum en ekki er lengur
keppt í einstaklingskeppni og því
ekki krýndur sigurvegari einstak-
linga. „Eg er auðvitað montin með
að hafa leikið best í dag því á síð-
asta Norðurlandamóti munaði einu
höggi á mér og þeirri sem lék best
þá, en núna hafði ég það og fór
upp um eitt sasti eins og liðið.“
fívar liggur þessi munur á okk-
ur og norska liðinu?
„Þegar á heildina er litið eru
þetta í rauninni lokaholurnar hjá
okkur öllum á föstudaginn. Það er
samt ekkert hægt að setja út á 66
högg hjá Herborgu og Ólöfu Maríu
í fjórleiknum. Við töpuðum fjölda
högga á síðustu holunum. Við
Rristín Elsa fengum til dæmis þrjá
skolla í röð á sömu holunum í fjór-
leiknum og það er alls ekki fyrir-
gefanlegt. Maður þarf að vera
grimmur við sjálfan sig til að halda
einbeitingunni því það er svo auð-
velt að gleyma sér. í fjórleiknum
og þó sérstaklega fjórmenningnum
þurfa menn að vinna vel saman og
reyna að rífa hver aðra upp.“
Þú lékst vel í dag, ertu ánægð
með hringinn hjá þér?
„Já, ég lék vel í dag, en ég ætl-
aði samt að gera betur. En það er
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundss
Ragnhildur setti vallarmet í
höggleiknum á laugardag-
inn, lék völlinn á pari.
ágætt að leika á pari því sam-
kvæmt forgjöfinni minni má ég
leika völlinn á 73 höggum þannig
að þetta er lækkun hjá mér. Mótið
tókst frábærlega og í raun ekkert
hægt að setja út á eitt eða neitt.
Jú, það er eitt sem ég get sett út á,
það er að tveggja manna ráshópur-
inn var ræstur út síðastur og lék á
eftir öllum þriggja manna hópun-
um. Ég var í þessum tveggja
manna ráshóp og við þurftum að
bíða við hvert einasta högg. Sem
betur fer kom það ekki niður á
skorinu."
Ragnhildur lék með dönsku
stúlkunni Julie Tvede, sem hafði
hagað sér heldur kjánalega daginn
áður en þá gerði hún talsvert af
því að lemja kylfum sínum í pok-
ann og blóta hressilega. „Hún tal-
aði nú um það, greyið, að þetta
hafi verið leiðinlegt á föstudegin-
um og hún var greinilega leið yfir
því. En hún er svo ung og á erfið-
um aldri.“
Hvað er framundan hjá þér?
„Ég afþakkaði boð um að fara á
Evrópumót einstaklinga vegna
þess að þetta er svo þétt og svo
langaði mig að sjá eitthvað af
börnunum mínum. Næsta mót hjá
mér er landsmótið og ég fer núna
eftir helgi norður í Skagafjörð til
vinafólks okkar og ætla að vera
þar í hestamennsku fram að lands-
móti. Settið verður með þannig að
ég hugsa að ég fari og æfi mig að-
eins þar. Síðan er heimsmeistara-
mót liða í Berlín og þangað fara
þrjár.
Ég er mjög sátt við það sem af
er sumrinu því ég hef spilað vel,
tapaði raunar síðasta stigamóti og
átti alls ekki skilið að vinna þar því
ég spilaði mjög illa. Ég tók upp á
því að slá allt til vinstri en nú er ég
búinn að finna réttu leiðina á ný.“