Morgunblaðið - 01.08.2000, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 01.08.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000 B 11 KNATTSPYRNA /T \ í BREKiABllK Breiðablik 5:0 Leiftur Leikskipulag: i* ■ ro Atli Knútsson P Árni K. Gunnarsson m Guðmundur Ö. Guðmundsson Andri Marteinsson m Hjalti Kristjánsson m Hreiðar Bjarnason m Hákon Sverrisson m Robert Russell m Kjartan Einarsson m (Guðmundur K. Guðmundss. 83. Bjarki Pétursson Kristján Óli Sigurðsson 71.) Marel J. Baldvinsson mm Magnús Páll Gunnarsson 83.) íslandsmótið í knattspyrnu Landssimadeild karla, 12. umf. Kópavogsvöllur sunnudaginn, 30. júlí. 2000 Aðstæður: Nánast logn, þurrt og skýjað, hiti um 12gráður. Völlurinn góður. Áhorfendur: Um 570 Dómari: Garðar Örn Hinriksson, Þrótti R., 3. , Aðstoðardómarar: ' Haukur Ingi Jónsson Ólafur Ingvar Guðfinnsson Skot á mark: 16-11 Hornspyrnur: 8-5 4-2 Leikskipulag: 5-3-2 Þorvaldur Jónsson m Steinn Viðar Gunnarsson Hlynur Birgisson______flt (Sergio Macedo 38.)______ Hlynur Jóhannsson Júlíus Tryggvason (Hörður Már Magnússon 57.) Þorvaldur S. Guðbjörnsson Páll V. Gíslason ftt Sámal Joensen Jens Erik Rasmussen (Albert Arason 69.) Alexandre Santos John Petersen 1:0 (12.) Júlíus Tryggvason átti slæma sendingu í eigin vítateig og Kjartan Einarsson tók við boltanum og skaut góðu skoti í fjærhornið. 2:0 (35.) Sókn Leifturs var brotin á bak aftur og Breiðablik komst í skyndisókn og það var Bjarki Pétursson sem lagði boltann fyrir fætur Marels J. Baldvinssonar sem skoraði af stuttu færi. 3:0 (55.) Brotið var á Marel í vítateig Leifturs og Hjalti Kristjánsson setti boltann í markið úr vítaspyrnunni, óverjandi fyrir Þorvald í markinu. 4:0 (81.) Atli Knútsson markvörður Breiðabliks spyrnti langt frá eigin marki og Marel J. Baldvinsson tók við boltanum og þurfti tvær tilraunir til að koma boltanum í mark Leifturs. 5:0 (87.) Robert Russell plataði nokkra varnarmenn Leifturs og gaf boltann frá endalínu út á Hreiðar Bjarnason sem skoraði af stuttu færi. Gul spjöld: Þorvaldur S. Guðbjörnsson, Leiftur (27.) fyrir brot Hlynur Jóhannsson, Leiftur (55.) fyrir mótmæli, Júlíus Tryggvason, Leiftur (55.) fyrir mótmæli, Páll V. Gíslason, Leiftur (55.) fyrir mótmæli, Steinn V. Gunnarsson, Leiftur (55.) fyrir mótmæli. Rauð spjöld: Engin. Morgunblaðið/Þorkell Þorvaldur Jónsson hafði nóg að gera f markinu hjá Leiftri. Marel kvaddi með tveimur mörkum LIÐ Breiðabliks sýndi hvað í því býr gegn slöku liði Leifturs frá Ól- afsfirði á Kópavogsvellinum á sunnudaginn og sigruðu heima- menn með fimm mörkum gegn engu. Fyrri leikur liðanna á Ólafs- firði endaði með 6:2 sigri Breiðabliks og var það jafnframt fyrsti sigur Breiðabliks á liði Leifturs í efstu deild. Kópavogsliðið hefur því skorað ellefu mörk í leikjum sínum gegn Leiftri í sumar og er það rúmlega helmingurinn af alls nítján mörkum liðsins. Marel Jóhann Baldvinsson, sókn- armaður Breiðabliks, lét mikið að sér kveða í kveðjuleik sínum með Breiðabliki. Marel var sem kunnugt er seldur til norska fé- skrifar lagsins Stabæk á dögunum og skoraði tvö mörk í síðasta leik sínum með Breiðabliki í sumar. Leiftur stillti upp fimm manna vöm í upphafi leiksins og átti í vök að veijast frá fyrstu mínútu leiksins. Þrátt fyrir að Breiðablik væri aðeins með þá Bjarka Pétursson og Marel í fremstu víglínu voru leikmenn Leift- urs lengi að breyta leikaðferð sinni. Fámenn miðja liðsins náði aldrei tök- um á leiknum og bakverðfr Breiða- bliks, þeir Hjalti Kristjánsson og Ámi Sigurður Elvar Þórólfsson K. Gunnarsson, fengu því mikið svæði á köntunum sem þeir nýttu sér vel. Júlíus Tryggvason, vamarmaður Leifturs, átti þó fyrsta færi leiksins er hann skallaði að marki Breiðabliks á 8. mínútu og var það fyrra marktæki- færi gestana í fyrri hálfleik. Áður- nefndur Júlíus Tryggvason kom síð- an aftur við sögu er hann sendi boltann klaufalega á Blikann Kjartan Einarsson í vítateig Leifturs og þakk- aði Kjartan fyrir sig með fyrsta marki leiksins á 12. mínútu. Leiftursmenn reyndu hvað þeir gátu til að jafna leikinn og voru í góðri sókn á 35. mín- útu sem vamarmönnum Breiðabliks tókst að brjóta á bak aftur. Þeir brun- uðu í skyndisókn og það var Bjarki Pétursson sem sendi boltann á Marel J. Baldvinsson sem skoraði annað mai-k leiksins. Marel var síðan aftur á ferðinni á 41. mínútu en Þorvaldur Jónsson markvörður Leifturs varði meistaralega. Annað marktækifæri Leifturs í fyrri hálfleik kom á 45. mín- útu en góður markvörður Breiða- bliks, Atli Rnútsson, varði þrumuskot Jens Eriks Rasmussens. Alexandre Santos framherji Leifturs hóf seinni hálfleikinn með tveimur ágætum fær- um og var Santos mun atkvæðameiri í seinni hálfleik en þeim fyrri. Vamar- menn Leifturs björguðu síðan á línu á 49. mínútu eftir að Hreiðar Bjamason skaut að marki. Hjalti Kristjánsson skoraði síðan þriðja mark Breiðabliks úr vítaspymu á 55. mínútu en áður höfðu Leiftursmenn mótmælt víta- spymudóminum og uppskorið Qögur gul spjöld frá Garðari Emi Hinriks- syni dómara. Leiftur sótti aðeins í sig veðrið eftir þriðja markið og á 63. mínútu skaut Santos föstu skoti úr aukaspymu sem stefndi í markvink- illinn en Atli sá við honum. Andartaki síðar skaut Hörður Már Magnússon boltanum í Atla fyrir opnu marki. Atli Knútsson markvörður var upphafs- Ætlum okkur lengra Sigurður Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, var að vonum glað- ur með stórsigur sinna manna. „Þetta var góður leikur hjá okkur og gríðarlega Sigurð Etvar mikilvæg stig sem Þórólfsson við fengum, við erum komnir aðeins lengra frá þessari fallbaráttu og ætlum okk- ur lengra upp á stigatöflunni. Það er auðvitað gleðilegt að Marel skyldi leika vel í kveðjuleiknum sínum en það skapar óneitanlega vandamál fyrir okkur að missa sterkan sóknar- mann, en maður kemur í manns stað og við fínnum það fljótlega út hver verður besta lausnin í þeim efnum. Við eigum erfitt verkefni fyrir hönd- um á fimmtudaginn en þá mætum við Fylki á heimavelli. Ef við tökum það jákvæða úr leikjunum að undanfömu getum við náð góðum úrslitum," sagði Sigurður Grétarsson. Góður endir Marel J. Baldvinsson fékk hlýjar kveðjur og gjafir er hann var kvadd- ur í leikslok af stuðningsmönnum Breiðabliks og félagar hans í liðinu köstuðu honum þrisvar hátt í loft upp í kveðjuskyni. „Þetta var góður endir hjá okkur, að vera í sigurliði og skora tvö mörk var ekki verra.“ Er ekki erfítt að skilja við Breiða- blik í neðri hluta deildarinnar og fara þegar liðið virðist vera að rétta úr kiitnum? „Ég geri ekki ráð fyrir öðru en að þeir eigi eftir að standa sig án mín. Það eru leikmenn sem hafa verið meiddfr sem eru að koma inn að nýju, til dæmis ívar Siguijónsson, þannig að ég hef ekki miklar áhyggjur af framhaldinu hjá Breiðablik. Nú tekur við nýtt og spennandi tímabil á mín- um ferli og ég hlakka til að takast á við það og ég held að útlitið sé bara nokkuð gott hjá gamla liðinu mínu, Breiðablik.“ Aldrei séð aðra eins vitleysu Hlynur Birgisson, leikmaður Leift- urs, fór mejddur af velli í lok fyrri hálfleiks. „Ég hef átt í vandræðum með tognun í lærvöðva og það lítur út fyrir að ég missi af næsta leik. Þetta var ekki góður leikur hjá okkur og mikill óstöðugleiki í leik liðsins, það þarf ekki neinn sérfræðing til að sjá það að við follum úr deildinni ef við bætum ekki leik okkar á næstunni,“ sagði Hlynur, fyrirliði Leifturs- manna. Hinn gamalreyndi markvörð- ur Leiftursmanna, Þorvaldur Jóns- son, tók stöðu Jens Martins Knudsens, en Jens Martin tók út leikbann vegna fjögurra gulra spjalda, og var Þorvaldur einn besti maður liðsins í leiknum. „Þetta var frekar dapurt hjá okkur í dag. Ég hafði trú á því fyrir leikinn að við myndum ná ágætis úrslitum hér í Kópavoginum þar sem liðið virtist vera í framför í leikjunum gegn Akra- nesi og Keflavík en síðustu tveir leikir hjá okkur hafa verið afspyrnu lélegir og markatalan úr þeim leikjum er 12 mörk gegn einu og það segir allt sem segja þarf. Mér fannst vítaspymu- dómurinn vera vafasamur og þegar þeir skora þriðja markið úr vítinu var þetta í raun vonlaust. Garðar dómari var nokkuð skondinn að mínu mati og gefur fjórum leikmönnum okkar gult spjald fyrir að rökræða vítaspymu- dóminn og ég hef aldrei séð aðra eins vitleysu hjá dómara, að áminna alla þá leikmenn sem standa í nágrenni við hann, þetta var hreint út sagt hlægilegt atvik,“ sagði Þorvaldur. maður að fjórða markinu sem Marel skoraði á 81. mínútu og Hreiðar Bjamason innsiglaði stórsigur Blika á 87. mínútu eftir mikinn einleik Roberts Russells, sem lagði markið upp. Lið Leifturs er ekki líklegt til af- reka á næstunni og virtist ekki hafa áhuga á því að vinna leikinn. Hug- myndasnauður sóknarleikur og illa skipulagður vamarleikur var það sem Leiftur bauð upp á og aðeins þeir Páll Viðar Gíslaon og Þorvaldur Jónsson léku af eðlilegri getu. Breiðablik stýrði leiknum frá upphafi og nýtti styrk sinn á alla vegu. Atli Knútsson var öruggur í markinu og varði vel og samspil bakvarða liðsins við þá Hreið- ar Bjamason og Kjartan Éinarsson var skemmtilegt. Marel J. Baldvins- son virtist geta gert það sem honum datt í hug. Ekki má gleyma vinnu- semi Roberts Russells og Hákonar Garðar oggulu spjöldin ÞAÐ vakti athygli í leik Breiðabliks og að Garðar Öm Hinriksson dómari leiksins gaf fjórum leikmönnum Leifturs gult spjald fyrir þær sakir að mótmæla vítaspymudómi á 55. mínútu leiksins. Frá blaðamanna- stúkunni virtist sem leikmenn Leift- urs væm í frekar saklausum sam- ræðum við Garðar dómara en skyndilega þreif hann upp gula spjaldið og allir leikmenn Leifturs sem stóðu í nágrenni við Garðar fengu áminningu. Þetta atvik er óvenjulegt og spumingin er hvort all- ir hafi átt það skilið að fá áminningu. Sverrissonar á miðjunni og Bjarki Pétursson var útsjónarsamur í fram- línunni með Marel. Andri Marteins- son lék vel í vöminni og átti nokkrar skemmtilegar rispur upp völlinn. Uppfýslngar Isíma 580 2525 TextavarpíÚ 110-113 RÚV281, 283 og 284 Þrefaldur vinningur í næstu viku Jókertölur vikunnar 9 3 9 8 6 Tívolitölur vikunnar 024988 034392 028318 538736 Næsta ferð farín 15.08.2000 16)23)44) BÓNUSTÖLUR 3J33 Söluland 1. vinningsins var Danmörk ■ Alltaf á i miðvikudögum 1. deild karla í Víkinni Víkingur - Valur í kvöld kl. 20 Mætum öll og styðjum okkar menn. W Knattspyrnudeild Víkings

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.